Morgunblaðið - 25.04.2004, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 112. TBL. 92. ÁRG. SUNNUDAGUR 25. APRÍL 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Fjölmiðla-
skýrslan
Fjölmiðlanefnd segir samþjöppun
á fjölmiðlamarkaði óæskilega 18
Tímaritið og Atvinna í dag
Tímaritið | Mataræði, hollusta og heilsupíramídinn Setglaðir
sófistar Frískandi frá Suður-Ítalíu Atvinna | Vinnumark-
aðsrannsókn Hagstofunnar Meistarar í pípulögnum
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 300
JOHN Kerry, forsetaframbjóðandi bandaríska
Demókrataflokksins, kveðst sammála þeim
markmiðum sem ríkisstjórn George W. Bush for-
seta hafi sett sér í málefnum Íraks, Mið-Austur-
landa og á vettvangi hryðjuverkavarna. Ágrein-
ingurinn snúist einkum um leiðir.
Kerry lét þessi orð falla á fundi með blaða-
mönnum á föstudagskvöld en samkvæmt skoð-
anakönnunum treysta mun fleiri kjósendur Bush
forseta en honum til að tryggja þjóðaröryggi og
leiða mál til lykta í Írak.
„Við eigum okkur sameiginlegt markmið og
það er fullnaðarsigur,“ sagði Kerry. „Og þið getið
treyst því að hryðjuverkamennirnir munu tapa,
sama hver sigrar í forsetakosningunum,“ bætti
hann við.
Kerry kvaðst ósammála þeim aðferðum sem
stjórn Bush beitti í baráttunni gegn hinni hnatt-
rænu hryðjuverkaógn. Hann kvaðst þeirrar
hyggju að það myndu reynast mikil mistök að
hverfa frá Írak áður en stöðugleika hefði verið
komið á í landinu. Hann kvaðst einnig sammála
forsetanum í málefnum Mið-Austurlanda og
sagðist styðja þá stefnubreytingu sem Bush
kynnti í liðinni viku þegar hann lýsti yfir stuðn-
ingi við áætlun Ísraela um brottflutning frá
Gaza-svæðinu og innlimun byggða landtöku-
manna á Vesturbakkanum.
Kerry lagði áherslu á að hann myndi ekki síður
en Bush reynast staðfastur leiðtogi yrði hann
kjörinn forseti. „Sem forseti mun ég aldrei hika
við að beita valdi Bandaríkjanna til að verja hags-
muni okkar hvar sem er í heiminum,“ sagði hann.
Kerry sammála Bush
Washington. AFP.
NÝ OG viðamikil rannsókn á lífsstíl
íslenskra barna á aldrinum níu og
fimmtán ára sýnir að íslensk börn
„eru meðal feitustu barna í Evr-
ópu“. Um 20% íslenskra barna á
þessum aldri töldust vera of feit eða
of þung en líkur benda til að hlut-
fallið sé í reynd nokkru hærra. Þá
bendir margt til þess að húðfell-
ingar íslenskra barna séu 20 til 30%
meiri en í nágrannalöndunum. Of
þung börn á Íslandi eru með lakara
þrek og hreyfa sig minna en þau
sem eru í kjörþyngd. Þetta eru
meðal helstu niðurstaðna rannsókn-
arinnar „Lífsstíll 9 og 15 ára Íslend-
inga“ sem kynntar voru á Íþrótta-
þingi ÍSÍ í gær.
„Mjög sláandi tölur“
Erlingur Jóhannsson, verkefnis-
stjóri rannsóknarinnar, segir að
hlutfall of feitra eða of þungra
barna sé á bilinu 12–14% í Dan-
mörku og Noregi á móti 20% hér á
landi.
„Þetta eru mjög sláandi tölur.
Menn verða einnig að hafa í huga
að við erum með 71% þátttöku í
rannsókninni þannig að hlutfallið er
eitthvað hærra og ég myndi telja að
við værum nær Bandaríkjamönnum
í þessum efnum en hinum Norð-
urlandaþjóðunum. Menn segja að
fjórða hvert barn á aldrinum 6–17
ára þjáist af offitu í Bandaríkjun-
um,“ segir Erlingur.
20% íslenskra barna of þung
Gæti orðið/4
FORSALA á tónleika Metallica hófst á há-
degi í gær en hljómsveitin leikur í Egils-
höll 7. júlí. Þeir Jón og Pétur vildu vera al-
veg vissir um að fá miða og slógu því upp
tjaldi á stéttinni við verslun Og Vodafone í
Síðumúla kl. 11 á föstudagskvöldið eða 13
tímum áður en sala átti að hefjast.
Slagveður var undir hádegi þegar
blaðamaður brá sér inn í tjald til þeirra en
Pétur og Jón voru þó hinir hressustu. Þeir
segjast vera harðir aðdáendur Metallicu
og hafi viljað vera vissir um að fá miða.
„Það var mjög kalt upp úr kl. 3 í nótt og
þá pöntuðum við okkur pítsu og átum
hana inni í tjaldinu. Og við erum með gítar
og vorum að spila eitthvað af Metallicu-
lögum. Tjaldið hélst þurrt þótt það rigndi
dálítið.Við vorum einir í röðinni þangað til
kl. sjö eða átta í morgun,“ sögðu Pétur og
Jón. „Við ætlum fimm saman á tónleikana.
Við eigum allt plötusafnið þeirra en höfum
aldrei séð þá á tónleikum,“
Morgunblaðið/Sverrir
Gistu í tjaldi í
Síðumúlanum
Forsala á tónleika Metallicu
LJÓST er orðið að heimsóknir erlendra
hljómsveita og listamanna hingað til lands
verða fleiri á þessu ári en dæmi eru um áð-
ur. Á næstu mánuðum verða haldnir hér á
landi ellefu stórtónleikar og þá ekki taldir
tónleikar á vegum Listahátíðar í Reykjavík
sem hefst í næsta mánuði.
Hljómsveitirnar og listamennirnir sem
leika hér á næstu mánuðum eru Kraftwerk,
Pixies, Korn, Kris Kristofferson, Deep
Purple, Metallica, Placebo og Pink, en ætla
má að áheyrendur á þessum tónleikum
verði ríflega 51.000 og samanlögð velta í að-
göngumiðum um 264 milljónir króna.
Aðgöngumiðar
á 264 milljónir
51.500 miðar/56
♦♦♦
RAUF Denktash (lengst t.h.), leiðtogi Kýpur-
Tyrkja, ávarpar fréttamenn í Nikosíu í gær eftir
að hafa greitt atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslu
um sáttatillögur Sameinuðu þjóðanna. Þær ganga
út á að svæði Kýpur-Tyrkja á norðurhluta eyj-
arinnar og Kýpur-Grikkja í suðurhlutanum verði
sameinuð í eitt ríki. Falli tillögurnar munu ein-
göngu Kýpur-Grikkir ganga í Evrópusambandið
1. maí. Um 600 þúsund manns voru á kjörskrá á
allri eynni.
Reuters
Kosningar á Kýpur
BANDARÍKJAMENN krefjast
þess að Ariel Sharon, forsætisráð-
herra Ísraels, haldi loforð um að
vinna Yasser Arafat Palestínuleið-
toga ekki mein. Sharon kvaðst í
viðtali við ísraelska ríkissjónvarpið
í vikunni ekki telja sér skylt að
standa við orð sín gagnvart George
Bush Bandaríkjaforseta um frið-
helgi Arafats. Ísraelar hafa undan-
farið drepið nokkra háttsetta liðs-
menn palestínskra hryðju-
verkasamtaka á borð við Hamas.
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, brást hart við orð-
um Sharons og tók fram að Bush
væri sama sinnis. „Forsetinn gaf
skýrt til kynna að hann myndi and-
mæla öllum slíkum aðförum gegn
Arafat og forsetinn er eindregið
þeirrar hyggju að Sharon hafi heit-
ið sér að ekkert slíkt yrði reynt,“
sagði Powell í viðtali við ABC-sjón-
varpsstöðina á föstudagskvöld. Áð-
ur sagði háttsettur embættismað-
ur í Bandaríkjastjórn að hún liti á
„loforð sem loforð“.
Í ísraelska ríkisútvarpinu hefur
einnig verið greint frá því að
Condoleezza Rice, þjóðaröryggis-
ráðgjafi Bush, hafi hringt í Dov
Weisglass, yfirmann skrifstofu
Sharons, og ítrekað afstöðu
Bandaríkjamanna. Rice minnti á
að Bandaríkin væru andsnúin öll-
um morðárásum á Arafat, að því er
sagði í ísraelska útvarpinu.
Skrifstofa Sharons staðfesti að
símtalið hefði átt sér stað en vildi
ekki staðfesta efni þess.
Bandaríkjastjórn
Arafat
verði ekki
unnið mein
Washington. AFP.