Morgunblaðið - 25.04.2004, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 25.04.2004, Qupperneq 2
FRÉTTIR 2 SUNNUDAGUR 25. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÍSLENSK BÖRN OF FEIT Íslensk börn „eru meðal feitustu barna í Evrópu“. Um 20% íslenskra barna á þessum aldri töldust vera of feit eða of þung en líkur benda til að hlutfallið sé í reynd nokkru hærra. Þá bendir margt til þess að húðfell- ingar íslenskra barna séu 20 til 30% meiri en í nágrannalöndunum. Þetta kemur fram í nýrri viðamikilli rann- sókn á lífstíl íslenskra barna á aldr- inum níu og fimmtán ára. Kerry sammála Bush John Kerry, sem ljóst er að verð- ur forsetaefni demókrata í kosning- unum í Bandaríkjunum í nóvember, segist vera sammála stefnu George W. Bush forseta í Írak, deilum Ísr- aela og Palestínumanna og varðandi baráttu gegn hryðjuverkum. Hins vegar greini þá á um leiðir að mark- miðunum. Kerry segir að það myndi vera mjög misráðið að draga banda- ríska herliðið frá Írak áður en kom- inn væri á stöðugleiki í landinu. Áhrif loftslagsbreytinga Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra og formaður Norðurskauts- ráðsins segir breytingar á loftslagi næstu áratugina munu snerta allar hliðar daglegs lífs. „Ef til vill höfum við ekki fulla vitneskju um hvað það felur raunverulega í sér en við meg- um ekki sitja aðgerðalaus og bíða og sjá hvað gerist,“ sagði Halldór í opn- unarávarpi sínu á Vísindadegi. Tillögur SÞ undir atkvæði Þjóðaratkvæðagreiðsla var á Kýp- ur í gær um tillögur sem Kofi Ann- an, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, lagði fram til lausnar deil- um þjóðarbrotanna tveggja á eynni. Er í þeim gert ráð fyrir að stofnað verði sambandsríki Kýpur-Grikkja og Kýpur-Tyrkja. Fari svo að hug- myndirnar verði felldar mun ein- vörðungu ríki grískumælandi Kýp- verja ganga í Evrópusambandið í vor en tyrkneskumælandi hlutinn verða skilinn eftir. Óljós staða í viðræðum Ekkert verður af fyrirhuguðum samningafundi Samiðnar og Sam- taka atvinnulífsins yfir helgina og er alls óljóst hvernig málin þróast eftir helgina. Samninganefnd Samiðnar kom saman á föstudag til að ræða stöðu mála og í gær var einnig hald- inn fundur þar sem m.a. var farið yf- ir viðbrögð félagsins ef ekkert mið- aði í samkomulagsátt eftir helgina. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Myndasögur 48 Rispur 12 Bréf 48/49 Listir 27/31 Dagbók 50/51 Af listum 28 Staksteinar 50 Forystugrein 32 Kirkjustarf 53 Reykjavíkurbréf 32 Leikhús 54 Skoðun 34/37 Fólk 54/61 Þjónusta 46 Bíó 58/61 Minningar 41/45 Sjónvarp 62/63 Hugvekja 45 Veður 63 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is HÆTTA er á að fagleg sjónarmið víki fyrir fjárhagsstöðu sjúklinga og tvöfalt heilbrigðiskerfi myndist hér á landi, annað fyrir hina efnameiri og hitt fyrir hina efnaminni. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Garðars Sverrissonar, formanns Ör- yrkjabandalags Íslands, á málþingi sem bandalagið hélt í Súlnasal Hót- els Sögu í gær í tilefni af fyrirhug- uðum verðhækkunum á lyfjum til notenda, sem taka munu gildi 1. maí. Verið að sporna við útgjalda- aukningu vegna lyfja Á málþinginu tóku til máls fulltrú- ar ólíkra aðila, þ. á m. heilbrigðis- ráðuneytisins, hagsmunasamtaka sjúklinga, lækna og annars fagfólks. Sæunn Stefánsdóttir, aðstoðarmað- ur heilbrigðisráðherra, sagði hið nýja fyrirkomulag vera svokallað analog-kerfi, ætlað til að sporna við útgjaldaaukningu vegna lyfja með því að beina kaupum sjúklinga að ódýrari lyfjum. Á móti kæmi að heil- brigðisráðuneytið hefði náð fram al- mennri lækkun á verði lyfja með samningum við heildsala. Ingunn Björnsdóttir, fram- kvæmdastjóri Lyfjafræðingafélags Íslands, sagðist undrast að ekkert samráð skyldi vera haft við lyfja- fræðingafélagið um þessar breyting- ar á lyfsölukerfinu. Í máli Kára Stefánssonar, for- stjóra Íslenskrar erfðagreiningar, kom fram að vaxandi kostnaður vegna heilbrigðisþjónustu væri með erfiðari vandamálum sem íslenskt samfélag stæði frammi fyrir. Skýringin liggur í innkaupsverðinu Kári sagði ekki hægt að líta fram hjá því að við létum kostnað og fé stýra miklu um það hvernig við hög- uðum okkar heilbrigðisþjónustu. Hann sagði helstu skýringuna á því að lyfjakostnaður hér á landi er 40% hærri en í Noregi og Danmörku liggja í innkaupsverðinu. Kári sagði að sér fyndist það slappt í samfélagi sem væri jafnvel statt og Ísland að grípa til ráðstafana sem skertu þjón- ustu við sjúklinga. Verið væri að koma á hættulegu lyfjasölukerfi á Ís- landi sem stuðla myndi að ójöfnuði. Málþing Öryrkjabandalags Íslands um verðbreytingar á lyfjum Hætta á að tvöfalt heilbrigðis- kerfi verði til hér á Íslandi Morgunblaðið/Sverrir F.v.: Eggert Skúlason, Kári Stefánsson, Pétur Hauksson og Garðar Sverr- isson, en Kári, Pétur og Eggert fluttu erindi á málþinginu. DAGUR umhverfisins var í gær, laugardag, en þann dag fæddist Sveinn Pálsson, fyrsti íslenski náttúrufræðingurinn, sem einna fyrstur hvatti til að- gerða gegn skógareyðingu á Íslandi. Í tilefni dagsins var í gær opnuð sýningin „Dagar umhverfisins“ í Smáralind á vegum Umhverfisfræðsluráðs. Þar kynna þrjátíu og tvö fyrir- tæki, stofnanir og samtök ýms- ar vörur, þjónustu og verkefni sem hafa með umhverfisvernd að gera. Þar á meðal eru Ferðaskrifstofan Embla, Græni hlekkurinn, Landvernd og Vistvernd í verki, Morgun- blaðið, Orkuveita Reykjavíkur og Alcan á Íslandi. Á sýning- unni má finna fjölmargar ólíkar nálganir á umhverfismál, allt frá lífrænt ræktuðum afurðum og vistvænu eldsneyti til um- hverfisstefna og sjálfbærs lífs- stíls. Markmið sýningarinnar er tvíþætt. Í fyrsta lagi að gefa sýnishorn af þeirri vitundar- vakningu sem er í umhverf- ismálum hér á landi, ekki síst í atvinnulífinu. Hins vegar er markmiðið að hvetja almenn- ing til þess að huga að um- hverfismálum í sínu daglega lífi, m.a. með upplýstum inn- kaupum og neyslu, en þannig eru fyrirtæki hvött til að gefa umhverfissjónarmiðum meiri gaum. Megináherslan er lögð á að breytni einstaklinga skipti öllu máli í umhverfismálum, enda leggi einstaklingar lítil lóð á vogarskál betra umhverfis. Við opnun sýningarinnar opnaði Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra einnig Arn- arvefinn, sem er fræðsluvefur um haförninn. Þá var tískusýn- ing á notuðum fötum frá Rauða krossi Íslands. Meðal sýnenda í gær voru Margrét Vilhjálms- dóttir leikkona, Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, formaður Landverndar, og Siv Friðleifs- dóttir umhverfisráðherra. Dagur um- hverfisins kynntur í Smáralind STEFNT er að því að sameina í einn gagnagrunn sjúkraskrár fólks í um- dæmi Heilbrigðisstofnunar Austur- lands (HSA), en það nær frá Vopna- firði til Djúpavogs. Persónuvernd hefur samþykkt yf- irfærsluna. Undanfarið hefur verið unnið að gagnagrunninum og á að vista hann hjá heilsugæslunni á Egilsstöðum. Læknar HSA munu fá aðgang að grunninum, auk takmarkaðs aðgangs annars starfsfólks. Efasemdir hafa vaknað hjá sumum íbúum á Austurlandi sem hafa m.a. spurt um réttmæti gagnagrunnsins. Bent hefur verið á að nokkuð langt sé þar gengið í meðferð persónuupplýs- inga sjúklinga og að gagnagrunnur- inn einfaldi ekki að marki upplýsinga- aðgengi. Fólk mun samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins ekki hafa val um hvort upplýsingar um það fari í grunninn eður ei. Sjúklingar geta þó ákveðið hvort um þá sé yfir höfuð haldin sjúkraskrá. Samkvæmt upplýsingum frá Stef- áni Þórarinssyni, lækningaforstjóra HSA, verða persónuupplýsingar sjúklinga öruggari á þennan hátt ef eitthvað er og tilgangur gagna- grunnsins sá að laga skráningu upp- lýsinga að nútímanum. Tilkoma hans auðveldi sjúklingum að leita læknis hvar sem er innan umdæmis HSA. Kostnaður við gerð gagnagrunns- ins mun verða nokkur, en stofnunin leitar nú leiða til að skera rekstr- arkostnað sinn niður um hundrað milljónir króna. Heilbrigðisstofnun Austurlands Allar sjúkraskrár í einn gagnagrunn UNNIÐ hefur verið að niðurrifi hússins við Miklubraut 16 en nauð- synlegt er að fjarlægja húsið vegna færslu Hringbrautarinnar, sem mun liggja þar sem húsið hefur staðið. Borgin hefur keypt húsin við Miklubraut 16 og 18–20 en hús- ið við Miklubraut 18–20 verður þó ekki rifið í þessum áfanga. Morgunblaðið/Sverrir Miklabraut 16 jöfnuð við jörðu STÓRUM bát sem stóð fyrir utan verkstæði á Eyjaslóð í Reykjavík var stolið í fyrrinótt. Báturinn sem er í eigu fyrirtækisins Vinnubátur sf. er sex metra langur. Var hann geymd- ur á kerru við verkstæðið en þegar eigendur komu að í gærmorgun var hann horfinn. Báturinn er af tegundinni Sea-Rover og var smíðaður fyrir tveimur árum. Hann er með utan- borðsmótor, svartur á lit og líkist slöngubát í laginu. Hefur báturinn verið notaður við botnrannsóknir. Er hann mjög sérhæfður og sá eini sinnar tegundar á Íslandi. Lögreglu var þegar tilkynnt um hvarf bátsins. Sex metra bát stolið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.