Morgunblaðið - 25.04.2004, Side 12

Morgunblaðið - 25.04.2004, Side 12
12 SUNNUDAGUR 25. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Nú brumar mór og börðin skifta lit. / Í brjósti mínu heyri ég vorsins þyt. Svo orti Ólafur Jóhann Sigurðs- son um vorið, þegar daginn lengir, skyndilega tekur að hlýna og gróðurinn að kvikna; það glittir í sumarið. Og að gömlum og góðum sið hafa lúðrasveitir landsins blásið það formlega inn, þar sem trymblum og blásurum var fylgt um götur af börnum með fána, vindrellur og málverk á kinnum. Fullorðnir hafa beðið sumarsins ekki síður en börnin, margir eru farnir að snyrta garða og sópa stéttar, smyrja reiðhjól og veiði- hjól. En tilhlökkun barnanna er óhamdari enda eiga þau léttara með að sjá ævintýri sumardaganna fyrir sér, eins og í kvæði Sig- urðar Pálssonar, Sumardaginn fyrsta, þar sem sólin kemur upp: um flegið hálsmál / austurfjallahringsins / Farfuglarnir söng- galnir / í geislum hennar... Og kýrnar svífa / Chagalllegar um blámann. Ljósmyndarar Morgunblaðins voru á ferðinni í Reykjavík á sumardaginn fyrsta. Þeir tóku þátt í skrúðgöngum og fylgdust með fjölskyldum að leik í góða veðrinu, en fyrst og fremst var þetta dagur barnanna: barna með ís, barna á hjólum, barna með gos og dúkkur, fána, hunda og pylsur. Morgunblaðið/Sverrir Morgunblaðið/Sverrir Morgunblaðið/Einar Falur Morgunblaðið/Sverrir Morgunblaðið/Sverrir Morgunblaðið/Sverrir Rispur Morgunblaðið/Einar Falur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.