Morgunblaðið - 25.04.2004, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 25.04.2004, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. APRÍL 2004 13 Létt á sam- viskunni FYRRVERANDI starfsmaður breska flughersins hefur skilað sagnfræðiriti sem hann fékk að láni á bókasafni á Möltu fyrir 42 árum. Ernie Roscuet tók bókina óvart með sér heim til Bretlands eftir að hafa dvalist um skeið á Möltu árið 1962. Á dögunum átti hann 65 ára af- mæli og ákváðu hann og kona hans að halda þau tímamót hátíðleg á Möltu. Kjörið þótti að nýta tækifær- ið og skila bókinni. „Ég hef verið með nagandi samviskubit út af þessu allan þennan tíma,“ sagði Roscuet í viðtali við dagblað á Möltu. Roscuet taldi víst að sér yrði gert að greiða sekt en þess í stað bauð forstöðumaður safnsins honum upp á kaffibolla. „Vonandi verður þessi saga til þess að hvetja fleiri til að skila því sem þeir hafa fengið lánað,“ sagði forstöðumaðurinn. „Dómsdags- frumvarp“ samþykkt BANDARÍSKA fulltrúadeild- in hefur samþykkt svokallað „dómsdagsfrumvarp“ en í því er gert ráð fyrir sérstökum skyndikosningum verði þingið og þingmenn fyrir stórfelldri árás hryðjuverkamanna. Falli 100 þingmenn eða fleiri skal efnt til kosninga inna 45 daga. Talið er, að þinghúsbygg- ingin hafi verið skotmark í hryðjuverkaárásunum 11. september 2001 en flugvélin, sem var ætluð til þess, hrap- aði í Pennsylvaníu. ALBERTO Fujimori, fyrrum forseti Perú, sem verið hefur í útlegð í Jap- an frá árinu 2000, nýtur enn umtals- verðra vinsælda í heimalandi sínu. Samkvæmt nýrri könnun færi hann með sigur af hólmi í fyrri umferð for- setakosninga færu þær fram nú. Fujimori var forseti Perú í tíu ár áður en hann neyddist til að flýja land til að komast hjá fangelsisvist sökum valdníðslu. spillingar og mannréttindabrota. Yfirvöld í Perú hafi krafist þess að Fujimori, sem er af japönskum ættum, verði fram- seldur. Lög í Japan kveða hins vegar á um að bannað sé að framselja jap- anska ríkisborgara. Forsetakosningar fara næst fram í Perú árið 2006 haldi Alejandro Tol- edo, núverandi forseti, völdum svo lengi, sem margir efast um. Samkvæmt nýjustu könnun Imasen-fyrirtæk- isins fengi Fuji- mori 18,4% at- kvæða færi fyrri umferð forseta- kosninga fram nú í Perú. Lög lands- ins kveða á um að meirihluti kjós- enda þurfi jafnan að vera að baki for- seta og er því kosið á milli tveggja efstu manna í síðari umferð slíkra kosninga. Næstur Fujimori kæmi annar fyrrum forseti, Alan Garcia, sem einnig var vændur um spillingu á valdatíma sínum. Þeir Garcia og Fujimori eru jafn- framt taldir spilltustu stjórnmála- menn Perú. Í því kjöri varð Fujimori efstur, rúmlega 44% þeirra sem þátt tóku í könnuninni töldu hann verð- skulda þann vafasama titil. Næstur kom Garcia en í þriðja sæti var Tol- edo forseti. Taldi rúmur fimmtungur aðspurðra að hann væri spilltasti stjórnmálamaður Perú. Fram kom og að um helmingur þátttakenda kvaðst efast um að Toledo næði að ljúka kjörtímabili sínu. Stjórnmálaskýrendur í Perú kváð- ust telja niðurstöður könnunarinnar „viðvörun til handa ríkisstjórn og stjórnmálastétt“. Vinsældir Fuji- moris væru til marks um að vald- höfum hefði ekki tekist að skapa „trúverðugan valkost“ við stjórn hans og það sem henni fylgdi. Fujimori vinsæll Lima. AFP. Alberto Fujimori ♦♦♦ ERLENT Færri búa við sára fátækt Mestu framfarirnar í Asíu en engar í Afríku og Rómönsku Ameríku Washington. AFP. FÓLKI, sem býr við sára fátækt fækkaði næstum um þriðjung á tveimur áratugum fram til 2001. Þessi ánægjulega þróun hefur þó ekki orðið alls staðar. Mestar eru framfarirnar í Asíu en Afríka og Rómanska Ameríka hafa setið á hak- anum. Kom þetta fram á blaðamanna- fundi með aðalhagfræðingi Alþjóða- bankans, Francois Bourguignon, sem sagði, að hagvöxtur væri öflugasta vopnið í baráttunni við fátæktina. Hann lagði samt mikla áherslu á, að fátækustu ríkin yrðu að fá meiri að- stoð frá þeim ríku og betri aðgang að mörkuðum. Með sárri fátækt er átt við, að fólk hafi minna en einn dollara, tæplega 74 kr. ísl., fyrir sig að leggja á dag. Í Kína hefur þessu fólki fækkað úr 64% 1981 í 17% 2001 og á Indlandi úr 55% í 35%. Í Afríku sunnan Sahara hefur því hins vegar fjölgað úr 42% í 47%. Í Rómönsku Ameríku hefur engin breyting orðið á og þar búa 10% við sára fátækt. Lítil tekju- dreifing hættuleg Talsmenn bankans rekja fátæktina í Rómönsku Ameríku meðal annars til lítillar tekjudreifingar, mikils mun- ar á ríkum og fátækum. Þegar þannig hátti, breyti uppgangur litlu um hag þeirra fátækustu. Í Afríku eru mestu sökudólgarnir erlendar skuldir, ófrið- ur og alnæmi en Alþjóðabankinn bendir einnig á, að með gífurlegum niðurgreiðslum á eigin framleiðslu haldi ríku þjóðirnar þeim fátæku í spennitreyju örbirgðar og allsleysis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.