Morgunblaðið - 25.04.2004, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 25.04.2004, Qupperneq 14
14 SUNNUDAGUR 25. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Um mánaðamótin verðamikil tímamót í hálfraraldar sögu Evrópusam-bandsins er tíu ríki – þaraf átta fyrrverandi kommúnistaríki í Mið- og Austur- Evrópu – verða fullgildir aðilar að sambandinu. Pólland, með tæplega 39 milljónir íbúa, er langfjölmennasta landið af þessum tíu. Það er reyndar fjölmenn- ara en öll hin níu ríkin til samans. En það er fátækt. Þjóðarframleiðsla Póllands, mæld í evrum, er um 2% af þjóðarframleiðslu ESB-landanna 15 og þjóðartekjur á mann eru um 20% af meðaltali ESB. Þjóðartekjur á mann reiknaðar eftir kaupmáttarstuðli (PPS) eru í Póllandi um 40% af meðaltali ESB. Meðallaun í landinu eru aðeins brot af því sem gengur og gerist vestar í álfunni og launamunur innanlands er líka mjög mikill, einkum og sér í lagi milli stærstu borganna og sveita. Vægi landbúnaðar er enn mikið í pólsku efnahagslífi. Hátt í fimmtung- ur vinnuaflsins telst hafa viðurværi sitt af landbúnaði, þótt greinin skili innan við 4% af vergri landsfram- leiðslu. Samkvæmt útreikningum hag- fræðinga mun það taka áratugi að ná þjóðartekjum á mann í Póllandi upp í ¾ af meðalþjóðartekjum á mann í nú- verandi ESB-löndum. Sé miðað við þær bjartsýnu forsendur að hagvöxt- ur í Póllandi verði að jafnaði um 3% meiri en í ESB (5,5% þar en 2,5% í ESB-löndunum 15) tæki það 25 ár að ná þessu marki. Hve bjartsýnar þess- ar forsendur eru sést gleggst á því, að meðaltalshagvöxtur í Póllandi síðustu fimm árin hefur verið 2,8%. Sveiflurn- ar hafa verið miklar. Það þykir líka áhyggjuefni, bæði innanlands og utan, hve mikill halla- rekstur er á pólsku ríkisfjármálunum. Fjárlagahallinn var sem nemur um 680 milljörðum króna í fyrra og stefn- ir í að verða um 836 milljarðar kr. á þessu ári. Ætli Pólverjar sér að gera alvöru úr því markmiði sínu að upp- fylla skilyrðin fyrir aðild að Efna- hags- og myntbandalaginu ekki seinna en árið 2009 verða þeir heldur betur að taka sér tak. Reyndar hafa margir hagfræðingar lýst efasemdum um að markmiðið um svo fljóta aðlög- un að EMU sé skynsamlegt, en burt- séð frá því segir það sig sjálft að meiri agi á stjórn ríkisfjármála er nauðsyn- legur ef stöðugleiki á að komast á í pólsku efnahagslífi. Framfarir krefjast fórna Pólland gegndi mikilvægu hlut- verki í að binda enda á alræðisskeið kommúnismans í Mið- og Austur- Evrópu fyrir rúmum áratug. Þótt umbótaþróuninni í landinu frá mið- stýrðum ríkissósíalisma til opins markaðshagkerfis og lýðræðis sé ekki lokið – og gangi að nokkru leyti hæg- ar en í sumum hinna fyrrverandi austantjaldslandanna – hafa framfar- irnar verið miklar á þessum áratug; framfarir sem hafa krafizt umtals- verðra fórna af hálfu margra Pól- verja. Endurskipulagning atvinnulífsins hefur til að mynda leitt til mikils at- vinnuleysis, einkum í vissum atvinnu- greinum og landshlutum. Atvinnu- leysi í Póllandi hefur á þessu ári mælzt rúm 20%; þetta hlutfall er jafn- vel mun hærra á þeim svæðum þar sem ástandið er alvarlegast. Pólverjar hafa þó almennt sýnt því skilning að umskiptin úr fátæktar- gildru hins kommúníska áætlanabú- skapar yfir í skilvirkt markaðshag- kerfi fást ekki átakalaust. Hefur þar eflaust haft sitt að segja hve mikinn þátt verkalýðsfélög áttu í að axla póli- tíska ábyrgð á þessu umbyltingar- ferli. Til allrar hamingju eru líka jákvæð teikn greinanleg í efnahagsþróuninni. Hagvöxturinn virðist vera kominn á skrið aftur eftir niðursveiflu fyrstu áranna eftir aldamótin. Tekizt hefur að koma böndum á verðbólguna og gengi pólska zlotýsins hefur haldizt nokkuð stöðugt. Stjórnin fallin Það blæs hins vegar ekki byrlega fyrir ríkisstjórninni sem verið hefur við stjórnvölinn frá því um mitt ár 2002, en hún er minnhlutastjórn vinstriflokka. Leszek Miller forsætis- ráðherra hefur tilkynnt að hann víki úr embætti 2. maí, en við honum tek- ur Marek Belka, fyrrverandi fjár- málaráðherra sem nú er æðsti fulltrúi Póllands hjá hernámsyfirvöldum í Írak. Miller, sem var í gamla kommún- istaflokknum og fer fyrir arftaka- flokki hans sem nú kallar sig sósíal- demókratískan, hefur tapað frá sér nær öllum stuðningi kjósenda og fjöldi þingmanna úr flokki hans hefur klofið sig úr honum og stofnað nýjan vinstriflokk. Er þetta vinsældahrun forsætisráðherrans og flokks hans helzt rakið til óvinsælla aðgerða í efnahagsmálum (sem að hluta til eru nauðsynlegar vegna inngöngunnar í ESB), en ekki síður þó til spillingar- hneyksla sem stjórnarliðar hafa flækzt í. Í fjölmiðlum hefur sú mynd af Miller festst í sessi að hann sé vart herra í eigin ranni; að hann fái ekki við vandamálin ráðið. Vandamál sem hægt er að benda á að við Póllandi blasi við inngönguna í ESB eru margvísleg, og skulu hér nokkur nefnd: Nútímavæðing og endurskipulagn- ing landbúnaðar og annarra þátta at- vinnulífs þjóðarinnar (s.s. kola-, stál- og efnaiðnaðar), byggðaþróun, um- hverfismál, endurnýjun innviða á borð við vegakerfi, járnbrautir o.þ.h. Framfarir í öllum þessum málaflokk- um kosta mikið fé og því vonir bundn- ar við að sjóðir ESB verði hér að liði. Stór hluti hinna u.þ.b. sjö milljóna Pólverja sem hafa viðurværi sitt af landbúnaði framleiðir ekkert eða lítið sem ekkert fyrir markaðinn, heldur stundar sjálfsþurftarbúskap. Margir þessara smábænda stunda reyndar landbúnað aðeins sem aukabúgrein og hafa tekjur af öðrum störfum, oft „svart“, en svarta hagkerfið, sem hvergi birtist í opinberum hagtölum, er enn býsna umfangsmikið í landinu. Hömlur settar við frjálsri för launafólks Í upptalningu á vandamálunum verður einnig að nefna frjálsa flutn- inga vinnuafls, eitt lykilatriða „fjór- frelsisins“ á innri markaði Evrópu (frjálsir flutningar vöru, vinnuafls, fjármagns og þjónustu). Þar sem tæpast verður hjá því komizt að hin nauðsynlega uppstokkun og nútíma- væðing pólsks atvinnulífs muni leiða til enn aukins atvinnuleysis, má reikna með því að margir Pólverjar muni vilja freista gæfunnar í hinum ríkari hluta álfunnar. Ýmsar rannsóknastofnanir á sviði efnahags- og vinnumarkaðsmála hafa reynt að spá fyrir um hve margir Pól- verjar (og Tékkar, Ungverjar o.s.frv.) myndu í raun nýta sér frelsið til að leita sér vinnu í vestri. Rokka þær töl- ur á bilinu frá um 150.000 til yfir 500.000 á ári. Alls reikna þessar stofn- anir með því að heildarfjöldi fólks sem muni flytja frá Mið- og A-Evrópuríkj- unum til eldri aðildarríkjanna nemi á bilinu þremur til fimm milljónum fram til ársins 2020, eða á bilinu 4–7% af íbúum nýju aðildarríkjanna. Að frumkvæði næstu ESB-grann- ríkja mið- og austur-evr- ópsku inngönguríkj- anna, Þýzkalands og Austurríkis, hefur enda verið samið um að aðild- arríki ESB (og Evr- ópska efnahagssvæðis- ins) geti frestað því í allt að 7 ár að opna fyrir frjálsa flutninga vinnu- afls frá nýju aðildarríkj- unum í austri, í því skyni að vernda vinnumarkað viðkomandi lands fyrir ásókn fólks úr austri sem tilbúið er að vinna fyrir lægra kaup en heimamenn. Sem aðildarríki EES hefur Ísland einnig ákveðið að fresta því að opna landamærin fyrir frjálsum flutning- um vinnuafls, a.m.k. út árið 2005. Reyndar eru Pólverjar nú langfjöl- mennasti hópurinn af því erlenda vinnuafli sem starfar á Íslandi. Sjávarútvegs- hagsmunum fórnað Evrópusambandsaðildin mun krefjast frekari fórna af sumum Pól- verjum, hjá því verður tæpast komizt. Pólland er hið eina tilvonandi nýju að- ildarlandanna, þar sem sjávarútvegur er umtalsverður. Störf tengd sjávar- útvegi eru um 30.000 í landinu. Í þessum málaflokki lagði pólska stjórnin upp í aðildarviðræðurnar með kröfur um ýmiss konar sérreglur og undanþágur frá reglum sjávarút- vegsstefnu ESB, en þegar til kast- anna kom endaði með því að samn- ingamenn Pólverja féllu frá þessum undanþágukröfum í aðildarsamning- unum. Fórnuðu þeir þar með minni hagsmunum fyrir meiri, enda hafa þeir samið um ýmsar sérreglur og tímabundnar undanþágur í öðrum málaflokkum, þar sem stjórnin álítur meiri hagsmuni í húfi. Er þar að nefna umhverfismál, innleiðingu ýmissa staðla sem erfitt og dýrt er að upp- fylla, reglur um kaup útlendinga á landi (sem er viðkvæmt mál einkum m.t.t. þess að fram til ársins 1945 var stór hluti þess lands sem nú er innan landamæra Póllands þýzkt) og þannig mætti áfram telja. Vandamál pólsks sjávarútvegs í tengslum við inngönguna í ESB eru þó allt annars eðlis en íslenzkur sjáv- arútvegur myndi standa frammi fyrir ef Ísland gengi í sambandið. Vegna úrelts skipakosts og bágrar stöðu pólskra útgerðarfyrirtækja almennt er samkeppnishæfni pólsks sjávarút- vegs afar slæm í samanburði við út- gerðina í eldri aðildarríkjum sam- bandsins, öfugt við þann íslenzka. Beðið eftir jólasveininum Að mati Mareks Sarjusz-Wolski, ritstjóra pólska tímaritsins Unia & Polska sem greinarhöfundur hitti í Varsjá, felst eitt stærsta vandamálið varðandi inngöngu Pól- lands í ESB í því að Pól- verjar séu ekki að gera nóg til að búa sig undir þau vinnubrögð sem við- hafa verður eftir að hún er gengin í gildi. Til dæmis muni bændur, sveitarfélög og aðrir að- ilar í Póllandi eiga erfitt með uppfylla sett skilyrði fyrir að þiggja fjárhags- og aðra aðstoð frá ESB. „Það eru allt of margir sem bíða bara aðgerða- lausir og virðast trúa því að ESB sé eins konar jólasveinn sem komi til Varsjár með fullan poka af peningum þegar landið verður gengið í sam- bandið. Þetta er mjög skaðleg af- staða, því við munum ekki geta nýtt okkur þá möguleika sem aðildin býð- ur uppá nema við tileinkum okkur leikreglurnar. Og uppá það vantar því miður mikið,“ segir Sarjusz-Wolski. Popúlistar virkja óánægju Eftir þessa upptalningu á helztu vandamálunum við aðildarundirbún- ing Póllands verður líka að nefna, að það verður vart hjá því komizt að þessar róttæku umbreytingar muni leiða til áframhaldandi pólitísks óstöðugleika. Stjórnmálakerfið í land- inu hefur ekki enn náð jafnvægi – miklar sveiflur eru í fylgi flokka og stjórnar- og ráðherraskipti tíð. Spill- ing er vandamál, einkum á lægri stig- um stjórnkerfisins. Umbætur í stjórnsýslunni og dómskerfinu ganga hægt og hafa þessi atriði ítrekað verið gagnrýnd í matsskýrslum ESB á að- ildarundirbúningi Pólverja. Undirbúningurinn fyrir aðildina hefur m.a. þvingað pólsk stjórnvöld til að sýna aðhald í ríkisfjármálum (þótt það gangi misjafnlega í framkvæmd). En ýmsir óttast að þessi þrýstingur á að standa við að hrinda umbótum í framkvæmd snarminnki við inngöng- una, enda mæta margar af þeim ráð- stöfunum sem umbæturnar útheimta harðri andstöðu stórra kjósendahópa. Lengst af hafa Pólverjar flestir þó litið Evrópusambandið mjög jákvæð- um augum og þrýst á um að landið fengi aðild að því sem allra fyrst. Þessi jákvæða afstaða hefur þó tekið dýfur í skoðanakönnunum; lýðskrum- arar andsnúnir aðildinni – svo sem Andrzej Lepper, sem sækir fylgi sitt fyrst og fremst til óánægðra dreif- býlisbúa – njóta vaxandi stuðnings. Lepper er spáð góðu gengi í næstu þingkosningum, sem líkur benda til að verði boðaðar fljótlega. Hátt í 20% þeirra sem kjörnir voru á pólska þing- ið í síðustu kosningum eru andsnúnir ESB-aðildinni. Á kaþólsku útvarps- stöðina Radio Maryja, sem er óþreyt- andi við að andskotast út í ESB, út- lendinga, gyðinga og „óþjóðholla sósíalista“, hlusta reglulega yfir fimm milljónir Pólverja. Pólland – risinn í nýliðahópnum Pólland er langfjölmennast ríkjanna tíu sem ganga í ESB 1. maí. Það á við ýmis sértæk vandamál að stríða sem Auðunn Arnórsson skrifar hér um. Leszek Miller                                                                           !"  "#$ %%%$" &'" ' ( )*    + , "-./$01 "-'02343         !   " #$ %#$  #& %$' ( )&( "   *  !  +   !  ,-.& 5 6#789    ’ Framfarir íöllum málaflokkum kosta mikið fé og því vonir bundnar við sjóði ESB. ‘
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.