Morgunblaðið - 25.04.2004, Qupperneq 16
Ferill þýsku söngkonunnarUte Lemper er stór-merkilegur þar sem húnspyrðir saman popp-,þýskri kabarettónlist,
söngleikjatónlist og jafnvel raftón-
list. Lemper er fjöltyngdur heims-
borgari, allra handa listamaður og
rennir sér leikandi í gegnum
franska tónlist að hætti Edit Piaf,
kabarettónlist Brecht og Weill,
söngleikjatónlist Andrew Lloyd
Webber og er nú nýtekinn að fást
við tónlist arabalanda. Auk þessa
semur hún eigin tónlist og hefur
unnið með rokkurum eins og Tom
Waits, Roger Waters og Nick
Cave, „költ-hetjum“ eins og Scott
Walker og einnig kvikmyndatón-
listarmanninum Michael Nyman
og nútímatónskáldinu Philip Glass.
Neil Hannon úr bresku drama-
poppsveitinni Divine Comedy að-
stoðaði þá Lemper mikið á plötu
hennar frá 2000, The Punishing
Kiss, þar sem hún söng aukinheld-
ur lög eftir Elvis Costello, Nick
Cave og Tom Waits m.a.
Fyrsta plata Lemper, Singt
Kurt Weill, kom út árið 1986 en þá
var hún einungis tuttugu og
þriggja ára að aldri. Útgáfan hefur
verið stöðug síðan, allt frá tiltölu-
lega hreinu poppi yfir í hádrama-
tíska kabaretttónlist.
Og þetta er bara tónlistin.
Lemper er býsna fjölhæfur lista-
maður eins og áður segir og lék
t.a.m. í Prêt à Porter Altmans og
hefur skrifað tvær sjálfsævisögu-
legar bækur. Auk þess fæst hún
við myndlist.
Ute Lemper gefur sig skamm-
laust út fyrir að vera dramatísk
díva eins og myndirnar hér sýna.
Hún er sannarlega svöl og eins og
sjá má eru Marlene Dietrich takt-
arnir á hreinu.
Á meðal laga sem hún ætlar að
syngja eru „Amsterdam“ eftir
Brel, „September Song“ og „Alab-
ama Song“ eftir Weill, „La vie en
Rose“ sem Piaf gerði ódauðlegt og
„Lilli Marleen“, sem Dietrich varð
fræg fyrir að flytja.
Maður Lemper er slagverksleik-
ari, heitir Todd Turkisher, og
kemur ásamt henni hingað og mun
leika með henni á tónleikunum.
Þeir eru hluti af grænni röð Sin-
fóníusveitarinnar og fara fram 6.
og 7. maí næstkomandi.
Langt ferðalag
Hvernig líst þér á að vera að
koma hingað?
„Mjög vel. Ég hef aldrei komið
til Íslands og hlakka mikið til. Sér-
staklega að upplifa þessa löngu
daga ykkar á sumrin!“
Og undirbúningurinn á fullu?
„Jú jú. Mér líst vel á að fá tæki-
færi til að syngja með sinfóníu-
hljómsveitinni ykkar, vonandi
náum við að fínpússa allar þessa
útsetningar í tíma – þetta er dáld-
ið flókið (hlær).“
Segðu mér aðeins frá ferlinum...
„Guð minn almáttugur! (hlær
hátt). Þetta er búið að vera langt
ferðalag og ég er enn í því miðju.
Framrásin er stöðug að því er
virðist. Ég er búin að vinna við
þetta í tuttugu ár núna en ferða-
lagið hófst eftir að ég útskrifaðist
úr leiklistarskóla (Max Reinhardt
Seminary Drama School í Vín) en
ég var líka búinn að læra dans og
söng. Ég byrjaði í söngleikjum
eins og Cats, Pétur Pan (þar sem
hún lék Pétur sjálfan) og Kabarett
en einnig lék ég í leikritum (lék
m.a. í leikritum eftir Fassbinder).
Ég fann engu að síður fyrir þörf til
að finna svið sem ég gæti helgað
mig algerlega. Svo þegar ég fór að
syngja lög Kurt Weill og Berthold
Brecht opnuðust gáttir fyrir mér.
Þarna var komin list með sterkar
þýskar rætur sem býr yfir póli-
tískum anda og er sögulega mik-
ilvæg. Mér fannst þetta mjög mik-
ilvægt, verandi ungur Þjóðverji, og
ég fann mig vel í þessu. Ég er bú-
inn að syngja þessi lög í mörg ár
en hef verið að setja þau í ýmsa
búninga; sungið þau á hefðbundin
hátt en einnig í rokkstíl og eins
með strengjasveitum.“
Kabaretttónlist, þessi tónlist frá
Weimarlýðveldinu, stendur þér
ansi nálægt virðist vera?
„Já og ég er eiginleg í hálfgerðu
trúboði og reyni markvisst að
halda lífi í þessum smá menning-
argeira og ég reyni að uppfæra
hann fyrir nýjar kynslóðir.“
Það er nú ekki hægt að segja
annað en að þú sért fjölhæfur
listamaður.
„Ég hef a.m.k. búið á hinum
ýmsu menningarsvæðum og það
hefur sín áhrif. Ég bjó lengi í Par-
ís og þess vegna er ég mikið inni í
þeirri tónlist svo ég taki dæmi.
Ég legg fyrst og fremst áherslu
á að segja sögur, og gildir þá einu
hvaða stefnu ég er að vinna í.
Þetta er engin rómantík eða fant-
asíur, heldur sögur sem eiga rætur
í raunveruleikanum, segja af and-
hetjum, örlögum, brostnum ástum,
löngunum og svo framvegis.“
Mikið drama semsagt?
„Já, sögur úr lífinu þar sem
samfélagsleg vitund og pólitík flýt-
ur oft með. Frönsku lögin eru t.d.
oft mjög djúpspök og áhugaverð
að þessu leytinu til.“
Cave og kabarettinn
Þú hefur verið að byggja brýr á
milli popptónlistar og sígildrar
tónlistar...
„Já, ég fæst við báða hluti. Hér
á Íslandi ætla ég að bjóða upp á
nokkuð breiða dagskrá og ætla að
syngja Piaf, Brel, Weill, Piazzolla,
eigin lög og Nick Cave.“
Talandi um Nick Cave, þú hefur
verið að vinna með mönnum eins
og honum, Tom Waits, Elvis Cost-
ello og Neil Hannon úr Divine
Comedy. Hvernig var að vinna
með þessum köppum?
„Alveg meiriháttar. Í mönnum
eins og Cave og Waits sá ég
ákveðna þætti sem höfða sterkt til
mín. Þeir hafa daðrað við kabar-
etttónlist, alveg eins og ég. Mörg
laga þeirra bera þess merki. Þeir
semja líka oft um olnbogabörn
samfélagsins, glæpi, myrkar hliðar
lífsins og svo framvegis.“
Finnst þér að það hafi ræst úr
ferlinum? Ertu á þeim stað sem
þig langar til að vera?
„Það er erfitt að svara þessu.
Ég hef aldrei sett upp neinar áætl-
anir þannig séð. Og meðfram lífi
mínu sem listamaður geri ég þessa
venjulega hluti. Ég er tveggja
barna móðir og ég er að ala þau
upp hérna í New York ... ég veit
það ekki, mér finnst ég hafa úr svo
mörgu að velja að ég hef engar
áhyggjur.
Svo er maður að fá hin og þessi
verðlaun meðfram listalífinu sem
skipta auðvitað engu máli. Lyk-
ilatriðið er að endurskapa sig sem
listamann og leita stöðugt nýrra
leiða til að ná því takmarki. Ég
þrífst á umhverfi þar sem ný og
fersk sköpun er í gangi. Ég hef
t.d. undanfarið verið að syngja
tónlist frá Mið-Austurlöndum og
þessir tónleikar á Íslandi verða
einskonar frí frá því verkefni.“
Ute Lemper heldur tvenna tónleika í maíbyrjun í Háskólabíói
Hin mörgu andlit Ute.
Söngkonan Ute Lemper á sérstæðan feril að baki og hrærir óhikað saman
hinum margvíslegustu stefnum og straumum. Arnar Eggert Thoroddsen
ræddi við dívuna og gerir grein fyrir lífi hennar og list.
Kona kynngimögnuð
„Í mönnum eins og Cave
og Waits sá ég ákveðna
þætti sem höfða sterkt til
mín. Þeir hafa daðrað
við kabaretttónlist, alveg
eins og ég. Mörg laga
þeirra bera þess merki.
Þeir semja líka oft um
olnbogabörn samfélags-
ins, glæpi, myrkar hliðar
lífsins og svo framvegis.“
www.sinfonia.is
www.utelemper.com
arnart@mbl.is
16 SUNNUDAGUR 25. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Frönskunámskeið
hefjast 3. maí
innritun frá 26. apríl
Námskeið fyrir byrjendur og lengra komna.
Taltímar og einkatímar.
Námskeið fyrir börn.
Kennum í fyrirtækjum.
Franska fyrir ferðamenn..
Tryggvagata 8,
101 Reykjavík, fax 562 3820.Veffang: http://af.ismennt.is
Netfang: af@ismennt.is
Innritun í síma
552 3870
8 vikna námskeið.