Morgunblaðið - 25.04.2004, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. APRÍL 2004 17
Vilt þú styrkja eitt eða eiri íslensk börn til vikudvalar í sumarbúðir 2004?
Ef svarið er játandi þá leggur þú inn á reikning 101-26-66090 í Lands-
bankanum eða á reikning 0546-26-6609 í Íslandsbanka.
Eitt barn 27.000 kr. í Vindáshlíð, tvö börn 54.000 kr. í Vatnaskóg.
Bókhald verkefnisins verður gert opinbert í lokin.
Með sumarkveðju,
Fjölskylduhjáp Íslands
í þágu þeirra sem minna mega sín.
Íslendingar lítum okkur nær
S
kr
ým
ir
h
ö
n
n
u
n
2
0
0
4
Umferðamiðstöðin ehf.
óskar eftir samstarfsaðilum
Miklar breytingar eiga sér nú stað í Umferðamiðstöðinni
BSÍ. Fleiri breytingar eru í vændum og markmiðið
er að gera Umferðamiðstöðina að fjölbreyttri og
glæsilegri þjónustumiðstöð fyrir ferðaiðnaðinn.
Eftirtalin starfsemi er nú þegar til staðar
í Umferðamiðstöðinni:
Kynnisferðir ehf.
Flugrútan
Ferðaskrifstofa Akureyrar – Destination Iceland
Veitingastaðurinn Fljótt og gott
Með vorinu opnar minjagripaverslunin Islandia
útibú í miðstöðinni.
Óskað er eftir samstarfi við þjónustufyrirtæki,
verslanir og aðra þá sem hafa áhuga á að bætast í hóp
framsækinna fyrirtækja sem fyrir eru á staðnum.
Einnig er skrifstofuhúsnæði til leigu.
Tillögur og tilboð óskast send til Morgunblaðsins,
merkt „BSÍ-2004“. Fullur trúnaður og öllum
tilboðum svarað. ÍSLE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
KY
N
2
44
43
04
/2
00
4
MIKLA athygli stangaveiðimanna
hafa vakið gríðarvænar bleikjur
sem menn hafa verið að fanga frá
og með miðjum Þorleifslæk og
niður úr. Þetta hafa verið 4 til 8
punda bleikjur og sumir hafa
fengið þær nokkrar. Þótt veitt sé
og sleppt í Varmá/Þorleifslæk,
hafa nokkrar þessara stórbleikja
verið hirtar í vísindaskyni og
menn hafa spurt sig, hvaðan þær
hafi komið þessar stóru bleikjur,
því víst sé að ekki hefur umrædd á
verið fræg fyrir stórar bleikjur.
En kenningarnar eru ævinlega
fljótar að fæðast. Vinsælasta
kenningin er sú, að það sé ekkert
óvenjulegt eða merkilegt við þess-
ar bleikjur fyrir utan hvað stofn-
inn er fallegur og þær fullorðnu
stórar og bústnar. Og þær séu
ekki skyndilega sprottnar upp úr
botninum. Heldur, að þær hafi
alltaf verið þarna, það hafi bara
afar fáir vitað af þeim, veiðimenn
sem voru ekkert að básúna það út
hvað bleikjurnar væru stórar
þarna.
Selur skotinn
Selur hefur verið á sveimi í Sog-
inu að undanförnu, menn hafa iðu-
lega séð honum bregða fyrir og
ekki þarf að fara í grafgötur um
erindi hans, hoplax og bleikja eru
þarna á hverju strái. En nú eru
dagar hans taldir eftir að veiði-
flokkur með Ólaf Vigfússon í
Veiðihorninu í broddi fylkingar
fór austur, settist um dýrið og á
endanum gaf það færi á sér. Óhætt
er að segja að fiskar í Soginu búi
við fjölbreytileika í afræningjum,
því auk allra þessara venjulegu,
hafa tveir hafernir haldið til við
Sogið í allan vetur og hefur sést til
þeirra veiða silung í ánni.
Ýmsar tölur ...
Enn eru að berast góðar aflatöl-
ur. Menn sem voru nýlega í Ás-
garði í Sogi veiddu að vísu lítið, en
sáu til kollega sinna Bíldsfells-
megin draga fisk og annan og það
voru augljóslega vænar bleikjur.
Þá hefur veiði glæðst í Brúará og
við höfum frétt af góðum ferðum
sem menn hafa gert í Hólaá við
Laugarvatn. Menn sem voru ný-
verið í Minnivallalæk fengu sex
fiska og misstu nokkra. Enn vant-
ar þó að virkileg tröll hafi veiðst
þar.
Heldur hefur dregið úr fregnum
af sjóbirtingsslóðum, kannski
vegna þess að sóknin austur hefur
minnkað, a.m.k. hafa verið laus
veiðileyfi í Geirlandsá og Tungu-
fljóti að undanförnu, eins og menn
missi trúna á birtinginn þegar líð-
ur á apríl. Stundum hangir hann
þó í ánum út mánuðinn og jafnvel
fram í maí.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra er frekar á heimavelli við netaveið-
ar, en sýndi eigi að síður snilldartakta með tvíhenduna austur í Ölfusá.
Þær voru
þarna alltaf
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?