Morgunblaðið - 25.04.2004, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. APRÍL 2004 19
Í nýju Subaru Outback bifreiðinni mætast fegurð og hæfni sem aldrei fyrr. Eigendur
Subaru bíla hafa mestu vörumerkjatryggð sem um getur vegna þess að þeir sem eru
góðu vanir vilja halda sínu. Með gæðum, hugviti og frammistöðu skipar Outback sér á
bekk með helstu lúxusbílum nútímans. Subaru Outback er hannaður til að þú komist
á fegurstu staðina með frábærum hætti. Komdu við hjá Ingvari Helgasyni og kynntu þér
málið nánar.
Sævarhöfða 2 · Sími 525 8000
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
0
0
9
3
2
5
VIÐ KYNNUM NÝJASTA
MEÐLIMINN Í FLOKKI LÚXUSBÍLA
til stuðnings,“ segir í greinargerð-
inni og er m.a. vísað til tilmæla Evr-
ópuráðsins, sem mæli með því að
þessi leið sé farin. Er einnig bent á
að þetta yrði æskileg leið til að
tryggja þá hagsmuni sem felist í
pólitískri og menningarlegri fjöl-
breytni í lýðfrjálsu þjóðfélagi. Þá er
því haldið fram að ef þessi leið yrði
fyrir valinu, fæli hún ekki í sér
neina beina reglusetningu sem
beindist gegn einkareknum fjölmiðl-
um.
Nefndin telur ljóst að ákvæði
samkeppnislaga eigi við um fjöl-
miðlafyrirtæki með sama hætti og
sömu takmörkunum og við eiga um
önnur fyrirtæki. Sú spurning vakni
því hvort í þeim felist að óbreyttu
nægilegar heimildir til að stemma
stigu við neikvæðum áhrifum sam-
þjöppunar og samráðs fyrirtækja á
fjölmiðlamarkaði. „Í þeim sérfræði-
legu gögnum sem nefndin hefur afl-
að er þessari spurningu ávallt svar-
að neitandi.“
Sérstök ákvæði um
fjölmiðla sett í samkeppnislög
„Rökin gegn því að láta hefð-
bundin samkeppnisleg úrræði
nægja felast einkum í því að sjón-
armiðin sem búa að baki samkeppn-
islögum og framkvæmd þeirra lúta
að fjárhagslegum hagsmunum og
stöðu fyrirtækja og af neytenda-
sjónarmiðum. Þar sé almennt ekki
rúm fyrir hin sértæku sjónarmið um
pólitíska ogmenningarlega fjöl-
breytni sem búi að baki kröfunni
um fjölbreytta fjölmiðla. Yfirleitt er
álitið að óheppileg áhrif samþjöpp-
unar á fjölmiðlamarkaði komi fram
áður en almennum þröskuldum
samkeppnislaga er náð,“ segir í
greinargerðinni.
Leggur nefndin til að skoðuð
verði sú leið að setja sérstök ákvæði
í samkeppnislög sem taka til fjöl-
miðla, bæði dagblöð og útvarp, þar
sem miðað er við aðra og lægri
þröskulda en hefðbundið er í sam-
keppnisrétti.
Gert að veita nákvæmar
upplýsingar um eignarhald
Lagt er til að hugað verði að eft-
irtöldum möguleikum:
„1. Fyrirtækjum (félögum) í dag-
blaðaútgáfu og hljóðvarps- og sjón-
varpsrekstri verði gert að veita ná-
kvæmar upplýsingar um eignarhald
á þeim og fyrirtækjum og félögum
sem eiga í fyrirtækjum í fjölmiðla-
rekstri. Ennfremur verði allar
breytingar á eignarhaldi tilkynn-
ingaskyldar.
2. Samkeppnisyfirvöldum verði
fengnar heimildir til að banna slíkar
breytingar leiði þær til samþjöpp-
unar á eignarhaldi eða breytinga á
gerð fjölmiðlamarkaðarins, sem séu
til þess fallnar að hamla gegn mark-
miðinu um fjölbreytni, eða eftir at-
vikum setja breytingum skilyrði.
Gert verði ráð fyrir að samkeppn-
isyfirvöld geti einnig gripið til ráð-
stafana sem stuðla að því að eigna-
breytingar, sem átt hafa sér stað,
gangi til baka ef þær hafa farið
fram án þess að tilkynnt hafi verið
um þær og þær verða taldar leiða til
samþjöppunar sem hætta er á að
geti dregið úr fjölbreytni. Eiga hér
við áþekk sjónarmið og um ólögleg-
an samruna.
3. Samkeppnisyfirvöldum verði
með sama hætti fengnar heimildir
til að setja skorður við því að fyr-
Í GREINARGERÐ nefndar
menntamálaráðherra um eign-
arhald á fjölmiðum er fjallað ít-
arlega um alþjóðaskuldbindingar
og erlenda löggjöf um fjölmiðla. Er
m.a. greint frá tilmælum sem Evr-
ópuráðið hefur samþykkt til aðild-
arríkjanna vegna þeirrar skuld-
bindingar Evrópuráðsins að stuðla
að og tryggja tjáningarfrelsi og
viðhalda menningarlegri fjöl-
breytni í Evrópu.
Samþjöppun getur
stefnt fjölbreytni í hættu
Fram kemur að í tilmælunum sé
m.a. að finna reglur um eignarhald
á fjölmiðlamarkaði, og síðan segir:
„Lagt er fyrir aðildarríkin að huga
að því að setja í lög reglur til að
hamla gegn samþjöppun sem gæti
stefnt markmiðinu um fjölbreytni í
fjölmiðlum í hættu, hvort heldur á
landsvísu eða svæðisbundið. Mælt
er með því að ríki skoði möguleika
á því að afmarkaðir verði í lögum,
við úthlutun leyfa eða aðra laga-
framkvæmd, þröskuldar til að tak-
marka áhrif sem eitt fyrirtæki eða
fyrirtækjasamsteypa getur haft í
einni eða fleiri greinum fjölmiðl-
unar. Í dæmaskyni er nefnd há-
marks leyfileg markaðshlutdeild,
þar sem mælikvarði á markaðs-
hlutdeild er annað hvort fjár-
hagsleg velta eða útbreiðsla (lest-
ur/áhorf/hlustun). Einnig megi
huga að því að setja takmörk á
hlutafjáreign einstakra aðila í fjöl-
miðlafyrirtækjum á frjálsum mark-
aði. Séu slíkar takmarkanir settar
skuli hafa í huga stærð fjölmiðla-
markaðarins í viðkomandi landi og
fjárhagslegt bolmagn hans. Fyr-
irtækjum sem náð hafa leyfilegri
hámarksstærð á tilteknum markaði
verði ekki úthlutað frekari leyfum
til að senda út á þeim markaði.
Bent er á að auki, að við leyf-
isveitingar til einkaaðila geti yf-
irvöld haft sérstaklega í huga að
auka fjölbreytni í fjölmiðlum,“ seg-
ir m.a. í greinargerðinni um tilmæli
Evrópuráðsins.
Einnig er greint frá því að í skýr-
ingum við tilmælin sé fjallað um þá
mælikvarða sem unnt sé að nota við
ákvörðun um takmörkun á eign-
arhaldi. „Fram kemur sú skoðun að
mælikvarðar sem miða við út-
breiðslu (áhorf/hlustun/lestur) séu
gagnlegastir til þess að vernda
markmiðið um fjölbreytni. Á hinn
bóginn séu mælikvarðar sem miða
við hlutafjáreign eða veltu á und-
anhaldi, enda hafi reynslan sýnt að
fyrirtækjum er tiltölulega auðvelt
að fara kringum viðmiðanir og tak-
markanir sem lúta að því.
Því er jafnframt haldið fram að
30% útbreiðsla á markaði séu við-
unandi mörk, þegar sjónvarp,
hljóðvarp og dagblöð eiga í hlut. Þá
er í bland við þessar reglur talið
viðunandi að setja beinar skorður
við eignarhaldi sem miði við 10%.
Þessi samsetning er talin tryggja
að lágmarki fjóra miðla í hverjum
geira fjölmiðlunar fyrir sig og
a.m.k. 10 þátttakendur á mark-
aðinum í heild. Þó er lögð áhersla á
að þetta verði að ráðast af að-
stæðum á fjölmiðlamarkaði í hverju
landi fyrir sig, auk þess sem taka
verði tillit til viðskiptasjónarmiða.“
Mælt með reglum gegn samþjöppun