Morgunblaðið - 25.04.2004, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 25.04.2004, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. APRÍL 2004 25 Íslandsmeistarinn 2004 og úrvalslið kaffi barþjóna Við óskum okkar fólki til hamingju með sigurinn og frábæra frammistöðu á íslandsmóti kaffi barþjóna. „Íslandsmeistari kaffi barþjóna 2004“ Njáll „Besti frjálsi drykkurinn“ JónínaT e & k a f f i Gillespie Road, sem er við norður- enda vallarins, er ekki hægt að sjá að knattspyrnuvöllur sé nálægt. Menn sjá aðeins íbúðarhúsalengj- ur, en allt í einu sést hlið á milli húsa þar sem gefið er til kynna að fyrir innan sé knattspyrnuvöllur. Uppselt er á nær alla leiki Arsenal, en Highbury tekur aðeins 38.500 áhorfendur í sæti. Það er ekki hægt að stækka áhorfendastæði vallarins, þar sem áhorfendastúkur vallarins til norðurs og vesturs ná inn að görðum húsanna við Gill- espie Road og Highbury Hill og Austurstúkan við Avenell Road, framhlið vallarins, er friðuð. Það má ekki hrófla við henni. Þess má geta til gamans að flestir áhorf- endur á leik á Highbury voru sam- ankomnir þar 1935 til að sjá við- ureign við Sunderland – alls 73.295 áhorfendur og voru þeir flestir í stæðum. Þeir sem koma á Highbury og kynnast andrúmsloftinu í kringum völlinn finna fljótt að Highbury er stolt íbúanna sem flestir hafa alist upp í hverfinu og þekkja ekkert annað en hina sérstæðu stemningu á götunum í kringum völlinn á leik- dögum – fljótlega upp úr hádegi um helgar og á kvöldin í miðri viku. Íbúarnir kippa sér ekki upp við að heyra fagnaðarlæti er þeir eru að horfa á sjónvarpið inni í stofu hjá sér, eða sitja við mat- arborðið. Já, það getur oft verið erfitt að fá börn til að sofna. Íbúar í kringum Highbury hafa fyrir löngu gert sér grein fyrir að Arsenal verði að byggja nýjan völl ef liðið ætlar að þjóna hinum stóra stuðningsmannahópi sínum og aðdáendum sem koma víðs vegar úr hinum stóra heimi til að komast á völlinn. Færri fá en vilja, völl- urinn tekur miklu færri áhorfendur en til dæmis Old Trafford, heima- völlur Manchester United, en þar er alltaf uppselt – 68.000 áhorf- endur. Það er blendin tilfinning hjá íbú- um að vita að Arsenal er að fara, þótt ekki verði langt á nýja völlinn sem verður í 1.200 m fjarlægð, við Ashburton Grove, sem er vestan við Highbury. Ef menn standa í efri hlutanum á Norðurbakkanum á Highbury, þar sem hörðustu stuðningsmenn Arsenal eru, og horfa til hægri, sést yfir á svæðið. Nýi völlurinn, sem á að vera tilbú- inn fyrir keppnistímabilið 2006– 2007, mun taka 60.000 áhorfendur í sæti. Þó svo að það verði stutt yfir á nýja völlinn frá Highbury finnst hörðustu stuðningsmönnum Arsen- al í Highbury-hverfinu að nýi völl- urinn sé ekki gerður á réttum stað – hann ætti að vera í austurátt frá Highbury. Rök þeirra eru skilj- anleg. Myndu ekki hörðustu Vals- menn í Hlíðahverfinu vera ánægð- ari með að völlur Vals við Hlíðarenda yrði fluttur á Miklatún frekar en vestur í Vatnsmýrina? Lífsmunstur margra í hverfinu austan við Highbury mun breytast. Það verður ekki það sama að fara á Highbury og að fara vestur til Ash- burton Grove. Menn hafa alist upp við að fara á sömu krárnar, þaðan á völlinn, og síðan aftur á krárnar og heim. Gunners-kráin við Elwood Street verður ekki sú sama, en þegar komið er út af henni og horft niður götuna þá blasir Norður- bakkinn á Highbury við. Þegar gott er veður eru allar götur í kringum Highbury fullar af fólki – menn ræða þar saman yfir bjór- glasi, eða fá sér eitthvað í svanginn á milli þess að minjagripir eru keyptir. Löggæslan er öflug – lögreglu- menn á hestum sjá til þess að allt fari vel fram. Það tekur aðeins um 20 mín. að koma 38.500 áhorfend- um frá svæðinu eftir leiki og fara Tölvumynd sem sýnir hvernig nýi Arsenal-völlurinn er. Þannig verður inni á nýja Arsenal-vellinum. Morgunblaðið/Sigmundur Ó. Steinarsson Hér er hliðið inn á Highbury frá Gillespie Road – á milli íbúðahúsa. Nýbyggingar við nýja Arsenal-völlinn í Ashburton Grove.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.