Morgunblaðið - 25.04.2004, Page 28
LISTIR
28 SUNNUDAGUR 25. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Í LISTASAFNI Íslands gefst nú
tækifæri til að sjá yfirlit verka frá
fyrstu áratugum síðustu aldar á
sýningunni Íslensk myndlist 1900–
1930.
„Markmið sýningarinnar er að
gefa yfirlit um þetta mikilvæga og
spennandi tímabil í íslenskri lista-
sögu, en alls eiga 26 listamenn
verk á sýningunni. Þetta tímabil
markast annars vegar af þeirri ný-
sköpun sem átti sér stað í íslenskri
myndlist um aldamótin og hins
vegar þeim þáttaskilum sem verða
um 1930 þegar fram kemur kyn-
slóð með nýja listsýn og öðru frem-
ur hafnar landslaginu sem merk-
ingarríku viðfangsefni. Í íslenskri
listasögu er þetta fyrst og fremst
blómaskeið hinnar upphöfnu róm-
antísku afstöðu til náttúrunnar
þegar listamenn leituðu til listar
19. aldar til að tjá hughrif sín af ís-
lenskri náttúru, en einnig það
tímabil þegar það gerist í fyrsta
sinn að róttæk evrópsk sam-
tímalist verður hluti af íslenskri
listasögu,“ segir Lára Aðalsteins-
dóttir kynningarfulltrúi safnsins.
Á sýningunni eru verk eftir eft-
irtalda listamenn: Ásgrím Jónsson,
Ásmund Sveinsson, Baldvin
Björnsson, Brynjólf Þórðarson,
Eggert Guðmundsson, Eggert
Laxdal, Einar Jónsson, Einar Jóns-
son frá Fossi, Emil Thoroddsen,
Eyjólf Eyfells, Finn Jónsson, Frey-
móð Jóhannsson, Guðmund Ein-
arsson frá Miðdal, Mugg, Gunn-
laug Blöndal, Jóhannes Kjarval,
Jón Stefánsson, Jón Þorleifsson,
Júlíönu Sveinsdóttur, Kristin Pét-
ursson, Kristínu Jónsdóttur, Krist-
ján H. Magnússon, Nínu Sæmunds-
son, Ríkarð Jónsson, Svein
Þórarinsson og Þórarinn B. Þor-
láksson.
Sýningunni lýkur 2. maí.
Brautryðjendur
í íslenskri myndlist
Freymóður Jóhannsson, Snæfell, 1926.
NOKKRAR kirkjur
bjóða upp á svokall-
aðar kyrrðarstundir í
hádeginu. Þar er
hægt að hugleiða til-
gang eða tilgangsleysi
lífsins, tilbiðja Al-
mættið og fá sér
rækjusamloku á eftir.
Þetta er ágætt til að
brjóta upp vinnudag-
inn; hvað er betra en
að hverfa um stund
frá annríkinu á skrif-
stofunni, heimsækja
aðra vídd og koma
endurnærður til baka?
Fyrir þá sem þrá
andlegar upplifanir í hádeginu, en
finna sig ekki í kirkju, er tilvalið
að fara á annars konar samkomu
þar sem andaktin svífur líka yfir
vötnunum, þ.e. tónleika. Talsvert
hefur verið um stutta hádegistón-
leika í Norræna húsinu í vetur og
svo hafa einnig verið haldnir
nokkrir tónleikar í Íslensku óp-
erunni. Ég verð að viðurkenna að
ég hef ekki farið í Óperuna í há-
deginu fyrr en á þriðjudaginn, en
þá var flutt svonefnd Vínartónlist
eftir Johann Strauss, Lehár,
Kálmán og fleiri. Tónleikarnir
tóku um hálftíma og á eftir var
hægt að kaupa sér samloku í and-
dyri hússins.
Flytjendur voru þau Hulda
Björk Garðarsdóttir, Snorri Wium,
Ólafur Kjartan Sigurðarson og
Davíð Ólafsson ásamt Kurt Kop-
ecky píanóleikara. Efnisskráin var
í léttari kantinum eins og þeir vita
sem sótt hafa Vínar-
tónleika Sinfóníunnar.
Söngvararnir voru all-
ir í toppformi nema
kannski Ólafur Kjart-
an, sem virtist örlítið
rámur. Það kom lítið
að sök; túlkun og leik-
ræn tjáning allra
söngvaranna var til
fyrirmyndar og var
útkoman oft hrífandi.
Þau Hulda Björk og
Snorri dönsuðu vals í
einu atriðinu og voru
ótrúlega blátt áfram,
meira að segja þegar
þau kysstust í lokin.
Einnig verður að
nefna frammistöðu Davíðs, en
hann var sérlega sannfærandi sem
fullur karl, enda skellihlógu áheyr-
endur að honum.
Kurt Kopecky stóð sig prýðilega
við slaghörpuna, leikur hans var
glitrandi tær og öruggur allan tím-
ann. Þetta voru sérlega skemmti-
legir tónleikar með fallegri tónlist
og fögrum söng – frábær veru-
leikaflótti sem óhætt er að mæla
með.
Veruleikaflótti
í hádeginu
TÓNLIST
Íslenska óperan
„Vínarkvöld“ í hádeginu, tónlist eftir Leh-
ár, Strauss, Stoltz, Kálmán og Nicolai.
Hulda Björk Garðarsdóttir (sópran),
Snorri Wium (tenór), Ólafur Kjartan Sig-
urðarson (bassi) og Davíð Ólafsson
(bassi). Píanóleikur: Kurt Kopecky.
Þriðjudagur 20. apríl.
SÖNGTÓNLEIKAR
Jónas Sen
Davíð Ólafsson
Ársalir- fasteignamiðlun Ársalir- fasteignamiðlun
Nýttu þér áratuga reynslu
okkar og traust í
fasteignaviðskiptum
Björgvin Björgvinsson, lögg. fasteignasali.
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5 105 Rvk
533 4200
Kynntu þér tilboð okkar
á bílaleigubílum
Pantaðu AVIS bílinn áður en þú leggur af stað
Það borgar sig – Hringdu til AVIS í síma 591-4000
Við erum í 170 löndum
5000 stöðum
T.d. Reykjavík, London, Kaupmannahöfn,
Frankfurt, Milano, Alicante ...
AVIS Knarrarvogi 2 – 104 Reykjavík – Sími 591 4000 – Fax 591 4040 – Netfang avis@avis.is – Heimasíða www.avis.is
Minnum á Visa afsláttinn
Nemendaþjónustan sf. Álfabakka 12, Mjódd
Innritun í síma 557 9233 frá kl. 17-19 virka daga
NÁMSAÐSTOÐ
á lokasprettinum fyrir vorprófin
Lithimnulestur
Með David Calvillo
fimmtudag og
föstudag
Lithimnulestur er gömul fræðigrein þar sem
upplýsingar um heilsufar, mataræði og
bætiefni eru lesnar úr lithimnu augans.
Á fimmtudag og föstudag mun David Calvillo
vera með lithimnulestur í Heilsubúðinni, Góð
heilsa gulli betri. Njálsgötu 1, uppl. og tímapantanir í s:561-5250.