Morgunblaðið - 25.04.2004, Síða 36

Morgunblaðið - 25.04.2004, Síða 36
SKOÐUN 36 SUNNUDAGUR 25. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Jón Hólm Stefánsson, sími 896 4761. Ef þú þarft að selja eða kaupa bújörð hvar á landi sem er hafðu þá endilega samband við okkar mann, Jón Hólm bónda, sem aðstoðar þig með bros á vör. BújarðirSUÐURLANDSBRAUT 16 • 108 REYKJAVÍKSÍMI 585 9999 • FAX 585 9998 FÉLAG FASTEIGNASALA Stórkostlegasta útsýni Reykjavíkur WWW.EIGNAVAL.ISSigurður Óskarsson, lögg. fastsali Falleg fjögurra herbergja íbúð á besta stað á Ægisíðunni til sölu. Íbúðin er á efstu hæð í mjög fallegu fjórbýlishúsi með þremur svefn- herbergjum, mjög stórri stofu og stóru eld- húsi. Hátt til lofts og stórir gluggar með frá- bæru útsýni yfir sjóinn, Bessastaði og Suðurnesin. Svona eignir koma sjaldan í sölu og því er um að gera að hafa hraðar hendur. Verð 22,9 milljónir. Opið hús í dag frá kl. 13-15 Vesturbraut 23 Í einkasölu glæsilegt og mikið endurnýjað eldra einbýli í gamla bænum í Hf. Húsið er alls 160 fm og er allt hið glæsilegasta að innan. Húsið er kjallari, hæð og ris og nýtast allar hæðir mjög vel. Byggingarréttur fyrir bílskúr. Sölumenn verða á staðnum. Verð kr. 22,0 millj. Opið hús í dag, sunnudag, frá kl. 14-17. Nýkomin í sölu mjög falleg og vel skipulögð 3ja herbergja 85,5 fm endaíbúð á 1. hæð. Suðursvalir. Verðlaunalóð. Verð 14,7 millj. Myndir á habil.is Ragnheiður og Árni sýna, sími 554 0438 og 695 5105. Hlíðarhjalli 44 - Kópavogi BIRKIHOLT - NÝ ÍBÚÐ - LAUS Nýkomið í einkasölu á þessum frábæra stað glæsileg ný 76,5 fermetra íbúð með sér- inngangi á annarri hæð í góðu, litlu fjölbýli, vel staðsettu við Birkiholt í Bessastaðahreppi. Eignin skiptist í forstofu, gang, þvottahús, baðherbergi , herbergi, stofu og eldhús ásamt geymslu í kjallara. Innréttingar eru allar sérsmíðaðar úr hlyn. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Íbúðin er laus strax. Verð 11,5 millj. Þórhildur Sandholt lögfr. og lögg. fastsali. Gsm 898 8545 Gísli Sigurbjörnsson sölumaður FAX 568 3231 Góð 3ja herbergja íbúð með sér- inngangi á efri hæð í litlu fjölbýli. Þvottaherbergi í íbúð. Parket á stofu og svefnherb. Flísalagt bað. Áhvíl. húsbr. 6,2 millj. Verð 13,9 millj. Fulltrúi eigenda verður á staðnum og sýnir eignina. OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 13 OG 15 STARENGI 32 - 2. HÆÐ UM þessar mundir stendur Leikfélag Akureyrar á tímamótum. Nýr samningur hefur verið gerður við Akureyrarbæ og tryggir hann félaginu rekstrargrundvöll til næstu þriggja ára. Einnig hefur nýr leik- hússtjóri verið ráðinn til félagsins. Ég vil óska nýjum leik- hússtjóra velfarnaðar í starfi og félaginu til hamingju með um- ræddan samning. Ég vil nota tækifærið og þakka fyrir mig um leið og ég lít yfir far- inn veg. Undirritaður var ráðinn til starfa hjá leikfélaginu fyrir rúm- um tveimur árum og fór sú ráðn- ing fyrir Kærunefnd jafnrétt- ismála, eins og alkunna er. Álit hennar var að jafnréttislög hefðu verið brotin. Nýverið hafnaði Hæstiréttur hins vegar því áliti og kvað upp úr með að LA hefði þvert á móti farið að lögum. Það var því mörgum undrunarefni að ég skyldi á þessum tímapunkti segja starfi mínu lausu, nú þegar flest virtist fallið í ljúfa löð og stærstu hindrununum rutt úr vegi félagsins. Það er mér því bæði ljúft og skylt að reifa forsendur mínar að nokkru á þessum vett- vangi þar sem svo mikil umræða hefur farið fram opinberlega um þá erfiðleika sem að félaginu hafa steðjað að undanförnu. Margir hafa ályktað sem svo að fyrrnefnd málaferli hafi átt rík- astan þátt í ákvörðun minni. Það er ekki alls kostar rétt. Á það ber að líta, þótt stundum virðist það hafa gleymst, að undirritaður var ekki ásakaður um neitt misjafnt heldur leikfélagið og stjórn þess. Í farvegi sínum olli málið engu að síður skaða öllum þeim sem að því komu og bitnaði hvað harðast á fyrrum formanni LA, Valgerði H. Bjarnadóttur, sem neyddist til að hverfa úr embætti framkvæmda- stýru Jafnréttisstofu í kjölfar úr- skurðar Kærunefndarinnar. Það brotthvarf var að ósekju, eins og nú hefur komið á daginn. Málaferl- in höfðu lamandi áhrif á stjórn og starfsfólk LA, rýrðu traust og virðingu almennings á félaginu og kröfðust einbeitingar og orku að- standenda þess, sem full þörf hefði verið á að nýttist óskipt til uppbyggingarstarfs á erfiðum tímum. Frá upphafi var hins vegar tekin sú stefna af hálfu félagsins að tjá sig sem minnst um málið opinberlega og reyna þess í stað að beina kröftunum inn á við til lausnar þeim al- varlega vanda öðrum sem félagið stóð frammi fyrir. Því skal ekki neitað að á stundum hafi reynst þungbært að sitja þegjandi undir orðrómi og ásökunum um vanhæfi í starfi, en þannig taldi ég þó, og tel enn, að vinnufriðnum væri best borgið til að takast á við fjárhagslega uppbyggingu LA. Undirritaður tók formlega við starfi leikhússtjóra haustið 2002. Þá var stutt í frumsýningu veg- legrar afmælissýningar í tilefni af 85 ára afmæli félagsins. Þessi sýn- ing var Hamlet eftir William Shakespeare í leikstjórn Sveins Einarssonar. Sýningin fékk af- bragðsgóða aðsókn og hlaut Sveinn menningarverðlaun DV fyrir upp- færsluna, enda var hún metn- aðarfull og að sama skapi afar kostnaðarsöm. En gleðin yfir vel heppnaðri sýningu var skammvinn því fáum dögum eftir frumsýn- inguna kom í ljós að félagið stefndi í rekstrarþrot, sjóðir þess voru uppurnir og skyndilega blasti við að uppsafnaður rekstrarhalli fyrri ára upp á 18–20 milljónir króna, eða fjórðung af árlegu ráðstöf- unarfé leikfélagsins. Þar með var ljóst að forsendur ráðningar minn- ar voru í raun brostnar. Í stað þess að taka við LA í jafnvæg- isrekstri, eins og allt benti til við ráðningu mína, var þörf á skjótum björgunaraðgerðum. Metnaðarfull en raunhæf áform um listræna uppbyggingu og eflingu leiklist- arstarfsemi félagsins urðu að víkja til hliðar, en á þeim áformum og reynslu minni af listrænni stjórnun og starfi grundvallaðist ráðningin. Leikfélagið hafði þá um skeið farið fram á aukin fjárframlög frá Akureyrarbæ til að mæta allt að 70% kostnaðaraukningu í rekstr- inum miðað við óbreytta starfsemi. Þessi aukna fjárþörf LA var ekki einsdæmi. Löngu tímabærar launa- hækkanir í kjarasamningum við Félag íslenskra leikara og almenn- ar kostnaðarhækkanir á sama tíma og framlög opinberra aðila stóðu í stað skópu fleiri atvinnuleikhúsum erfiðleika. Ljóst var að í hönd færu erfiðir tímar. Þolinmæði bæjaryf- irvalda var á þrotum, mikið bar í milli og samningur bæjarins við LA um leikhúsrekstur var í upp- námi. Til að mæta sjóðþurrð leik- félagsins á árinu 2002 féllst Ak- ureyrarbær þó á að greiða því fyrirfram vegna næsta rekstrarárs, en þó var enginn skriflegur samn- ingur gerður um framhaldið. Þessi fyrirgreiðsla frestaði því eingöngu vandanum, en leysti hann ekki. Þrátt fyrir umrædda fyrirfram- greiðslu frá bænum og yfirgrips- miklar og oft sársaukafullar hag- ræðingaraðgerðir leikfélagsins lá fyrir að óbreytt framlög vegna árs- ins 2003 myndu ekki duga nema til haustsins. Á vormánuðum 2003 var ekki um annað að ræða en grípa til fjöldauppsagnar allra starfsmanna LA þar sem enn hafði enginn samningur náðst við Akureyrarbæ. Bæjaryfirvöld höfðu sett félaginu stólinn fyrir dyrnar og stöðvað all- ar greiðslur til þess. Í kjölfarið réðst menningarmálanefnd Ak- ureyrar í stefnumótun varðandi framtíð leiklistar á Akureyri og var ekki sjálfgefið að LA yrði inni í þeirri mynd. Fljótlega skapaðist þó samræðugrundvöllur milli bæj- arins og LA og ákveðið að hefja samningaviðræður í sumarbyrjun 2003. Í kjölfarið vann LA nýja fjárhagsáætlun sem rúmaðist vel innan setts fjárhagsramma óbreyttra fjárframlaga og gerði að auki ekki ráð fyrir aukafjárveit- ingu, sem þó hefði verið nauðsyn- leg til að mæta áðurnefndri kostn- aðaraukningu í rekstrinum auk uppsafnaðs vanda undangenginna ára. Áætlunin var lögð til grund- vallar nýjum samningi. Náði nið- urskurður til nær allra sviða, stöðugilda, fjölda frumskapaðra verka o.fl. Eftir um tveggja mán- aða samningaumleitanir var loks handsalað samkomulag og sam- kvæmt því ákvað Akureyrarbær að koma starfsemi LA í gang með 25 milljón króna láni til þriggja ára. Þá fyrst var unnt að hefjast handa við endurráðningu starfsmanna og afturköllun uppsagna. Enn var fé- lagið þó samningslaust við bæj- arfélagið og stóð nú á samningi um framlög ríkisins til menningarmála á Akureyri. Var samningsins beðið með óþreyju allt til loka desember sl. er hann loks leit dagsins ljós. Í honum var sérstaklega kveðið á um að bænum bæri að semja við LA og efla það. Var þetta aug- ljóslega mikill léttir. Í fyrri samn- ingi ríkis og bæjar var einungis kveðið á um framlög til reksturs atvinnuleikhúss, án frekari skil- Kveðja til Leikfélags Akureyrar Eftir Þorstein Bachmann ’Af öllu ofantöldu máráða að þreyta á póli- tísku argaþrasi um til- verurétt Leikfélags Ak- ureyrar sé meginástæða uppsagnar minnar. Lái mér hver sem vill.‘ Þorsteinn Bachmann ATVINNA mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.