Morgunblaðið - 25.04.2004, Side 37

Morgunblaðið - 25.04.2004, Side 37
greiningar. Þar með var bæjaryf- irvöldum gefið tilefni til að ætla að þau gætu samið við hvaða atvinnu- leikhóp sem er. Að minnsta kosti hafði slíkt verið látið í veðri vaka af hálfu bæjaryfirvalda. Hvort ásetningur af hálfu bæjaryfirvalda um að knésetja félagið hafi verið fyrir hendi skal ósagt látið, en þarna var með öðrum orðum kom- in á sérgreind samningsskylda bæjarins við Leikfélag Akureyrar. Þessi samningsskylda er í ætt við þríhliðasamninga ríkis, bæjar og LA. hér á árum áður, enda þess sérstaklega getið í landslögum að félög eins og Leikfélag Akureyrar sem lengi hafi notið opinbers stuðnings skuli gera það áfram. Þegar þessum áfanga var náð ákvað ég að leggja inn uppsagn- arbréf mitt um leið og ég lýsti mig reiðubúinn að starfa áfram fyrir félagið á hvern þann hátt annan sem forsvarsmenn þess teldu heppilegan. Ég leit svo á að ekki einungis væri skútan komin á flot, heldur væri henni borgið til næstu þriggja ára að minnsta kosti. Fjár- hagsáætlanir vegna rekstrarár- anna tveggja höfðu einnig staðist og viðskilnaðurinn því viðunandi að mínu mati. Áætlunin um fyrsta leikhúsár mitt gerði ráð fyrir framúrkeyrslu upp á 10–12 millj- ónir króna miðað við áætluð óbreytt fjárframlög, en eins og fyrr var nefnt hafði fjárþörfin auk- ist um allt að 70% vegna nýrra kjarasamninga o.fl. frá árinu áður. Búist var við aukningu á fjár- framlögum í ljósi þessa þar sem ríkisvaldið hafði átt frumkvæði að þessum launahækkunum. Ef ekki næðist að knýja fram hækkun á fjárframlögum skyldi þessari með- vituðu framúrkeyrslu mætt með því að draga saman seglin á haust- mánuðum 2003 þegar unnið yrði við endurbætur og andlitslyftingu leikhússins. Var öllum hlutaðeig- andi gerð grein fyrir þessum áformum. Skemmst er frá að segja að framlögin fyrir árið 2003 stóðu algerlega í stað, ekki var einu sinni um vísitöluhækkun að ræða sem þó hefði mátt telja eðlilega lág- markskröfu. Í stuttu máli stóðust þó þessar áætlanir og gott betur. Um það leyti sem uppsögn mína bar að hafði framúrkeyrslan verið kláruð af og byrjað hafði verið að greiða niður vanda fyrri ára. Und- irritaður er ekki sérstaklega menntaður í slíkum björgunar- aðgerðum sem nauðsynlegar reyndust til að koma LA aftur á flot en það tókst þó með hjálp alls þess góða starfsfólks sem félagið býr að. Slíkt kostaði að vísu fórnir sem engan óraði fyrir í upphafi að þyrfti að færa. Félaginu hefur ver- ið sniðinn þröngur stakkur og því ekki annað hægt en líta með stolti til þeirra leikhúsverka sem félagið tókst á við þennan tíma þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Nægir þar að nefna fjölda frumskapaðra ís- lenskra leikhúsverka, metn- aðarfullar uppsetningar á verkum frá Rússlandi, Bretlandi og Suður- Ameríku, auk vel heppnaðra sam- vinnuverkefna. Það er þó engin launung á því að verkefnin sem undirritaður tókst á við sem leik- hússtjóri LA voru að stærstum hluta annars eðlis en þau sem hann var ráðinn til að gegna. Þau hafa útheimt mikla orku. Um leið og óþarfi er að kveinka sér undan því er jafnframt heiðarlegast að rétta nýjum aðila stjórnvölinn í þeirri trú að ný orka geti best nýtt þann byr sem nú loksins gefst. Af öllu ofantöldu má ráða að þreyta á pólitísku argaþrasi um tilverurétt Leikfélags Akureyrar sé meg- inástæða uppsagnar minnar. Lái mér hver sem vill. Leikfélag Akureyrar nálgast óð- um nírætt. Það er eitt af elstu starfandi leikfélögum landsins og hefur um áratuga skeið verið einn af burðarásum menningarstarfs á Akureyri. Gildi þess fyrir listalíf, sjálfsvitund og aðdráttarafl Ak- ureyrar er ótvírætt. Það er því fagnaðarefni að tekist hafi að tryggja starfsemi þess næstu árin og er rík ástæða til að ætla að bjartari tímar séu framundan nú þegar listrænn metnaður hefur að sinni verið leystur úr fjötrum fjár- hagsvandræða undangenginna missera. Ég óska Leikfélagi Ak- ureyrar allra heilla um leið og ég þakka starfsfólki þess, stjórn og velunnurum samstarfið og stuðn- inginn undanfarin ár. Höfundur er fyrrverandi leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar. SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. APRÍL 2004 37 Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is 533 4800 Suðurhólar 18 - Opið hús Björn Þorri hdl. lögg. fastsali, Karl Georg hrl. lögg. fastsali. 91 fm falleg 3ja herbergja endaíbúð á þriðju hæð með glæsilegu útsýni og sérinngangi af svölum við Suðurhóla 18. Íbúðin skiptist í forstofu, hol, eldhús með borðkrók, góða stofu, baðherbergi með baðkari og glugga, tvö svefnherbergi og geymslu. Búið er að klæða húsið að utan og lítur það mjög vel út. Möguleiki á 90% láni frá Íbúðalánasjóð. 4667. Verð 11,9 millj. Erna, sími 898 2273, sýnir milli kl. 14.00 og 16.00 í dag OPIÐ HÚS - Naustabryggja 29 Glæsieign, sem er 121,6 fm á tveimur hæðum, auk stæðis í bílageymslu. Íbúðin, sem er sérlega vel skipulögð, er á efstu hæð í fjölbýlishúsi. Um er að ræða forstofu, miðrými, 3 svefnherbergi, fataherbergi/geymsla, 2 stofur, eldhús, bað og þvottahús. Sjón er sögu ríkari. Verð kr. 20.000.000. Teitur sölufulltrúi sýnir eignina í dag, sunnudag, milli kl. 14.00 - 16.00 Teitur Lárusson sölufulltrúi Símar 520-9559 894-8090 teitur@remax.is MJÓDD Hans Pétur Jónsson lögg. fasteignasali

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.