Morgunblaðið - 25.04.2004, Síða 43
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. APRÍL 2004 43
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts og
útfarar ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
GUNNLAUGS GUÐMUNDSSONAR,
Lyngmóa 7,
Njarðvík.
Sérstakar þakkir til heimahjúkrunar og annars
starfsfólks á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Stefán Richter Gunnlaugsson,
Þórir Gunnlaugsson,
Gunnar Aðalbjörn Gunnlaugsson, Eygló Óskarsdóttir,
Ásta Jónína Gunnlaugsdóttir, Sigurður Hallgrímsson,
Ingibjörg Gunnlaugsdóttir, Björn Birgisson,
barnabörn, barnabarnabörn
og systkini hins láta.
Þökkum innilega auðsýnda samúð, hlýhug og
vináttu vegna andláts og útfarar elskulegs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður
og afa,
ÓLAFS JÓNS ÞÓRÐARSONAR,
Lerkigrund 6,
Akranesi.
Guð blessi ykkur öll.
Valgerður Jóhannsdóttir,
Guðný J. Ólafsdóttir, Guðjón Guðmundsson,
Daðey Þóra Ólafsdóttir,
Erla Ólafsdóttir, Fjölnir Þorsteinsson,
Þórdís Óladóttir, Skafti Baldursson
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug vegna andláts og útfarar ástkærrar
móður okkar,
HELGU JÓNSDÓTTUR,
Kjalardal.
Börn og fjölskyldur þeirra.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
SIGRÍÐAR FRIÐRIKSDÓTTUR,
Hverafold 138.
Sérstakar þakkir til starfsfólk krabbameins-
deildar Landspítalans (deild 11E).
Steindór Jónsson,
Þórunn Steindórsdóttir, Sveinbjörn S. Hilmarsson,
Jón Elvar Steindórsson, Anna Guðmundsdóttir,
Júlíus Hafsteinn Sveinbjörnsson,
Jón Kristján Sveinbjörnsson,
Tinna Marín Jónsdóttir.
Hann var til staðar, þegar ég kom
í heiminn. Á uppvaxtarárum mín-
um var hann fyrirmynd og vernd-
ari. Það eru mikil forréttindi fyrir
stráka á vissum aldri að eiga eldri
bróður. Stóri bróðir er þarna og
varasamt getur verið að gera þeim
litla eitthvað til miska. Auk þess
leyfðist mér að fylgja honum eftir
með hans félögum, þannig að þar
lærði ég einnig af eldri bróður. Á
unglingsárum var nærvera við
hann aðgangsmiði að útiveru á
kvöldin.
Þegar hann fullorðnaðist voru
ekki möguleikar fyrir hann að fara
í langskólanám. Hann fór því í
nám, þar sem hægt var að hafa
tekjur á námstíma. Hann fór á
samning og lærði vélvirkjun. Fljót-
lega eftir nám tók hann að sér
verkstjórn í verkstæði í Sandgerði
og fluttist þangað með sinni fjöl-
skyldu. Það lengdist því nokkuð á
milli okkar. Seinna varð hann
starfsmaður útgerðarfyrirtækis í
viðhaldi skipa og búnaðar. Síðustu
25 árin hefur hann unnið við við-
hald flugskýla á Keflavíkurflug-
velli.
Það að eiga eldri bróður opnaði
mér leið til að sækja mér mína
menntun og er ég Jóni þakklátur
fyrir það.
Jón var ákveðinn í skoðunum og
hljóp lítt eftir tísku. Hann vildi
vera sjálfstæður og sjálfum sér
nægur og lítið upp á hjálp annarra
kominn. Hann var sá klettur, sem
aðrir gátu leitað til. Barnabörnin
vissu það og komu tíðum við hjá
ömmu og afa.
Fyrir nokkrum árum áttum við
bræður ásamt Öllu og Birgit mjög
skemmtilega ferð um Frakkland.
Þar var rannsökuð landbúnaðar-
framleiðsla af ýmsum gerðum. Þá
kom í ljós hjá Jóni ánægja að njóta
þess, sem heimurinn býður upp á.
Við hjónin eigum góðar minningar
úr þessari ferð, sem og einnig úr
sameiginlegum ferðum um okkar
eigið land.
Fyrir um 12 árum heimsótti
krabbinn hann og að burtnumdum
líffærum lét sjúkdómurinn lítið á
sér kræla í allnokkur ár, en síðastu
tvö árin voru erfið barátta og að
endingu lagði meinið hann að velli.
Ég er þakklátur fyrir að hafa lif-
að í nágrenni Jóns. Við Birgit vott-
um Öllu, dætrunum og barnabörn-
unum samúð okkar og óskum þeim
alls góðs í ókominni framtíð.
Hreinn.
Stundin líður tíminn tekur
toll af öllu hér.
Sviplegt brotthvarf söknuð vekur,
sorg í hjarta mér.
Þó veitir yl í veröld kaldri,
vermir ætíð mig
að hafa þó á unga aldri
eignast vin sem þig.
Þú varst ljós á villu vegi,
viti á minni leið.
Þú varst skin á dökkum degi
dagleið þín var greið.
Þú barst tryggð í traustri hendi,
tárin straukst af kinn.
Þér ég mínar þakkir sendi,
þú varst afi minn.
(Hákon Aðalsteinsson.)
Kveðja.
Barnabörnin öll.
Elsku afi. Það er alltof skrítin
tilfinning að þú sért farinn frá okk-
ur.
Hugsandi um stundir sem við
höfum öll átt saman og hugsandi
að þessar stundir verða ekki fleiri.
En þú býrð ávallt í hjarta okkar og
öllum þessum frábæru æskuminn-
ingum okkar. Það er ekki ein
æskuminning sem þig vantar inní
og við erum mjög þakklátar fyrir
það að hafa átt þig sem afa okkar.
Það á eftir að verða mjög tómlegt
hér án þín.
Við vonum innilega að þér líði
sem best þar sem þú ert núna.
Við munum aldrei gleyma þér
svo lengi sem við lifum.
Við munum hugsa til þín og
biðja til þín á hverjum degi og í
framtíðinni fá allir sem í lífi okkar
verða að vita að þú varst besti afi í
heimi og við munum aldrei gleyma
þér.
Kveðja.
Þínar afastelpur
Aðalheiður Ásdís og
Guðríður Eva.
Afi minn.
Þú varst besti afi sem ég hef átt.
Þú varst góður,
þú varst vitur,
þú lékst við mig mikið þegar ég var lítil.
Ég mun biðja fyrir þér,
mun hafa mynd af þér hjá mér,
mun syngja fyrir þig,
mun heilsa þér á hverjum degi.
En þú ert farinn frá mér.
Ég mun elska þig alltaf.
Mundu eitt:
Ég er barnabarn þitt
og mun alltaf vera hjá þér
og þú hjá mér.
Þú ert líka afi minn.
Kveðja.
Guðrún Ósk.
Kæri vinur. Ég gerði mér ekki
grein fyrir því hve veikur þú varst
orðinn, því að þú barst þig mjög
vel öll þau skipti sem við heyrð-
umst eða sáumst. En nú er komið
að leiðarlokum hjá þér og mig tek-
ur mjög sárt að geta ekki fylgt þér
síðasta spölinn, en við erum búnir
að fylgjast að nær alla okkar lífs-
leið eða síðan við vorum átta ára
gamlir. Við eyddum skólaárunum
saman og fórum síðan í iðnnám, þú
vélvirkjun og ég húsgagnasmíði.
Þrátt fyrir að við eignuðumst eig-
inkonur og síðan börn þá héldum
við saman og hittist allur hópurinn
mjög oft, fórum í ferðalög saman
bæði innanlands og erlendis. Síðan
eru það öll samtölin sem við áttum
í gegnum síma, þau voru mörg og
aldrei varð okkur sundurorða,
þrátt fyrir að við skiptumst á skoð-
unum um marga hluti. Það var
alltaf gaman að spjalla við þig því
að þú varst ráðagóður og bjóst yfir
mikilli þekkingu á ýmsum hlutum,
enda fylgdist þú vel með því sem
var að gerast.
Vegna þinnar lifandi frásagnar-
gáfu var gaman að hlusta á þig
segja frá og lýsa hlutum. Mér
finnst erfitt að trúa því að sam-
ræður okkar verði ekki fleiri að
sinni og ég geti ekki tekið upp
símtólið og hringt í þig eða að ég
fái ekki hringingu frá þér.
Við Sólveig og öll mín fjölskylda
kveðjum þig með söknuði og þökk-
um fyrir öll árin sem við áttum
saman, en við hefðum gjarna viljað
að þau yrðu fleiri. Við sendum Að-
alheiði, Þóru, Ásdísi og fjölskyld-
um þeirra okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Vertu sæll að sinni, félagi, við
hittumst seinna.
Eyjólfur.
Daddý móðursystur minni kynnt-
ist ég fyrst þegar ég var smástelpa í
heimsókn hjá Gyðu og Guðmundi í
Lundi í Mosfellsbæ. Daddý var þá
KATRÍN
HÉÐINSDÓTTIR
✝ Katrín Héðins-dóttir fæddist í
Reykjavík 1. apríl
1927. Hún lést á
Landspítalanum í
Fossvogi á afmælis-
degi sínum 1. apríl
síðastliðinn, 77 ára
að aldri. Foreldrar
hennar voru Héðinn
Valdemarsson,
kunnur frammámað-
ur í íslensku sam-
félagi, f. 26.5. 1892,
d. 12.9. 1948, og
Gyða Eggertsdóttir
Briem, f. 12.5. 1908,
d. 28.4. 1983. Katrín, eða Daddý,
átti eina hálfsystur sammæðra,
Ásthildi, f. 1.3. 1934, dóttur Gyðu
og Guðmundar Þorkelssonar.
Útför Katrínar var gerð frá
Fossvogskapellu 14. apríl í kyrr-
þey að ósk hinnar látnu.
myndarleg unglings-
stelpa og ég gleymi því
aldrei hvað ég leit upp
til hennar. Ég var svo
stolt af þessari stóru
frænku minni, þessari
hjartahlýju og góðu sál.
Daddý átti við veikindi
að stríða á lífsleiðinni
en hún komst í gegnum
þau með dugnaði.
Hún helgaði eigin-
manni sínum til þrjátíu
ára, Magnúsi Jónssyni,
líf sitt og myndaðist
gott samband milli
Daddýjar og dóttur
Magnúsar, Hrefnu, síðustu ár.
Hrefna býr nú á Akurey í Landeyj-
um með eiginmanni sínum, Jóni
Ágústssyni. Samband Daddýjar við
börn Hrefnu og Jóns var henni mik-
ils virði þar sem Daddý og Magnús
voru barnlaus. Missir Magnúsar er
mikill við fráfall Daddýjar og sendir
fjölskylda mín og ég Magnúsi og fjöl-
skyldu hans hugheilar samúðar-
kveðjur. Megi hún hvíla í friði.
Katrín S. Briem.
Ástkær faðir okkar,
ALFREÐ EYFJÖRÐ STEINÞÓRSSON,
Spítalavegi 21,
Akureyri,
lést á Dvalarheimilinu Hlíð aðfaranótt föstudagsins 23. apríl sl.
Fyrir hönd aðstandenda,
Helga Alfreðsdóttir,
Helgi Ármann Alfreðsson.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma,
PÁLÍNA MAGNEA PÁLSDÓTTIR,
Skipholti 8,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi föstudaginn
23. apríl.
Páll Ástþór Jónsson, Hólmfríður Tryggvadóttir,
Hlín Pálsdóttir,
Sif Pálsdóttir,
Jón Ingi Pálsson.
Elsku amma mín,
langaði að þakka þér
fyrir öll árin. Ég sakna
þess að geta ekki leitað
tl þín lengur, ég er með mynd að þér
og afa í sólskálanum mínum og
HELGA (STELLA)
ÁGÚSTSDÓTTIR
✝ Helga Ágústs-dóttir, eða Stella
eins og hún var ætíð
kölluð, fæddist 10.
febrúar 1922. Hún
lést á gjörgæsludeild
Landspítalans við
Hringbraut 26. febr-
úar síðastliðinn og
var útför hennar
gerð frá Áskirkju 10.
mars.
kveiki á kerti á hverju
kvöldi og hugsa til þín
og afa. Anna dóttir þín
er búin að vera mér til
halds og trausts síðan
þú kvaddir okkur, við
söknum þín mjög mikið
og vonum að þér líði vel
núna hjá afa. Það er
voða erfitt hjá mér að
hugsa til þess að þú
sért farin en núna líður
þér vel í faðmi manns-
ins þíns.
Þín er mikið saknað
af mér og Helga bróðir.
Guð geymi þig og afa,
þín dótturdóttir
Kristín Wíum.