Morgunblaðið - 25.04.2004, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 25.04.2004, Qupperneq 49
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. APRÍL 2004 49 HS Bólstrun ehf. www.bolstrun.is/hs M EI ST AR AF ÉLAG BÓLSTRA R A STOFNAÐ 1928Skráning á www.gbergmann.is og í síma 517 3330 Heimsþekktir Kúndalíní jógakennarar! Ravi Singh og Ana Brett á Íslandi 14. til 16. maí í samstarfi við Guðjón Bergmann Ravi Singh hefur kennt og ástundað jóga í rúm 27 ár. Hann er oft nefndur „kennari kennaranna“, en hann hefur persónulega þjálfað rúmlega 300 kúndalíní jógakennara. Hann er væntanlegur hingað til lands ásamt Önu Brett sem er rísandi stjarna í jógaheiminum. Ravi og Ana ferðast um heiminn og kenna kúndalíní jóga. Meðal nemenda þeirra eru Gwyneth Paltrow, Madonna, Lou Reed, Carrie- Anne Moss, Donna Karan og meðlimir The Red Hot Chili Peppers. Föstudagur 14. maí kl. 20.00 Kynningarfyrirlestur um Kúndalíní jóga í Gallerí, Grand Hótel. Ókeypis aðgangur. Allir velkomnir! Laugardagur 15. maí kl. 10-12 og 14-16 Demantslíkaminn. Sunnudagur 16. maí kl. 10-12 og 14-16 Ferðalag í gegnum orkustöðvarnar. Verð: 24.900 kr. fyrir allt námskeiðið eða 14.900 kr. fyrir einn dag. Salómon Jónsson, löggiltur fasteignasali Fyrirtæki til sölu Upplýsingar um fyrirtæki ekki veittar í síma Við sölu fyrirtækja er gagnkvæmur trúnaður mikilvægur og við gefum því ekki upplýsingar um fyrirtæki í síma. Við viljum fá kaupendur til okkar og kynnast þeim, en með því móti getum við einnig þjónað þeim betur. Vinsamlega hringið áður og pantið tíma. Síminn er 533 4300, en einnig er hægt að nota tölvupóstinn: jens@husid.is . Eftirfarandi eru stuttar lýsingar á nokkrum fyrirtækjum sem eru fáanleg, en við auglýsum ekki nema brot af þeim fyrirtækjum sem höfum til sölu:  Sérverslun með eigin innflutning. 240 m. kr. ársvelta.  Útflutningsfyrirtæki með íslenskar afurðir. Rekstrarhagnaður 30 m. kr. á ári. Hentugt til sameiningar við svipað fyrirtæki.  Dagsöluturn í verslunarmiðstöð.  Íþróttavöruverslun með golfvörur o.fl. Þekkt merki. Sami eigandi í 20 ár. Hagstætt verð.  Maraþon í Kringlunni. Sportvöruverslun með þekkt merki og mikla sölu. Rekstrarhagnaður 11 m. kr. á ári.  Þekkt barnavöruverslun. Góð umboð.  Vörubílaverkstæði með mikil föst viðskipti. 4-5 starfsmenn. Vel tækjum búið, í eigin húsnæði á góðum stað.  Fasteignasala í fullum rekstri. Gott húsnæði og allur búnaður. Þrír sölu- menn og stækkunarmöguleikar.  Vitum af mörgum sérverslunum, heildverslunum og iðnfyrirtækjum í ýmsum greinum fyrir rétta kaupendur. Ársvelta 100-1000 m. kr.  Tvær litlar tískuverslanir í Kringlunni.  Þekkt lítið framleiðslufyrirtæki í matvælageiranum. Hentugt til samein- ingar.  Matvöruverslun, bensínssala og veitingarekstur í Búðardal. Eigið hús- næði. Ársvelta er nú tæpar 200 m. kr. og hefur farið vaxandi með hverju ári. Góður hagnaður um margra ára skeið og mjög heilbrigður rekstur. Sérstaklega hentugt fyrir stóra fjölskyldu eða tvenn hjón.  Rekstrarleiga með kauprétti. Þekkt dekurstofa. Nudd, Eurowave, hljóð- bylgjutæki, leirpottur, ljós og naglaborð. Góð staðsetning.  Flottur sportbar í góðu hverfi með nýjum innréttingum og tækjum, m.a. þrjú breiðtjöld. Velta 2-3 m. kr. á mánuði. Tilvalið fyrir samhent hjón.  Lítið og arðbært sjálfsalafyrirtæki. Hentugt sem aukavinna eða með öðrum rekstri. Góðir vaxtamöguleikar.  Söluturninn Hagamel. Auðveld kaup.  Álgluggaverksmiðja með miklum tækjakosti. Tilvalið til sameiningar. Meðeign kemur til greina.  Arðbært þjónustufyrirtæki í byggingariðnaði með góða verkefnastöðu. Ársvelta 60 m. kr. Tilvalið til sameiningar við fyrirtæki tengd bygg- ingaiðaði.  Rekstrarleiga með kauprétti. Stórt samkomuhús í nágrenni Reykjavíkur með góðri aðstöðu fyrir dansleiki, veislur og fundi. Ársvelta 30 m. kr. Gott tækifæri fyrir fagmenn.  Þekkt vefnaðarvöruverslun. Ársvelta 60 m. kr. Góð framlegð. Tilvalið fyrir „saumakonur“ með góðar hugmyndir. Gagnlegur fróðleikur á heimasíðu fyrirtækjadeildar: www.husid.is . Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin v/Faxafen), sími 533 4300, GSM 820 8658. Daily Vits FRÁ E rt u s la p p u r A ll ta f ó d ýr ir Stanslaus orka H á g æ ð a fra m le ið sla -fyrir útlitið Nr. 1 í Ameríku Gott tækifæri LAUGAVEGUR Spennandi veitingastaður, bar, með leyfi fyrir áfengisveitingar í garði, til sölu eða leigu. Upplýsingar í síma 698 9786 eða 699 4631. GRÍÐARLEGT átak hefur verið unnið á síðustu árum í umhverfismál- um í Reykjanesbæ og hafa íbúar bæjarins yfir mörgu að gleðjast í þeim efnum enda hefur umhverfi bæjarins tekið miklum stakkaskipt- um á mjög skömmum tíma. Um- hverfismál eru mikilvægur þáttur í nútíma þjóðfélagi en með góðum ár- angri í þessum málaflokki má auðga mannlíf og lífsgæði til muna, auka at- vinnutækifæri og bæta útivistar- möguleika. Dagur umhverfisins er haldinn hátíðlegur í sjötta sinn 25. april og má með sanni segja að Reykjanesbær sé nú kominn í hátíð- arbúning. Öll viljum við hafa fallegt og aðlað- andi umhverfi. Fegrun bæjarins af hálfu bæjaryfirvalda hefur verið markviss og hnitmiðuð síðustu ár. Hvatning til einstaklinga og fyrir- tækja til fegrunar húsa og síns nán- asta umhverfis hefur þegar skapað bæjarfélag þar sem gott er að búa og gott heim að sækja en í fallegu um- hverfi hefur Reykjanesbær alla burði til að verða einstakur ferðamanna- staður á Íslandi með eitt besta að- gengi að 350.000 ferðamönnum ár- lega. Og með Bláa lónið við bæjarmörkin og útvistarparadís við Reykjanesvita í okkar bæjarlandi eru stóru tækifærin skammt undan. Aðalaðkoma frá tvöfaldri Reykja- nesbraut til bæjarins verða við Fitjar en þær eru í dag glæsileg útvistar- paradís þar sem fuglalífið fær að njóta sín. Gerð Fitjabakka er enn í fullum gangi en okkar framtíðarsýn á manngerðri Fitjatjörn er sjósport við lægi Íslendings og falleg ylströnd bæjarbúum og gestum til yndisauka. Steinsnar frá hafa ný og skemmtileg íbúðarsvæði verið skipulögð í svo- kölluðu Tjarnarhverfi. Í þessu glæsi- lega umhverfi með nýjan grunnskóla og öflugan leikskóla mun hverfið án efa byggjast hratt upp á næstu árum. Um fáar framkvæmdir hefur meira verið rætt á síðustu árum en endurbyggingu Hafnargötunnar sem um árabil hefur verið þyrnir í augum. Heildarútlit götunnar hefur þegar tekið miklum breytingum, gangstéttir hellulagðar svo og mikill hluti götunnar sjálfrar, lýsing end- urhönnuð og hringtorg gerð við helstu gatnamót en nýjum bekkjum og beðum mun verða komið fyrir áð- ur en framkvæmdum lýkur fyrir næstu Ljósanótt. Í dag eru nær eng- in laus verslunarpláss í miðbænum og dæmi eru um að margir aðilar hafi barist um laus rými. Framtíðaráform um verslunarmiðstöð í miðbænum þykja ekki lengur fjarlægur draum- ur í tengslum við lifandi aðalgötu á lífæðinni og skemmtilegan bæjar- brag. Strandlengjan frá Keflavíkurbergi að Stapa Klæðning strandlengjunnar frá glæsilegu Keflavíkurbergi í norðri að þverhníptum sjávarbjörgum Stap- ans er einstakt stórverkefni sem þeg- ar setur mikinn svip á umhverfi bæj- arins bæði frá sjó og landi en við ströndina eru fjölmargar og einstak- ar klettamyndanir sem nú njóta sín fyrst til fulls. Með þessari stóru framkvæmd hefur okkur bæði tekist að bæta sjónrænt útlit strandarinnar um leið og öflugir sjóvarnargarðar munu verja landið ágangi sjávar til langrar framtíðar. Um leið og fegrunarframkvæmdir setja æ meiri svip á Reykjanesbæ var áætlun um Bæjarhlið hrint í framkvæmd og má með sanni segja að vel hafi til tekist í þeirri þróun- arvinnu sem verkefnið krafðist. Í tengslum við Bæjarhliðið vaknaði síðan hugmynd um að stórgrýti gæti á skemmtilegan hátt rammað inn bæinn okkar séð frá Reykjanesbraut sem aftur kallaði fram hugmynd Áka Gränz listamanns um steingerðar kynjaverur í bæjarlandinu. Ég fullyrði að ekkert sveitarfélag á Íslandi hefur tekið eins miklum breytingum í umhverfismálum og Reykjanesbær hefur gert á síðustu árum. Auk þess sem að ofan greinir má nefna hreinsun Nikkelsvæðisins, lagfæringu gatna, gangstétta og op- inna svæða með göngustígakerfi sem nú er að mestu frágengið, uppbygg- ingu gamla bæjarins og Duushúsa og nánasta umhverfis. Með tilkomu Sopreyðingarstöðvarinnar Kölku í Helguvík þar sem risin er ný og glæsileg brennslustöð og móttöku- stöð fyrir sorp má segja með sanni að Reykjanesbær sé orðinn leiðandi bæjarfélag í eyðingu úrgangs á Ís- landi. Á heimasíðu Reykjanesbæjar má finna nýja umhverfisstefnu sem sam- þykkt var í bæjarstjórn í byrjun árs, starfsáætlun Umhverfis- og skipu- lagssviðs og fyrsta rammaskipulag Reykjanesbæjar. Markmið ramma- skipulags, sem er millistig á milli að- alskipulags og deiliskipulags, er nú- tíma skipulagning svæða til lengri tíma þar sem settar eru fram hug- myndir af framtíðaruppbyggingu bæjar eða bæjarhluta. Í dag er unnið að gerð nýs aðalskipulags og gera áætlanir ráð fyrir að þeirri vinnu ljúki þegar í upphafi sumars. Það er mat undirritaðs að ofan- greindar framkvæmdir séu bænum og bæjarbúum öllum til mikils sóma en oft er sagt að umhverfið sýni okk- ar innri mann. Við getum verið stolt af umhverfi okkar en ætlum að halda áfram góðu verki og munum hvergi slaka á í að gera góðan bæ betri. Fyr- ir mitt leyti hefur verið ánægjulegt að taka þátt í þeirri miklu uppbygg- ingu sem hér hefur átt sér stað og setur mark sitt á umhverfi Reykja- nesbæjar til lengri framtíðar. Gleðilegt sumar í fallegu umhverfi. STEINÞÓR JÓNSSON, formaður Umhverfis- og skipulagsráðs í Reykjanesbæ. Dagur umhverfisins Frá Steinþóri Jónssyni:
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.