Morgunblaðið - 25.04.2004, Síða 50

Morgunblaðið - 25.04.2004, Síða 50
DAGBÓK 50 SUNNUDAGUR 25. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Á morgun er Kroonborg væntanlegt. Hafnarfjarðarhöfn: Í dag er Kroonborg væntanlegt. Fréttir Fjölskylduhjálp Ís- lands Eskihlíð 2–4 í fjósinu við Miklatorg. Móttaka á vörum og fatnaði, mánudaga kl. 13–17. Úthlutun mat- væla og fatnaðar, þriðjudaga kl. 14–17. Sími skrifstofu er 551 3360, netfang dal- ros@islandia.is, gsm hjá formanni 897 1016 Mannamót Bólstaðarhlíð 43. Fimmtudaginn 6. maí kl. 14 verður sum- argleði, Þorvaldur Halldórsson leikur fyr- ir dansi og tvær útvald- ar verða með smá leik- þátt. Gott með kaffinu. Skráning og greiðsla fyrir þriðjudaginn 4. maí. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Dansleikur í kvöld kl. 20, Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Félags- heimilið er opið virka daga frá kl. 9–17, alltaf heitt kaffi á könnunni. Munið Borgarfjarð- arferðina 4. maí. Félagsstarf eldri borg- ara í Mosfellsbæ. Pútt- kennsla í Íþróttahús- inu Varmá, á sunnudögum kl. 11–12. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Fjölbreytt dagskrá hvern virkan dag kl. 9–16.30, m.a. opnar vinnustofur, spilasalur, sund- og leikfimiæfingar í Breiðholtslaug o.fl. Gjábakki, Fannborg 8. Hörðuhátíð verður í Gjábakka fimmtudag- inn 29. apríl. Dag- skráin, sem er sam- starfsverkefni Leikskólans Mar- bakka, Digranesskóla og Gjábakka, hefst kl. 14. Listvefarar úr hópi Guðrúnar Vigfúsdóttur listvefara leiðbeina ungum og öldnum í listvefnaði. Ungir og aldnir prjóna saman. Um sköpunarhornið sjá starfsmenn Mar- bakka og myndlist- arhópur Gjábakka. Skákklúbbar Gjábakka og Digranesskóla leiða saman hróka sína. Það eru skákkóngarnir Grímur Ársælsson og Smári Rafn Teitsson sem leiðbeina fólki á öllum aldri. Benedikt búálfur kemur í heim- sókn. Nemendur Digranesskóla og leik- skólans Marbakka syngja. Hinn sívinsæli og ástsæli Geiri Ragg flytur nokkrar ólgeym- anlegar dæg- urlagaperlur. Flutt frumort ljóð. Flytj- endur úr ljóðahópi Gjá- bakka og ljóðamenn úr Digranesskóla. Ferðaklúbbur eldri borgara. Hringferð um Reykjanes: Garðskagi, Stafnes, Reykjanesviti, Grindavík, Krýsuvík. Upplýsingar í síma 892 3011. Kvenfélag Hreyfils. Fundurinn verður þriðjudaginn 27. apríl kl. 20. Kvenfélag Árbæj- arsóknar. Félagsfundi 6. maí frestað. Fyr- irhuguð vorferð aug- lýst síðar. Stjórnin. NA (Ónefndir fíklar). Neyðar- og upplýs- ingasími 661 2915. Opnir fundir kl. 21 á þriðjudögum í Héðins- húsinu og á fimmtu- dögum í KFUM&K, Austurstræti. ITC Harpa. Fundur verður þriðjudaginn 27. apríl kl. 20 á þriðju hæð í Borgartúni 22. Gestir velkomnir. Tölvupóstfang ITC Hörpu er itcharpa- @hotmail.com, heima- síða http://www.life.is/ itcharpa. Nánari upp- lýsingar gefur Guðbjörg í síma 865 2231. Minningarkort Minningarkort Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar ( KH), er hægt að fá í Bóka- búð Böðvars, Reykja- víkurvegi 64, 220 Hafn- arfirði s. 565 1630. Krabbameinsfélagið. Minningarkort félags- ins eru afgreidd í s. 540 1990 og á skrifstof- unni í Skógarhlíð 8. Hægt er að senda upp- lýsingar í tölvupósti (minning@krabb.is). Minningarkort Sjálfs- bjargar félags fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu fást hjá Sjálfsbjörg fé- lagi fatlaðra á höf- uðborgarsvæðinu, Há- túni 12, sími: 551 7868 Kortin er einnig hægt að panta með tölvu- pósti, rfelag@sjalfs- bjorg.is Kortin eru innheimt með gíróseðli. Minningarkort For- eldra- og vinafélags Kópavogshælis fást á skrifstofu end- urhæfingadeildar Landspítalans Kópa- vogi (fyrrverandi Kópavogshæli), s. 560 2700 og skrifstofu Styrktarfélags vangef- inna, s. 551 5941 gegn heimsendingu gíróseð- ils. Í dag er sunnudagur 25. apríl, 116. dagur ársins 2004, Gangdagurinn eini. Orð dagsins: Prédika þú orðið, gef þig að því í tíma og ótíma. Vanda um, ávíta, áminn með öllu langlyndi og fræðslu. (2.Tím. 4)     Gunnlaugur Júlíusson,stjórnarmaður í Framsóknarfélagi Reykjavíkurkjördæmis suður, skrifar pistil á Hrifla.is um nýlegt þing- mál, sem varð mikið um- deilt. „Nýlega var lagt var fyrir Alþingi frumvarp þess efnis að vinnuveit- endum væri gert mögu- legt að taka lífssýni úr starfsmönnum ef grunur léki á að þeir væri undir áhrifum vímugjafa í vinnunni sem yfirleitt er ekki talið æskilegt. Það var eins og við manninn mælt að upp risu þing- menn eins og gorkúlur á skítahaug og töluðu sig hása yfir þeim mannrétt- indabrotum sem fyr- irhugað væri að fremja,“ skrifar Gunnlaugur. „Brotin væru framin á þeim sem yrðu fyrir því að talin væri ástæða til að kanna hvort væru undir einhvers konar áhrifum. Nú hefur lögreglan síðan ég veit ekki hvenær getað látið ökumenn blása í blöðru eða tekið úr þeim blóð til að kanna áfeng- isinnihald í blóði þeirra ef grunur leikur á því að þeir séu undir áhrifum. Þeir sem ekki hafa drukkið hafa ekkert að óttast en hinir sem mæl- ast með alkóhól í blóðinu sitja í súpunni.     Nú geri ég ekki ráð fyr-ir því að vinnuveit- endur fari um eins og logi yfir akur og mæli dag út og dag inn hvort menn séu undir áhrifum í vinnunni, heldur geri ég ráð fyrir því að það sé tal- ið æskilegt að gefnum til- efnum að þessi heimild sé fyrir hendi til að hægt sé að gæta öryggis annarra starfsmanna á vinnu- staðnum. Ég man t.d. eft- ir því frá þeim tíma sem ég var á sjó vestur á fjörðum að á einum bátn- um sem ég var á var vél- stjórinn dálítið drykk- felldur. Hann skaut oft á sig einum eða tveim á stíminu inn á laug- ardögum þegar helgar- fiðringurinn var farinn að gera vart við sig hjá sér. Við löndun hafði vélstjór- inn það hlutverk að vera á spilinu og hífa málið upp úr lestinni. Hann bar þar af leiðandi nokkra ábyrgð á útlimum þeirra sem í lestinni og á bryggj- unni störfuðu. Við vissum alveg hvenær hann var rakur því þá öskraði hann eins og ég veit ekki hvað á alla í kringum sig að passa sig. Aðra daga var hann frekar hljóður við störf sín.     Nú spyr ég þingmann-inn unga sem talaði sig hásan um ranglæti heimsins gagnvart þeim sem hugsanlega væru beðnir um lífsýni (blása í blöðru eða pissa í glas) hvort það hefði verið mannréttindabrot gagn- vart vélstjóranum eða verið að gæta hagsmuna okkar sem farþegar í lest- inni ef tekin hefði verið af honum áfengisprufa, hálffullum á spilinu.“ STAKSTEINAR Mannréttindabrot eða öryggisatriði? Víkverji skrifar... Fjölskylda Víkverja ermjög hrifin af þríeykinu sem stjórnar sjónvarpsþættinum 70 mínútum sem sýndur er á Popptíví. Þeir Auddi, Sveppi og Pétur Jóhann eru lífsglaðir menn sem virðast á einhvern hátt, sem Víkverji treystir sér ekki til að útskýra, höfða til fólks á öllum aldri. Þátturinn er í fyrsta lagi mjög fjöl- breyttur, samræður þeirra félaga oftast drepfyndnar og gestir þátt- arins, sem oft þurfa að leysa ótrúleg- ustu þrautir, standa sig ávallt með stökustu prýði við það að halda and- litinu við neyðarlegar uppákomur. Þættirnir eru reyndar sýndir svo seint á kvöldin að yngstu aðdáend- urnir eiga þess vart kost að horfa á þá. Það er þó bót í máli að þeir eru endursýndir kl. 7 á morgnana og hefur Víkverji heyrt frá fleiri en ein- um aðila að smáfólk sé duglegt að rífa sig á fætur fyrir allar aldir til að sjá sprellið hjá Sveppa, Audda og Pétri. Svo kannski er tímasetningin á kvöldin ekki svo galin eftir allt saman! x x x Víkverji er duglegur að taka vítam-ín. Hann á það líka til að bæta í vítamínflóru sína nýjum og spenn- andi vítamínum og hugsanlega gengur Víkverji aðeins of langt í þeim efnum! En burt séð frá því, þá lenti Víkverji í því um daginn að kaupa sér tvenns konar vítamín (bætiefni) sem hann hafði ekki keypt áður en á búðarhillunni stóð að þau væru góð við ákveðnum kvillum sem Víkverji taldi sig mega bæta. Vík- verji tók því töflurnar samvisku- samlega á hverjum degi lengi, þar til einn morguninn að hann stóð með töflurnar í hendinni og áttaði sig á því að hann mundi ekki fyrir sitt litla líf á hvaða kvillum litlu töflurnar áttu að vinna! Víkverja fannst þetta frekar vandræðalegt og leitaði á vítamínglös- unum að upplýsingum um virkni bætiefnanna. En slíkar upplýsingar er ekki að finna utan á glös- unum sem eru merkt Heilsu ehf. Þegar um kalk eða C-vítamín er að ræða er kannski óþarfi að taka fram á glasinu hver virknin er en þegar um flóknari nöfn og sjaldgæfari efni er að ræða finnst Víkverja það nauð- synlegt! Það er ekki nóg að hans mati að merkja búðarhillurnar með upplýsingum um gagnsemi efnisins. x x x Víkverji fagnar sumri og vonar aðsem fyrst verði gert við holur í götum borgarinnar. Hann bendir sérstaklega á holur á bílastæðinu við Sambíóin í Álfabakka sem eru djúp- ar og stórar. Víkverji er á svo til nýj- um bíl og er hræddur um að þessar holur eigi eftir að skemma bílinn. Hann á því eftir að anda léttar þegar malbikunarteymin mæta til starfa. Auddi, Sveppi og Pétur Jóhann bjarga oft geðheilsu Víkverja. Morgunblaðið/Eggert ÞAÐ að gefa litlar, þýðing- armiklar gjafir við „rétt“ tilefni, samkvæmt trú okk- ar, hefur breyst samhliða hinni vestrænu menningu sem hefur heltekið okkur öll í þessari blessaðri ný- lendu okkar. Stórar mörg þúsund króna gjafir á jólum, ferm- ingum og á fleiri mistúlk- uðum fagnaðarefnum hef- ur síðustu ár gert mann og annan gjaldþrota. Menn eru ekki meðal manna nema taka þegjandi og hljóðalaust himinháar upp- hæðir yfir kortainnstæðu við þessi tilefni. Eftir „mammonsveislu- kvöld“, hinn 24. desember, fara menn ásamt fjölskyld- um sínum og kaupa mörg þúsund króna flugelda, rándýrt áfengi og mat til þess eins að fagna komu nýs árs. Næst á dagskrá eru um það bil 100 veislur og önn- ur fagnaðarefni þar sem misjafnlega vel stæðar fjöl- skyldur þurfa jafnoft að draga upp heftið. Ofan á þetta koma fermingar, þar sem aðaltilgangurinn er að börnin staðfesti trúna sem foreldrar þeirra hafa tugg- ið ofan í þau í um 14 ár án þess að minnast á það að til séu aðrar leiðir í trúnni sem annað heilvita fólk í öðrum menningarheimum aðhyllist. Því einhvern tím- ann á árum áður var einnig tuggið ofan í foreldrana, ekkert nema innantómar fullyrðinar. Sjálfur er ég engum æðri í trúmálum, hvorki nær né fjær guði en næsti maður. En ég hlýt að draga siði okkar Íslend- inga í trúmálum í efa að vissu leyti. Ekki þurfti meira en svipinn á frænd- fólki mínu í fermingu syst- ur minnar um páskana til þess að hefja hugsun. Falskur svipur flestra sagði mér að þeim var ekk- ert of vel við að eyða mörg þúsund krónum í tilefni staðfestingarinnar, enda flestir að fara í um það bil fimm aðrar veislur með sama svipinn. Tilgangur greinar minn- ar er að áminna lands- menn. Við höfum hægt og rólega sogast inn í ein- hvers konar vestræna mammonstrú. Endurskoð- ið trú ykkar nú í upphafi nýrrar aldar, gjafir frá hjartanu eru þær sem minnst er, þó auðvitað verði að borga fyrir á viss- um tilefnum ef aurinn er við hönd, en öllu má of- gera. Ykkar maður, Gunnar Gíslason. Dýrahald Grettir er týndur 14 ÁRA hreinræktaður sí- amsköttur týndist frá Hryggjarseli í Breiðholti 20. apríl sl. Hann er merktur. Þeir sem hafa orðið hans varir hringi í síma 557 6996. Kettlingar fást gefins 7 VIKNA fallegir kettling- ar, loðnir og af blönduðu skógarkyni, fást gefins. Kassavanir. Uppl. í síma 849 7971. Naggrísir fást gefins TVEIR naggrísir fást gef- ins, búr o.fl. fylgir. Uppl. í síma 849 7971. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Vestræn mammonstrú LÁRÉTT 1 grunar, 4 á hesti, 7 fisk- að, 8 frost, 9 keyra, 11 rændi, 13 sár, 14 kjáni, 15 feiti, 17 tunnur, 20 greinir, 22 fjandskapur, 23 tignarmanni, 24 af- komenda, 25 þreytuna. LÓÐRÉTT 1 yndis, 2 kverksigi, 3 tala, 4 klína, 5 skýja- þykkni, 6 duglegur, 10 pysjan, 12 dauði, 13 knæpa, 15 konan, 16 am- boðið, 18 glitra, 19 glæsi- leiki, 20 starf, 21 manns- nafn. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 fábreytta, 8 skrök, 9 tútna, 10 aki, 11 rómar, 13 reisa, 15 sakna, 18 eigra, 21 ugg, 22 eiðið, 23 Iðunn, 24 kauðalegt. Lóðrétt: 2 áfram, 3 ríkar, 4 ystir, 5 totti, 6 ósar, 7 hana, 12 ann, 14 efi, 15 skel, 16 keðja, 17 auðið, 18 Egill, 19 grugg, 20 asni. Krossgáta  Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.