Morgunblaðið - 25.04.2004, Side 51

Morgunblaðið - 25.04.2004, Side 51
60 ÁRA afmæli. Ámorgun, mánudag- inn 26. apríl, verður sextug frú Hildur Guðný Björns- dóttir, Hraunbæ 134 í Reykjavík. Hún og eig- inmaður hennar, Þórarinn Tyrfingsson, taka á móti ættingjum og vinum í Sunnusal Hótel sögu í dag, sunnudaginn 25. apríl, frá kl. 15.30. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. APRÍL 2004 51 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ Frances Drake NAUT Afmælisbörn dagsins: Þú ert kraftmikil/l, líkamleg/ ur og jarðbundin/n og setur mark þitt á umhverfi þitt. Komandi ár getur orðið eitt árangursríkasta ár ævi þinnar. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þig langar til að láta það eft- ir þér að kaupa þér eitthvað í dag. Þú gætir líka fengið óvænt atvinnutilboð. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú gætir rekist á óvenjulegt fólk í dag. Það er einnig hugsanlegt að vinir þínir komi þér verulega á óvart. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú gætir þurft að takast á við yfirvöld eða stórar stofn- anir í dag. Ekki láta þetta slá þig út af laginu. Gefðu þér tíma til að hugsa málið og átta þig á stöðunni. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Vinur þinn gæti kynnt þig fyrir nýjum hugmyndum í dag sem vekja þig til um- hugsunar um málefni sem þú hugsar yfirleitt ekki svo mik- ið um. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú gætir fengið loforð um styrk eða samþykki fyrir fyrirætlunum þínum hjá yf- irmanni þínum í dag. Þú gætir einnig fengið tilmæli um það hvernig þú eigir að deila sameiginlegu fé. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Vertu opin/n fyrir þeim tækifærum sem þér bjóðast í tengslum við ferðalög og framhaldsmenntun. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Hikaðu ekki við að þiggja þá aðstoð sem þér býðst í dag. Það er óþarfi að hafa áhyggjur af skuldadögunum. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú munt hugsanlega verða skotin/n í vini/vinkonu þinni í dag. Ekki útiloka neitt nema að vandlega íhuguðu máli. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Það er hætt við að tölvu- og tæknibilanir slái þig út af laginu í vinnunni í dag. Vertu á verði því það eru miklar líkur á einhverju óvæntu. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú gætir fengið spennandi boð um að fara út á lífið eða á íþróttaviðburð í dag. Vertu tilbúin/n að grípa tækifærið þegar það gefst. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú munt hugsanlega kaupa eitthvað sem tengist tölvum fyrir heimilið í dag. Gerðu ráð fyrir einhverju óvæntu og reyndu að fyrirbyggja slys. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú hefur mikla þörf fyrir að blanda geði við fólk í dag. Þú ert uppfull/ur af spennandi hugmyndum sem þig langar til að deila með öðrum. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. MEYJARMISSIR Björt mey og hrein mér unni ein á Ísa-köldu-landi. Sárt ber ég mein fyrir silkirein sviptur því tryggðabandi. Það eðla fljóð gekk aðra slóð en ætlað hafði ég lengi, daprast því hljóð, en dvínar móð, dottið er fyrra gengi. Stórt hryggðar kíf sem stála dríf stingur mig hverju sinni. Það eðla víf, meðan endist líf, aldrei fer mér úr minni. - - - Stefán Ólafsson LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA 95 ÁRA afmæli. Ámorgun, mánudag- inn 26. apríl, er 95 ára Sig- urjón Jónsson, Furugerði 1, Reykjavík. Hann tekur á móti ættingjum og vinum í KR-heimilinu í dag, sunnu- dag, kl. 15-18. 80 ÁRA afmæli. Ámorgun, mánudag- inn 26. apríl, er áttræð Anna Jónsdóttir frá Hólmavík, nú til heimilis að Hraunteig 17, Reykjavík. Í tilefni þess- ara tímamóta tekur hún á móti ættingjum, vinum og öðrum samferðamönnum í Félagsheimili Orkuveitu Reykjavíkur (Rafveituheim- ilinu við Elliðaár) á afmæl- isdaginn milli klukkan 16 og 19. TIL AÐ byrja með eru þrjú grönd álíka pottþétt og mynd með James Woods. En það er bara rétt í upp- hafi. Settu þig í spor suðurs. Suður gefur; enginn á hættu. Norður ♠K4 ♥D1083 ♦43 ♣Á10952 Suður ♠Á653 ♥92 ♦ÁDG2 ♣KD4 Vestur Norður Austur Suður -- -- -- 1 grand Pass 2 lauf Pass 2 spaðar Pass 3 grönd Allir pass Nokkuð óvænt hefur vestur vörnina með spaða- drottningu. Þú tekur slag- inn heima með ás og spilar laufkóng og drottningu. Þú hefur séð þetta fyrir – vest- ur á bara eitt lauf og hendir hjarta. Hvernig viltu spila? Það er of tímafrekt að reyna við hjartað. Betra er að spila upp á fjóra laufslagi og treysta síðan á svíningu fyrir tígulkóng. En það þarf að spila tígli tvisvar úr blindum og því er eins gott að nýta samganginn vel. Norður ♠K4 ♥D1083 ♦43 ♣Á10952 Vestur Austur ♠DG1097 ♠82 ♥K654 ♥ÁG7 ♦765 ♦K1098 ♣3 ♣G876 Suður ♠Á653 ♥92 ♦ÁDG2 ♣KD4 Lausnin er fólgin í því að yfirdrepa laufdrottninguna og svína strax í tíglinum. Fría svo laufið og nota inn- komuna á spaðakóng til að svína aftur í tígli. Einfalt, en sjaldgæft stef. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 1. Rf3 d5 2. d4 e6 3. c4 c5 4. cxd5 exd5 5. g3 Rc6 6. Bg2 Rf6 7. 0-0 Be7 8. Rc3 0-0 9. Bg5 c4 10. Re5 Be6 11. e3 Rd7 12. Rxc6 bxc6 13. Bxe7 Dxe7 14. b3 Rb6 15. bxc4 Rxc4 16. Da4 Hab8 17. Hab1 Da3 18. Dc2 Bf5 19. Dxf5 Dxc3 20. Hbc1 Da3 21. Dd7 Hb2 22. Dxc6 Staðan kom upp í frönsku deilda- keppninni sem lauk fyrir skömmu. Ser- gey Galdunts (2.494), svart, virtist eiga erfiða vörn framundan gegn hinum öfluga þýska stórmeistara og laganema Jan Gustafsson (2.579) en tókst þó að bjarga sér með snaggalegri fléttu. 22. – Hxf2! 23. Hxf2 Dxc1+ 24. Bf1 Dxe3 25. Dxd5 Rd2 26. Kg2 Rxf1 27. Hxf1 og jafn- tefli samið. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. Skemmtifundur í Glæsibæ Síðasti skemmtifundur vetrarins í Glæsibæ í dag kl. 15.00. Hljómsveitir félagsins koma fram auk Grettis Björnssonar og fleiri einleikara frá F.H.U.R. F.H.U.R Vinnufatabúðin Laugavegi 76, sími 551 5425 Jæja, strákar Nú er kominn tími til Stærðir frá 2X-8X Verð - gæði - þjónusta- i - RECEPTIE KONINGINNEDAG 2004 De Consul Generaal der Nederlanden, de heer Bjarni Finnsson, en zijn echtgenote heten alle Nederland- ers hartelijk welkom op de Koninginnedag receptie te houden op Donderdag 29 april van 17.30 - 19.30 uur in het museum "Listasafn Sigurjóns Ólafssonar", Laugarnestanga 50, 105 Reykjavík. Wie aan de uitnodiging gehoor wil geven wordt wel verzocht zich vóór 26 april op te geven bij het Cons- ulaat, tel. 533 1002. Op werkdagen geopend tussen 10:00 en 12:00. Of via e-mail: consulnl@skogarsel.is MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyr- irvara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmæl- istilkynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og síma- númer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréf- síma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Mér þykir þeir vera farn- ir að spara kúlurnar … www.thjodmenning.is SMS FRÉTTIR mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.