Morgunblaðið - 25.04.2004, Page 52
AUÐLESIÐ EFNI
52 SUNNUDAGUR 25. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
„ÉG SLÍT mig úr beltinu og það
er bara eins og mér hafi verið
kippt út úr bílnum. Þegar ég
lendi í götunni og lít aftur fyrir
mig, þá sé ég ljósin á bílnum
hverfa niður fyrir vegkantinn.
Fyrst heyrði ég sprengingu, þá
hefur örugglega loftpúði verið
að springa eða þá dekk undan
bílnum. Svo heyrði ég bara
skruðninga og læti niður
dalinn,“ sagði Vilhjálmur
Árnason, sem slapp
naumlega út þegar
vöruflutningabifreið hans fór
út af veginum á Klettshálsi í
Barðastrandasýslu og hrapaði
niður 40-50 metra háa skriðu.
Mikið hvassviðri var á
Klettshálsi þegar slysið átti
sér stað og hálkublettir.
Bifreiðin var að flytja 20 tonn
af rækju frá Reykjavík til
Bíldudals.
Vilhjálmur sagði að hann
hefði lent á hálkubletti og
bíllinn tekið að spóla. Hann
hefði áður lent í sömu
aðstæðum en þá alltaf tekist
að bakka og komast á fast til
að setja keðjur undir, en nú
hefði ekki ráðist við neitt.
Vilhjálmur sagðist ákveðinn
í að halda áfram akstrinum.
„Það er bara að drífa sig sem
fyrst af stað aftur, en ég
hugsa að ég taki Baldur svona
til að byrja með. Ég er búinn
að keyra í þó nokkur ár og
þetta er í fyrsta skiptið sem ég
lendi í nokkru svona.“
„Eins og mér hafi verið kippt út“
Morgunblaðið/Birna Mjöll
Flutningabíllinn valt 40–50 metra niður hlíðina.
Netfang: auefni@mbl.is
TVEIR lestarvagnar, sem
talið er að hafi verið hlaðnir
dýnamíti og bensíni, sprungu
á fimmtudag í borginni
Ryongchon í Norður-Kóreu,
um 20 kílómetra frá
landamærunum að Kína.
Talið var í fyrstu að um
árekstur milli
járnbrautarlesta hefði verið
að ræða. En í gær sögðu
heimildarmenn að vagnarnir
hefðu verið færðir inn á
hliðarspor og
rafmagnskaplar hefðu fallið
á þá með fyrrgreindum
afleiðingum.
Talsmenn Rauða krossins
segja að minnst 54 hafi látið
lífið og um 1200 slasast,
einnig að um 1850
íbúðarhús og aðrar byggingar
hafi eyðilagst í Ryongchon.
Líklegt sé að tala látinna eigi
eftir að hækka.
Ríkissjónvarpið í
Norður-Kóreu hafði í gær enn
ekki skýrt frá slysinu. Það
fjallaði hins vegar ítarlega
um opinbera heimsókn
leiðtoga landsins, Kim
Jong-Ils, til Kína. Lest með
Kim og föruneyti hans fór um
Ryongchon um níu
klukkustundum áður en
slysið varð en ekki er talið að
um tilræði hafi verið að
ræða.
Norður-Kórea
Mann-
skætt
lestarslys
FRAKKINN Zinedine Zidane
hefur verið kjörinn besti
knattspyrnumaður Evrópu
síðustu 50 ára í kjöri sem
Knattspyrnusamband
Evrópu, UEFA, stóð fyrir á
Netinu í tilefni 50 ára
afmælis síns á þessu ári. Í
öðru sæti varð Þjóðverjinn
Franz Beckenbauer og Johan
Cruyff varð í þriðja sæti. Alls
tóku um 150.000 manns
þátt í kjörinu.
Í fjórða sæti hafnaði
Hollendingurinn Marco van
Basten, Ítalinn Dino Zoff
varð fimmti og jafnframt
efstur markvarða á listanum.
Sjötti varð Spánverjann
Alfredo di Stefano,
Portúgalinn Eusébio hlaut
sjötta sætið og rússneski
markvörðurinn Lev Yashin
varð áttundi. Landi Zidane,
Michel Platini, hlaut níunda
sætið og Paolo Madini varð
tíundi.
Alls stóð valið á milli 250
knattspyrnumanna, 50 frá
hverjum áratug þeirra 50 ára
sem liðin eru síðan UEFA var
stofnað.
Zidane, sem verður 32 ára
í júní, leikur nú með Real
Madrid og hefur þrisvar
sinnum verið valinn besti
knattspyrnumaður heims í
árlegu kjöri Alþjóða
knattspyrnusambandsins,
FIFA. Hann var í sigurliði
Frakka á HM 1998 og á EM
tveimur árum síðar. Þá var
hann í liði Real Madrid sem
varð Evrópumeistari
félagsliða fyrir tveimur árum.
Reuters
Frakkinn Zinedine Zidane
fagnar marki í leik með Real
Madrid.
Zidane
bestur í
Evrópu
BJÖRK Guðmundsdóttir er
nú í Lundúnum að leggja
lokahönd á væntanlega
breiðskífu, The Lake
Experience, sem gefa á út á
þessu ári.
Upptökum lauk hér á
landi fyrir viku. Á plötunni
heyrast engin hljóðfæri, allir
taktar og undirspil eru búin
til með röddum Bjarkar og
samstarfsmanna hennar.
Þeirra á meðal eru japanski
raddlistamaðurinn Dokaka,
Mike Patton söngvari
Fantomas og kanadíska
inúítasöngkonan Tagaq,
sem söng með Björk á
tónleikum hér á landi. Einnig
koma við sögu Mark Bell,
sem hefur oft unnið með
Björk, Rahzel úr The Roots
og íslenskur kór sem settur
var saman til að syngja á
plötunni.
Björk notar raddir í stað hljóðfæra
Björk Guðmundsdóttir
SKRIFAÐ hefur verið undir
samninga um öflun raforku
frá Orkuveitu Reykjavíkur og
Hitaveitu Suðurnesja til
stækkunar Norðuráls á
Grundartanga úr 90 í 180
þúsund tonn. Um
tímamótasamning er að
ræða í raforkusölu hér á landi
þar sem þetta er í fyrsta sinn
sem önnur fyrirtæki en
Landsvirkjun gera samning
um orkusölu til stóriðju af
þessari stærðargráðu.
Samanlögð fjárfesting við
þessar framkvæmdir er tæpir
50 milljarðar króna en
Orkuveitan mun reisa 80MW
(megawött) jarðvarmavirkjun
á Hellisheiði, auk stækkunar
Nesjavallavirkjunar, og
Hitaveitan reisir 80-100MW
virkjun á Reykjanesi.
Fjárfesting í virkjunum og
flutningsvirkjum verður
rúmlega 20 milljarðar og í
stækkun álversins rúmir 23
milljarðar króna. Gert er ráð
fyrir að miðað við meðalverð
á áli og núverandi gengi
íslensku krónunnar muni
stækkunin auka verðmæti
útflutnings um 12 milljarða
króna á ári.
Jafnfram hafa
orkufyrirtækin gengið frá
samningi um flutning
orkunnar. Samkvæmt
samningnum munu
Orkuveitan og Hitaveita
Suðurnesja greiða
Landsvirkjun 10 milljarða á
næstu 20 árum.
Landsvirkjun þarf að byggja
nýja flutningslínu frá
Sultartanga að Brennimel í
Hvalfirði og munu
framkvæmdir hefjast í ár.
Skrifað undir samninga
um stækkun Norðuráls
Morgunblaðið/RAX
Samningamenn Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu
Suðurnesja gengu frá samningi um flutning orkunnar.