Morgunblaðið - 25.04.2004, Page 53

Morgunblaðið - 25.04.2004, Page 53
KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. APRÍL 2004 53 Í tilefni Viku bókarinnar efna Morgunblaðið og Vaka-Helgafell til getraunaleiks. Frá þriðjudeginum 20. apríl til og með mánudeginum 26. apríl birtist ein tilvitnun á dag úr verkum Halldórs Laxness og spurt er úr hvaða verki viðkomandi til- vitnun er. Þátttakendur senda inn svörin sín í lok getraunarinnar. Frestur til að senda inn lausnir er til 30. apríl. Dregið verður úr öllum innsendum lausnum og munu 10 þátttakendur, sem svara öllu rétt, hljóta í verðlaun bókina Perlur í skáldskap Laxness. Þú getur kynnt þér Nóbelsverðlaunaskáldið Halldór Lax- ness og verk hans á mbl.is undir Fólkinu. Þar er að finna umfjöllun um skáldið, verk hans, umsagnir og margt fleira. Sendu svörin til okkar. Utanáskriftin er: Morgunblaðið Getraunaleikur - Halldór Laxness - Kringlan 1, 103 Reykjavík „Konan sagði að víst þakkaði maður fyrir að fá að halda tórunni; en maður þakkaði líka fyrir að fá að losna við hana. Lángömmu minni gekk feikn illa að deya, sagði hún. Á endanum varð að hvolfa yfir hana potti.“ GETRAUNALEIKUR - Halldór Laxness 6. tilvitnun: - SPENNANDI VALKOSTUR Stangarhyl 3, 110 Reykjavík, sími 591 9000 www.terranova.is Akureyri, sími 461 1099 Haustferðir með Terra Nova FÁIÐ SEND AN HAUS TBÆK LING TERR A NO VA München Í haust mun Terra Nova bjóða upp á beint leiguflug til München í Þýskalandi. München, sem er höfuðstaður Bæjaralands, stærsta fylkis Þýskalands, hefur allt til alls, enda er hún sannkölluð borg lífsgleði, menningar og lista. Í München ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi, - og vel það. Í boði verða skemmtilegar og fræðandi kynnisferðir um borgina og nágrenni með íslenskum fararstjórum Terra Nova. Kr. 36.890 Flugsæti fram og til baka Beint flug til München eftirfarandi daga: 07/10 - 4 nætur 11/10 - 3 nætur 14/10 - 4 nætur 22/10 - 3 nætur Skemmtisiglingar á Karíbahafi Skemmtisigling undir suðrænni sól er sannarlega draumur sem margan dreymir. Skemmtiferðaskipin Carnival Inspiration og Carnival Glory eru sannarlega ævintýri líkust, allur aðbúnaður af hæstu gæðum, afþreying í úrvali, íþróttaaðstaða eins og best verður á kosið, skrautsýningar og skemmtiatriði, og matur sem er engu líkur. Því ekki að láta drauminn rætast. 15.-26. október með íslenskri fararstjórn. Karíbahaf - Vikusigling um Vestur-Karíbahaf + 4 nætur á Flórída - Carnival Inspiration - Flórída - Grand Cayman- Costa Maya - Mexico - Belize Verð á mann í tvíbýli: Carnival Inspiration Innri klefi 4A kr. 154.295 Ytri klefi 6A kr. 164.130 12.-22. nóvember með íslenskri fararstjórn. Karíbahaf - vikusigling um Austur-Karíbahaf + 3 nætur á Flórída. - Carnival Glory - Flórída - Bahamaeyjar - St. Tomas/St. John - St. Maarten Verð á mann í tvíbýli: Carnival Glory Innri klefi 4A kr. 156.640 Ytri klefi 6A kr. 170.210 Golfferðir til Portúgal Terra Nova býður upp á draumaferðir fyrir golfara í haust. Vikuferðir til Portúgal með gistingu á Dom Pedro Marina, 4* hóteli í Vilamoura. Vilamoura er hrein Paradís fyrir golfara. Hér er einstaklega milt veðurfar og þægilegt hitastig ásamt frábærum golfvöllum. Sturla Höskuldsson, IPGA golfleiðbeinandi, mun sjá um golfkennslu og fararstjórn í golfferðum Terra Nova í haust. Verð aðeins 99.890 kr. á mann í tvíbýli. Aukagjald fyrir einbýli 22.300 kr. Verð án golfs 85.090 kr. Vikuferðir í haust: 8. september 15. september Síðasta Tómasarmess- an að sinni ÁHUGAHÓPUR um svokallaðar Tómasarmessur efnir til fjórðu messunnar á þessu ári í Breiðholts- kirkju í Mjódd í kvöld, sunnudaginn 25. apríl, kl. 20. Tómasarmessan hefur vakið mikla ánægju þeirra sem þátt hafa tekið og virðist hafa unnið sér fast- an sess í kirkjulífi borgarinnar, en slík messa hefur verið haldin í Breiðholtskirkju í Mjódd síðasta sunnudag í mánuði, frá hausti til vors, síðustu sex árin. Verður þetta því síðasta Tómasarmessan að sinni, en þær hefjast síðan vænt- anlega að nýju í haust. Það er a.m.k. von okkar, sem að Tóm- asarmessunni stöndum, að hún megi áfram sem hingað til verða mörgum til blessunar og starfi ís- lensku kirkjunnar til eflingar. Framkvæmdaaðilar að þessu messuhaldi eru Breiðholtskirkja, Kristilega skólahreyfingin, Félag guðfræðinema og hópur presta og djákna. Heiti messunnar er dregið af postulanum Tómasi, sem ekki vildi trúa upprisu Drottins nema hann fengi sjálfur að sjá hann upp- risinn og þreifa á sárum hans. Markmið Tómasarmessunnar er öðru fremur að leitast við að gera nútímamanninum auðveldara að skynja návist Drottins, einkum í máltíðinni sem hann stofnaði og í bænaþjónustu og sálgæslu, en mikil áhersla er lögð á fyrirbænarþjón- ustu. Þá einkennist messan af fjöl- breytilegum söng og tónlist og sömuleiðis af virkri þátttöku leik- manna. Stór hópur fólks tekur jafn- an þátt í undirbúningi og fram- kvæmd Tómasarmessunnar bæði leikmenn, djáknar og prestar. Kolaportsmessa HELGIHALD þarfnast ekki hús- næðis heldur lifandi fólks. Kirkja Jesú Krists er ekki steypa, heldur lifandi steinar, manneskjur af holdi og blóði. Þess vegna er hægt að fara út úr kirkjubyggingum með helgihald og fagnaðarerindið og mæta fólki í dagsins önn. Í tilefni af því bjóðum við til guðsþjónustu í Kolaportinu næsta sunnudag 25. apríl kl. 14:00. Jakob Ágúst Hjálmarsson dóm- kirkjuprestur predikar og þjónar ásamt sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur og Ragnheiði Sverrisdóttur djákna. Þorvaldur Halldórsson tónlist- armaður mun leiða lofgjörðina. Áður en Kolaportsmessan hefst kl.13:40 mun Þorvaldur Hall- dórsson flytja þekktar dæg- urperlur. Þá er hægt að leggja inn fyrirbænarefni til þeirra sem þjóna í guðsþjónustunni áður en stundin hefst. Í lok stundarinnar verður blessun með olíu Guðsþjónustan fer fram í kaffi- stofunni hennar Jónu í Kolaportinu sem ber heitið Kaffi port, þar er hægt að kaupa sér kaffi og dýrindis meðlæti og eiga gott samfélag við Guð og menn. Það er gott að koma í Kolaportið því það er fyrst og fremst mannlífstorg. Það eru allir velkomnir. Miðborgarstarf KFUM&KFUK og Kirkjunnar. Háteigskirkja. eldri borgarar Eldri borgarar. Félagsvist á morgun í Setr- inu kl. 13. Skráning í síma 511 5405. Árbæjarkirkja. Kl. 20 Lúkas, æsku- lýðsfélag Árbæjarsafnaðar, með fundi í safnaðarheimilinu. Grafarvogskirkja. Bænahópur kl. 20. Tekið er við bænarefnum alla virka daga frá kl. 9–17 í síma 587 9070. Hjallakirkja. Æskulýðsfélag fyrir 9. og 10. bekk kl. 20. Mánudagur: Æskulýðsfélag fyrir 8. bekk kl. 20. Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld sunnudag kl. 19.30. Krossinn. Almenn samkoma að Hlíðasmára 5 kl. 16.30. Allir vel- komnir. Fríkirkjan KEFAS, Vatnsendabletti 601. Í dag er samkoma kl. 14. Helga R. Ármannsdóttir talar. Lof- gjörð og fyrirbænir. Tvískipt barna- starf fyrir 1–6 ára og 7–12 ára börn á samkomutíma. Kaffi og samfélag eftir samkomu. Allir velkomnir. Nán- ari upplýsingar á www.kefas.is Fíladelfía. Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðumaður Vörður Leví Traustason. Gospelkór Fíladelfíu leiðir í söng. Fyrirbæn í lok sam- komu. Barnakirkja á sama tíma. Allir hjartanlega velkomnir. Miðvikudag- inn 28. apríl kl. 18–20 er fjölskyldu- samvera með léttri máltíð. Allir hjart- anlega velkomnir. Þetta er síðasta fjölskyldusamveran fyrir sumarið. Bænastundir alla virka morgna kl. 06.00. filadelfia@gospel.is www.- gospel.is Safnaðarstarf Morgunblaðið/Arnaldur Breiðholtskirkja www.thumalina.is flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.