Morgunblaðið - 25.04.2004, Blaðsíða 56
FÓLK Í FRÉTTUM
56 SUNNUDAGUR 25. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
M
arg
fald
a›u punktana flína
Punkta›u fla› hjá flér!
5x20W x 1x40W hátalarar
Spilar: DVD, CD, CD-R, CD-RW,
MP3, JPEG og HDCD
Dolby digital
Útvarp me› 50 stö›va minni
FRÁ ACE ELECTRONICS
HEIMABÍÓ
Ver› mi›a› vi› 1000 punkta:
14.990 kr.
Smásöluver›: 29.900 kr.
Ver›gildi punkta: x15
H
ám
ark
1000
punktar á hvert tilbo›
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
9
1
7
2
T
ónleikahald er hættuspil
eins og þeir þekkja sem
reynt hafa að flytja inn
erlendar stór-
hljómsveitir á und-
anförnum árum. Oft hafa slíkir tón-
leikar heppnast vel en oftar hefur
allt farið á versta veg, áheyrendur
ekki látið sjá sig og aðstandendur
tónleikanna setið uppi með millj-
ónatap. Oft var það vegna þess að
hljómsveitirnar sem voru í boði voru
ellimóðar og útbrunnar, en það hafði
líka áhrif að þeir sem voru áberandi í
slíku tónleikastússi voru æv-
intýramenn, innlendir sem erlendir,
og fólk hætt að treysta því að aug-
lýst hljómsveit myndi skila sér til
landsins.
Á síðustu árum hefur orðið breyt-
ing á. Tónleikar eru nú betur skipu-
lagðir, aflögð sú hömlulausa drykkja
sem tilheyrði og hljómsveitirnar ým-
ist á hátindi frægðarinnar eða enn í
fullu fjöri. Á síðustu árum hafa tón-
leikar yfirleitt gengið vel, þó dæmi
séu um mikið tap sem undirstrika að
þó ábatinn geti verið mikill er áhætt-
an enn töluverð.
Þó ýmsum hafi gengið vel á síð-
asta ári er framboð á tónleikum er-
lendra listamanna um þessar mund-
ir meira en menn hafa áður séð og
ekki líklegt að gerast muni aftur.
Frá apríl til ágúst verða haldnir hér
á landi á annan tug tónleika með er-
lendum listamönnum og þá ógetið
þess sem Listahátíð í Reykjavík
býður upp á, en hún hefst 14. maí
næstkomandi. Ætla má að áheyr-
endur verði ríflega 51.500 á þá tón-
leika sem í boði eru og samanlögð
velta í aðgöngumiðum um 264 millj-
ónir króna. Þá er ótalinn sá grúi
miða sem hafa selst og munu seljast
á Listahátíð í Reykjavík. Ekki má
skilja þetta sem svo að tónleikahald-
arar séu að hagnast um himinháar
upphæðir því tónleikahaldið er dýrt
og þóknun til hljómsveita getur ver-
ið allhá ef hljómsveit er mjög vinsæl.
Þannig má gera því skóna að þóknun
til Metallica hlaupi á tugum milljóna
króna og þá er eftir að reikna inn í
dæmið kostnað vegna starfsmanna,
húsaleigu, sviðs, tækjabúnaðar og
svo má telja.
Í samantektinni sem hér fer á eft-
ir er miðað við upplýsingar úr fjöl-
miðlum og frá skipuleggjendum tón-
leikanna. Gert er ráð fyrir því að
1.229 miðar séu seldir í stúku í
Laugardalshöllinni og 4.271 í stæði,
en dæmi eru um að nokkuð fleiri
miðar hafi verið seldir á tónleika í
Höllinni. Í útreikningi á veltu er gert
ráð fyrir að uppselt verði á alla tón-
leikana, enda stefnir í að svo verði,
og tölur jafnaðar.
Kraftwerk 3. maí
í Kaplakrika
Miðar í boði: 2.500
Seldir miðar: 2.150
Miðaverð: 4.500
Velta: 11.000.000
Helsti aldurshópur: 40–50 ára
Um 350 miðar eru eftir á tónleika
Kraftwerk í Kaplakrika. Kraftwerk
er lykilhljómsveit í vestrænni tón-
listarsögu, brautryðjandi í raftónlist
og gríðarlegur áhrifavaldur í tölvu-
væddu poppi og hiphopi. Hljóm-
sveitin hefur haft hljótt um sig und-
anfarið enda liðsmenn hennar
uppteknir við endurvinnslu á göml-
um upptökum, en er nú á tónleikaför
um heiminn með nýja tónlist og
gamla í farteskinu og segja menn
tónleika með henni ógleymanlega.
Pixies 25. & 26. maí
í Kaplakrika
Miðar í boði: 2 x 2.500
Seldir miðar: Uppselt á seinni
tónleikana, sala á þá fyrri hefst
30. apríl
Miðaverð: 4.500
Velta: 22.500.000
Helsti aldurshópur: 28–32 ára
Gríðarleg ásókn er í miða á tón-
leika Pixies og ekki bara hér á landi,
enda hljómsveitin ekki starfað í ára-
tug. Líklegt verður að teljast að
þessi helsta nýrokksveit níunda ára-
tugarins hefði getað selt mun fleiri
miða og náð að fylla Laugardalshöll-
ina oftar en einu sinni. Mjög lofsam-
legir dómar hafa birst um tónleika
Pixies vestanhafs undanfarið.
Korn 30. & 31. maí
í Laugardalshöll
Miðar í boði: 2 x 5.300
Seldir miðar: Uppselt á fyrri tón-
leikana, 1.500 miðar eftir á
seinni tónleikana
Miðaverð: 4.500 í stæði, 5.500 í
stúku
Velta: 52.000.000
Helsti aldurshópur: 20–30 ára
Korn hefur haft mikil áhrif í ís-
lensku bílskúrsrokki þó tónlist sveit-
arinnar sé ekki vinsældaleg. Það
seldist upp á fyrri tónleikana á met-
tíma og líklegt verður að teljast að
uppselt verði á seinni tónleikana þó
það taki lengri tíma vegna mikils
framboðs á tónleikum.
Kris Kristofferson
14. júní í Laugardalshöll
Miðar í boði: 2.500
Seldir miðar: Miðasala hefst í
byrjun maí
Miðaverð: 4.500
Velta: 11.000.000
Helsti aldurshópur: 55–65 ára
Kris Kristofferson er svo vinsæll
leikari að mönnum hættir til að
gleyma því hve hann er merkilegur
tónlistarmaður. Kristofferson er
kannski frægastur sem lagasmiður
en hann hefur líka átt talsvert af vin-
sælum lögum og víst að hann er einn
af helstu stjörnum í sögu sveitatón-
listarinnar vestanhafs.
Deep Purple 23. & 24. júní
Laugardalshöll
Miðar í boði: 2 x 5.300
Seldir miðar: Uppselt á seinni
tónleikana, sala á þá fyrri hófst
sl. föstudag og seldust þá 3.000
miðar.
Miðaverð: 3.800 í stæði, 4.800 í
stúku
Velta: 44.000.000
Helsti aldurshópur: 50–60 ára
Ef selst upp á fyrri tónleika Deep
Purple, sem verður að teljast líklegt,
er ljóst að sveitin hefur selt fleiri tón-
leikamiða hér á landi en nokkur er-
lend hljómsveit önnur því það verður
í þriðja sinn sem Deep Purple fyllir
Laugardalshöllina. Alls hafa þá 14–
15.000 manns keypt sig inn á tón-
leika með Deep Purple sem verður
að teljast vel af sér vikið.
Metallica 4. júlí
í Egilshöll
Miðar í boði: 10.000
Seldir miðar: Forsala hófst á
laugardag
Miðaverð: 7.500 á svæði A, 6.500
á svæði B
Velta: 70.000.000
Helsti aldurshópur: 30–40 ára
Metallica er helsta rokksveit
heims þeirra sem nú eru starfandi.
Tónleikar sveitarinnar í Egilshöll
verða mestu rokktónleikar sem hér
hafa verið haldnir og um leið eins-
konar mælistika á hvort hægt sé að
fá svo frægar hljómsveitir hingað til
lands, enda mjög dýrt fyrirtæki og
vandasamt. Allir sem um hafa vitnað
bera að tónleikar með Metallica séu
ógleymanleg upplifun og óhætt að
spá að skamman tíma muni taka að
selja alla miða á tónleikana þó þeir
séu 10.000.
Placebo 7. júlí í
Laugardalshöll
Miðar í boði: 5.300
Seldir miðar: 3.500
Miðaverð: 4.500 í stæði, 5.500 í
stúku
Velta: 26.000.000
Helsti aldurshópur: 25–35 ára
Placebo hefur aldrei notið umtals-
verðra vinsælda hér á landi þó vænt-
anlega hefði hljómsveitinni tekist að
fylla Höllina í venjulegu árferði, þ.e.
þegar framboð á tónleikum er
minna. Líklegt að miðasalan taki
kipp fyrst búið er að hnýta saman
miðasölu á Placebo og Metallica, þ.e.
hægt er að kaupa jafn marga Met-
allica-miða og keyptir eru Placebo-
miðar, en einnig er langt í tónleikana
þannig að gera má ráð fyrir að upp-
selt verði þegar þar að kemur.
Pink 10. ágúst
í Laugardalshöll
Miðar í boði: 5.300
Seldir miðar: Miðasala hefst 24.
apríl
Miðaverð: 5.000 í stæði, 5.900 í
stúku
Velta: 28.000.000
Helsti aldurshópur: 15–25 ára
Söngkonan Pink hefur notið mik-
illa vinsælda hér á landi á undanförn-
um árum, en aðallega var platan
M!ssundaztood vinsæl fyrir tveimur
árum eða svo. Erfitt er að spá fyrir
um hvernig takast muni að selja inn
á tónleikana, ekki síst vegna þess
hve langt er í þá. Sumir gera því
skóna að sala verði dræm framan af
en glæðist er líða tekur á sumarið
þannig að uppselt verði á tónleikana.
51.500 miðar á 264 milljónir
Morgunblaðið/Árni SæbergOg þá verður kátt í höllunum!
arnim@mbl.is
Risavaxið tónleikasumar gengið í garð