Morgunblaðið - 25.04.2004, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. APRÍL 2004 59
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
www .regnboginn.is
„Frábær
skemmtun
fyrir alla
fjölskylduna“
Þ.Þ. Fbl.
Sýnd kl. 4 og 6.
Með íslensku tali
HL MBL
Sýnd kl. 8 og 10.15.
Sýnd kl. 3, 5.40, 8.30 og powersýning kl. 11.20. B.i. 16.
(Píslarsaga Krists)
HP. Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
Skonrokk
Ein umtalaðasta og
aðsóknarmesta mynd
allra tíma
Til að tryggja réttan dóm
En það var einn sem sá við þeim...
Eftir metsölubók John Grisham
Með stórleikurunum John Cusack, Gene
Hackman, Dustin Hoffman og Rachel Weisz
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30.
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16.
Kvikmyndir.is
Blóðbaðið nær hámarki.
Jimmy the Tulip er mættur aftur í
hættulega fyndinni grínmynd!
FRUMSÝNING
HP
Kvikmyndir.com
Powersýning
kl. 11.20
„Gargandi snilld“
ÞÞ FBL
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 2 og 4. Íslenskt tal.Sýnd kl. 6, 8 og 10.10.
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.10.Sýnd kl. 2.45, 5.20, 8 og Powersýning kl. 10.30. B.i. 16
Jimmy the Tulip er mættur aftur í
hættulega fyndinni grínmynd!
Blóðbaðið nær hámarki.
10.30.
FRUMSÝNING
HP
Kvikmyndir.com
„Frábær skemmtun fyrir
alla fjölskylduna“
Þ.Þ. Fbl.
HL MBL
„Gargandi snilld“
ÞÞ FBL
KVIKMYND um argent-
ínsku knattspyrnustjörn-
una Diego Maradona er
enn á áætlun, þrátt fyrir
veikindi hans. Þekktur
spænskur eða suður-
amerískur leikari verður
fenginn í hlutverk hans
en tilkynnt verður hver
það er í næstu viku, að
sögn Screen Daily.
Myndin hefst á hjarta-
vandamálunum sem
Maradona, sem nú er 43
ára gamall, þurfti að tak-
ast á við árið 2000 og
veitti það honum inn-
blástur til að líta til baka
og ræða æsku sína.
Maradona hefur tekið
þátt í verkefninu og hef-
ur farið í fjölmörg viðtöl
vegna myndarinnar, alls
um tíu klukkustundir.
Leikstjórinn Marco Risi áætlar að
hefja tökur á myndinni fyrir lok
þessa árs.
Maradona, sem hefur barist við
kókaínfíkn, var fluttur á sjúkrahús
á sunnudaginn síðasta en hann fékk
hjartaáfall og alvarlega lungnasýk-
ingu. Tugir aðdáenda eru með
bækistöðvar fyrir utan heilsu-
gæslustöðina Suizo Argentina þar
sem Maradona liggur á gjörgæslu.
Kvikmynd um líf Maradona
Enn á áætlun
Kona heldur á talnabandi við mynd
af argentínsku fótboltastjörnunni
Maradona fyrir utan sjúkrahúsið
þar sem hann liggur.
Reuters
má að Shins sé ný sveit og gömul í
senn.
Þetta var árið 1997 og á næstu
árum sendi sveitin frá sér tvær
sjötommur og hitaði upp fyrir
ýmsar hljómsveitir, meðal annars
þá ágætu Modest Mouse sem skil-
aði sér í útgáfusamningi við Sub
Pop, en sú útgáfa er ein helsta ný-
rokkútgáfa vestan hafs og meðal
annars fræg fyrir að hafa gefið út
fyrstu Nirvana smáskífuna. Í kjöl-
farið fylgdu svo breiðskífurnar Oh,
Inverted World sem kom út 1991,
mikið meistaraverk, og Chutes Too
Narrow, sem kom út á síðasta ári.
Það hefur verið erfitt að fá þess-
ar plötur hér á landi, dreifing-
arkerfi Sub Pop víst ekki upp á
marga fiska, en um að gera þá
þær loksins fást að bregðast við.
Báðar eru plöturnar miklir gæða-
gripir, aðallega þó sú síðarnefnda
sem er ekki bara fínasta poppplata
heldur verulega innihaldsrík og út-
pæld.
Algjör ljóska
(Totally Blonde)
Gamanmynd
Bandaríkin 2001. Myndform VHS. Bönn-
uð innan 12 ára. (94 mín.) Leikstjórn og
handrit Andrew Van Slee. Krista Allen,
Maeve Quinlan, Michael Bublé.
ÞAÐ er ekki mikið um hana þessa
að segja. Fjallar um stelpu sem af
óskiljanlegri ástæðu nær ekki athygli
hins kynsins - ekki
fyrr en hún litar
hárið á sér ljóst. Og
þá breytist auðvitað
allt og hún verður
sú vinsælasta og
skemmtilegasta því
ljóskur skemmta
sér auðvitað betur.
Er það ekki alltaf
þannig … í bíó?
Svo kemur auðvitað upp úr kafinu,
eins og sannri meðvitaðri Hollywood-
mynd sæmir, að það er ekki hárlit-
urinn sem öllu skiptir, heldur innri
maðurinn. Sannfærandi? Svona álíka
mikið og franskar unglingahrollvekj-
ur. Myndbönd
Lúið
ljóskugrín
Skarphéðinn Guðmundsson
BRESKI gamanleikarinn Rowan
Atkinson hefur fallist á dómssátt í
meiðyrðamáli
sem hann höfðaði
gegn blöðunum
Daily Mail og
Mail on Sunday ,
sem birtu fréttir
um að hann væri
á barmi tauga-
áfalls. Útgáfu-
félag blaðanna
féllst á að greiða „umtalsverða“
upphæð í miskabætur og hefur
einnig beðið Atkinson opinberlega
afsökunar og viðurkennt að ekkert
væri hæft í fréttunum. Atkinson
segist ætla að gefa bótaféð til góð-
gerðarmála.
Atkinson lék í myndinni Johnny
English. Blöðin tvö birtu fréttir í
desember og janúar sl. um að Atk-
inson hefði tekið svo nærri sér hve
myndin fékk slaka dóma, að hann
hefði lagst í þunglyndi og þurft að
gangast undir 5 vikna lækn-
ismeðferð á heilsuhæli í Bandaríkj-
unum. Þá sögðu blöðin að Atkinson
hefði tekið sér hlé frá kvikmynda-
leik og raunar væri óvíst að hann
myndi leika í fleiri myndum …
HOLLYWOOD-leikkonan Juliette
Lewis kemur við sögu á vænt-
anlegri plötu
bresku danssveit-
arinnar The
Prodigy. Liam
Howlett og Max-
im úr Prodigy
báðu hana um að
ljá nokkrum lög-
um þeirra rödd
sína eftir að hafa
heyrt hana syngja í á bar í Los Ang-
eles. Lewis, stjarna mynda á borð
við Natural Born Killers, sló til og
herma fregnir að þeir sé himinlif-
andi með útkomuna. Þessi veiga-
mikli þáttur hennar á komandi plötu
Prodigy hefur enn hrint af stað
sögusögnum um að Keith Flint sé
hættur í bandinu …
ÞAÐ ERU ekki bara leikkonurnar
sem heilla Lenny
Kravitz heldur
kvikmyndirnar
eins og þær
leggja sig. Nú
hefur rokkarinn
nefnilega sjálfur
áhuga á að leika í
kvikmynd og hef-
ur þegar fengið
sitt fyrsta aðalhlutverk, í mynd sem
byggist að hluta til á hans eigin
æsku. Myndin mun heita Barbe-
ques and Bar Mitzvahs og í henni
verður einblínt á hversu erfitt Kra-
vitz átti með að feta sig í lífinu og
finna samastað en faðir hans er
hvítur gyðingur og móðir svört. Þótt
myndin fjalli um tónlistarmann,
þvertekur Krav-
itz fyrir það að
þetta sé tónlist-
armynd. Tökur
hefjast á næsta
ári en Kravitz
gefur á næstunni
út nýja plötu sem
heitir Baptism …
R & B stjörn-
urnar Usher og Chilli úr TLC eru
hætt saman eftir að hún komst að
því að hann héldi framhjá …
FÓLK Ífréttum