Morgunblaðið - 06.05.2004, Síða 20
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
20 FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Vogar | Allt útlit er fyrir að heilsu-
gæslustöð verði risin í Voga- og
Heimahverfi innan árs, en hverfið
er það síðasta af gömlu hverfunum í
Reykjavík sem eru án heilsugæslu-
stöðvar. Áformað er að heilsugæslu-
stöðin verði reist við hliðina á
Glæsibæ.
Í Voga- og Heimahverfi búa um
9.000 manns, en um fjórðungur er
yfir sextíu og sjö ára aldri. Ástæðan
er m.a. sú að í hverfinu eru nokkur
hjúkrunarheimili. Íbúar í hverfinu
hafa þurft að leita út fyrir það til
heilsugæslu, en næsta heilsugæslu-
stöð við hverfið er í Lágmúla, þar
sem læknar reka heilsugæslustöð á
þjónustusamningi við ríkið.
Læknamiðstöð í Glæsibæ
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
alþingismaður hefur gagnrýnt
seinagang í málefnum heilsugæslu-
stöðvar á svæðinu, en á vefsvæði
sínu segir hún málefni heilsugæslu
hverfisins hafa verið rædd reglu-
lega í áratug á Alþingi, en lítið
mjakast.
Jón Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra segir málið nú komið á loka-
stig, búið sé að auglýsa eftir hús-
næði og niðurstaða komin í það mál.
„Það er búið að taka dálítinn tíma
að velja og fara yfir tilboðin sem
komu, en nú er búið að velja stað-
inn. Íslenskir aðalverktakar buðu í
að byggja upp aðstöðu við Glæsibæ
og nú er verið að undirbúa það,“
segir Jón.
Jón segir vonast til að koma stöð-
inni í gagnið á næstu tólf mánuðum,
en verið sé að ganga frá þessum
málum þessa dagana. Hann segir
óskir íbúa hverfisins mjög skýrar í
þessu máli. „Borgaryfirvöld hafa
einnig lagt mikla áherslu á að dekka
þetta svæði. Það hefur ekki verið
heilsugæslustöð í þessu hverfi, en
með þessu verður búið að dekka
eldri hverfi bæjarins,“ segir Jón og
bætir við að nýjar heilsugæslu-
stöðvar styrki heildarmynd heilsu-
gæslunnar. „Þetta mun þá verða til
þess að þarna rís miðstöð, enda eru
læknastofur í Glæsibæ og staðurinn
mjög miðsvæðis.“
Heilsugæsla í Voga- og Heimahverfi
Morgunblaðið/Árni Torfason
Glæsibær: Hér mun rísa ný heilsugæslustöð Voga- og Heimahverfis.
Heilsugæslustöð
rísi innan árs
Breiðholt | Nokkur sandur hefur
legið á gangstéttum í Breiðholti og
hafa íbúar haft það á orði að af hon-
um geti hlotist slys, þar sem nú er
þurrkatíð. Þá hefur verið fundið að
seinagangi í hreinsun gangstétt-
anna.
„Mér finnst vera hætta af þessum
sandi þegar það er svona þurrt, þetta
virkar eins og litlar kúlur og fólk
rennur á þessu og getur meitt sig,“
segir Rafn Thorarensen, íbúi í Vest-
urbergi. Rafn segir mikið talað um
vorhreingerningar í borginni, en
hægt gangi með þær í Breiðholtinu.
„Það er að vísu eitthvað byrjað að
gerast hér, en þetta er búið að taka
allt of langan tíma. Það á að taka
tækin út fyrr á vorin, það vorar
snemma ár eftir ár. Svo er verið að
tala um að það sé mengun á götunum
af því að það sé ekki sópað. Nú hafa
menn tækifæri til að hindra þessa
mengun og nýta það ekki. Það eina
sem dugar er að vera fyrr á ferðinni
næsta ár,“ segir Rafn.
Þrátt fyrir leiðindin með sandinn
segir Rafn Breiðholtið nú farið að
skarta sínu fegurasta. „Gróðurinn er
að springa út. Það er hlýrra hjá okk-
ur í Breiðholtinu á sumrin og lífið að
kvikna núna. Það má segja að það sé
meira meginlandsloftslag hjá okk-
ur,“ segir Rafn hlæjandi.
Hjá Gatnamálastofu Reykjavíkur
fengust þær upplýsingar að sópun sé
hafin af fullum krafti, en byrjað hafi
verið í Vesturbænum, þar sem vorið
láti fyrst á sér kræla. Þaðan sé síðan
haldið áleiðis austur, þannig að
Breiðholtið er sópað eitthvað á eftir
Vesturbænum. Lokið verður við að
sópa gangstéttir borgarinnar á
næstu vikum, en um takmarkað
magn af vélum er að ræða til að sópa
gangstéttirnar.
Ljósmynd/Rafn Thorarensen
Sandur á gangstéttum: Það sem kom í veg fyrir að fólk rynni á ísnum í vet-
ur getur nú orðið til þess að fólk detti. Íbúar vilja sandinn burt hið fyrsta.
Sandur á gang-
stéttum til trafala
SMS tónar og tákn