Morgunblaðið - 12.05.2004, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.05.2004, Blaðsíða 1
Bílar í dagSælkera- stígur Ýmsar freistingar á Skóla- vörðustígnum | Daglegt líf HÖFUÐSTÓLL Ábyrgðasjóðs launa er uppurinn og líkur á að hann þurfi á aukafjárveitingu að halda líkt og und- anfarin tvö ár til að geta staðið við skuldbindingar sínar. Gissur Péturs- son, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir að mikill fjöldi gjaldþrota síð- ustu tvö árin hafi aukið útgjöldin tölu- vert. Um 730 milljónir króna voru greiddar launafólki vegna vangold- inna krafna við gjaldþrot vinnuveit- enda á síðasta ári og 715 milljónir árið þar á undan. Það sé sprenging miðað við það sem hafi verið árin áður. Námu greiðslurnar til samanburðar 170 milljónum árið 2000 á verðlagi þess árs. „Það hefur verið okkur mikið áhyggju- og undrunarefni að ekkert dragi úr þessu,“ segir Gissur og ætlar að leggja til við stjórn sjóðsins í næstu viku að orsök þessarar þróunar verði skoðuð og greind nánar. Á fyrstu fjór- um mánuðum þessa árs séu útgjöld komin yfir 300 milljónir króna. Hann vonaðist til að fjöldi gjaldþrota hefði náð hámarki í fyrra en útlit væri fyrir nýjan topp í ár. Því þurfi að bregðast við fjárþurrð sjóðsins. Ábyrgðasjóður launa ábyrgist greiðslu á kröfum um vangoldin laun, bætur vegna slita á ráðningarsamn- ingi, orlof, bætur vegna vinnuslysa og lífeyrisiðgjöld í bú vinnuveitanda. Sjóðurinn er fjármagnaður með ábyrgðagjaldi sem tekið er af tekjum allra einstaklinga. Gissur segir að tekjur inn í sjóðinn nemi um 200 millj- ónum króna á ári. Í árslok 2000 hafi sjóðurinn ráðið yfir tæpum milljarði króna. Í lögum segir að skorti sjóðinn reiðufé til að standa við skuldbinding- ar sínar skuli stjórn hans þegar til- kynna það félagsmálaráðherra. Rík- issjóður skuli þá leggja sjóðnum til þá fjármuni sem til þurfi og skoðast það sem lántaka. Greiðslur ekki stöðvaðar Gissur segir að ekki hafi verið grip- ið til þess ráðs að stöðva greiðslur úr sjóðnum enda eigi launþegar viss réttindi við gjaldþrot vinnuveitenda sem Ábyrgðasjóði launa beri að ábyrgjast. „Ríkissjóður hleypur undir bagga ef ekki er næg innistæða í sjóðnum,“ segir hann. Stór gjaldþrot síðustu tvö árin hafi haft þetta í för með sér samhliða því að gjaldþrotum fjölgar. Máli sínu til stuðnings segir Gissur að Ábyrgðasjóður launa hafi gert kröfu í 456 þrotabú í fyrra. Árið áður hafi fjöldi krafna í þrotabú fyrirtækja verið 368. Mörg þessara fyrirtækja hafi verið lítil og starfað stutt. Árið 2003 hafi tæplega 300 kröfur af 456 verið undir einni milljón króna. Þrjár stærstu kröfurnar í þrotabú árið 2002 námu samtals 135 milljónum króna og 71 milljón árið 2003. Forstjóri Vinnumálastofnunar vill láta greina orsök gjaldþrota Höfuðstóll Ábyrgða- sjóðs launa uppurinn                              ! !    "##" "##$   AÐ MINNSTA kosti fjórir menn týndu lífi er mikil sprenging gereyði- lagði að mestu plastverksmiðju í Glasgow í Skotlandi í gær. 37 slös- uðust, þar af 16 alvarlega, en óviss fjöldi manna, hugsanlega á milli 10 og 20, lokaðist inni undir rústunum. Sprengingin varð rétt fyrir hádegi og er haft eftir vitnum, að gasofn í verksmiðjunni hafi sprungið. Dreif strax að mikið lið björgunarmanna ásamt 16 sjúkrabifreiðum og tókst fljótlega að bjarga sjö mönnum út úr rústunum. Þá voru björgunarmenn í farsímasambandi við þrjá af þeim, sem enn voru innilokaðir, en ekki virtist alveg ljóst hve margir þeir væru. Sagði Brian Sweeney, slökkvi- liðsstjóri í Strathclyde, að einhverjir þeirra væru „mikið slasaðir“ og aðrir illa á sig komnir. Getur tekið tvo sólar- hringa að ná til fólksins Plastverksmiðjan var í fjögurra hæða háu húsi í miðborg Glasgow og fór hún svo illa í sprengingunni, að björgunarmenn, um 300 talsins, ótt- uðust, að það gæti tekið tvo sólar- hringa að ná til allra, sem hugsan- lega eru undir brakinu. „Ég var við vinnu mína þegar sprengingin varð,“ sagði Daniel Gilmour, starfsmaður í verksmiðj- unni. „Það var eitthvað, sem kast- aðist út úr gasofni og lenti á höfði mínu, en þegar ég rankaði við mér var allt í rúst. Einhvern veginn tókst þó fjórum okkar að skríða út um gat á vegg, þótt ég viti varla hvernig.“ Búist var við, að björgunarstarfið myndi standa í alla nótt en fara varð mjög varlega við að fjarlægja brakið vegna hættu á, að það hryndi enn frekar saman. Plastverksmiðja í Glasgow gereyðilagðist í mikilli sprengingu Fjórir látnir og tugir slasaðir Reuters Björgunarmenn hlúa að manni, sem þeim tókst að bjarga úr rústum plastverksmiðjunnar. Með hjálp farsíma hafði tekist að ná sambandi við fólk, sem var grafið undir brakinu, og var sumt af því sagt mikið slasað. Glasgow. AP, AFP. YFIRMAÐUR væntanlegs stríðsglæpadómstóls í Írak sagði í gær, að Bandaríkjamenn myndu selja Saddam Hussein, fyrrverandi einræðis- herra, í hendur íröskum yfirvöldum fyrir 1. júlí næstkomandi en þá eiga fyrirhuguð valdaskipti í landinu að fara fram. Salem Chalabi sagði, að auk Saddams yrðu af- hentir 100 fyrrverandi embættismenn, þar á meðal Tariq Aziz og Ali Hasan Majid eða Efna- vopna-Ali eins og hann var kallaður. Chalabi, sem hefur verið að safna saman gögn- um um sakborningana, sagðist vona, að réttarhöldin yfir þeim gætu hafist snemma á næsta ári. Þeim hafa þó ekki verið birtar neinar ákærur enn. Bandaríkjamenn hafa Saddam í haldi sem stríðsfanga en alþjóðalög kveða á um, að stríðsfanga megi aðeins afhenda fullvalda ríki, sem undirritað hafi Genfarsáttmálann. Írak verður hins vegar ekki full- valda fyrr en 1. júlí næstkomandi. / 14 Saddam Hussein Kúveitborg. AP, AFP. Afhentur Írökum SÆNSKA stjórnin hefur áhuga á að fá auknar heimildir til símhlerana að því er fram kom í gær hjá Thomas Bodström, dóms- málaráðherra Sví- þjóðar. Säpo, sænska leyniþjónustan, má nú því aðeins beita símhlerun- um, að hún sé að rannsaka afbrot, sem varða meira en tveggja ára fangelsi, og verð- ur dómari ávallt að leggja blessun sína yfir það. Ríkisstjórnin vill hins vegar fá að beita þeim í því skyni að koma í veg fyrir afbrot og ætlar að gefa út skýrslu um málið á næstu vik- um. Mats Melin, umboðsmaður sænska þingsins, sagði, að sér litist ekki allt of vel á þessar hugmyndir og kvaðst hann efast um, að unnt væri að beita svokölluðum fyrirbyggjandi símhler- unum og virða rétt borgaranna til einkalífs á sama tíma. Hann tók þó fram, að óttinn við hryðjuverk kynni að réttlæta, að heimildir yfirvalda og lögreglunnar yrðu eitthvað auknar. Á árinu 2002 var símhlerunum beitt í 533 skipti í Svíþjóð og að með- altali í 38 daga í hvert sinn. Voru sjö af tíu tengdar eiturlyfjum og glæpum tengdum þeim. Vilja auka símhleran- ir í Svíþjóð Stokkhólmi. AFP. Bodström STOFNAÐ 1913 129. TBL. 92. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Tíu bílar í bílskúrnum  Fengu bíl- inn frá sjeik í Dubai  Afturhjóla- drifið til vegs og virðingar Eftir tvo sigra gegn Val er staða Hauka orðin vænleg | Íþróttir Flug á Haukum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.