Morgunblaðið - 12.05.2004, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
VERÐI VÍSAÐ FRÁ
Önnur umræða um fjölmiðlafrum-
varpið fór fram á Alþingi í gær.
Minnihluti allsherjarnefndar hefur
farið fram á að frumvarpinu verði
vísað frá. Umræður um frumvarpið í
þinginu stóðu fram á kvöld.
Bensín hækkar aftur
Essó og Skeljungur hafa hækkað
verð á lítra af bensíni þannig að lítr-
inn af 95 oktana bensíni kostar nú
104,2 krónur í sjálfsafgreiðslu hjá
þessum félögum og lítrinn af dísil-
olíu 45,6 krónur. Þetta er í annað
sinn í maí sem félögin hækka.
Sverði stungið í Melatorg
Þjóðminjasafnið vill fá leyfi borg-
aryfirvalda til að reisa 7,5 metra háa
eftirlíkingu af merku víkingasverði á
Melatorgi. Borgin hefur málið til
skoðunar. Sverðið gæti orðið eitt af
kennileitum Reykjavíkurborgar.
Ábyrgðasjóður launa búinn
Höfuðstóll Ábyrgðasjóðs launa er
uppurinn. Forstjóri Vinnumála-
stofnunar segir mikinn fjölda gjald-
þrota undanfarin ár hafa aukið út-
gjöld sjóðsins. Yfir 700 milljónir
voru greiddar úr sjóðnum árin 2002
og 2003 en innan við 200 milljónir ár-
ið 2000.
Sprenging í Glasgow
Fjórir menn að minnsta kosti lét-
ust er plastverksmiðja eyðilagðist í
mikilli sprengingu í Glasgow í Skot-
landi í gær. Hafði tekist að bjarga
sjö mönnum undan rústunum en ein-
hverjir voru enn í gærkvöldi lokaðir
inni í brakinu. Talið er, að spreng-
ingin hafi orðið í gasofni, sem notað-
ur var í verksmiðjunni. 37 manns
slösuðust, þar af 16 alvarlega, en um
200 björgunarmenn unnu að því að
leita að lifandi fólki og látnu.
Ekki fyrirmæli
Bandaríski undirhershöfðinginn
Antonio Taguba, sem unnið hefur
mikla skýrslu um misþyrmingu
fanga í Írak, segir ekkert benda til,
að fangaverðirnir hafi fengið bein
fyrirmæli um að niðurlægja þá.
Sagði hann þetta er hann kom fyrir
hermálanefnd öldungadeildar
Bandaríkjaþings í gær. Sagði hann,
að meginástæðan fyrir framkomu
fangavarðanna væri „agaleysi, engin
þjálfun, ekkert eftirlit“.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Þjónusta 33
Viðskipti 12 Viðhorf 34
Úr verinu 13 Minningar 35/39
Erlent 14/16 Myndasögur 44
Minn staður 17 Bréf 44/45
Höfuðborgin 18 Dagbók 46/47
Akureyri 20 Staksteinar 46
Suðurnes 21 Kirkjustarf 47
Landið 20/21 Íþróttir 48/51
Daglegt líf 22/23 Fólk 52/57
Listir 24/26 Bíó 53/57
Umræðan 27/34 Ljósvakamiðlar 58
Forystugrein 30 Veður 59
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
YFIR sextíu sveitarfélög alls staðar á landinu
lýstu yfir áhuga á að taka þátt í byggingu samtals
101 sparkvallar í sparkvallaátaki Knattspyrnu-
sambands Íslands, en umsóknarfrestur þar um er
nú liðinn. KSÍ sér um að greiða kostnað við að
setja gervigras á vellina en sveitarfélögin bera
kostnað af því að undirbyggja þá, girða og lýsa
upp.
Eggert Magnússon, formaður KSÍ, sagði að um-
sóknirnar væru alls staðar að af landinu og um
mismunandi marga velli væri að ræða eftir stærð
sveitarfélaganna, allt frá einum velli í smæstu
sveitarfélögunum og tveimur og jafnvel fleiri í
stærri sveitarfélögum og allt upp í 16-18 velli í
Reykjavík.
Eggert sagði að á morgun yrðu opnuð tilboð í
gervigras og þá myndi koma betur í ljós hvað hægt
yrði að byggja marga velli á næstu tveimur árum,
en um tveggja ára verkefni væri að ræða.
„Mín von er nú sú að þetta sé verkefni sem muni
halda áfram. Þeir fjármunir sem við lögðum fram í
upphafi eru til tveggja ára, en ég vonast nú til að
fjárveitingarvaldið sjái að það er meiri þörf út um
allt land heldur en þessir peningar segja,“ sagði
Eggert.
150 milljónir til ráðstöfunar
Um er að ræða fé sem KSÍ fékk í afmælisgjöf
vegna 50 ára afmælis Evrópska knattspyrnusam-
bandsins UEFA og að auki leggja ríkissjóður og
samstarfsaðilar KSÍ hönd á plóginn. Samtals eru
til ráðstöfunar á þessum tveimur árum um 150
milljónir kr.
Eggert sagðist vonast til að þeir fjármunir sem
væru fyrir hendi nú dygðu til að leggja gervigras á
fjörutíu og jafnvel fimmtíu sparkvelli. Á stjórn-
arfundi í KSÍ í fyrradag hefði verið skipuð nefnd í
það erfiða verkefni að fara yfir þessar umsóknir og
velja úr þá sem myndu ganga fyrir. Ráðgert væri
að framkvæmdir við fyrstu vellina hæfust strax í
sumar þannig að þeir yrðu tilbúnir næsta haust.
Samkvæmt samningi um byggingu sparkvallar
skal hann vera 18x33 metrar að stærð, afgirtur og
upplýstur þannig að hægt sé að nota hann árið um
kring. Ekki er áskilið að völlurinn sé upphitaður
en sveitarfélag getur kosið að hafa hann upphit-
aðan.
Eggert segist ekki í vafa um að þessir sparkvell-
ir verði knattspyrnunni enn frekari lyftistöng á
næstu árum. „Það verður alveg sprenging í fót-
boltanum út um allt land og ég vona að við getum á
einhvern hátt haldið þessu átaki áfram eftir þessi
tvö ár, því þessar umsóknir núna sýna hvað þörfin
er brýn víða,“ segir Eggert ennfremur.
Yfir 60 sveitarfélög víða um
land sóttu um 101 sparkvöll
Nefnd á vegum KSÍ
skipuð til að fara yfir og
velja úr umsóknum
KVÖLDLÓA fannst í Sandgerði sl.
föstudag og er það í fyrsta sinn sem
fugl þeirrar tegundar sést á Íslandi,
að sögn Daníels Bergmanns fugla-
ljósmyndara. Engu er líkara en hún
hafi stigið dansspor í fjörunni, eða
hneigt sig í virðingarskyni fyrir
nýjum heimkynnum, þegar Daníel
smellti af henni mynd.
Kvöldlóa er bandarísk að upp-
runa og nauðalík evrópskum
sandlóum sem verpa hér á landi.
Fuglinn vakti athygli fuglaskoðara
þar sem hann var enn í vetrarbún-
ingi og skar sig því úr sandlóum á
staðnum sem allar voru komnar í
sumarbúning. Við nánari skoðun
reyndist um kvöldlóu að ræða.
Það sem helst greinir kvöldlóu
frá sandlóu eru fitjar á milli tánna,
gulur augnhringur á fuglum í vetr-
arbúningi og hvít augnrák sem
sameinast hvítum bletti á enni.
Einnig er hún sjónarmun smærri
og fíngerðari en sandlóa og kall
hennar er ólíkt. Á laugardag fannst
kvöldlóan ekki aftur þrátt fyrir ít-
arlega leit en á sunnudag var hún
hinsvegar komin á sömu slóðir og
hún sást upphaflega. Þá átti meðal
annars leið um Sandgerði hópur
fólks í árlegri fuglaskoðunarferð
Fuglaverndarfélags Íslands og
Ferðafélags Íslands og tókst
leiðsögumönnum að finna fuglinn,
þátttakendum til mikillar ánægju.
Ljósmynd/Daníel Bergmann
Kvöldlóa stígur dans í fjörunni
UM það bil mánuður er í að Ís-
lendingar taki að sér leiðandi
hlutverk á flugvellinum í Kabúl
í Afganistan og mun verulegur
hluti af því fjármagni sem ætl-
að er til friðargæslunnar fara í
þetta verkefni.
Gunnar Snorri Gunnarsson,
ráðuneytisstjóri í utanríkis-
ráðuneytinu, segir ljóst að
menn verði að halda sér innan
þess fjárhagsramma sem frið-
argæslunni sé settur og því
þurfi menn að halda að sér
höndum annars staðar þar sem
verkefnið í Kabúl sé viðamikið
og margir komi að því. Íslend-
ingar beri þar mikla ábyrgð
sem geti þýtt að menn verði „að
bjarga hlutum fyrir horn“.
Gunnar segir friðargæsluna
áfram starfa á öðrum stöðum,
s.s. á Sri Lanka og í Bosníu en
færri menn verði nú t.d. í
Pristina. Vegna umfangs verk-
efnisins í Kabúl, sem verulegur
hluti heildarfjár gangi til, sé
ljóst að menn verði frekar að
halda að sér höndum í öðrum
verkefnum.
Friðargæslan í
Kabúl kostnaðarsöm
Þurfa að
spara á
öðrum
stöðum
FYRSTA Fokker 50-flugvélin af
þremur, sem Flugfélag Íslands hef-
ur keypt af þýska flugfélaginu
Lufthansa, er komin til landsins.
Fokkervélarnar þrjár kosta um
350 milljónir króna og bætast í
flugflota Flugfélags Íslands á
þessu ári. Flugvélakaupin marka
tímamót hjá fyrirtækinu að því
leyti að þetta er í fyrsta skipti sem
Flugfélag Íslands kaupir Fokker
50-flugvélar. Hingað til hafa vélar
félagsins af þessari tegund verið
teknar á leigu.
Morgunblaðið/Jim Smart
Fyrsti Fokkerinn kominn