Morgunblaðið - 12.05.2004, Síða 8
FRÉTTIR
8 MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Oleee, oleee, oleee.
Kirkjulistahátíð á Seltjarnarnesi
Jobsbók Bíblíunn-
ar og þjáningin
Listahátíð Seltjarn-arneskirkju hefurstaðið yfir frá 3.
maí síðastliðnum. Þetta
er áttunda listahátíðin
sem haldin er í kirkjunni.
Yfirskrift hátíðarinnar í
ár er efni Jobsbókar
Bíblíunnar og þjáningin.
Meðal nýrra dagskrár-
liða að þessu sinni er um-
fjöllun um kvikmyndir
með hliðsjón af yfirskrift
hátíðarinnar.
Erla Jónsdóttir sem á
sæti í listahátíðarnefnd
kirkjunnar segir að dag-
skrá hátíðarinnar sé fjöl-
breytt að vanda.
„Í dag, 12. maí kl. 20.00
verður flutt dagskrá í
kirkjunni í umsjá rann-
sóknarhópsins Deus ex
cinema, en hópurinn hef-
ur nú starfað í tæp fjögur ár og
samanstendur af guðfræðingum,
kvikmyndafræðingum og bók-
menntafræðingum sem hafa það
áhugamál að kanna tengsl kvik-
mynda við efni Bíblíunnar,“ seg-
ir Erla en þess má geta að tveir
stofnfélagar hópsins eru einmitt
meðal þeirra sem flytja erindi á
dagskránni, þeir Gunnlaugur A.
Jónsson prófessor, sem jafn-
framt er formaður listahátíðar-
nefndar, og Þorkell Ágúst Ótt-
arsson BA í guðfræði.
Þriðja fyrirlesturinn flytur
Árni Svanur Daníelsson doktors-
nemi í guðfræði.
Um hvað fjallar fyrirlestur
Árna?
„Fyrirlestur sinn nefnir Árni
Svanur „Job fer til Hollywood“.
Þar fjallar hann um kvikmynd
Woody Allen „Hollywood End-
ing“ frá 2002.
Myndin fjallar um kvikmynda-
leikstjóra sem líkir sér við Job.
Í fyrirlestrinum mun Árni
Svanur einnig fjalla um hvernig
Woody Allen bregst við spurn-
ingunni um bölið.“
Erla bætir því við að Gunn-
laugur Jónsson muni fjalla um
kvikmynd Daniel Taplizt frá
árinu 1995, Commandments.
„Gunnlaugur nefnir fyrirlestur
sinn Munurinn á óheppni og
hendi Guðs, notkun Jobsbókar í
kvikmyndinni „Commands-
ments“.
Myndin er gerð af leikstjór-
anum Daniel Taplizt árið 1995 og
fjallar um mann Seth að nafni
sem eins og Job í Jobsbók telur
sig hafa breytt eins og réttlátur
og guðhræddur maður.
Engu að síður verður hann
fyrir hremmingum á sama hátt
og Job. Hvert áfallið af öðru
dynur yfir Seth, hann missir
konu sína, hús hans eyðileggst
við eldingu o.s.frv. Þar kemur að
hann gerir uppreisn gegn Guði
og ákveður að brjóta markvisst
öll boðorð hans. Hér er unnið á
mjög áhugaverðan hátt með efni
úr Jobsbók og raunar koma fleiri
rit Gamla testamentisins við
sögu.
Þorkell Ágúst Ótt-
arsson fjallar um
kvikmyndina Jude
(1996). Þorkell ætlar
að skoða hvernig
Jobsbók glímir við
spurninguna um það
hvort Job var saklaus eða synd-
ugur, var Guði rétt að láta hann
ganga í gegnum allrar þær þján-
ingar sem bókin lýsir? Sama við-
fangsefnið, þ.e.a.s eru þær
þrengingar og þeir erfiðleikar
sem Jude þarf að þola í kvik-
myndinni vegna syndugs lífs
hans eða ekki,“ segir Erla og
bendir á að sýndir verði kaflar
úr þessum kvikmyndum við fyr-
irlestrana.
Að mati Erlu eru myndverk
Einars Hákonarsonar eitt af af
aðalatriðum listahátíðarinnar.
„Sýning á myndverkum Ein-
ars Hákonarsonar listamanns
sem opnuð var við setningu há-
tíðarinnar 3. maí er eitt af aðal-
atriðum listahátíðarinnar. Mynd-
verkin eru m.a. unnin út frá
þeim áhrifum sem Jobsbók og
efni hennar um þjáninguna hafði
á listamanninn við gerð verk-
anna auk sterkra áhrifa sem
hann varð fyrir við heimsókn í
útrýmingbúðir nasista á náms-
árum sínum. Sýningin hefur vak-
ið verðskuldaða athygli og verð-
ur hún opin a.m.k. til 23. maí
nk.“
Hvenær lýkur listahátíðinni?
„Listahátíðinni sjálfri lýkur
formlega sunnudaginn 16. maí
kl.17.00 með tónleikum í kirkj-
unni. Þar mun sinfóníuhljóm-
sveit áhugamanna og kammer-
kór Seltjarnarneskirkju flytja
vandaða og spennandi efnisskrá
eftir tékkneska tónskáldið Ant-
onín Dvorák (1841–1904) í tilefni
af því að nú eru 100 ár liðin frá
andláti hans. Flutt verða tvö
verka hans, „Te Deum Op. 103“
þar sem einsöngvarar með
kammerkórnum verða þau Anna
Jónsdóttir sópran og
Hugi Jónsson bassi.
Þá verður þekkt-
asta sinfónía Dvorák,
Sinfónía Op. 95, „Frá
Nýja heiminum“ flutt
í fyrsta skipti hér á
landi. Hljómsveitar-
stjóri er Pavel Manasek, kór-
stjóri Viera Manasek.
Þau hjónin eru tékknesk en
hafa þrátt fyrir ungan aldur
starfað um langt árabil hér á
landi og unnið bæði mikið og
gott starf bæði við Seltjarnar-
neskirkju og annars staðar,“
segir Erla Jónsdóttir.
Erla Jónsdóttir
Erla Jónsdóttir er fædd í
Reykjavík 14. maí 1944 og lauk
kandidatsprófi í lögfræði frá Há-
skóla Íslands í janúar 1971.
Starfaði í Sakadómi Reykjavíkur
fram til 1978 er hún varð deild-
arstjóri hjá Rannsóknarlögreglu
ríkisins sem tók til starfa það ár.
Hæstaréttarritari frá 1986 til
1998. Hæstaréttarlögmaður í
september 1998. Hefur setið í
sóknarnefnd Seltjarnarneskirkju
í 14 ár, ritari sóknarnefndar frá
1994 og setið í framkvæmda-
nefnd kirkjunnar síðan. Hún hef-
ur átt sæti í listahátíðarnefnd
kirkjunnar síðustu fjórar hátíðir.
Erla á 4 börn og 3 barnabörn.
Myndverk
Einars Hákon-
arsonar eitt af
aðalatriðum
hátíðarinnar
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, for-
seti Íslands, sat í byrjun vikunnar
stjórnarfund samtakanna Special
Olympics, sem haldinn var í
Mexíkóborg. Um leið átti forsetinn
fundi með forystumönnum í at-
vinnulífi og stjórnmálum í Mexíkó.
Ólafi Ragnari var nýlega boðið
að taka sæti í stjórninni og var
þetta hans fyrsti fundur. Samtökin
eru talin með öflugustu mannúðar-
og íþróttahreyfingar í heiminum,
að því er segir í fréttatilkynningu
frá embætti forseta Íslands, og
skipuleggja m.a. Heimsleika
þroskaheftra og seinfærra í nafni
Special Olympics. Frá Mexíkó
flýgur Ólafur Ragnar til Kaup-
mannahafnar, með viðkomu í Par-
ís, til að vera viðstaddur fyrir Ís-
lands hönd konunglegt brúðkaup
Friðriks krónprins Danmerkur og
Maríu Elísabetar Donaldson prins-
essu á föstudag.
Sat stjórnarfund Special Olympics