Morgunblaðið - 12.05.2004, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2004 9
Bæjarlind 12, Kópavogi, sími 544 2222.
www.feminin.is
Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16.
Mikið úrval af
DOMINIQUE vörum
Stærðir
42-60
Kringlunni, sími 588 1680.
Seltjarnarnesi, sími 561 1680.
tískuverslun
iðunn
Stretch
gallabuxur
fást í 4 lengdum
LOKAÐ
Í DAG
vegna endurbóta á húsnæði
Mjódd, sími 557 5900
Vordagar
í Fröken Júlíu
Nýkomnir Channeljakkar 3 litir,
flauelisjakkar 6 litir og einnig
hörjakkar í mörgum litum.
Frábær tilboð í gangi.
Kringlunni 8-12, sími 553 3600,
www.olympia.is
Bikiní
í stærðum
75-90 b, c
og 46-56
Verð frá 5.500
Sumargallar
Inni- og útigallar fyrir
dömur á öllum aldri
Ný sending
Sími 568 5170
BALDUR Ágústsson, gjarnan
kenndur við öryggisfyrirtækið
Vara, tilkynnti með formleg-
um hætti um framboð sitt til
embættis forseta Íslands, á
blaðamannafundi sem hann
hélt á Hótel Holti í gær.
„Þetta hefur ekki verið auð-
veld ákvörðun en þegar sam-
an lagðist utanaðkomandi
hvatning, brennandi áhugi
minn á íslenskum þjóðmálum
og sterkar taugar til alls sem
íslenskt er ákvað ég að fara
fram,“ sagði Baldur.
Baldur Ágústsson er 59 ára
gamall Reykvíkingur. Hann
lærði flugumferðarstjórn og
starfaði hjá Flugmálastjórn í
tvo áratugi, stofnaði og rak
síðan í aldarfjórðung fyrstu
íslensku öryggisþjónustuna,
Vara, en hefur hin síðari ár stundað
fasteignaviðskipti í Lundúnum.
Kona Baldurs er Jean Plummer.
Baldur sagði að sem forseti vildi
hann vera ópólitískt sameiningar-
tákn sem ekki þyrfti að standa styr
um. „Skýr mörk þurfa að vera á
milli verksviðs stjórnmálamanna og
verksviðs forseta Íslands. Ég hef
aldrei verið í neinum stjórnmála-
flokki með fullri virðingu fyrir þeim
öllum. Ég hef jafnan reynt að meta
hvert mál af heilbrigðri skynsemi,
þjóðarhag og því sem mitt íslenska
hjarta segir mér. [–] Sem for-
seti mun ég endurheimta virð-
ingu forsetaembættisins. Ég
mun ekki eiga skoðanaskipti
við stjórnmálamenn og emb-
ættismenn opinberlega og
þeir ekki við mig. [–] Eins og
fram hefur komið í nýlegri
Morgunblaðsgrein eftir mig
tel ég nauðsynlegt að á for-
setastóli sitji hlutlaus, ópóli-
tískur maður,“ sagði Baldur.
Fundahöld víða um land
Baldur sagðist myndu
kynna framboð sitt með fund-
arhöldum víða um land, opnun
kosningaskrifstofu í gamla
DV-húsinu við Þverholt og
með ítarlegum vef,
www.landsmal.is sem verði
gerður virkur á næstu dögum.
Þá sagði Baldur söfnun meðmæl-
enda vera í fullum gangi. Þá tók
Baldur fram að þótt kosningabar-
átta kostaði mikið fé hefði hann
ákveðið að sækjast ekki eftir styrkj-
um frá fyrirtækjum eða stjórnmála-
flokkum.
Baldur Ágústsson tilkynnir framboð til embættis forseta
Forsetinn verði ópóli-
tískt sameiningartákn
Morgunblaðið/Golli
Baldur og eiginkona hans, Jean Plummer.
DR. Katalin Szili, forseti ungverska
þingsins, er stödd hér í opinberri
heimsókn í boði Halldórs Blöndals,
forseta Alþingis. Í gær heimsótti
hún Alþingi og átti fund með Hall-
dóri Blöndal, sem og með formönn-
um þingflokkanna. Þá fylgdist hún
með þingfundi af þingpöllum.
Ungverski þingforsetinn fundaði
einnig með Davíð Oddssyni for-
sætisráðherra og snæddi hádeg-
isverð með fulltrúum utanrík-
ismálanefndar Alþingis. Síðdegis
átti hún fund með Halldóri Ás-
grímssyni utanríkisráðherra og
með Siv Friðleifsdóttur umhverf-
isráðherra. Í gærkvöldi bauð Hall-
dór Blöndal til kvöldverðar í Ráð-
herrabústaðnum.
Á morgun fer dr. Katalin Szili til
Þingvalla, Nesjavalla og fleiri staða
á Suðurlandi. Eiginmaður hennar,
Miklós Molár, er með henni í för,
sem og tveir þingmenn af ung-
verska þinginu og embættismenn.
Heimsókninni lýkur á fimmtudag.
Morgunblaðið/Golli
Dr. Katalin Szili ásamt Sólveigu Pétursdóttur, formanni utanríkismála-
nefndar, við upphaf hádegisverðar í boði nefndarinnar.
Forseti ungverska
þingsins í heimsókn
Sængurfataverslun,
Glæsibæ • Sími 552 0978
Bómullar-, satín-
og silkidamask-sett
í úrvali
UMHVERFISNEFND Alþingis
leggur til að umdeilt bráðabirgða-
ákvæði verði fellt brott úr frum-
varpi til laga um verndun Mý-
vatns og Laxár í Suður-Þingeyjar-
sýslu. Í áliti nefndarinnar, sem
lagt var fram á Alþingi í vikunni,
segir að frá því frumvarpið var
lagt fram á Alþingi hafi orðið
miklar deilur um bráðabirgða-
ákvæðið, en ákvæðið heimilar
hækkun á núverandi stíflu við
Laxárvirkjun að undangengnum
ákveðnum skilyrðum.
Í áliti nefndarinnar segir: „2.
apríl sl. barst formanni nefndar-
innar [Sigríði Önnu Þórðardóttur]
bréf undirritað af forstjóra Lands-
virkjunar og formanni stjórnar
Landeigendafélags Laxár og Mý-
vatns.
Farsæl niðurstaða
Í bréfinu kom fram sameiginleg
ósk þeirra um að ákvæði til bráða-
birgða III yrði fellt brott úr frum-
varpinu. Telur nefndin rétt að
verða við þessari ósk og leggur til
að ákvæði til bráðabirgða III verði
fellt brott. Nefndin bindur vonir
við að farsæl niðurstaða verði á
þessu máli.“ Leggur nefndin ekki
til aðrar breytingar á frumvarpinu
en þær að lögin, verði frumvarpið
samþykkt, öðlist gildi 1. október
2004. Fram kemur að allir nefnd-
armenn séu samþykkir nefndar-
álitinu, en Kolbrún Halldórsdóttir,
þingmaður Vinstrihreyfingarinnar
– græns framboðs, skrifar þó und-
ir álitið með fyrirvara. Fyrirvarinn
lýtur m.a. að því að verndaráætlun
fyrir þau svæði sem frumvarpið
tekur til verði tilbúin við gildis-
töku laganna.
Umhverfisnefnd vill að bráða-
birgðaákvæðið falli brott
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
FÉLAG íslenskra atvinnuflug-
manna, FÍA, undirritaði í fyrra-
dag nýjan kjarasamning við
Flugleiðir. Samningurinn gildir
til loka ársins 2007 og eru launa-
hækkanir þær sömu og samið
hefur verið um á almennum
markaði til þessa. Að auki er
samið um nokkur hagræðingar-
atriði, sem bæði flugmenn og
fyrirtækið njóta. Segir á vef FÍA
að ráðgert sé að kynna samning-
inn fyrir flugmönnum félagsins á
næstu dögum og að hefja at-
kvæðagreiðslu.
Samninganefndir FÍA og
Flugleiða mættu í húsakynni rík-
issáttasemjara kl. 10 á mánu-
dagsmorgun og var skrifað undir
samninginn um kvöldið. Stíft var
fundað í síðustu viku en hlé gert
á samningum um helgina.
Flugmenn semja
við Flugleiðir