Morgunblaðið - 12.05.2004, Side 10

Morgunblaðið - 12.05.2004, Side 10
FRÉTTIR 10 MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ „MINNIHLUTINN leggur til að málinu verði vísað frá,“ sagði Bryn- dís Hlöðversdóttir, þingmaður Sam- fylkingarinnar og framsögumaður minnihluta allsherjarnefndar, við aðra umræðu um fjölmiðlafrum- varpið á Alþingi í gær. Sagði hún efni og formi frumvarpsins svo ábótavant að málið væri ótækt til af- greiðslu á þinginu. „Það hefur feng- ið ótrúlega flýtimeðferð. Og ég vil hér í upphafi máls míns lýsa yfir vanþóknun minni á þeim vinnu- brögðum sem meirihlutinn beitti í hæstvirtri allsherjarnefnd.“ Bjarni Benediktsson, formaður allsherjarnefndar Alþingis, vísaði þessum fullyrðingum á bug. Sagði hann að málinu til grundvallar lægi skýrsla fjölmiðlanefndarinnar. Megin niðurstaða nefndarinnar væri sú að hér á landi væri komin upp afar óæskileg staða í fjölmiðl- um, þ.e. hér hefði átt sér stað meiri eignaþjöppun en menn þekktu ann- ars staðar. Mat nefndarinnar væri að við þessu ástandi þyrfti að bregð- ast. „Og nú þurfa menn að taka póli- tíska afstöðu í þessu máli og hætta að tala um málsmeðferðina,“ sagði hann. Önnur umræða um frumvarpið hófst um kl. 14.30 í gær en upphaf- lega stóð til að hún hæfist fyrir há- degi. Var henni seinkað að ósk stjórnarandstöðunnar. Vildu þeir fá meiri tíma til að fara yfir málið, en meirihluti allsherjarnefndar af- greiddi sitt álit úr nefnd í fyrra- kvöld. „Við hljótum að hafa sama rétt og þingmenn stjórnarliðsins til að geta lagt fram ítarleg og vel rök- stutt nefndarálit,“ sagði Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylk- ingarinnar, við upphaf þingfundar í gærmorgun. „Þó að okkar fólk hafi verið að vinna mestan part nætur hefur það ekki tekist.“ Spurði hann forsætisráðherra, Davíð Oddsson, hvort ekki kæmi til greina að fresta umræðunni til klukkan tvö. „Herra forseti, mér finnst alveg sjálfsagt að fresta málinu til klukkan tvö, eins og um er beðið,“ sagði forsætisráð- herra. Eftir nokkrar umræður var umræðunni síðan frestað, eins og áður sagði. Alvarleg íhlutun Bjarni Benediktsson mælti síðar um daginn fyrir áliti meirihluta alls- herjarnefndar, en gerð var grein fyrir því áliti í Morgunblaðinu í gær. Bryndís Hlöðversdóttir mælti fyrir minnihlutaálitinu og sagði að fjöl- margar athugasemdir hefðu verið gerðar við frumvarpið í allsherjar- nefnd. „Við meðferð nefndarinnar komu fram athugasemdir sem fela í sér alvarleg álitamál um hvort frum- varpið standist stjórnarskrá lýð- veldisins Íslands og var þar einkum vísað til mannréttindaákvæða, at- vinnufrelsis, tjáningarfrelsis, eign- arréttar og jafnræðisreglu,“ sagði hún. „Frumvarpið felur í sér alvar- lega íhlutun í fjölmiðlamarkaðinn, gengur mun lengra en nauðsynlegt er í lýðræðissamfélagi og brýtur í bága við meðalhófsreglu íslenskra laga. Frumvarpið gæti reynst sam- keppnishamlandi í stað þess að tryggja samkeppni, dregið úr að- gengi fjölmiðlafyrirtækja að fjár- magni og nýrra aðila á markaðnum. Frumvarpinu virðist beint gegn einni tiltekinni sjónvarpsstöð þrátt fyrir að orðalag þess sé klætt í al- mennan búning.“ Bryndís sagði ennfremur að breytingartillögur meirihluta allsherjarnefndar eyddu ekki þeirri óvissu sem ríktu um þau álitamál sem fram hefðu komið varðandi frumvarpið. Fjölmargir þingmenn, einkum þingmenn stjórnarandstöðunnar, tóku þátt í umræðunum á Alþingi í gær. Tóku þeir sér góðan tíma til að fjalla um málið en ræðutími er ótak- markaður við aðra umræðu um þingmál, samkvæmt þingsköpum Alþingis. Ekki fallist á ítrekaðar óskir um frestun umræðunnar Stjórnarandstæðingar fóru ítrek- að fram á það í gær að umræðunum yrði frestað þar til menntamála- nefnd Alþingis og efnahags- og við- skiptanefnd Alþingis hefðu lokið umsögnum sínum um fjölmiðla- frumvarpið. Ekki var fallist á þá kröfu þeirra og umræðan látin halda áfram. Þingmenn Frjálslynda flokksins, Magnús Þór Hafsteinsson og Sig- urjón Þórðarson, spurðu Bjarna Benediktsson m.a. að því hvers vegna svo lægi á að afgreiða frum- varpið. Bjarni svaraði því m.a. til að á málinu þyrfti að taka. Í allsherj- arnefnd hefði farið fram vönduð vinna; kallað hefði verið eftir sjón- armiðum og þeim hefði verið mætt með breytingartillögum. „Á málinu þarf að taka og menn þurfa að gera það af alvöru og festu en ekki með því að klóra sér í hausnum og hugsa sig um í mörg ár.“ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar, sagði m.a. að markmið frumvarpsins væri að stöðva tiltekið ástand, þagga niður í tilteknum aðilum og koma tilteknum fjölmiðlum í hendur nýrra aðila. Sagði hún að stjórnar- liðar vildu m.ö.o. standa að sértæk- um lögum. „Lög eigi ekki að snúa að tilteknum einstaklingum – allt að því nafngreindum,“ sagði hún. Þorgerður K. Gunnarsdóttir menntamálaráðherra gagnrýndi ræðu Ingibjargar og sagði hana hafa verið fulla af bræði, heift og bulli. Sagði hún að Ingibjörg hefði verið að forðast hina efnislegu um- ræðu. Ingibjörg kom aftur í pontu og sagðist hafa farið yfir það lið fyr- ir lið hvernig frumvarpið stangaðast á við stjórnarskrá og grundvallar- reglu íslenska ríkisins. Sagði hún ennfremur að Samfylkingin vildi ekkert annað en efnislega og lýð- ræðislega umræðu. „Þetta er sér- tækt frumvarp og það er það sem okkar málefnalega gagnýni byggir á, virðulegi forseti,“ sagði Ingibjörg. Saknar framsóknarmanna Steingrímur J. Sigfússon, for- maður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, gagnrýndi einnig frumvarpið en líka hina „nýju frjáls- hyggjukynslóð“, eins og hann komst að orði, sem hefði „stigið svo glæst inn á þing vor sem leið“. Vísaði hann þar til þingmanna Sjálfstæðis- flokksins Sigurðar Kára Kristjáns- sonar, Guðlaugs Þór Þórðarsonar og Birgis Ármannssonar. „Ég hef miklar áhyggjur af þessum piltum,“ sagði hann. „Ég tel að það sé búið að fara hroðalega með þá.“ Sagði hann þá hafa étið ofan í sig allt sitt tal um- frelsi og frjálsræði. Steingrímur vakti einnig athygli á „gríðarlegri fjarveru“ framsóknar- þingmanna í umræðunni í gær, eins og hann orðaði það. Sagði hann að gott hefði verið að hafa þó ekki væri nema eitt eintak í þingsalnum. Þess má reyndar geta að framsóknar- þingmennirnir Hjálmar Árnason, Jónína Bjartmarz og Kristinn H. Gunnarsson voru öll á mælendaskrá í gærkvöld. Á tólfta tímanum var þó óvíst hve- nær röðin kæmi að þeim, en þá voru nítján þingmenn enn á mælenda- skrá. Ekki lá þá heldur fyrir hvenær umræðunni myndi ljúka í nótt. Þó var gert ráð fyrir því að hún myndi halda áfram í dag. ÞORGERÐUR K. Gunnarsdóttir menntamálaráðherra sagði aðspurð í samtali við Morgunblaðið í gærkvöld að hún væri sátt við þær breytingar sem meirihluti alls- herjarnefndar Alþingis leggur til að verði gerðar á fjöl- miðlafrumvarpinu. Ennfremur sagði hún að sátt væri um breytingartillögurnar innan ríkisstjórnarinnar. Þó væri vitað að Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, myndi ekki styðja frumvarpið. „Mér sýnist að allsherjarnefnd hafi unnið þetta mál afar vel. Hún hefur hlustað á þessar helstu gagnrýn- israddir og reynt að komast mjög til móts við þær,“ sagði ráðherra. Minnti hún á að meginmarkmið frum- varpsins væri að setja almenn lög um eignarhald á fjöl- miðlum, þannig að áfram yrði hægt að hlúa að þeirri fjölbreytni sem við vildum sjá í íslenskri umræðu og í íslensku samfélagi. „Við viljum ekki að einn og sami að- ilinn ráði öllu; markaðnum og fjölmiðlunum,“ útskýrði ráðherra og bætti við: „Það getur verið einn aðili í dag og annar á morgun. Við erum að hugsa til framtíðar.“ Engar efnislegar tillögur Þorgerður sagðist eftir að hafa fylgst með umræðunum á þingi í gær sakna raunverulegra efnislegra til- lagna frá stjórnarandstöðunni, ekki síst frá Samfylkingunni. Sagði hún Samfylkinguna bara bulla og blaðra og vilja vísa málinu frá, en koma ekki fram með efnislegar tillögur. Sagði hún að Samfylkingin vildi kannski að á Íslandi myndaðist ástand sem kennt væri við Murdoch og Berlusconi. „Öðruvísi mér áður brá,“ sagði ráðherra eftir að hafa rifjað upp að þingmenn Samfylking- arinnar hefðu síðustu árin kallað eftir leikreglum á fjölmiðlamarkaði. Margir á mælendaskrá þegar önnur umræða hófst um fjölmiðlafrumvarpið Minnihlutinn segir málið ótækt til afgreiðslu á þinginu Önnur umræða um fjöl- miðlafrumvarp ríkis- stjórnarinnar hófst á Alþingi í gær. Var frum- varpið eina dagskrár- málið. Nítján þingmenn voru enn á mælenda- skrá um miðnætti í gær. Morgunblaðið/Árni Torfason Þingmennirnir Kristján L. Möller, Hjálmar Árnason og Magnús Þór Hafsteinsson fylgjast með umræðum um fjölmiðlafrumvarpið. Sátt við breytingartillögur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.