Morgunblaðið - 12.05.2004, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 12.05.2004, Qupperneq 17
Vinsælasti sumarleyfisstaður Ítalíu. Glæsileg ströndin teygir sig kíló- metrum saman eftir fallegri strandlengjunni og hér er að finna ótrú- lega stemmningu yfir sumartímann, þar sem bærinn iðar af mannlífi, jafnt daga sem nætur, af innlendum sem erlendum ferðamönnum, sem koma hingað til að njóta hins besta sem sumardvöl á Ítalíu hefur að bjóða. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Verð frá kr. 29.895 Stökktu tilboð, m.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, vikuferð, 27. maí. Verð frá kr. 39.990 Stökktu tilboð, m.v. 2 í íbúð/stúdíó, vikuferð, 27. maí. Munið Mastercard ferðaávísunina Síðustu sætin í maí Hvítasunnan á Rimini 27. maí frá kr. 29.895 Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Stúlkur fermdar eftir langt hlé | Það er ótrúlegt að greina frá því, að í heil átta ár fæddust engin stúlkubörn í Grímsey. Þar af leiðandi var engin stúlka fermd. Þetta árið varð heldur betur breyting á. Séra Magnús G. Gunnarsson Dalvík- urprestur fermdi þetta vorið í Miðgarða- kirkju þrjár stúlkur. Fermingardagurinn rann upp – íslenski fáninn dreginn að húni á flestum bæjum – gleði í lofti þrátt fyrir þokudrunga. Prest- urinn okkar séra Magnús lagði út af því, hvers vegna við ættum að elska Guð. En drottinn segir að með eilífri ást, elski hann okkur. Skilyrðislaust, rétt eins og ást á milli móður og barns er án skilyrða. Séra Magnús sagði líka að gjöf Guðs til okkar væri að sýna kærleika – fórnfýsi og lang- lundargeð til að geta lifað í góðu samfélagi hvert við annað. Og aldrei mættum við gleymi gleðinni sem væri svo mikilvægur þáttur í lífi okkar. Skólabróðir stúlknanna Garðar Alfreðsson, spilaði á gítar „Í bljúgri bæn“ og klöppuðu kirkjugestir innilega. Eftir athöfnina var þokan á burt og sól- in skein rétt eins og eftir pöntun. Það voru brosandi, hamingjusamar ferming- arstúlkur sem héldu í félagsheimilið Múla, með prúðbúnum gestum sínum, mörgum langt að komnum, þar sem glæsilegt sam- eiginlegt veisluborðið beið. Því það er venja í Grímsey að fjölskyldur ferming- arbarna haldi eina veislu, hvað sem ferm- ingarbörnin eru mörg.    Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Burtfarartónleikar | Anna Lilja Torfa- dóttir og Helga Guðlaugsdóttir munu ljúka 8. stigi í söng frá Tónlistarskóla Rangæinga í vor. Anna Lilja er leikskólastjóri á Hellu, ættuð úr Garðabænum. Helga er bóndi á Skeiðunum og uppalin þar. Þær fyrirhuga að halda burtfarartónleika föstudaginn 14. maí kl. 20.30 á Heimalandi í Rangárþingi eystra. Með þeim verður Halldór Óskarsson sem spilar á píanó og einnig mun syngja með þeim Sigríður Viðarsdóttir sem er að ljúka 7. stigi. Þar sem Helga er Árnesingur ætla þær stöllur ennig að halda tónleika í Árnesi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi í dag, mið- vikudag, kl. 20.30. Á efnisskránni eru söng- lög eftir Purcell, Grieg, Schubert o.fl., einn- ig óperuaríur eftir Mozart. Drangeyjarfélagið ogBúálfar á Hólumstanda fyrir bjarg- sigi í Drangey á Skagafirði helgina 22. og 23. maí. Þá munu eyjarmenn bjóða gestum og gangandi að fylgjast með vinnu- brögðum við sigið og einnig vera með leiðsögn um eyna þar sem fólki yrðu kynntar nytjar þær sem Skagfirð- ingar hafa haft af henni í aldanna rás. Þá verður og siglt umhverfis eyna og fólk frætt um helstu sögu- staði og örnefni. Af þessu tilefni verður boðið upp á ferðir til Drangeyjar gegn vægu gjaldi. Þeir sem áhuga hafa á að „fara fram“, eins og sagt er um ferðir til Drang- eyjar á vorin, þurfa að til- kynna þátttöku í síma eða tölvupósti fyrir 20. maí til Sólrúnar Harðardóttur á Hólum í Hjaltadal, Stein- ars Péturssonar á Sauð- árkróki eða til Kristjáns Eiríkssonar, í Reykjavík. Bjargsig Björn Ingólfsson varðsextugur á dög-unum og fór að hugleiða stöðu sína, kom- inn á nýjan tug: Víst er ég annar en var ég fyrst, við þetta glaður skal þó una. Ég hef svosem ekki mikið misst nema minnið og vitið og náttúruna. Á þessu ári eru einnig liðin 60 ár frá fæðingu Ragnars Inga Aðalsteinssonar frá Vaðbrekku og gaf hann af því tilefni út vísnaúrvalið „Ekki orð af viti“. Þar er vísa sem hann orti í gesta- bók foreldra sinna eftir að hafa verið fjarri föður- húsum um skeið: Austur og vestur útþrá dró, áfram er best að sveima. Hér þáði ég nesti og nýja skó og nú er ég gestur heima. Ragnar Ingi er einn fárra sem hafa orðið fyrir þeirri reynslu að giftast systrum. Þegar hann var nýlega kominn í hnapphelduna með seinni systurinni sendi hann tengdamóður sinni vísu á jólakorti: Aldrei hefur það átt við mig að eltast við giftar konur. En tryggðin við þig er söm við sig, seint mun ég yfirgefa þig. Þinn tvöfaldi tengdasonur. Gestur heima pebl@mbl.is Fagridalur | Krakkarnir draga fram hjól og kassabíla og alls- konar leiktæki á vorin, tæki sem staðið hafa í geymslum yfir vet- urinn. Þessir hressu krakkar í Vík í Mýrdal, Hlynur Guð- mundsson, Guðmundur Haralds- son og sitjandi í bílnum Eygló Guðmundsdóttir, voru að leggja kassabílnum við Víkurskála. Ökutæki þeirra er að hluta til smíðað úr gömlum barnavagni. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Kassabíl lagt í stæði Vor YFIR tvö hundruð manns tóku þátt í flug- slysaæfingu á Ísafirði um helgina, þar sem árekstur Cessnu og Fokker-vélar var sett- ur á svið og viðbrögð æfð. Brennandi bíl- flökum var komið fyrir víða um flugbraut- ina á Ísafirði og leitað að flaki Cessnunnar, sem átti að hafa skollið í sjóinn. Sjötíu Vest- firðingar brugðu sér í hlutverk sjúklinga. Sigríður Björk Guðjónsdóttir, sýslumað- ur á Ísafirði, segir að tilgangur æfingarinn- ar hafi verið tvíþættur, annars vegar að æfa nýja flugslysaáætlun fyrir Ísafjarðarflug- völl og hins vegar að þjálfa viðbragðsaðila. Hún segir að æfingin hafi gengið mjög vel en hnökrar hafi komið í ljós sem nú verði unnið í að bæta. Of margir hafi notað sömu talstöðvarrás, þá hafi upplýsingastreymi milli aðgerðastjórnar og vettvangsstjórnar og skráning ekki verið sem skyldi. „Á móti kemur að samstarf allra aðila tókst mjög vel, boðunin tókst 100%, sem er mjög sjaldgæft, og margt gekk mjög vel upp. T.d. tók mjög skamman tíma að ná fólki af brautinni,“ segir Sigríður Björk, en 61 „sjúklingur“ var á flugbrautinni þegar æfingin hófst. „Við vorum auðvitað að þessu til að finna út hvort það væri eitthvað sem við þyrftum að laga og það er nátt- úrulega alltaf þannig.“ Í framhaldinu verð- ur búin til skýrsla um æfinguna og fleiri æf- ingar haldnar. „Þetta er gríðarlega mikils virði, því vandinn er ekki viðbragðsaðilarnir sem slíkir. Þeir standa sig allir. Ég veit að sjúkrahúsið er öflugt, ég veit að björgunar- sveitirnar eru öflugar, lögreglan og slökkviliðið og Rauði krossinn. Þetta er allt saman mjög öflugt fólk. Það sem við vorum að æfa er hvernig allir vinna saman undir álagi, það er samvinnan og kerfið sem við vinnum eftir, sem er kallað SÁBF-kerfið, eða Stjórnun, áætlanir, bjargir, fram- kvæmdir. Nú er verið að keyra eftir kerfi þar sem allir tala sama tungumálið,“ segir hún. Hnökrar sem verða bættir komu í ljós Morgunblaðið/Birgir Þór Grindavík | Þessa dagana snýst lífið í Grindavík mik- ið um bolta, ekki síst golf- bolta og fótbolta. Golfarar eru komnir af stað og héldu sitt annað mót á sunnudag. Sólin skein í heiði og völlurinn góður. Eftir hádegið hófu knattspyrnumenn Grinda- víkur og Fram í meist- araflokki að sparka tuðr- unni og voru gestirnir sterkari í þetta sinn höfðu sigur 4-2. Á svipuðum tíma voru krakkar í 5.flokki KFR í heimsókn hjá Grindvíkingum og spiluðu fótbolta í blíðunni. Til að fullnýta daginn mættu síðan Haukastúlk- ur í þriðja flokki og spiluðu knattspyrnu við heimasæturnar. Grindvíkingar voru líka duglegir að mæta í sund þennan sunnudag enda veðrið vel til þess fallið og víða voru heimamenn í stórræðum í garðinum. Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson Boltinn rúllar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.