Morgunblaðið - 12.05.2004, Page 20

Morgunblaðið - 12.05.2004, Page 20
AKUREYRI 20 MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Selfoss | Mikil uppbygging er áformuð á Syðri-Brú í Grímsnesi. Steinar Árnason at- hafnamaður frá Selfossi hefur keypt jörð- ina, sem er 400 hektarar, og er hann búinn að skipuleggja 150 lönd fyrir sumarhús og er hvert sumarhúsaland 1–3 hektarar að stærð. Hluti af landi Syðri-Brúar liggur að Soginu neðan Ljósafossstöðvar og síðan upp í hlíðar Búrfells. Um er að ræða mjög fallegt umhverfi með ríka tilbreytingu í landslaginu eins og víða er í Grímsnesinu. „Í skipulagningu þessara sumarhúsa- landa höfum við leitast við að hafa litla læki í hverri lóð en mikið er um læki og sprænur í landinu niður undan Búrfelli. Ég sé mikla möguleika til uppbyggingar hérna, sérstaklega þegar komið er heitt vatn hingað og ljósleiðari,“ segir Steinar en ásamt því að hafa skipulagt landið hef- ur hann þegar hafið endurnýjun húsa á jörðinni með því að breyta útihúsum og lagfæra íbúðarhús. Sumarhús í fjárhúsinu Í einu útihúsanna hefur hann komið upp aðstöðu til þess að byggja 92 fermetra heilsárshús. Hvert hús verður smíðað inni í fjárhúsinu og síðan dregið út á sleða, sett á flutningavagn og flutt á sína lóð. „Þetta verða stærri hús og meira í þau lagt en venjulega er gert. Svo verðum við með bú- staði til leigu og ætlum að bjóða upp á skoðunarferðir um nágrennið, fjór- hjólaferðir á Búrfell og vélsleðaferðir á Langjökul og síðan veiði og hefðbundnar ferðir að Gullfossi og Geysi,“ segir Stein- ar. Hann áformar einnig að setja upp fisk- eldi í sleppitjörnum og auka þannig veið- ina fyrir landi Syðri-Brúar í Soginu, en í landinu eru lækir sem renna í Sogið og á haustin kemur laxinn í þessa læki til hrygningar. Gallerí í gömlu sjoppuna Leiðin upp Grímsnes um Ljósafosshlöðin er mjög fjölfarin og margir kannast við gömlu sjoppuna sem stendur við veginn. Steinar og hans fólk áforma að setja upp gallerí í sjoppunni með íslensku handverki. Síðan verður komið fyrir nýrri þjónustu- miðstöð aðeins ofar í landinu með aðstöðu fyrir tjaldgesti, hjólhýsi, tjaldvagna og fellihýsi. Í næsta nágrenni er síðan Ljósafosslaug og níu holu golfvöllur handan við veginn. „Þetta er mikið land með mikla möguleika. Ég sé fyrir mér mikla frístundabyggð og afþreyingu fyrir þá sem hér eru í bústöð- um og aðra sem leið eiga um. Þetta er einn valkosturinn enn fyrir ferðamenn. Ég finn fyrir mikilli eftirspurn eftir sumar- húsum og er viss um að hin mikla upp- bygging í þeim efnum mun halda áfram,“ segir Steinar Árnason athafnamaður á Syðri-Brú í Grímsnesi. Frístundabyggð með fjölbreyttri afþreyingu Morgunblaðið/Sig. Jóns Möguleikar: Steinar Árnason athafnamaður á hlaðinu á Syðri-Brú, fjær sér yfir hluta landsins. Fjárveiting | Á fundi félagsmálaráðs í vik- unni var kynnt erindi frá heilbrigðisráðuneyti þar sem tilkynnt er fjárveiting úr Fram- kvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2004 að upp- hæð kr. 50.000.000 vegna nýbyggingar við hjúkrunarheimilið Hlíð. Viðbyggingin við Hlíð er ætluð fyrir 60 hjúkrunarrými og stoðrými vegna þeirra. Reist verður 3.600 fermetra bygging auk tilheyrandi stoðrýma vegna þjón- ustu við dvalargesti á núverandi lóð Hlíðar við Austurbyggð. Ákveðið var að taka tilboði VST og Arkitektur.is í hönnun viðbyggingarinnar eftir útboð og skal þeirri vinnu að fullu lokið í lok september nk.    Dönskunámskeið | Norræna upplýs- ingaskrifstofan á Akureyri, í samstarfi við Skólaskrifstofu Akureyrarbæjar og Sprog- højskoen á Kalø á Jótlandi, mun standa fyrir tveggja vikna námskeiði í dönsku fyrir nem- endur í grunnskólum Akureyrar. Nemendur í 7., 8., 9. og 10. bekk munu eiga þess kost að taka þátt. Námskeiðið verður haldið á lýðhá- skólanum á Kalø 12. - 26. júní 2004. Áhuga- samir annars staðar af landinu geta skráð nemendur á biðlista í síma 460 1462 eða sent tölvupóst til mariajons@akureyri.is.    Fundur á Sigurhæðum | Lokafundur hóps foreldra og aðstandenda samkynhneigðra verður haldinn á Sigurhæðum á Akureyri fimmtudaginn 13. maí og hefst klukkan 20.00. Opið verður frá 19.30 ef einhverjir skyldu vilja koma og spjalla áður en fundurinn hefst. Farið verður yfir vetrarstarfið, fjallað um sumarið framundan og komandi vetur og tekin afstaða til þess hvort stofna skuli formlega Norður- landsdeild FAS.    ÞAÐ ríkti sannkölluð hátíð- arstemmning í KA-heimilinu þegar börn og starfsfólk á leik- skólunum Krógabóli, Síðuseli og Sunnubóli héldu uppskeru- hátíð vegna loka þróunarverk- efnisins „Lífsleikni í leikskóla“. Foreldrar barnanna, systkini og fleiri fjölmenntu einnig í KA-heimilið og tóku þátt í há- tíðinni. Hljómsveit skipuð for- eldrum og nokkrum börnum frumfluttu lífsleiknilagið „Ferðalagið“ en nauðsynlegt þótti að leikskólarnir eignuðust sitt eigið lag í kjölfar lífsleikni- kennslunnar. Efnt var til sam- keppni meðal foreldra og starfsmanna um lag og texta og vann Arnór Vilbergsson, foreldri í einum leikskólanna þriggja, samkeppnina. Að frumflutningi lagsins loknum skemmtu börnin með söng, þar sem hver árangur í skólunum þremur söng saman. Í lokin var svo boðið upp á grillaðar pyslur og drykk. Þá voru öll börnin leyst út með gjöf, geisladisk sem inniheldur lífsleiknilagið í flutningi for- eldra og barna. Hátíðin þótti takast vel og vel heppnuðu þróunarstarfi fagnað, sem mun koma til með að lita starf þess- ara leikskóla í framtíðinni. Vel heppnuðu þróunarstarfi fagnað Morgunblaðið/Kristján Hver árgangur í leikskólunum þremur tók lagið í KA-heimilinu og hjá 2001-árganginum varð lagið „Við klöppum öll í einu“ fyrir valinu. Stillimyndir | Sigurdís Harpa Arnarsdóttir sýnir um þessar mundir á Kaffi Karólínu á Akureyri. Sýn- ingin nefnist Stillimyndir og samanstendur af miniatúrum og ljós- myndum. Þetta er 21. einkasýning Sigurdísar og stendur yfir í fjórar vikur, en henni lýkur 6. júní. Vélin er að mörgu leyti byggð upp lausnum sem notaðar hafa verið í fiskvinnslu hér á landi mjög lengi en munurinn felst m.a. í efnisvalinu þar sem Vélfagsvélin er eingöngu smíðuð úr tæringarfríum efnum, sérblönduðu og styrktu plasti og ryðfríu stáli. Þetta eru lausnir Vélfags sem hafa sannað sig og fest sig í sessi á innan- landsmarkaði, sökum aukinnar nýtingar og minni viðhaldskostnaðar. Hönnun vélarinnar býður einnig upp á gjörbreytt aðgengi til þrifa í VÉLFAG ehf. á Ólafsfirði hefur klárað fyrstu prófanir á fiskflökunarvél sem fyrirtækið hefur verið með í smíðum um nokkurt skeið. Prófanir fóru fram í fiskvinnslu Norðurstrandar ehf. á Dalvík og var þorskur af mismunandi stærð not- aður. Allt gekk mjög vel og ekki eitt einasta flak fór til spillis, segir í fréttatilkynningu. Í þessari nýju vél hafa ýmsir vankantar annarra flökun- arvéla verið sniðnir af og betri vél en er á mark- aðinum í dag er að líta dagsins ljós. samræmi við auknar kröfur í matvælafram- leiðslu og tímasparnað við þá vinnu. Næsta skref hjá Vélfagi er setja tölvustýr- ingu í vélina og þannig er mögulegt að hámarka flakanýtingu á hverjum einasta fiski. Stefnt er að því að vélin frá Vélfagi bæti flaka- nýtingu í fiskvinnslu um nokkur prósent auk þess sem efnin í vélina gera það að verkum að viðhald er minna ásamt auknu hreinlæti í vinnsl- unni, segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. Aukin flakanýting í fiskvinnslu Málmur á Punktinum | Fjórða sýningin í röð tíu sýninga á handverksmiðstöðinni Punkt- inum hefur verið opnuð, en um er að ræða sýn- ingu sem ber yfirskriftina Málmur. Af því til- efni flutti Þráinn Karlsson, leikari og notandi Punktsins, fyrirlestur um málma. Punkturinn varð tíu ára í janúar síðastliðnum og þá var fyrsta sýningin opnuð, en út allt árið verða sýn- ingar með hinni ýmsu yfirskrift. Handverks- og tómstundamiðstöðin. Starfsemi Punktsins byggist upp á fjórum grunnþáttum, vefnaði, smíðum, saumaskap og leirmótun. Þá hafa ver- ið haldin námskeið í ýmsum list- og handverks- greinum á Punktinum. Stefna staðarins er að hafa sköpunargleðina í fyrirrúmi. Sýningin stendur til 27. maí næstkomandi og er opin alla virka daga frá kl. 13 til 17.   

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.