Morgunblaðið - 12.05.2004, Qupperneq 39
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2004 39
Fallinn er í valinn
hetjan aldna, Ágúst
Benediktsson frá
Hvalsá, á eitthundr-
aðasta og fjórða aldurs-
ári. Hann gleymist
þeim ekki sem í æsku kynntust hon-
um. Fas hans allt og framkoma bar
vitni mikilli hlýju og öryggiskennd.
Handtakið var sterklegt og andlits-
svipurinn glaðlegur. Á æskuárum
mínum bjó hann í næsta nágrenni við
undirritaðan, orðlagður fyrir dugn-
að, lagvirkni og framtakssemi. Það
var hefðbundinn búskapur á Hvalsá
með sauðfé, kýr og hross. Túnið var
lítið svo mikinn heyfeng þurfti að
sækja á engjar. Það þótti hvergi
neitt tiltökumál á þeim árum. En
hvert vor var unnið af kappi við að
auka ræktunina og ekki dregið af
sér. Vélbát átti hann þegar ég man
fyrst eftir mér, það gat verið stutt á
góð fiskimið bæði með línu og hand-
færi aflinn hefur á stundum verið
notadrjúgt búsílag. Þá gat veiði á
rauðmaga og grásleppu heppnast vel
og gefið nokkuð í aðra hönd. Eitt var
óbrigðult, alltaf var öllum í sveitinni
gefinn fyrsti aflinn úr rauðmaga-
netunum og oft kom önnur sending
síðar ef þokkalega veiddist. Þeim
hjónum var ljúft að gefa og gera fólki
greiða. Ágúst átti skektu, sem hann
lánaði bændum til að fara með hand-
færi og ná sér í afla í soðið, að sjálf-
sögðu án endurgjalds.
Til voru þeir sem sögðu að á
ÁGÚST
BENEDIKTSSON
✝ Ágúst Benedikts-son fæddist í
Steinadal í Kollafirði
í Strandasýslu 11.
ágúst 1900. Hann
lést á Hrafnistu í
Hafnarfirði 2. apríl
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Áskirkju 16. apríl.
Hvalsá væri efnahagur
góður. Hugsanlegt er
að svo hafi verið en víst
er að mikil vinna, út-
sjónarsemi og óbilandi
kjarkur var aflið sem
vagninn dró. Ágúst var
mikið í flutningum
bæði með fólk og varn-
ing til verslunarstað-
anna í nágrenninu,
einkum yfir vetrartím-
ann og allt fram um
1960 eða lengur þegar
samgöngur á landi
höfðu verið bættar og
nokkur þjónusta við
vegfarendur hófst, en fyrir því hafði
Ágúst barist ásamt mörgum öðrum.
Oftast hygg ég að farið hafi verið til
Hólmavíkur en einnig til Óspakseyr-
ar og Drangsness. Nú kann einhver
að álykta, sem ekki þekkir til að
Ágúst hafi fæðst með silfurskeið í
munni, en svo var nú ekki. Ég vona
að enginn sé svo harðbrjósta að telja
fullgott barni það sem hann mátti
sætta sig við í æsku, en um sjö ára
aldurinn var hann sendur í fjarlæga
sveit til móðurbróður síns til að gæta
kvíaáa. heilt sumar, oft með léttan
malpoka. Þá mörgu daga blandast
tár regni. Með honum var drengur
honum lítið eldri. Þessu lík voru
mörg æskuár hans. Ekki var mann-
vonsku foreldranna um að kenna, að-
stæður fólks voru einfaldlega ekki
betri en þetta fyrir tæpum 100 árum.
Þetta er á þeirri tíð þegar fátt eða
ekkert gekk fremur guðlasti næst en
að fara illa með mat. Líf fjöldans á
þeirri tíð var samfellt strit og óttinn
við skortinn var aldrei langt undan.
Það virðist alveg hafa gleymst að
segja ungu fólki frá þessari baráttu
afa þeirra og ömmu fyrir matbjörg-
inni. Ágúst sagði stundum frá þessu
en án beiskju. Honum var alla tíð
umhugað um að kjör fólks bötnuðu,
hann hvatti ungt fólk til athafna og
lagði því lið þegar færi gafst. Sjálfs-
ímynd margra styrktist við uppörv-
un frá honum og það fór að líta á sig
sem samfélagsverur. Þegar vágestur
margra bænda, mæðiveikin, hafði
verið yfirunnin um miðja öldina fyllt-
ust menn bjartsýni um að betri tíð
væri í vændum og það gekk eftir.
Hófust nú byggingaframkvæmdir til
sveita. Ágúst lagði mörgum lið og
hafði á hendi umsjón með mörgum
byggingum. Enn sér merki handa-
verka hans. Heima hjá sér byggði
hann allt upp bæði íbúðarhús og fyr-
ir allar skepnur, glæsilegar bygging-
ar á þeirra tíma mælikvarða.
Ágúst var sterkbyggður og heilsu-
góður. Hann eignaðist góða konu og
ég tel að sambúð þeirra hafi verið
farsæl. Þau eignuðust sjö syni. Odd-
hildur móðir Ágústs var hjá þeim
hjónum allt þar til hún lést 1963.
Bænir hennar hafa án vafa verið
heimilislífinu til heilla. Það var lán
yfir lífi hans lífi, sem var að mörgu
leyti eftirbreytnivert. Sumum fannst
hann á stundum fara af meira kappi
en æskilegt væri en allt blessaðist
honum. Ég tel að hann hafi ekki átt
sér öfundarmenn, framkoma hans öll
var án tilgerðar. Hann unni leikjum
og glaðværð og fann sig vel innan um
fólk, börnum og unglingum líkaði vel
við hann. Um ár er liðið síðan kona,
sem fædd er 1960 rifjaði upp þann
tíma þegar Gústi á Hvalsá var að
dansa við hana „og hinar litlu stelp-
urnar“ í samkomuhúsinu í Stóra-
Fjarðarhorni. Ætli aldursmunurinn
hafi ekki verið rúm 60 ár. Orðið kyn-
slóðabil var óþekkt til sveita fyrir 40
árum.
Ágúst unni kirkju sinni á Kolla-
fjarðarnesi og lét sér annt um allt
kirkjulegt starf. Það stækkar hans
minningamynd þegar hugsað er til
hinna mörgu nú til dags sem nánast
hafna allri erfiðisvinnu. Ég tek mér
þann rétt að þakka fyrir það mikla
og óeigingjarna starf, sem hann
vann þessari byggð.
Blessuð sé hans minning.
Guðfinnur S. Finnbogason,
Miðhúsum.
Kæru vinir, hjartans þakkir til allra þeirra, nær og fjær, sem studdu mig og
börnin í raunum okkar vegna fráfalls
KÁRA ÁSTVALDSSONAR.
Guð blessi ykkur öll.
Annetta Maria Norbertsdóttir,
Guðbjörg og Vilmundur.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÞÓRÐUR I. KRISTJÁNSSON
húsasmíðameistari,
Miðleiti 5,
Reykjavík,
lést miðvikudaginn 5. maí.
Útför hans verður gerð frá Bústaðakirkju
fimmtudaginn 13. maí kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans,
er bent á líknarsjóð Oddfellowstúkunnar nr. 5 Þórsteinn, I.O.O.F.
Minningarkort fást hjá ABG ehf, Njálsgötu 64, sími 552 3780,
netfang abg@simnet.is .
Unnur Runólfsdóttir,
Runólfur Grétar Þórðarson, Sigríður Lúðvíksdóttir,
Kristján Þórðarson, Dóra Kristín Halldórsdóttir,
Kristín Þórðardóttir, Kristinn M. Kristinsson,
Margrét Þórðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUNNVÖR S. GÍSLADÓTTIR,
Droplaugarstöðum,
áður til heimilis á Dalbraut 18,
sem lést aðfaranótt miðvikudagsins 5. maí sl.,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju á
morgun, fimmtudaginn 13. maí kl. 13:30.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
Styrktarfélag vangefinna, s. 551 5941.
Friðjón B. Friðjónsson, Svana Runólfsdóttir,
Jón S. Friðjónsson, Margrét Kristjánsdóttir,
Gísli J. Friðjónsson, Hafdís Alexandersdóttir,
Jórunn Friðjónsdóttir, Thor Thors,
ömmubörn og langömmubörn.
Útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
BELLU KRISTÍNAR ÓLADÓTTUR,
Hraunbæ 103,
Reykjavík,
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
13. maí kl. 15.00.
Freysteinn Gíslason,
Óla Kristín Freysteinsdóttir, Þorgrímur Jónsson,
Gísli Björgvin Freysteinsson, Margrét S. Traustadóttir,
Bella Freydís Pétursdóttir, Gunnar Örn Arnarson,
Jón Fannar Þorgrímsson,
Kristín Fanney Þorgrímsdóttir,
Freysteinn Gíslason,
Bjarni Gíslason,
Sigmar Ingi Gíslason,
Björgvin Gíslason,
Þorkell Pétursson, Guðrún Eiríka Snorradóttir
og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
GÍSLI DAGSSON,
Vesturbergi 50,
Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut
sunnudaginn 2. maí, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju mánudaginn 17. maí kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast Gísla, er vinsamlega
bent á að láta Krabbameinsfélagið njóta þess.
Margrét Sigvaldadóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir,
HARALDUR B. GUÐMUNDSSON,
Fornhaga 22,
Reykjavík,
sem lést mánudaginn 3. maí, verður jarðsunginn
frá Neskirkju föstudaginn 14. maí kl. 13.30.
Valdís Guðrún Þorkelsdóttir,
Guðrún V. Haraldsdóttir, Guðlaugur H. Jörundsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför elskulegs föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
KRISTINS JÓHANNSSONAR,
Vitastíg 9a,
Reykjavík.
Kjartan Kristinsson, Ólöf J. Guðmundsdóttir,
Þórður Kristinsson, Edda Sigurgeirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
HALLA EYJÓLFSDÓTTIR
frá Ólafsvík,
Safamýri 56,
sem lést miðvikudaginn 5. maí, verður
jarðsungin frá Garðakirkju fimmtudaginn
13. maí kl. 13.30.
Hörður Sigurvinsson,
Eyjólfur V. Harðarson, Sigþrúður I. Sæmundsdóttir,
Hulda Harðardóttir,
Anna Sess. Harðardóttir,
Ólafur Harðarson
og barnabörn.
AFMÆLIS- og minningar-
greinum má skila í tölvupósti
(netfangið er minning@mbl.is,
svar er sent sjálfvirkt um leið
og grein hefur borist) eða á
disklingi. Ef greinin er á disk-
lingi þarf útprentun að fylgja.
Nauðsynlegt er að tilgreina
símanúmer höfundar og/eða
sendanda (vinnusíma og heima-
síma). Ekki er tekið við hand-
skrifuðum greinum.
Um hvern látinn einstakling
birtist ein aðalgrein af hæfi-
legri lengd á útfarardegi, en
aðrar greinar séu um 300 orð
eða 1.500 slög (með bilum) en
það eru um 50 línur í blaðinu
(17 dálksentimetrar). Tilvitn-
anir í sálma eða ljóð takmark-
ast við eitt til þrjú erindi. Einn-
ig er hægt að senda örstutta
kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–
15 línur, og votta virðingu án
þess að það sé gert með langri
grein. Greinarhöfundar eru
beðnir að hafa skírnarnöfn sín
en ekki stuttnefni undir grein-
unum.
Minningargreinum þarf að
fylgja formáli með upplýsing-
um um hvar og hvenær sá sem
fjallað er um er fæddur, hvar
og hvenær dáinn, um foreldra
hans, systkini, maka og börn og
loks hvaðan útförin verður gerð
og klukkan hvað. Ætlast er til
að þetta komi aðeins fram í for-
málanum, sem er feitletraður,
en ekki í greinunum sjálfum.
Þar sem pláss er takmarkað
getur þurft að fresta birtingu
greina, enda þótt þær berist
innan hins tiltekna frests.
Frágangur
afmælis- og
minningar-
greina