Morgunblaðið - 12.05.2004, Blaðsíða 46
DAGBÓK
46 MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur. Skrif-
stofa s. 551 4349, mat-
araðstoð kl. 14–17.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa og postulín,
kl. 13 postulín, kl.
13.30 leshringur í
fundarsalnum. Hár-
snyrting, fótaaðgerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað og handavinna, kl.
10.30–11.30 heilsu-
gæsla, kl. 13–16.30
smíðar og handavinna,
kl. 13 spil.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–13 hárgreiðsla, kl. 8–
12.30 bað, kl. 9–12
glerlist, kl. 9–16
handavinna, kl. 13–
16.30 bridge/vist, kl.
13–16 glerlist. Ath
nýtt símanr. 535-2760
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 að-
stoð við bað og hár-
greiðsla, kl. 10
leikfimi, kl. 14.30
bankinn, kl. 14.40 ferð
í Bónus.
Félagsstarfið Dal-
braut 27. Kl. 8–16
handavinnustofan op-
in, kl. 10–13 opin versl-
unin, kl. 13.30 bankinn,
kl. 11–11.30 leikfimi.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Postulíns-
málun, námskeið og
leirmótun, námskeið
kl. 9–16.30.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl.
9.30 hjúkrunarfræð-
ingur á staðnum, kl. 10
hársnyrting, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13
föndur og handavinna.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Kvenna-
leikfimi kl. 9.30, 10.20
og 11.15, bridge í
Garðabergi kl. 13.
Starfslokanámskeið í
Garðabergi kl. 17.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Skrifstofan
er opin í dag frá kl.
10–11.30, viðtalstími í
Gjábakka kl. 15–16.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Kl. 10
myndmennt, kl. 11
línudans, kl. 13 mynd-
mennt, glerskurður og
pílukast.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Samfélagið í
nærmynd kl. 11 þáttur
um málefni eldri borg-
ara á RÚV. Söngfélag
FEB kóræfing kl. 17.
Fundur með far-
arstjóra Færeyja-
ferðar kl. 18.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, kl.
10.30 sund og leik-
fimiæfingar í Breið-
holtslaug, frá hádegi
spilasalur opinn, kl.
13.30 kóræfing.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 10–17 handavinna,
kl. 9.30 boccia, kl. 9.30
og kl. 13 glerlist, kl. 13
félagsvist, kl. 16 hring-
dansar, kl. 16.15 tré-
skurður, kl. 17. bobb.
Kl. 15.15 söngur, Guð-
rún Lilja mætir með
gítarinn.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
10 ganga, kl. 11 handa-
vinnustofan opin, leið-
beinandi á staðnum kl.
13–16.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, út-
skurður, hárgreiðsla,
fótaaðgerð og banki,
kl. 13 brids.
Hvassaleiti 58–60. Kl.
9–15 handmennt, kl. 9–
10 og kl. 10–11 jóga,
kl. 10.30 sam-
verustund, kl. 15–18
myndlist. Fótaaðgerðir
virka daga, hársnyrt-
ing þriðju- til föstu-
dags.
Korpúlfar Grafarvogi.
Á morgun fimmtudag
pútt á Korpúlfsstöðum
kl. 10.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 vinnustofa, kl. 9–
16 fótaaðgerð, kl. 14
félagsvist, kaffi og
verðlaun.
Seljahlíð heimili aldr-
aðra. Sýning á hand-
verki heimilismanna
verður dagana 15., 16.
og 17. maí.
Opið frá kl. 13.30–
16.30, kaffiveitingar.
Allir velkomnir.
Vesturgata 7. Kl. 10
sund, kl. 10–11.30
ganga, kl. 9–16 fótaað-
gerð og hárgreiðsla,
kl. 9.15–16 mynd-
mennt, kl. 12.15–14.30
verslunarferð, kl. 13–
14 spurt og spjallað,
kl. 13–16 tréskurður.
Vitatorg. Kl. 8.45
smiðja, kl. 9 fótaað-
gerðir, kl. 10 búta-
saumur og hárgreiðsla,
bókband, kl. 13 föndur
og kóræfing, kl. 12.30
verslunarferð.
Þjónustumiðstöðin,
Sléttuvegi 11. Kl. 10–
12 verslunin opin, kl.
13–16 keramik, tau-
málun, föndur, kl. 15
bókabíllinn.
Hafnargönguhóp-
urinn. Kvöldganga kl.
20 miðvikudaga. Lagt
af stað frá horni Hafn-
arhússins.
Vestfirðingafélagið.
Menningarvakan
verður 14. maí kl. 20 í
félagsheimilinu Gull-
smára, Sigríðar Valde-
marsdóttur minnst.
Minningar að vestan:
Einar Oddur Krist-
jánsson, gamanmál:
Ómar Ragnarsson o.fl.
Knattspyrnufélagið
Valur Aðalfundurinn
verður 12. maí kl. 20
á Hlíðarenda.
Minningarkort
Landssamtökin
Þroskahjálp. Minning-
arsjóður Jóhanns Guð-
mundssonar læknis.
Tekið á móti minning-
argjöfum í s. 588 9390.
Í dag er miðvikudagur 12. maí,
133. dagur ársins 2004, Pankrat-
íusmessa. Orð dagsins: Þolgæðis
hafið þér þörf, til þess að þér gjör-
ið Guðs vilja og öðlist fyrirheitið.
(Hebr. 10, 36.)
Fréttirnar um pynt-ingar á föngum í Írak
koma ekki beinlínis á
óvart þótt þær veki óhug,
segir Benedikt Jóhann-
esson í dálkinum Öðrum
sálmum í Vísbendingu.
„Þegar stríðið hófst safn-
aðist fólk fyrir framan
sjónvarpstækin eins og
stórmynd væri að hefj-
ast. Stríð í beinni útsend-
ingu var gott sjónvarps-
efni. Enda fór það svo að
stríðið vannst á örfáum
vikum og minnti þannig á
raunveruleikasjónvarp
með Hollívúddendi.
Gallinn var hins vegarsá að sögunni lauk
ekki þar. Við tóku vikur
spilastokksins þar sem
kújónar Saddams voru
fangaðir einn af öðrum,
meira að segja spaðaás-
inn sjálfur. Allt gekk
þetta enn eins og í sögu.
Það skyggði að vísu á að
tilefnið sjálft fannst ekki
og finnst ekki enn.“
Benedikt segir frá bókbandaríska blaða-
mannsins Bob Woodward
um Íraksstríðið sem kom
út fyrir fáum vikum.
„Bókin sjálf er að mörgu
leyti gott dæmi um góða
blaðamennsku. Höfund-
urinn segir frá því hvað
gerðist á hverjum tíma.
Lesandinn dæmir sjálfur
um það hverjir eru góðir
eða slæmir.
Tvennt virðist þógreinilegt: Bush vildi
frá upphafi losna við
Saddam og æðstu ráða-
menn virðast hafa trúað
því að hann ætti yfir að
ráða gereyðing-
arvopnum. Þeir hafa
jafnframt vitað það frá
byrjun að þeir myndu
eiga erfitt með að byggja
upp bandalag þjóða gegn
Saddam eins og gert var
bæði í Persaflóastríðinu
og Afganistan.“
Eftir á að hyggja segjamenn: „Var ekki
betra að lýsa því yfir frá
upphafi að tilgangurinn
væri sá að losna við
Saddam? Allir eru sam-
mála um að hann hafi
verið fantur sem gott var
að losna við. Vandi
Bandaríkjamanna er
ekki sá að þeir séu ekki
mikil hernaðarþjóð.
Vandinn er að þeir eru
ekki mikil friðarþjóð.
Þeir vinna stríð en tapa
friðinum.“
Benedikt segir því lýst íbók Woodward
hvernig Bandaríkjamenn
bjuggu sig undir stríðið
með því að endurskoða
fyrri áætlanir. „Óvin-
urinn reyndist svo ekki
jafnklókur og í upphafi
var talið. Í friði er staðan
öll önnur. Skæruliðar
þurfa ekki að hugsa um
neinar víglínur, þeir
finna bara staði þar sem
þeir geta valdið miklu
mannfalli. Okkur býður
við þeim myndum af illri
meðferð á föngum. Þær
minna okkur á að stríð er
aldrei fallegt,“ segir í
Öðrum sálmum Vísbend-
ingar.
STAKSTEINAR
Bandaríkjamenn vinna
stríð en tapa friðinum
Hver er hin nýja
stefna jafnaðarmanna?
STRAX á 18. öld urðu evr-
ópskir gáfumenn háværir í
hrópum sínum á torgum
um að það ættu allir jörðina
jafnt.
Fyrst nú í upphafi 3. ár-
þúsundsins er flestum
mönnum orðið það ljóst að
það sem allir eiga á enginn.
Við sáum samyrkjubú og
samvinnufélög koðna niður
en litli garðurinn sem bónd-
inn átti sjálfur skilaði
margfaldri uppskeru.
Menn sáu grýttan jarðar-
skika sem varð einkaeign
breytast í frjóan akur. Og
menn sáu frjóan akur
breytast í eyðimörk vegna
þess að enginn einstakling-
ur átti lengur landið. Þetta
var erfiður sannleikur fyrir
mig og marga samferða-
menn mína á 20. öld.
Loksins þegar okkur
skildist þetta breyttum við
gamaldags sameiningar-
stefnu. Og kjarni hinnar
nýju stefnu var eign handa
öllum, ekki nein stóreign en
nægilega mikið til að lifa
mannsæmandi lífi. Þetta er
í mínum augum megininn-
tak hinnar nýju jafnaðar-
stefnu. Auðlindir sem allir
eiga, auðlind sem allir eiga
jafnan aðgang að hlýtur að
vera í hættu. Stór auðlind
er betur varðveitt þegar
margir, helst sem flestir,
eiga hlut í henni, ekki sem
sameign heldur sem sér-
eign. Stór hlutafélög eru
mönnum til mestrar gæfu
þegar hver maður sem
vinnur í þeim á sinn sér-
staka hlut. Íslenskt ræktað
land, jarðirnar, séreign
bænda, hefur verið stór-
bætt um allt land í minni
tíð. Afréttarlöndum sem
eru sameign bænda, jafnvel
allra landsmanna, hefur
hinsvegar stöðugt hrakað
og eru víða að verða örfoka
land. Þessu þarf ekki að
vera þannig farið en hættan
er alltaf fyrir hendi ef menn
grípa ekki í taumana með
viturlegri stjórn.
Það sem hefur gerst á Ís-
landi hefur gerst um allan
heim. Í fjarlægum löndum
þriðja heimsins byggjast
hrikaleg umhverfisvanda-
mál fyrst og fremst á því að
þar er allt of lítið af landi
séreign fjölskyldu. Þar er
fólki sagt að allir eigi allt en
raunin er sú að enginn á
neitt nema fámennar valda-
klíkur sem breytast í spillta
yfirstétt. Lausnin er sú að
leyfa venjulegu fólki að
eiga sinn stað í tilverunni
og láta fólk stjórna sínum
eigin málum sem það þekk-
ir öðrum betur. Niðurstað-
an er: Sameigin þar sem
hún er nauðsyn, séreign
alls staðar þar sem hægt
er.
Skásta stjórnin er ævin-
lega sú sem gefur einstak-
lingum og litlum hópum
svigrúm til að ráða málum
sínum sjálfir. Láta menn
sjálfa um að leysa þann
vanda sem þeir þekkja öðr-
um betur. Valdboð að ofan
er því leiðara sem það er
sterkara.
Gunnar Dal.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 prest, 8 bál, 9 bolmagn-
ið, 10 spil, 11 blunda, 13
stal, 15 æki, 18 sjá eftir,
21 nytjaland, 22 ham-
ingju, 23 kynið, 24 grind-
verkið.
LÓÐRÉTT
2 lýkur, 3 kroppa, 4
venslamenn, 5 reikning-
urinn, 6 álít, 7 elskaði, 12
nagdýr, 14 iðka, 15 úr-
gangur, 16 gera ríkan, 17
tími, 18 borði, 19 húsdýri,
20 kjáni.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 bjóða, 4 hakan, 7 lokar, 8 lómur, 9 auk, 11 rýrt,
13 orga, 14 ólmur, 15 háll, 17 mjór, 20 slá, 22 lútan, 23
munni, 24 torga, 25 rusla.
Lóðrétt: 1 bolur, 2 óskar, 3 arra, 4 hólk, 5 kamar, 6
norpa, 10 urmul, 12 tól, 13 orm, 15 helft, 16 lítur, 18 Jón-
as, 19 reiða, 20 snúa, 21 ámur.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Víkverji skrifar...
Víkverji gleðst yfir vorkomunni.Hann sér hvernig gróðurinn
grænkar með degi hverjum, hann
sér hvernig sólin hækkar á lofti,
hann sér hvernig lundarfar vanda-
manna, vina og vinnufélaga léttist,
hann sér hjólreiða- og línu-
skautafólki fjölga á götum úti og
heima sér hann roðmaurana dansa á
gluggakistunum. Allt eru þetta
sterkar vísbendingar um þá árstíð
sem gengin er í garð.
Um leið sér Víkverji á ferð sinni
um borgina ýmislegt smávægilegt
sem betur má fara í umhverfinu og
myndi létta lund okkar og geð enn
frekar en sjálf vor- og sumarkoman.
Verður hér komið á framfæri nokkr-
um athugasemdum sem þeir taka
vonandi til sín sem eiga það.
Víkverji nýtti sér góða veðrið um
helgina og brá sér m.a. í Laugardals-
laugina ásamt fjölskyldunni. Allt var
yndislegt í þeirri ferð, nema að í lok-
in stóðst fjölskyldan ekki mátið og
fór í biðröðina við söluskálann fyrir
utan sundlaugina. Reyndar var bið-
röðin óvenjulöng því aðeins einn
starfsmaður var á vakt. Hefur það
áreiðanlega verið tilfallandi því yf-
irleitt er þarna veitt mjög góð þjón-
usta. En aðeins eitt vantar, og það
eru fleiri borð á stéttina stóru. Í góða
veðrinu stóðu svangir og þyrstir
laugargestir á öllum aldri upp á end-
ann og áttu sumir í vanda með mál-
tíðina, ekki síst hinir yngri. Nægt er
plássið fyrir fleiri en eitt borð og von-
ar Víkverji að þarna verði brugðist
við.
Og svo að kvöldi sama dags brá
nýgiftur Víkverji sér í rómantískan
göngutúr um Öskjuhlíðina ásamt
sinni heittelskuðu. Útsýnið yfir borg-
ina var hreint út sagt stórkostlegt og
kvöldroðinn við sjóndeildarhringinn
ægifagur. Stemningin var þó trufluð
á tveimur stöðum. Við göngustíg í
hlíðinni austanverðri blasir við opinn,
djúpur og steinsteyptur brunnur eða
virki, væntanlega frá tímum seinni
heimsstyrjaldar, sem hjólreiðamenn
eða börn geta auðveldlega ratað ofan
í með skelfilegum afleiðingum.
Þegar út að Flugvallarvegi er
komið, við suðurenda Valsvallar, er
svo enga gangbraut að hafa eða
hraðahindrun. Þarna er umferð mikil
og hröð og hjólreiða- og göngufólk
stefnir limum sínum í hættu við að
komast yfir götuna, að loknum góð-
um túr um Öskjuhlíðina eða í upphafi
hans.
x x x
Þá ætlaði Víkverji að kvarta í lokinyfir þeirri áráttu borgarstarfs-
manna að setja ítrekað möl ofan í
stóra skemmd við gatnamót Háteigs-
vegar og Lönguhlíðar, Háteigs-
kirkjumegin, án þess að loka holunni
með slitlagi. En viti menn! Verktak-
ar voru mættir síðdegis í gær með
malbik, líkt og þeir hefðu lesið hugs-
anir Víkverja.
Morgunblaðið/Golli
Vorið er komið og grundirnar gróa.