Morgunblaðið - 12.05.2004, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 12.05.2004, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2004 47 DAGBÓK Aðalfundur Samtaka um tónlistarhús verður haldinn miðvikudaginn 26. maí nk. kl. 17.00 í fundarsal FÍH, Rauðagerði 27. Dagskrá samkvæmt félagslögum. Stjórn Samtaka um tónlistarhús. STJÖRNUSPÁ Frances Drake NAUT Afmælisbörn dagsins: Þú ert hæfileikarík og vel gefin hugsjónamanneskja sem hefur óbeit á hræsni. Það verða spennandi breyt- ingar í lífi þínu á þessu ári. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Verðu opin/n fyrir spennandi tækifærum í vinnunni. Mundu að það eru miklar lík- ur á því að vinnuaðstæður þínar muni breytast til batn- aðar á árinu. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú þarft á tilbreytingu að halda og ættir endilega að láta það eftir þér að fara í ferðalag því það er útlit fyrir að þú munir skemmta þér vel á næstu mánuðum. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þetta ár ætti að verða þér hagstætt á heimilinu og í fasteignaviðskiptum. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú ert bjartsýnni en þú hefur verið lengi og bjartsýni þín ýtir undir jákvæðar breyt- ingar í lífi þínu. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Mörg ljón munu auka tekjur sínar á þessu ári vegna hag- stæðrar afstöðu hins heppna júpiters. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Hinn heppni júpiter er í merkinu þínu og því ætti árið að verða þér hagstætt. Ef illa gengur skaltu hugga þig við það að hlutirnir hefðu getað verið verri. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Samskipti þín við yfirvöld og stórar stofnanir hafa batnað að undanförnu. Heppnin er með þér og hún á eftir að aukast enn frekar þegar kemur fram á haustið. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú nýtur mikilla vinsælda þessa dagana. Það er hrein- lega eins og allir vilji vera í návist þinni. Njóttu þess. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Starfsframi þinn lítur betur út en hann hefur gert í ára- tug. Hafðu þetta stöðugt í huga og gerðu það sem í þínu valdi stendur til að draumar þínir geti ræst. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Reyndu að fara í langt og gott frí á þessu ári. Sam- kvæmt stjörnunum er þetta mjög góður tími fyrir þig til að fara í ferðalag til fjarlægra landa. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Lánið ætti að leika við þig á mörgum sviðum á þessu ári. Það eru góðar líkur á að þú munir með einhverjum hætti njóta góðs af auði annarra. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Nánustu sambönd þín ættu að ganga mjög vel þessa dag- ana. Þú átt auðvelt með að sýna öðrum hlýju og það skil- ar sér í bættum samskiptum. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. BJÖSSI LITLI Á BERGI Bjössi litli á Bergi, bróðurlaus á jörð, hljóður fram til fjalla fylgdi sinni hjörð. – Stundum verða vorin vonum manna hörð. Bjössi litli á Bergi bjó við stopul skjól. Hálsinn hamrasvartur huldi vetrarsól. Inni jafnt sem úti einstæðinginn kól. Ein með öllu gömlu unga sálin hans þoldi þunga vetur, þögn og myrkur lands. Löng er litlum þroska leiðin upp til manns. - - - Jón Magnússon LJÓÐABROT Þessir duglegu krakkar söfnuðu dósum og afhentu at- hvarfinu Læk andvirðið síðastliðinn föstudag. Lækur er at- hvarf fyrir fólk með geðraskanir og er staðsett í Hafn- arfirði. Að því standa Hafnarfjarðardeild Rauða kross Íslands, Hafnarfjarðarbær og Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykjanesi. Krakkarnir sem söfnuðu heita: Fanney Ösp Finnsdóttir, Högna Kristbjörg Knútsdóttir, Melkorka Knútsdóttir, Guðlaug Þóra Gunnarsdóttir, Bryn- hildur M. Herbertsdóttir, Hulda D. Jónasdóttir, Geir And- ersen, Ýr Steinþórsdóttir og Benedikt Herbertsson. FJÓRAR spilaleiðir koma til álita í þremur gröndum suðurs, en eftir tiltölulega skamma skoðun kemur á daginn að þrjár leiða strax til taps. Fjórða leiðin er vandgreindari og ekki auð- séð hverju hún skilar. Norður gefur; NS á hættu. Norður ♠32 ♥DG9 ♦ÁKD765 ♣K4 Vestur Austur ♠109854 ♠Á76 ♥Á86 ♥K432 ♦32 ♦104 ♣532 ♣ÁG109 Suður ♠KDG ♥1075 ♦G98 ♣D876 Vestur Norður Austur Suður -- 1 tígull Dobl 1 grand 2 spaðar 3 tíglar Pass 3 grönd Pass Pass Pass Vestur kemur út með spaðatíu og austur verst fimlega með því að láta lít- inn spaða í slaginn! Hvernig á að spila? Ýmislegt kemur til greina. Sagnhafi gæti spilað spaða um hæl, reynt að sækja slag á hjarta eða spil- að laufi á drottningu. Ekk- ert af þessu gengur. Ef spaða er spilað, fríar austur spaðann á móti. Hið sama gerist ef suður prófar hjart- að. Og lauf gengur ekki, því þá svarar austur með meira laufi. Fjórði kosturinn er að taka strax alla tígulslagina. Ávinningurinn er ekki aug- ljós, en það sakar ekki að prófa – aðrar leiðir eru dæmdar til að mistakast. Sagnhafi spilar tíglunum og fylgist með afköstum austurs, sem þarf að henda fjórum sinnum í tígulinn. Austur má missa eitt lauf og eitt hjarta, en upp úr því fer hann að finna fyrir þrýst- ingnum. Og það er raunar sama hvað hann gerir, sagn- hafi hefur alltaf betur í loka- stöðunni og tekur níu slagi. Lærdómur: Látum Ung- verjann Géza Ottlik (1912– 1990) eiga síðasta orðið: „Ef allt annað er vonlaust, ber að velja leið sem ekki sér fyrir endann á. Hver veit nema málin leysist þá af sjálfu sér.“ BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 1. d4 Rf6 2. c4 c5 3. d5 e6 4. Rc3 exd5 5. cxd5 d6 6. Rf3 g6 7. Rd2 Bg7 8. e4 O-O 9. Be2 Ra6 10. O-O Rc7 11. a4 Rd7 12. Rc4 Re5 13. Re3 f5 14. f4 Rf7 15. exf5 gxf5 16. Bd3 Rh6 17. Bd2 Bd7 18. Dc2 a6 19. Re2 b5 20. Rg3 Bd4 21. Kh1 Bxe3 22. Bxe3 Rxd5 23. Bd2 c4 24. Be2 Rf6 25. Had1 Rfg4 26. h3 Dh4 27. Hf3 Hae8 28. axb5 axb5 29. Kg1 d5 30. Dc3 Df6 31. Be1 Db6+ 32. Kh1 Rf6 33. Bf2 Dc6 34. Bd4 He6 35. Be5 Re4 36. Rxe4 fxe4 37. Hg3+ Hg6 38. Bh5 b4 Staðan kom upp á Sigeman-mótinu sem lauk fyrir skömmu í Svíþjóð og Danmörku. Curt Hansen (2635) hafði hvítt gegn Nick DeFirmian (2542). 39. Bxg6! bxc3 40. Be8+ Rg4 41. Bxd7 Dxd7 42. Hxg4+ svartur þarf nú að gefa drottningu sína til baka en við það verður hvítur manni yfir. 42...Dxg4 43. hxg4 cxb2 44. Bxb2 Hxf4 45. Hxd5 Hf2 46. Hg5+ og svartur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. KIRKJUSTARF Bústaðakirkja. Starf aldraðra kl. 13– 16.30. Spilað, föndrað, helgistund og gáta. Leynigestur. Þeir sem óska eftir að láta sækja sig fyrir samverustundirnar láti kirkjuverði vita í síma 553 8500. Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10. Léttur málsverður á eftir. Prestarnir taka við fyrirbænum í síma 520 9700. Grensáskirkja. Samverustund aldraðra kl. 14. Biblíulestur, bænagjörð, kaffi og spjall. Hallgrímskirkja. Morgunmessa kl. 8. Hug- leiðing, altarisganga, léttur morgunverður. Opið hús fyrir foreldra ungra barna kl. 10– 12. Samverustund fyrir 6 ára kl. 14.30. Samverustund fyrir 7–9 ára kl. 15.30. Samverustund fyrir 10–12 ára kl. 17. Tólf sporin – andlegt ferðalag, kl. 20. Hall- grímskirkja eldri borgarar: Á uppstigning- ardag, fimmtudaginn 20. maí, verður farið eftir messu í Þorlákshöfn á veitingastað- inn Hafið bláa og síðan til Stokkseyrar á hátíð sem nefnist Vor í Árborg, allir vel- komnir. Upplýsingar gefur Dagbjört í síma 510 1034 eða 693 6694. Háteigskirkja. Bænaguðsþjónusta kl. 11. Súpa og brauð borið fram í Setrinu kl. 12. Brids í Setrinu kl. 13–16. Kvöldbænir kl. 18. Langholtskirkja. Kl. 12.10 kyrrðarstund og bænagjörð með orgelleik og sálma- söng. Kl. 12.30 súpa og brauð (kr. 300). Kl. 13–16 opið hús eldri borgara. Söngur, tekið í spil, upplestur, föndur, spjall, kaffi- sopi o.fl. Allir eldri borgarar velkomnir. Þeir sem ekki komast á eigin vegum geta hringt í kirkjuna og óskað eftir því að verða sóttir. Síminn er 520 1300. Laugarneskirkja. Mömmumorgunn kl. 10 undir stjórn Aðalbjargar Helgadóttur. Gönguhópurinn Sólarmegin leggur af stað frá kirkjudyrum kl. 10.30 alla miðviku- dagsmorgna. Neskirkja. Foreldramorgunn kl. 10–12. Kaffi og spjall, umsjón Elínborg Lárusdótt- ir. Fyrirbænamessa kl. 12.15. Prestur sr. Sigurður Árni Þórðarson. 7 ára starf kl. 14.30. Sögur, söngur, leikir og föndur. Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund í hádeg- inu kl. 12. Altarisganga. Léttur hádegis- verður eftir stundina. Allir velkomnir. Árbæjarkirkja. Kl. 12 kyrrðarstund í há- deginu. Léttur málsverður í safnaðarheim- ilinu að stundinni lokinni. Kl. 13–16 opið hús í safnaðarheimilinu. Þorvaldur Hall- dórsson kemur í heimsókn fyrsta miðviku- dag hvers mánaðar. Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl. 12. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir. Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eftir stundina. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7–9 ára börn kl. 16.30. TTT-starf fyrir 10–12 ára kl. 17.30. Æskulýðsstarf á vegum KFUM&K og kirkjunnar kl. 20. Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10. TTT (10–12 ára) starf kl. 17. Opinn sporafund- ur Tólf sporanna kl. 20. Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum. Allir hjartanlega velkomnir. Tekið á móti fyrirbænarefnum í kirkjunni í síma 567 0110. SELA eldri deild kl. 20–22. Vídalínskirkja. Foreldramorgnar kl. 10–12 með Nönnu Guðrúnu í Vídalínskirkju. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safn- aðarheimili Strandbergs, kl. 10–12. Kyrrð- arstund í kirkjunni kl. 12, íhugun, orgel- leikur, altarisganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverður kl. 12.30 í Ljósbroti Strand- bergs. Víðistaðakirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna- stund í dag kl. 12. Góður kostur fyrir þá sem vilja taka frá kyrrláta og helga stund í erli dagsins til að öðlast ró í huga og frið í hjarta. Hægt er að koma fyrirbænarefnum til sóknarprests eða kirkjuvarðar. Boðið er upp á súpu og brauð í safnaðarheimilinu að kyrrðarstund lokinni. Opið hús fyrir eldri borgara í dag kl. 13. Verið velkomin í viku- lega samveru í safnaðarheimili kirkjunnar í spil, spjall, góðar kaffiveitingar og fleira. Bessastaðasókn. Miðvikudagur er dagur kirkjunnar í Haukshúsi. Foreldramorgnar eru frá kl. 10–12. Þar koma saman for- eldrar ungra barna á Álftanesi með börnin og njóta þess að hittast og kynnast öðrum foreldrum sem eru að fást við það sama; uppeldi og umönnun ungra barna. Opið hús eldri borgara er síðan frá kl. 13–16. Dagskráin verður fjölbreytt en umfram allt eru þetta notalegar samverustundir í hlý- legu umhverfi. Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgnar í dag kl. 10–12. Lágafellskirkja. AA-fundur kl. 20.30 í Lágafellskirkju. Unnið í 12 sporunum. Landakirkja í Vestmannaeyjum. TTT er komið í sumarfrí. Takk fyrir veturinn og gleðilegt sumar. Kl. 20 opið hús í KFUM&K-heimilinu hjá Æskulýðsfélagi Landakirkju og KFUM&K. Esther Bergs- dóttir æskulýðsfulltrúi, sr. Fjölnir Ásbjörns- son og leiðtogarnir. Sauðárkrókskirkja. Kyrrðarstund kl. 21. Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20.30 bænahópar í heimahúsum. Upplýsingar í síma 565 3987. Fríkirkjan Kefas. Samverustund unga fólksins kl. 20.30. Samvera, lofgjörð, fræðsla og lestur orðsins. Nánari upplýs- ingar á www.kefas.is. Kristniboðssalurinn, Háaleitisbraut 58. Samkoma í kvöld kl. 20. „Hver er Jesú?“ Lúk. 9, 18–20. Ræðu- maður: Kristín Bjarnadóttir. Fjáröflunarsamkoma fyrir Kristniboðsflokk KFUK, happdrætti og fleira. Kaffiveitingar eftir samkomuna. Allir vel- komnir. Akureyrarkirkja. Mömmumorgunn kl. 10– 12. Opið hús, kaffi og spjall. Safi fyrir börnin. Glerárkirkja. Hádegissamvera kl. 12. Org- eltónar, sakramenti, fyrirbænir, léttar veit- ingar á vægu verði í safnaðarsal. Morgunblaðið/EggertHáteigskirkja Safnaðarstarf MEÐ MORGUNKAFFINU Jú, en Jóhanna, allir verða að byrja smátt …     MORGUNBLAÐIÐ birt- ir tilkynningar um af- mæli, brúðkaup, ætt- armót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyr- irvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréf- síma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík HLUTAVELTA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.