Morgunblaðið - 12.05.2004, Side 48
ÍÞRÓTTIR
48 MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Leikdagar • Fréttir • Markahæstir • Tölfræði • Spjöld
Taktu þátt í skemmtilegum leik með því að
skjóta á úrslitin í hverri umferð
í Landsbankadeildinni í sumar.
Glæsilegir vinningar frá Iceland Express
og Landsbankanum.
Skráðu þig á mbl.is og fáðu úrslit leikja send
beint í gsm símann þinn!
Skjóttu á úrslitin
Úrslit í SMS
Landsbankadeildin á mbl.is
Bláa Lóns mótið
laugardaginn 15. maí
Verðlaun
1. sæti með forgjöf: Flugfarseðill fyrir tvo með Icelandair.
2. sæti með forgjöf: Flugfarseðill fyrir einn með Icelandair.
3.-5. sæti með forgjöf: Vöruúttektir.
1. sæti án forgjafar: Flugfarseðill fyrir tvo með Icelandair.
2. sæti án forgjafar: Flugfarseðill fyrir einn með Icelandair.
3. sæti án forgjafar: Vöruúttektir.
Nándarverðlaun 3. ,8. og 13. braut: Vöruúttektir.
Nándarverðlaun 16. braut: Flugfarseðill fyrir einn með Icelandair.
Allir keppendur fá teiggjafir.
Farseðlar til Evrópu með Icelandair.
Höggleikur með og án forgjafar
Hámarksforgjöf karlar 24, konur 28
Ræst út frá kl. 8:00-15:00
Skráning á www.golf.is og í síma 421 4100
ÓÐINN Björn Þorsteinsson,
kringlukastari í FH, bætti fyrri ár-
angur sinn nokkuð á innanfélagsmóti
FH-inga á mánudaginn. Óðinn kast-
aði lengst 56,06 metra sem er tæpum
einum metra lengra en hann hefur áð-
ur kastað. Kastsería Óðnis var 54,66-
55,70-55,90-55,97-óg-56,06.
VEIGAR Páll Gunnarsson lék sinn
fyrsta leik í þrjár vikur í fyrrakvöld
þegar hann lék síðari hálfleikinn með
varaliði Stabæk sem lagði Frigg, 1:0.
Veigar hefur átt við bakmeiðsli að
stríða og hefur misst af síðustu fjór-
um leikjum Stabæk vegna þeirra.
STEFÁN Arnaldsson og Gunnar
Viðarsson, handknattleiksdómarar,
hafa verið settir á fyrri viðureign
Makedóníu og Serbíu/Svartfjalla-
lands í undankeppni HM karla í
handknattleik í Skopje í Makedóníu
30. maí nk.
KJARTAN Steinbach verður eftir-
litsmaður á síðari leik Frakka og
Slóvaka í undankeppni HM í Mont-
pellier í Frakklandi 5. júní.
DÓMARAR á fyrri viðureign Ís-
lands og Ítalíu í undankeppni HM í
handknattleik karla sem fram fer í
Teramo á Ítalíu 29. maí koma frá
Tékklandi. Síðari leikurinn verður í
Kaplakrika í Hafnarfirði 6. júní og
verður dæmdur af austurrískum
dómurum.
PAUL Merson, fyrrverandi leik-
maður Arsenal, var í gær ráðinn sem
spilandi þjálfari hjá Walsall en hann
tók við liðinu um miðjan apríl þegar
Colin Lee var látinn fara. Walsall
leikur í annarri deild á næstu leiktíð,
féll úr fyrstu deildinni á dögunum.
FÓLK BRYNJAR Björn Gunnarsson,landsliðsmaður í knattspyrnu, yf-irgaf Stoke City nú í vikunni. Þávar endanlega gefið út hvaða leik-
menn yrðu ekki áfram í herbúðum
félagsins og Brynjar var í þeim
hópi. Hann samdi við Stoke að nýju
seinnipart vetrar eftir níu mánaða
dvöl hjá Nottingham Forest.
„Þetta var eins og til stóð frá
byrjun, það var aldrei í spilunum að
ég yrði hjá félaginu lengur en til
vorsins. Nú er ég að líta í kringum
mig, ég hef fengið nokkrar fyr-
irspurnir héðan úr Englandi og frá
Norðurlöndunum en það tekur allt
sinn tíma,“ sagði Brynjar Björn við
Morgunblaðið í gær.
Hann hefur verið sterklega orð-
aður við danska úrvalsdeild-
arfélagið AaB frá Álaborg og sagði
að það væri líklegast í stöðunni hjá
sér.
„Ég þekki þjálfarann, Eric
Hamrén, vel síðan við vorum báðir
hjá Örgryte og hef verið í sambandi
við hann af og til í vetur. Ég býst
við því að heyra meira frá AaB í
þessari viku en það er of snemmt að
fullyrða að ég sé á leiðinni þangað.“
Brynjar Björn býr í Nottingham
og hyggst dvelja þar fram í næsta
mánuð, framyfir landsleikina við
Japan og England sem fara fram í
Manchester 30. maí og 5. júní. „Já,
ég verð hér framyfir leikina, svo
framarlega sem ég verð valinn í
hópinn,“ sagði Brynjar Björn.
AaB áfram líklegast
hjá Brynjari Birni
TAÍLENSKI forsætisráðherrann
Thaksin Shinawatra hefur ákveðið
að kaupa einn þriðja hlutabréfa í
enska knattspyrnufélaginu Liver-
pool. Milljarðamæringurinn hefur
hins vegar ekki viljað segja hvort
peningarnir komu úr hans fjár-
sjóðum eða ríkissjóði.
„Við skulum bíða með að ræða
hvaðan peningarnir koma þar til
búið er að ganga endanlega frá
kaupunum,“ sagði ráðherrann í
gær. Jakrapob Penkair, talsmaður
taílensku stjórnarinnar, lét hins
vegar að því liggja í gær að féð yrði
sótt í sameiginlega sjóði Taílend-
inga. „Það voru taílensk stjórnvöld
sem tóku þátt í samningaviðræð-
unum, ekki Thaksin,“ sagði Jakr-
apob. Sé það rétt að taílensk stjórn-
völd ætli sér að kaupa þennan hlut í
félaginu er það alveg ný hlið á eign-
arhaldi á enskum knattspyrnulið-
um. Þingmenn stjórnarandstöð-
unnar í Taílandi voru varkárir í
yfirlýsingum í gær.
„Ef það kemur sér vel fyrir land-
ið að eiga hlut í Liverpool þá mun
ég styðja það,“ sagði einn úr stjórn-
arandstöðunni í gær en sagðist vilja
fá nákvæmari útlistun á fjármögn-
uninni.
Þau hlutabréf sem nú verða seld
koma líklega af þeim 51% sem Dav-
id Moores, stjórnarformaður fé-
lagins, á í klúbbnum. Næststærsti
hluthafinn er sjónvarpsfyrirtækið
Granada sem á 9,9%.
Taílendingar eignast
þriðjung í Liverpool
ÞJÁLFARAR liðanna í 1. deild karla
í knattspyrnu spá því að Valur og
Breiðablik hafni í tveimur efstu sæt-
unum í ár og leiki því í úrvalsdeild-
inni árið 2005. Þetta er niðurstaðan í
hinni árlegu könnun sem Lengjan
stendur fyrir. Þjálfararnir spá því að
HK og Fjölnir falli í 2. deild.
Stigatalan í könnuninni er sem hér
segir:
Valur 72 stig, Breiðablik 71, Þrótt-
ur R. 62, Þór 48, Njarðvík 39, Hauk-
ar 38, Stjarnan 37, Völsungur 35, HK
32 og Fjölnir 16 stig.
Í samskonar könnun í 2. deild
karla er Aftureldingu og Leiftri/Dal-
vík spáð tveimur efstu sætunum og
að þau endurheimti sæti sín í 1. deild
en KS og KFS er spáð falli. Stigatal-
an er sem hér segir:
Afturelding 65 stig, Leiftur/Dalvík
65, Selfoss 60, Víkingur Ó. 54, ÍR 46,
Leiknir R. 43, Tindastóll 37, Víðir 37,
KS 27 og KFS 16 stig.
Val og Breiðabliki
spáð úrvalsdeildarsæti
Þegar Örgryte gerði jafntefli, 2:2,við Örebro, fannst eftirmaður
Afonsos, samkvæmt umfjöllun á vef
Örgryte. Tryggvi Guðmundsson
skoraði jöfnunarmarkið, 2:2, á síð-
ustu sekúndum leiksins, með glæsi-
legu skoti beint úr aukaspyrnu, en
slík mörk voru einmitt vörumerki
Afonsos.
„Með aukaspyrnunni sýndi
Tryggvi að við munum ekki sakna
Afonsos sérlega mikið í ár. Nú er Ör-
gryte komið með Íslending sem get-
ur leikið Brasilíumann,“ segir í grein
um leikinn. „Ég hafði góða tilfinn-
ingu fyrir þessari aukaspyrnu og bað
strákana um að fá að taka hana. Það
var sætt að sjá á eftir boltanum í net-
ið, en fyrir utan þetta stig sem við
fengum getum við ekki verið ánægð-
ir með margt í okkar leik,“ sagði
Tryggvi.
Tryggvi lék sem framliggjandi
miðjumaður og þótti skila þeirri
stöðu mjög vel. Byrjunin hjá Ör-
gryte hefur valdið vonbrigðum en
liðið hefur gert fjögur jafntefli í
fyrstu sex umferðunum.
Tryggvi arftaki þess brasilíska
HJÁ sænska knattspyrnufélaginu Örgryte telja menn nú að Íslend-
ingur hafi leyst hinn snjalla Brasilíumann Afonso af hólmi. Örgryte
missti hann yfir til Malmö FF fyrir þetta tímabil og talið var að erfitt
yrði að finna arftaka hans.
Tryggvi Guðmundsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir Örgryte.