Morgunblaðið - 12.05.2004, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 12.05.2004, Blaðsíða 54
54 MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 10.20. B.i. 16. HP Kvikmyndir.com „Gargandi snilld“ ÞÞ FBL „Öllum líkindum besta skemmtun ársins“ HL MBL  „Algjört Kill Brill“ ÓÖH DV  Skonrokk Sýnd kl. 6. Með íslensku tali. Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16. Sýnd kl. 5.40 og 8.  Ó.H.T Rás2 HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 15.00 EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS „Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna“ Þ.Þ. Fbl. Sýnd kl. 3.40 og 5.50. Með íslensku taliKl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15.Sýnd kl. 5.10, 8 og 10.50. B.i. 16. Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16. Blóðbaðið nær hámarki. kl. 5.10, 8 og 10.50. B.i. 16. HP Kvikmyndir.com „Gargandi snilld“ ÞÞ FBL „Öllum líkindum besta skemmtun ársins“ HL MBL  „Algjört Kill Brill“ ÓÖH DV  Skonrokk Frá leikstjóra The Hitcher Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Fór beint á toppinn í USA! R&B tónlist og ótrúleg dansatriði! Geggjaður götudans LEIKARINN John Malkovich mun fara með stórt hlutverk í kvik- myndagerðinni af sígildri skáld- sögu Douglas Adams The Hitch- hiker’s Guide To The Galaxy. Malkovich mun leika trúar- leiðtogann Humma Kavula, sem Adams bjó sérstaklega til fyrir kvikmyndagerðina, en það var Adams sjálfur sem skrifaði kvik- myndahandritið að myndinni. Eftir að hann lést árið 2001 tók Karey Kirkpatrick við handritsgerðinni. Tökur á myndinni hófust í síðasta mánuði í Lundúnum en eins og greint hefur verið frá áður í Morg- unblaðinu þá verður myndin að hluta tekin á Íslandi. Gary Jennings mun leikstýra myndinni en aðrir leikarar eru Mos Def, Zooey Deshcanel, Sam Rock- well og Martin Freeman. AP John Malkovich er maður svipsterkur. Malkovich á puttanum um alheiminn Cannes. Morgunblaðið. KLINK OG BANK Þriðja Tímakvöldið verður haldið í fundarherbergi Klink og Bank, Brautarholti, í kvöld á milli klukkan 21.00 og 23.00. Á þessum kvöldum eru hin og þessi fyrirbæri innan tón- listar og annarra tímatengdra lista tekin fyrir, þau skoðuð og skegg- rædd. Í þetta sinn verður hlustunarkvöld undir heitinu „Alt.country – nýbylgj- an í sveitatónlistinni“. Arnar Eggert Thoroddsen blaðamaður Morg- unblaðsins mun spila tóndæmi og ræða um „Alternative Country“; Gram Parsons, Will Oldham, Wilco, Ryan Adams og fleiri. Aðgangur að kvöldinu er ókeypis.  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is Arnar Eggert Thoroddsen Í DAG Á YFIRBORÐINU er þetta ósköp venjuleg mynd um ungan mann sem er sjúklega afbrýðisamur út í kærustuna. Þegar hann hrein- lega finnur viðhaldið undir rúminu sínu flýr hann en tekur síðan að elta manninn um borg og bý. Stemmningin í myndinni er svolít- ið skrýtin. Þetta er sálfræðitryllir með dramaívafi, en um leið fyndin. Þó fyndin á þann hátt að það passar illa við dramahlið myndarinnar. Líkt og höfundurinn hafi ekki alveg verið með á hreinu hvað hann vildi gera, eða ekki tekist það. Aðalleikarinn, Daniel Hendler, leikur hlutverk sitt af snilld og held- ur myndinni uppi, sem er erfitt þar sem meirihluti hennar er eltingaleik- ur sem verður heldur tilbreytingar- laus, þrátt fyrir ótrúleg uppátæki unga mannsins. Ástir og afbrýði Atriði úr myndinni Á hafsbotni. KVIKMYNDIR Argentínsk kvikmyndavika HÍ Leikstjórn og handrit: Damián Szifron. Kvikmyndataka: Lucio Bonelli. Aðalhlutverk: Daniel Hendler, Gustavo Garzón og Dolores Fonzi. 92 mín. Argentína 2003. EL FONDO DEL MAR/Á HAFSBOTNI  Hildur Loftsdóttir HUGHREYSTING fyrir mörland- ann: Það andar stundum köldu í Cannes. Ekki bara milli verkfalls- óðra heimamanna, sem ár hvert hóta að skemma hátíðarhöldin fái þeir ekki sínu framgengt. Nei, að þessu sinni voru vindarnir sjálfur kaldir við komuna til Cannes. Getur það verið? Í þessari sjóðheitu suðrænu borg sem sleikir lon og don bakka Miðjarðarhafsins? Kann að vera. Eins og t.d. núna. Tíu stiga hiti, sem þýðir kalt. Ekki vegna þess að menn eru svo ofsalega góðu vanir, nei meira að segja harðsvíraðir Íslend- ingar sögðu með sjálfum sér: „Ég hefði kannski átt að vera í jakka“, þar sem þeir gengu um Rívíeruna með bera handleggina – eins og á að gera í útlöndum. En hvað, hátíðin er varla byrjuð og þegar dregillinn blóðrauði verður afhjúpaður í kvöld, þá hlýnar okkur öllum. Þá rís sólin á loft og stjörnur fara að skína. Þannig er það bara hérna í Cannes. Annars fengjust heldur ekki allar þessar stjörnur til að koma og spóka sig með okkur. Og við bíðum eftir þeim; Brad Pitt, Tom Hanks, Charlize Theron, Mike Myers, Eddie Murphy, Antonio Banderas, Cameron Diaz, Orlando Bloom, Eric Bana, Sean Penn, Quentin Tarantino, Uma Thurman… Þau eiga víst öll að mæta, og ekki bara reka inn nefið heldur anda að sér sjávarloftinu, fá sér aðeins í aðra tána og tala svo við okkur blaða- mennina, sem bíðum eins og múkkar eftir að fá að nærast á þeim, sjúga úr þeim tilskilda næringu. Cannes í hættu? Og fyrstur til að stíga út úr limmósínunni og ganga dregilinn upp að Hátíðarhöllinni verður spænski kvikmyndagerðarmaðurinn Pedro Almodóvar umvafinn stjörn- um nýjustu myndar hans Léleg menntun (La mala education). Eft- irvæntingin er óvenjumikil fyrir þessari mynd, enda hefur Almodóv- ar verið í feiknarformi upp á síðkast- ið og myndir hans sópað að sér verð- launum. Það kom því mörgum svolítið á óvart að myndin skuli sýnd utan aðalkeppninnar. Vonandi þó ekki vegna gæða myndarinnar, því hátíðargestir mega hreinlega ekki við annarri eins hörmung og opnaði hátíðina í fyrra, franski búninga- farsinn Fanfan La Tulipe. Það er áberandi í ár hve örygg- isgæslan er mikil enda hétu frönsk stjórnvöld því að herða hana, bæði vegna ástands heimsmála og hryðju- verkaógnarinnar sem því fylgir og einnig vegna þess að franskir lista- menn hafa hótað því að grípa til mót- mæla- og skemmdaraðgerða málstað sínum til stuðnings en leikarar, skemmtikraftar og aðrir slíkir lista- menn hafa staðið í harðri kjaradeilu við frönsk stjórnvöld eftir að ákveðið var að rýra rétt þeirra til atvinnu- leysisbóta. En ekkert stöðvar Cann- es. Stjórnvöld hafa heitið því að há- tíðarhöldin fari fram óáreitt. Og þær þúsundir blaðamanna og ljósmynd- ara sem hingað eru komnar geta því andað léttar. Kvikmyndahátíðin í Cannes hefst í dag Cannes að vera Kvikmyndahátíðin í Cannes þykir merk- asta hátíð sinnar teg- undar. Skarphéðinn Guðmundsson er staddur á hátíðinni og mun skýra frá fram- vindunni þar. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Cannes er farin að taka á sig hátíðarblæ. Kvikmyndahátíðinni í Cannes lýkur 23. maí.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.