Morgunblaðið - 12.05.2004, Síða 56
ÞAÐ ber til tíðinda í Evró-
visjónkeppninni í ár að Íslendingar
búa ekki einungis að því að Jónsi
kemur fram fyrir Íslands hönd
heldur eiga þeir töluvert í öðrum
keppanda, Tómasi Þórðarsyni, sem
er fulltrúi Danmerkur. Tómas
kvaðst í stuttu viðtali vera sonur
danskrar móður og íslensks föður.
„Pabbi fór frá Íslandi til Danmerk-
ur og kynntist móður minni þar og
ílentist. Þau eru ennþá saman og
eru stödd hérna í Istanbul til að
styðja mig. Ég hef komið oft til Ís-
lands og er mjög hrifinn af land-
inu.“
Hvað önnur tengsl við landið
varðar kvaðst hann hafa hitt hálf-
bróður sinn, ellefu árum eldri, ný-
lega og þeir eytt jólunum saman.
Það má nefna það til gamans að
Tómas býr að umtalsverðri ís-
lenskukunnáttu.
Tómas er 29 ára gamall og býr í
Kaupmannahöfn. Hann hefur
sungið í áratug en fór að hafa at-
vinnu af því eftir að hann kom fram
í söngkeppni í sjónvarpi. Hann
kom fram í fyrsta þættinum af
mörgum og komst áfram í úrslit. Á
meðan á þessu stóð gafst honum
tækifæri til að hugsa sinn gang.
Síðan þá hefur hann verið að reyna
að koma sér á framfæri en stóra
tækifærið hingað til reyndist þegar
hann vann forkeppnina fyrir
Evróvisjón í Danmörku (eða „Mel-
ody Grand Prix“ eins og Danir
kalla keppnina) og var valinn til að
koma fram fyrir hönd landsins í
Istanbul.
Aðspurður hvort hann sérhæfði
sig í „latin“-takti sagðist hann hafa
sungið danslög af þessum toga áð-
ur en að venjulega hallaðist hann
frekar að sálartónlist.
„Hvað mig varðar er „Shame on
You“ popplag með „latin“-áhrifum
en ég syng það svolítið eins og ég
er vanur; þ.e. í sálartónlistarstíl og
blanda þannig þessum stílteg-
undum saman.
Öll fjölskyldan á staðnum
Hann sagðist hafa heyrt um að
Dagblaðið hefði lagt áherslu á kyn-
hneigð hans í fyrirsögn yfir þvera
forsíðu blaðsins en hafði ekki frétt
af því hvernig Spaugstofumenn
slógu uppslættinum upp í grín í
Sjónvarpinu. Spurður hvort þetta
hefði komið honum á óvart kvað
hann nei við.
„Ég er mjög afslappaður í sam-
bandi við kynhneigð mína, hún hef-
ur alltaf verið hluti af lífi mínu og
ég geri ekki mikið mál úr þeirri
staðreynd að ég sé samkyn-
hneigður. En fólk spyr gjarnan að
því hvort kærastinn sé með í för
hér í Istanbul og um fleira í þá
vegu en ég svara að sjálfsögðu sé
öll fjölskyldan á staðnum til að
styðja við bakið á mér. En ég er
ekki hér til að espa fólk upp eða
vekja athygli á því að ég sé sam-
kynhneigður. Ég er hér tónlistar-
innar vegna, vegna ástar minnar á
þessu listformi og í þeim tilgangi
að gera mitt besta á sviðinu þegar
þar að kemur. Í annan stað hafa
viðbrögðin við kynhneigð minni öll
verið jákvæð enda margir aðdá-
endur keppninnar samkynhneigðir.
Ef þeim finnst ég vera þeim góð
fyrirmynd finnst mér það hið besta
mál.“
Og þá er bara að vona að Tómasi
gangi það vel í undankeppninni að
íslenska þjóðin fái að fylgjast með
honum á laugardagskvöldið. Ef
eitthvað er að marka frammistöðu
hans á fyrstu af þremur lokaæfing-
unum þarf hann engu að kvíða.
„Tónlistarinnar vegna …“
Söngvari af íslensku bergi brotinn syngur fyrir hönd Dana
Istanbul. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Sverrir
Það fór vel á
með þeim Tóm-
asi og Jónsa.
56 MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Fyrst
a
stórm
ynd
suma
rsins
.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8, 9.15 og 10.30.
Frábær ævintýramynd hlaðin tæknibrellum eins og þær
gerast bestar í anda IndianaJones.Fyrsta stórmynd
sumarsins þar sem hetjan Van Helsing á í höggi við Drakúla
greifa, Frankenstein og Varúlfinn.
FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“
OG „THE MUMMY RETURNS“
Frábær ævintýramynd hlaðin tæknibrellum eins og
þær gerast bestar í anda IndianaJones.Fyrsta
stórmynd sumarsins þar sem hetjan Van Helsing á í
höggi við Drakúla greifa, Frankenstein og Varúlfinn.
FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“
OG „THE MUMMY RETURNS“
POWERSÝNING
kl. 10.30.
FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“
OG „THE MUMMY RETURNS“
Roger Ebert
Chicago Sun Tribune
Tvíhöfði
Sýnd kl. 10.20. B.i. 16.
Sýnd kl. 5.40 og 8.Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
Í SNERTINGU VIÐ TÓMIÐ
Sýnd kl. 6 og 8.30. B.i. 12.
SV. MBL
Það er óralangt
síðan ég sá jafn
skelfilega
grípandi mynd.
Án efa ein
besta myndin í
bíó í dag.
KD, Fréttablaðið
HJ MBL J.H.HKvikmyndir.com
„Þetta er
stórkostlegt
meistaraverk“
ÓÖH, DV
Fyrst
a
stórm
ynd
suma
rsins
.
FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“ OG „THE MUMMY RETURNS“
Kvikmyndir.is
Roger Ebert
Chicago Sun Tribune
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Útlit myndarinnar er frábært. Tæknibrellurnar eru fyrsta flokks.
Van Helsing er alvöru sumarpoppkornssmellur sem stendur
fyllilega undir væntingum.
Þ.Þ. Fréttablaðið.
Tvíhöfði
Í KVÖLD keppa 22 þjóðir um þátt-
tökurétt í úrslitunum sem fram fara
á laugardaginn. Tíu efstu þjóðirnar
komast áfram. Þær eru:
1. Finnland
2. Hvíta-Rússland
3. Sviss
4. Lettland
5. Ísrael
6. Andorra
7. Portúgal
8. Malta
9. Mónakó
10. Grikkland
11. Úkraína
12. Litháen
13. Albanía
14. Kýpur
15. Makedónía
16. Slóvenía
17. Eistland
18. Króatía
19. Danmörk
20. Serbía og Svartfjallaland
21. Bosnía og Herzegóvína
22. Holland
Evróvisjón 2004
í Tyrklandi
Undan-
keppnin
Keppnin er sýnd í Sjónvarpinu
klukkan 19.05.
NORÐURLANDAÞJÓÐIRNAR
héldu sameiginlegan blaðamanna-
fund a Polat Renaissance hótelinu
kl. 11 í gærmorgun. Það var glatt á
hjalla við sundlaug þessa glæsilega
hótels og skemmti fjölmiðlafólkið
sér greinilega hið besta enda veg-
lega veitt í mat og drykk og útsýnið
yfir Marmarahafið óviðjafnanlegt.
Um 200 manns hafði verið boðið
og áætlaði Jónatan Garðarsson sem
heldur utan um Evróvisjón af Ís-
lands hálfu, að flestir boðsgesta
hefðu skilað sér. Norrænar sjón-
varpsstöðvar tóku viðtöl við dreng-
ina fjóra sem koma fram fyrir hönd
Íslands, Danmerkur, Noregs og
Finnlands en Lena Philipsson,
fulltrúi Svíþjóðar í sönglagakeppn-
inni, var í fyrstu fjarri góðu gamni.
Það kvisaðist út að hún væri að
spara röddina eftir að hafa verið
veik allan tímann sem hún hefur
dvalið í Istanbul. Hún lét þó sjá sig
í restina eftir að hinir keppendurnir
höfðu flutt lögin sín á litlu sviði sem
komið hafði verið upp til hliðar við
laugina en tók ekki sjálf lagið. Í
raun hreyfði hún ekki einu sinni
varirnar þegar bakraddasöngvarar
tóku saman sænska ABBA-smellinn
„Waterloo“ sem bakgrunnshljómlist
fyrir töku hópljósmyndara af nor-
rænu keppendunum fimm, en um
þessar mundir eru einmitt þrjátíu
ár síðan þessi sívinsæla hljómsveit
sló svo eftirminnilega í gegn. Sú
staðreynd virtist ekki auka sjálfs-
traustið hjá Lenu Philipsson – frek-
ar þvert á móti – hún virtist nið-
urdregin og taugastrekkt í litlu
viðtali sem var tekið við hana á svið-
inu, henni var greinilega kalt og
þegar kynnirinn spurði hvernig
hefði verið að vinna í undanúrslit-
unum í Svíþjóð misskildi hún spurn-
inguna og virtist eiga erfitt með að
einbeita sér. Mál manna er að hún
væri ekki hrifin af að koma fram á
sviði – þó að því sé erfitt að trúa ef
hún gefur sig í þvílíka keppni. Að
minnsta kosti er greinilegt að það
getur oltið á ýmsu með þessa –
hingað til a.m.k. – björtustu von
Norðurlandanna í keppninni í ár.
Við verðum bara að vona að Lena
nái heilsu á ný og taki sig saman í
andlitinu og geri sitt besta.
Sænsku hljómsveitina ABBA bar
líka á góma þegar sænska sjón-
varpið innti Jónsa eftir því hvort
hann hefði einhver tengsl vid Sví-
þjóð. Hann kvaðst keyra um á
Volvo og hafa komið fram í ABBA-
sýningunni á skemmtistaðnum
Broadway í þrjú ár. Þeir landarnir
Jónsi og Tómas Þórðarson (sem
keppir fyrir hönd Danmerkur) voru
að hittast í fyrsta skipti þarna en
Jónsi var skeleggur i að leiðrétta
sænsku sjónvarpsmennina þegar
þeir fóru rangt með framburðinn a
föðurnafni Tómasar.
Annars lék Jónsi á als oddi í við-
tölum við fjölmiðlafólk víða að og
átti greinilega mjög auðvelt með að
sjarmera alla upp úr skónum. Jón-
atan Garðarsson sagði að það hefði
verið gaman að fylgjast með honum
vaxa ásmeginn eftir því sem fund-
unum fjölgaði. Jónsi er greinilega í
mjög góðu líkamlegu formi, ekki
sjást á honum nokkur þreytumerki
og aðspurður sagðist hann vera
meira en tilbúinn í slaginn. Honum
tókst mjög vel upp við flutning ís-
lenska lagsins og það var komin enn
meiri dýpt í túlkun hans en í mynd-
bandsútgáfunni sem gefur góðar
vonir um frammistöðu hans þegar á
hólminn er komið. Gera verður ráð
fyrir að ballöður hafi það fram yfir
hröðu lögin í keppninni að við söng
þeirra geti flytjandinn snert ein-
hverja þá strengi í brjósti áhorf-
enda að þeir greiði flutningnum og
þar með laginu atkvæði sitt.
Evróvisjónspennan að ná hámarki
Jónsi leikur á als oddi
Morgunblaðið/Sverrir
Jónsi í faðmi fjölskyldunnar.
Undanúrslit fyrir
Evróvisjón fara fram í
kvöld en sjálf úrslitin á
laugardaginn. Sveinn
Haraldsson er í Ist-
anbul og mun lýsa gangi
mála á meðan á keppn-
inni stendur.