Morgunblaðið - 12.05.2004, Side 60

Morgunblaðið - 12.05.2004, Side 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. HLJÓTI hugmynd Þjóðminja- safns um táknmynd fyrir safnið hljómgrunn hjá borgaryfir- völdum má gera ráð fyrir að í lok sumars verði búið að koma 7,5 metra háu sverði úr graníti fyrir á Melatorgi. Verður það nákvæm eftirlíking víkingasverðs frá 10. öld sem fannst í kumli við Kald- árhöfða í Grímsnesi árið 1946. Að sögn Snorra Más Skúlason- ar kynningarfulltrúa Þjóðminja- safnsins er sverðið, sem granít- sverðið verður gert eftir, einn merkilegasti gripur sem Þjóð- minjasafnið á. Táknmyndin á Melatorgi hefði þannig beina til- vísun í þjóðararfinn sem varð- veittur er í safninu. Að sögn Snorra Más var upp- haflega hugmyndin sú að sett yrði upp einhvers konar tákn fyrir safnið í nágrenni þess í tilefni af enduropnun í september. „Svo þróaðist hugmyndin lengra og við vildum setja þarna upp varanlegt sverð sem yrði höggvið í granít. Við teljum að þetta gæti orðið skemmtileg táknmynd fyrir safn- ið. Ef maður hugsar þetta lengra þá gæti sverðið orðið eitt af kennileitum Reykjavíkur. Þá er það skemmtileg tilviljun að fyrsti víkingaskálinn á Íslandi reis að- eins neðar í Suðurgötunni,“ segir Snorri Már. Sverðhugmyndin hef- ur nú þegar verið lögð fyrir sam- göngunefnd Reykjavíkurborgar og samþykkt þar. Menningar- málanefnd og skipulags- og bygg- ingarmálanefnd þurfa einnig að samþykkja hugmyndina. Höggvið í stein í Kína Þjóðminjasafnið hefur farið þess á leit við listamanninn Stefán Geir Karlsson að hann hafi yfir- umsjón með smíði sverðsins. Að sögn Snorra Más verður sverðið höggvið í stein í Kína, flutt til Ís- lands og sett saman á Melatorg- inu sjálfu. Heildarkostnaður við verkið er áætlaður um 5–6 millj- ónir króna og töluverðan mann- skap þarf til að gera sverðið. „Það er í raun búið að ráðstafa pen- ingum sem verja átti í kynningu fyrir opnunina. Safnið verður því að leita til velunnara til að fjár- magna þetta, en ég er bjartsýnn á að það takist að útvega féð. Mér finnst þessi hugmynd allt of góð til að hún fái að deyja.“ Um tvo mánuði tekur að smíða sverðið og flytja það hingað til lands. Að því gefnu að borgaryfirvöld leggi blessun sína yfir sverðið og fjármagn fáist fyrir smíðinni má gera ráð fyrir að víkingasverðið verði komið á sinn stað í ágúst og hjálpi þannig til við að vekja at- hygli á opnun safnsins 1. septem- ber nk. Tölvugerð mynd af granítsverðinu sem Þjóðminjasafnið vill fá að setja upp á miðju Melatorgi. Víkingasverð á Melatorg í ágúst Hugmynd Þjóðminjasafnsins til athugunar hjá borgaryfirvöldum Í KVÖLD fer fram undankeppni fyrir Evróvisjónkeppnina í Istanbúl í Tyrk- landi. Þá keppa 22 þjóðir um þátttöku- rétt í úrslitakeppninni sjálfri sem fram fer á laugardaginn. Meðal keppenda í kvöld er söngvari af íslensku bergi brotinn, Tómas Þórð- arson, sem keppir fyrir Dani. Ef allt gengur upp keppir hann á laugardags- kvöld ásamt fulltrúa Íslands, Jóni Jósepi Snæbjörnssyni, sem syngur kraftballöð- una „Heaven“ . Jónsi og Tómas stilltu sér upp fyrir ljósmyndara á blaða- mannafundi í gær. Morgunblaðið/Sverrir Íslendingar í eldlínunni  Jónsi leikur/56  Tónlistarinnar…/56 Í FYRSTA sinn sem Gallerí i8 tekur þátt í elstu og virtustu myndlistarstefnu heims, þeirri í Basel í Sviss, nær það þeim árangri að sýna verk íslenskra myndlistarmanna á báðum sýningum stefnunnar. Gjörningaklúbburinn verður á sýningunni Art Statement, en verk Finnboga Péturssonar, Spheres, verður sýnt á sýningunni Art Unlimited. Finnbogi segir að allar listastefnur hvar sem er í heiminum taki sitt mið af Baselstefnunni, og þangað sæki allir þeir sem hafi eitthvað að segja í myndlist og vilji hafa eitthvað að segja. „Þetta getur auðvitað haft gríðarlega þýðingu fyrir mig, eins og Feneyjatvíæringurinn gerði. Ég fékk ekkert rosalega mörg tilboð vik- ur og mánuði á eftir. Helsta breytingin var hins vegar virðingin sem ég hef feng- ið sem myndlistarmaður, og fylgir því að hafa tekið þátt í honum sem fulltrúi minnar þjóðar. Það er gott veganesti fyr- ir myndlistarmann að hafa, og hefur klár- lega hjálpað Eddu Jónsdóttur gallerista og eiganda i8, að koma mér inn á sýn- inguna í Basel.“ Dorothée Kirch starfsmaður i8 segir að til að komast inn á svona stefnu, þurfi gallerí þegar að hafa skapað sér stórt nafn, og því megi segja að undirbúning- urinn hafi tekið þau níu ár sem Edda hef- ur starfrækt i8. Morgunblaðið/Golli Verk Finn- boga verður sýnt í Basel  Þarna verða/30 OLÍUFÉLAGIÐ ESSO og Skeljungur hafa ákveðið að hækka lítraverð á bensíni þannig að lítrinn af 95 oktana bensíni kostar nú 104,2 krón- ur í sjálfsafgreiðslu og er lítraverð á dísilolíu 45,6 krón- ur í sjálsafgreiðslu. Þetta er í annað skipti í þessum mánuði sem fyrirtækin hækka verð á eldsneyti. Í byrjun mánaðar- ins var bensínlítrinn hækkað- ur um 3 krónur og dísilolía um 2,50 krónur. Í frétt á heimasíðu Esso segir að megin skýring þess- ara hækkana sé að heims- markaðsverð hafi hækkað mjög mikið frá apríllokum. Það hafi ekki verið hærra en nú í fjórtán ár, en einnig sé staða krónunnar lakari nú en um síðustu mánaðamót. Olís hafði ekki hækkað verð á eldsneyti í gærkvöldi, en Samúel Guðmundsson hjá Olís sagði að hugsanleg verð- hækkun yrði skoðuð í dag. Atlantsolía hækkaði verð á eldsneyti um mánaðamótin og segir Hugi Hreiðarson, kynningarfulltrúi Atlantsolíu, að ef fram haldi sem horfi þurfi félagið að hækka verðið aftur. Staðan verði skoðuð á næstu dögum. Þar kostar bensínlítrinn 96,9 krónur. Bensín- lítrinn í 104,2 kr. Önnur verðhækkun á bensíni í mánuðinum MINNIHLUTI allsherjarnefndar Alþingis leggur til að fjölmiðla- frumvarpinu verði vísað frá. Önnur umræða um frumvarpið hófst á Al- þingi í gær og var það eina dag- skrármálið. Fjölmargir þingmenn, einkum þingmenn stjórnarand- stöðunnar, tóku til máls og töluðu margir lengi, en ræðutími við aðra umræðu um þingmál er ótakmark- aður, samkvæmt þingsköpum Al- þingis. Nítján þingmenn voru á mælendaskrá um miðnætti í gær. Var búist við því að umræðan stæði langt fram á nótt, enda liggur ekk- ert samkomulag fyrir milli stjórnar og stjórnarandstöðu um afgreiðslu málsins. Bryndís Hlöðversdóttir, þing- maður Samfylkingarinnar og framsögumaður minnihluta alls- herjarnefndar, sagði efni og formi frumvarpsins vera svo ábótavant að málið væri ótækt til afgreiðslu. „Það hefur fengið ótrúlega flýti- meðferð. Og ég vil hér í upphafi máls míns lýsa yfir vanþóknun minni á þeim vinnubrögðum sem meirihlutinn beitti í hæstvirtri alls- herjarnefnd,“ sagði Bryndís. Óæskileg staða komin upp Bjarni Benediktsson, formaður nefndarinnar, vísaði þessum full- yrðingum á bug og sagði að skýrsla fjölmiðlanefndarinnar lægi málinu til grundvallar. Nefndin teldi að upp væri komin óæskileg staða í fjölmiðlum og að eignaþjöppun væri meiri hér en menn þekktu annars staðar. Nefndin teldi að við þessu þyrfti að bregðast. „Og nú þurfa menn að taka pólitíska af- stöðu í þessu máli og hætta að tala um málsmeðferðina,“ sagði hann. Stjórnarandstaðan fór ítrekað fram á það í umræðunum í gær að umræðunum yrði frestað þar til menntamálanefnd Alþingis og efnahags- og viðskiptanefnd hefðu lokið umsögnum sínum um frum- varpið. Ekki var fallist á þá kröfu og umræðan látin halda áfram. Umræður stóðu fram á nótt um fjölmiðlafrumvarpið Minnihlutinn vill vísa málinu frá  Fjölmiðlafrumvarpið/10, 11 Morgunblaðið/Árni Torfason Þingmenn hlýða á umræður um frumvarpið á Alþingi í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.