Morgunblaðið - 17.05.2004, Síða 2
FRÉTTIR
2 MÁNUDAGUR 17. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
VALD FORSETANS
Davíð Oddsson forsætisráðherra
segir að ekki sé stafur fyrir þeirri
túlkun, sem stundum sé haldið
fram, að sú staðreynd að forseti Ís-
lands sé þjóðkjörinn hljóti að færa
honum frekara vald en stjórnar-
skráin mælir fyrir um.
Davíð gerir grein fyrir sjónar-
miðum sínum um mögulegt synj-
unarvald forseta Íslands í grein
sem hann ritar í Morgunblaðið í
dag.
Bætur hækka
Alþingi hefur samþykkt laga-
frumvarp sem gerir ráð fyrir því að
fjárhæð atvinnuleysisbóta hækki og
verður fjárhæð hámarksbóta hækk-
uð úr 2.752 krónum í 4.096 krónur á
dag. Verða bæturnar greiddar sam-
kvæmt þessu frá og með 1. mars sl.
Bonnevie í mynd Baltasars
Norska leikkonan Maria Bonne-
vie mun leika aðalhlutverkið á móti
bandaríska leikaranum Forrest
Whitaker í nýjustu mynd Baltasars
Kormáks, A Little Trip to Heaven.
Sagt er frá málinu í sænskum fjöl-
miðlum í gær. Gert er ráð fyrir að
hefja tökur í haust. Bonnevie hefur
áður leikið í íslenskri kvikmynd,
Hvíta víkingi Hrafns Gunnlaugs-
sonar.
Krefjast rannsóknar
Nokkrir bandarískir þingmenn
hafa krafist rannsóknar á ásök-
unum um, að Donald Rumsfeld,
varnarmálaráðherra Bandaríkj-
anna, hafi samþykkt leynilega áætl-
un um yfirheyrsluaðferðir, sem leitt
hafi til misþyrminganna í íröskum
fangelsum. Koma þær fram í grein
eftir blaðamanninn Seymour Hersh
í tímaritinu The New Yorker. Segir
í henni, að Richard Myers, yfirmað-
ur bandaríska herráðsins, hafi einn-
ig samþykkt áætlunina og í News-
week-grein sagði, að John Ashcroft
dómsmálaráðherra og jafnvel
George W. Bush forseti hafi vitað
af henni.
Áfram hátt olíuverð
Sérfræðingar spá því, að olíuverð
muni haldast mjög hátt enn um
sinn og búast ekki við, að hugsan-
leg framleiðsluaukning OPEC-
ríkja, Samtaka olíuútflutningsríkja,
muni breyta einhverju um það. Er
verðið nú um 40 dollarar olíufatið
og er jafnvel talið geta farið í 50
dollara áður en það fer að lækka.
Það er óstöðugleiki í Mið-Austur-
löndum og aukin eftirspurn, sem
halda verðinu uppi, auk þess sem
hráefnisþörf Kínverja eykst stöð-
ugt og er farin að valda verðhækk-
unum á ýmsum afurðum á heims-
markaði.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Minningar 24/31
Vesturland 11 Bréf 34
Viðskipti 12 Dagbók 36/37
Erlent 14 Þjónusta 37
Daglegt líf 15 Leikhús 38
Listir 16/19 Fólk 38/41
Umræðan 20/21 Bíó 38/41
Skoðun 24 Ljósvakar 42
Forystugrein 22 Veður 43
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
STEFNT er að því að byggja upp kertagerð á
bænum Stóruvöllum í S-Þingeyjarsýslu í þriðja
skiptið eftir tvo eldsvoða á árinu, nú síðast á
föstudagsmorgun. Tjónið að þessu sinni er álíka
mikið og í fyrri eldsvoðanum, sem varð 24. jan-
úar sl., þótt húsnæðistjónið sé ekki sambærilegt
að þessu sinni þar sem kertagerðin var í bráða-
birgðahúsnæði í tveimur gámum. „Nú tekur
sennilega við uppbygging á grunni húsnæðisins
sem brann í vetur,“ segir Ásta Björg Tómas-
dóttir á Stóruvöllum sem rekur kertagerðina
ásamt sambýlismanni sínum Garðari Jónssyni.
Er þess vænst að ákvörðun um endurreisn kerta-
gerðarinnar verði endanlega tekin nú eftir
helgi.
Ásta var ein á staðnum þegar kviknaði í á
föstudag og varð vitni að eldsupptökunum. Segir
hún eldinn hafa kviknað aftan í pönnu sem notuð
er við framleiðsluna. „Pannan hlýtur að hafa bil-
að, enda hafði hún bilað þrisvar þann stutta tíma
sem hún hafði verið í gangi. Við reiknuðum ekki
með því að það gæti kviknað í út frá henni, því
annars hefðum við eflaust hætt við að nota hana.
Eldurinn var hrikalega fljótur að ná sér á
strik og engu varð bjargað. Ég hljóp í það að
koma bílum í burtu og það kviknaði í pallhúsi á
nálægum sendibíl. Hann var keyrður logandi á
næsta bæ til að láta slökkva í honum.“
Ásta segir að eldurinn hafi gleypt í sig ein-
angrun í gámnum á augabragði en tekur fram
aðspurð að bráðabirgðahúsnæðið hafi á sínum
tíma verið tekið út af til þess bærum aðilum og
talið í lagi.
Þegar kertagerðin eyðilagðist var verið að
framleiða upp í stóra pöntun sem átti að afhend-
ast 10. júní, en ljóst er að ekki verður af því. Ásta
segir að kertagerðin hafi verið nýbúin að ná sér
á strik eftir brunann í janúar, þegar kviknaði í
aftur. Ekki tjói samt að leggja árar í bát.
„Það koma margir að starfseminni í þessari
sveit. Það vinna fimm konur við kertagerðina og
það munar um þetta í þessu sveitarfélagi.“
Lögreglan á Húsavík er með tildrög eldsvoð-
ans til rannsóknar.
Stefnt að endurreisn kertagerðar á Stóruvöllum eftir eldsvoða
„Eldurinn var hrikalega fljótur að
ná sér á strik og engu varð bjargað“
Ljósmynd/Björgvin Kolbeinsson
Lögreglan á Húsavík og fulltrúar trygginga-
félags skoða verksummerki brunans.
Tekinn á 168
km hraða á
bifhjóli
ÖKUMAÐUR bifhjóls var tekinn á
168 km hraða í Hafnarfirði á laug-
ardagskvöld eftir að hann reyndi að
stinga lögregluna af.
Hjólinu, sem ekið var um Reykja-
nesbraut í átt til Reykjavíkur, var
ekið á 122 km hraða, samkvæmt
mælingum lögreglunnar í Keflavík.
Gaf hún ökumanni, sem var með far-
þega á hjólinu, merki um að stöðva
en hann sinnti ekki stöðvunarmerkj-
unum heldur jók hraðann. Ók hann á
ofsahraða í átt til Reykjavíkur.
Haft var samband við lögregluna í
Hafnarfirði sem fór á móti mannin-
um og gerði honum ókleift að komast
lengra en að hringtorgi við kirkju-
garðinn ofan við Hafnarfjörð. Mæld-
ist bifhjólið á 168 km hraða.
Ökumaðurinn var handtekinn og
yfirheyrður vegna málsins og má
vænta sektar og ökuleyfissviptingu.
HRAFN Jökulsson, formaður
Hróksins, stefnir að því að slá heims-
met í maraþonskák þegar hann sest
að tafli í Smáralind föstudaginn 28.
maí nk. kl. 10 að morgni og ætlar
ekki að standa upp fyrr en 30
klukkustundum og allt að 200 skák-
um síðar. Tilgangur þessa maraþons
er að safna áheitum í þágu Hróksins
en Hrafn mun tefla við einn áskor-
anda í einu, í um tíu mínútur að með-
altali í hvert sinn.
Meðal áskorenda sem hafa verið
skráðir til leiks eru nafntogaðir
stjórnmálamenn, tónlistarmenn,
leikarar og blaðamenn. Áhugasamir
taflmenn geta einnig skráð sig á vef-
síðu Hróksins, www.hrokurinn.is, og
þar verður síðan hægt að fylgjast
með skákunum þegar þar að kemur.
Hrókurinn á tímamótum
Hrafn sagði við Morgunblaðið að
nú stæði Hrókurinn á tímamótum.
Félagið væri búið að vera í sam-
felldri sókn síðustu árin en nú væri
verið að ákveða hlutverk félagsins til
framtíðar. Allar áherslur yrðu í
barna- og skólastarfinu. Áfram yrði
haldið að heimsækja alla skóla lands-
ins, en síðasta vetur fóru Hróks-
menn í 190 skóla og gáfu 8 ára börn-
um bókina „Skák og mát“, auk þess
að standa fyrir námskeiðum og mót-
um. Hrafn sagði að undanfarin tvö ár
hefði félagið farið í alls 450 skóla-
heimsóknir. „Þetta eru þær tölur
sem við erum stoltust af í starfinu.
Nú leitum við eftir umboði og stuðn-
ingi frá fólki, fyrirtækjum og sveit-
arfélögum til að halda starfinu
áfram. Í því skyni ætla ég að tefla
maraþonið í Smáralindinni. Þetta er
mikilvægur viðburður fyrir framtíð
Hróksins og vonumst við eftir góð-
um stuðningi. Okkar skilaboð eru
þau að þeir sem hafa lýst ánægju
með starf Hróksins og geta stutt
okkur, þá er rétti tíminn til þess
núna. Framundan eru mjög
skemmtileg verkefni,“ sagði Hrafn.
Hann hefur sent erindi til Heims-
metabókar Guinnes til að fá skák-
irnar 200 skráðar sem heimsmet – ef
hann kemst í gegnum þær allar. Ger-
ir hann sér engar vonir um vinnings-
hlutfall, eina takmarkið er að halda
út þennan tíma.
Auk áheita sem skrá má inn á vef-
síðu Hróksins verður hægt að leggja
félaginu lið með því að hringja í söfn-
unarsíma og leggja inn á banka-
reikning.
Stefnir á að slá heims-
met í maraþonskák
Morgunblaðið/Árni Torfason
Sigurður Þráinn Geirsson, 9 ára nemandi í Hvassaleitisskóla, fær hér að-
stoð Hrafns Jökulssonar í fjöltefli við skákkonuna Reginu Pokorna í gær. Í
baksýn er Össur Skarphéðinsson að aðstoða dóttur sína, Birtu. Mikil ölvun
á Evróvisjón-
kvöldi
MIKIL ölvun var á fólki í fyrrakvöld
eftir Evróvisjónkeppnina og var mik-
ill erill hjá lögreglu víða um landið að-
faranótt sunnudags vegna skemmt-
anahalds. Í Reykjavík voru margir á
ferli og mikil ölvun um alla borg.
Mannsöfnuður var í miðborginni fram
til klukkan 8 í gærmorgun, að sögn
lögreglu. Í Hafnarfirði var jafnframt
margt fólk að skemmta sér og hafði
lögregla í nógu að snúast. Á Akureyri
gistu þrír fangageymslur lögreglu
eftir gleðskap um nóttina, en þar var
margt um manninn í miðbænum um
nóttina og fram á morgun.
Þá valt bíll í Kjarnaskógi rétt utan
við Akureyri í gærmorgun. Taka
þurfti bílinn í burtu með kranabíl, en
engin slys urðu á fólki.
Í ár er sú nýjung að allir þeir sem
koma sér með eigin orku til og frá
vinnu eru gjaldgengir þátttakendur
þ.e. hjóla, skokka, ganga, nota línu-
skauta o.s.frv.
Þeir sem taka strætó geta einnig
tekið þátt en þá er skráð sú vega-
lengd sem gengin er til og frá stoppi-
stöð.
SKRÁNING í fyrirtækjakeppninni
Hjólað í vinnuna hefur gengið fram-
ar öllum vonum en átakið stendur
dagana 17.–28. maí fyrir tilstuðlan
heilsu- og hvatningarverkefnis ÍSÍ,
Ísland á iði. Um helgina höfðu 97 fyr-
irtæki um land allt með 144 lið innan-
borðs skráð sig til keppni sem hefst í
dag.
Margir hjóla í vinnuna
♦♦♦