Morgunblaðið - 17.05.2004, Síða 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 MÁNUDAGUR 17. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
H
rin
gb
ro
t
MARKAÐSVERÐMÆTI hluta-
bréfaeignar viðskiptabankanna tvö-
faldaðist og gott betur frá árslokum
2000 til síðustu áramóta, samkvæmt
svari viðskiptaráðherra við fyrir-
spurn Jóhönnu Sigurðardóttur,
þingmanns Samfylkingarinnar, sem
lögð var fram á Alþingi á laugardag.
Samtals áttu bankarnir 33,1 milljarð
króna að markaðsvirði í skráðum og
óskráðum félögum í árslok 2000 en
um síðustu áramót námu eignir
þeirra í hlutabréfum samtals 68,3
milljörðum króna, sem er 106%
hækkun. Á sama tíma hækkaði
heildarvísitala aðallista Kauphallar-
innar um 58,4%, svo dæmi sé tekið.
Jóhanna spurði hvert hefði verið
markaðsvirði hlutafjáreignar við-
skiptabankanna og dótturfyrirtækja
þeirra í fyrirtækjum skráðum í
Kauphöll Íslands í milljörðum króna
og sem hlutfall af markaðsvirði
skráðra hlutabréfa í lok áranna 2000
og 2003 og hvert hefði verið mark-
aðsvirði hlutafjáreignar viðskipta-
bankanna í öðrum félögum á sama
tíma. Í svari viðskiptaráðherra, sem
byggt er á upplýsingum sem Samtök
banka og verðbréfafyrirtækja öfluðu
hjá bönkunum, kemur fram að mark-
aðsvirði hlutafjáreignar bankanna
og dótturfyrirtækja þeirra í skráð-
um fyrirtækjum var 17,2 milljarðar
kr. í lok árs 2000 og 34 milljarðar kr.
í lok árs 2003. Hlutafjáreign við-
skiptabankanna í skráðum fyrir-
tækjum nam 4,1% af heildarmark-
aðsvirði fyrirtækja í Kauphöll
Íslands í lok árs 2000 og 5,2% í lok
árs 2003. Markaðsvirði hlutafjár-
eignar bankanna í öðrum fyrirtækj-
um var 15,9 milljarðar kr. í lok árs
2000 og 34,3 milljarðar kr. í lok árs
2003.
Nærri þreföldun hjá
KB banka og Landsbanka
Í svari ráðherra kemur fram að
fjöldi fyrirtækja, sem bankarnir áttu
í innanlands og erlendis, breyttist
lítið á þremur árum. Þannig áttu
bankarnir samtals hlut í 410 fyrir-
tækjum í lok árs 2000 og 400 fyr-
irtækjum í lok árs 2003. Í mörgum
tilfellum eiga tveir eða allir við-
skiptabankanna hlut í sama fyrir-
tæki.
Jóhanna spurði hvernig hluta-
bréfaeignin skiptist á milli bankanna
og kemur þá í ljós að hlutabréfaeign
Íslandsbanka jókst ekki mikið að
verðmæti á þessum þremur árum;
bankinn átti samtals 14,1 milljarð í
hlutabréfum árið 2000, en 15,4 millj-
arða um síðustu áramót. KB banki
(áður Kaupþing og Búnaðarbankinn)
þrefaldaði hins vegar næstum eign
sína miðað við markaðsverðmæti, úr
12,6 milljörðum samtals í 34,7 millj-
arða. Landsbankinn þrefaldaði
sömuleiðis sína hlutabréfaeign, úr
6,4 milljörðum í 18,2. Skipting bréfa
bankanna milli skráðra fyrirtækja
og annarra fyrirtækja sést í með-
fylgjandi töflu.
Fram kemur í svarinu að fimm
verðmætustu hlutafjáreignir Ís-
landsbanka í lok árs 2000 voru Glitn-
ir hf., R Raphael & Sons PLC, Ís-
landsbanki hf., Ker hf. og Baugur hf.
Í lok árs 2003 voru það Sjóvá-Al-
mennar tryggingar hf., Straumur
hf., Framtak fjárfestingarbanki hf.,
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og
R. Raphael & Sons PLC. Fimm
verðmætustu hlutafjáreignir KB
banka í lok árs 2000 (þ.e. Kaupþings
hf. og Búnaðarbanka Íslands hf.)
voru Frjálsi fjárfestingarbankinn
hf., Össur hf., Kaupthing Lux. SA,
Sól-Víking hf. og Samherji hf. Í lok
árs 2003 voru það Kaupthing Bank
Sverige, Norvestia Oy, Vátrygginga-
félag Íslands hf., Singer & Fried-
lander Grp. plc. og Baugur Group hf.
Fimm verðmætustu hlutafjáreignir
Landsbanka í lok árs 2000 voru Vá-
tryggingafélag Íslands hf., The Her-
itable Bank Ltd., Íslenski hugbún-
aðarsjóðurinn hf., Kaupás hf. og
Lýsing hf. Í lok árs 2003 voru það
Eimskipafélag Íslands hf., The Her-
itable Bank Ltd., Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna hf., Landsafl hf. og
Landsbanki Lúxemborg SA.
Jóhanna spurði loks hversu hátt
hlutfall af eignum bankanna hefði
verið í erlendum og innlendum
skuldabréfum og erlendum og inn-
lendum hlutabréfum í lok áranna
2000 og 2003. Í svari ráðherra kemur
fram að í árslok 2000 var hlutfall er-
lendra skuldabréfa 0,43% af eignum
viðskiptabankanna þriggja að með-
altali og innlendra skuldabréfa
6,04%. Hlutfall erlendra hlutabréfa
var 0,82% og innlendra hlutabréfa
3,62%. Í lok árs 2003 var hlutfall er-
lendra skuldabréfa 0,41% af eignum
viðskiptabankanna þriggja að með-
altali og innlendra skuldabréfa
5,42%. Hlutfall erlendra hlutabréfa
var 1,06% og innlendra hlutabréfa
3,22%.
Hlutabréfaeign banka
tvöfaldaðist á 3 árum
!
"
#$%&
!
'
STÖRF í þýskum áliðnaði eru í
hættu vegna yfirvofandi hækkunar
orkuverðs, að mati þýska álversins
Hamburger Aluminium-Werk,
HAW. Orkusamningi fyrirtækisins
hefur verið rift frá 30. september nk.
þar sem það vildi ekki fallast á hækk-
un. Metal News hefur eftir forstjóra
HAW að grunnraforkuverð hafi
snarhækkað og sé orðið mun hærra
en í öðrum ESB-ríkjum.
Talsmaður rafveitunnar sem
HAW skiptir við, en hún er hluti af
sænsku Vattenfall-samsteypunni,
segir verðið þurfa að endurspegla
kostnað rafveitunnar, hún geti ekki
niðurgreitt framleiðslu álversins.
HAW framleiðir árlega um 130
þúsund tonn af áli. Það er í eigu
Norsk Hydro, Alcoa og Austria Met-
all. Norsk Hydro eignaðist hlut sinn í
HAW þegar fyrirtækið yfirtók
þýska álframleiðandann VAW Alum-
inium fyrir tveimur árum og leiddi
sú fjárfesting til þess að hætt var við
fjárfestingu Hydro í Reyðaráli.
Orkuverð til HAW-
álversins hækkar
HAGNAÐUR Tanga hf. eftir skatta
á fyrsta fjórðungi þessa árs var
nærri helmingi lægri en á sama
tímabili í fyrra, eða 27 milljónir
króna samanborið við 52 milljónir í
fyrra. Hagnaður fyrir afskriftir og
fjármagnsliði (EBIDTA) var hins
vegar 135 milljónir í ár en 60 millj-
ónir í fyrra. Veltufé frá rekstri nam
110 milljónum á fyrsta ársfjórðungi
2004 en var 44 milljónir í fyrra.
Tekjur Tanga á fyrsta ársfjórð-
ungi voru 538 milljónir og jukust um
rúm 10% á milli ára. Rekstrargjöld
félagsins námu 403 milljónum og
lækkuðu um tæp 6%. Fjármagnsliðir
voru neikvæðir um 47 milljónir en
mynduðu tekjur upp á 59 milljónir á
sama tímabili árið 2003.
Hagnaður Tanga
dregst saman
!
"#
!$"
%
ÞETTA HELST …
VIÐSKIPTI
● SAS-flugfélagið
hefur ákveðið að
hækka flugfargjöld
sín vegna mikillar
hækkunar á elds-
neytisverði.
Á vefmiðli Jyl-
lands-Posten segir
að frá og með 1. júní verði 4 evrur,
um 350 íslenskar krónur, lagðar of-
an á innanlandsfargjöld félagsins
aðra leiðina, og 6 evrur, um 530
krónur, á flugfargjöld á Evrópu-
leiðum. Ekki hafi verið ákveðið hve
hátt gjaldið verði á lengri leiðum.
Hækkun hjá SAS
● Ísland, Reykjavík og Icelandair
koma vel út úr ferðakönnun brezku
blaðanna Guardian og Observer
meðal lesenda sinna. Þannig er Ís-
land næstvinsælasta Evrópulandið
hjá Bretum á eftir Slóveníu, en var í
efsta sæti í sams konar könnun í
fyrra.
Reykjavík er tólfta vinsælasta er-
lenda borgin, en var í 35. sæti í fyrra.
Icelandair þykir fjórtánda bezta flug-
félagið á styttri leiðum, en þar kemur
Finnair bezt út.
Ísland kemur vel út úr
brezkri ferðakönnun