Morgunblaðið - 18.05.2004, Page 6
FRÉTTIR
6 ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
- SPENNANDI VALKOSTUR
Stangarhyl 3, 110 Reykjavík, sími 591 9000
www.terranova.is
Akureyri, sími 461 1099
París
17. og 24. júní
frá kr. 9.930
Ein rómantískasta borg Evrópu, áfangastaður elskenda á öllum aldri.
París er líka borg nýjunga, einstakra listviðburða og skemmtana.
París höfðar til listunnenda og allra þeirra sem hafa áhuga á tísku,
hönnun byggingarlist og góðum mat.
Kr. 9.930
Flug, önnur leiðin og flugvallarskattar.
Aðeins 50 sæti í boði
Val um úrval hótela
í miðborg Parísar frá kr. 3.900
á mann nóttin í tvíbýli.
HARALDUR Sig-
urðsson jarðfræð-
ingur hefur unnið
til verðlauna Jarð-
fræðifélagsins í
London og mun
veita þeim viðtöku
við hátíðlega at-
höfn í London á
morgun, miðviku-
dag. Jarðfræði-
félagið, Geological
Society of London, er elsta jarðfræði-
félag veraldar, stofnað á fyrri hluta
18. aldar og veitir árlega verðlaun fyr-
ir framúrskarandi vísindastörf. Har-
aldur Sigurðsson er í hópi átta verð-
launahafa fyrir árið 2004 og hlýtur
verðlaun fyrir eldfjallarannsóknir
sínar á Ítalíu, einkum á gosi úr fjallinu
Vesúvíus, sem lagði Pompei í auðn ár-
ið 79 eftir Krist. Verðlaunin hlýtur
Haraldur einnig fyrir rannsóknir sín-
ar í Indónesíu og víðar, en hann hefur
m.a. rannsakað ítarlega gos úr fjallinu
Krakatau í Indónesíu sem gaus árið
1883 með þeim afleiðingum að 36 þús-
und manns fórust. Einnig hefur hann
rannsakað annað eldgos árið 1815 í
Indónesíu sem er stærsta gos verald-
ar á sögulegum tíma. Í gosinu, sem
var gífurlegt sprengigos, fórust 117
þúsund manns. Haraldur segir að
kvikumagnið hafi numið 100 rúmkíló-
metrum en til samanburðar var kvik-
umagnið í Skaftáreldum 15 rúmkíló-
metrar.
Eldfjallarannsóknir tengdar
mannkynssögunni
„Það er alltaf ánægjulegt að fá við-
urkenningu fyrir þau störf sem mað-
ur hefur unnið og sérstaklega í þessu
tilfelli, því þær eldfjallarannsóknir
sem ég fæ verðlaunin fyrir, eru mjög
tengdar mannkynssögunni,“ segir
Haraldur. „Ég hef alltaf haft mikinn
áhuga á þessu tengslum. Að vissu
leyti hafa íslenskir eldfjallafræðingar
verið í forystu á þessu sviði, frá því
Sigurður Þórarinsson hóf að beita
eldfjallafræðinni til rannsókna í forn-
leifafræðinni, en saga okkar er svo
nátengd eldvirkninni. Það er því mjög
ánægjulegt fyrir mig að taka við verð-
laununum í þessum anda.“
Haraldur lauk doktorsprófi í jarð-
fræði frá Durrham-háskóla í Bret-
landi árið 1970 en fram að því hafði
hann unnið að jarðfræðirannsóknum
á Íslandi. Að námi loknu var Haraldur
fjögur ár við rannsóknir í Vestur-
Indíum og þaðan hélt hann til Banda-
ríkjanna þar sem hann hefur dvalið
síðastliðin 30 ár og einbeitt sér að
rannsóknum á eldfjöllum á hafsbotni.
Haraldur gegnir prófessorsstöðu við
Háskólann í Rhode Island og verður í
fríi hérlendis fram í miðjan júní.
Haraldur er nú nýkominn úr rann-
sóknarferð til Ítalíu, þar sem hann
hefur verið að rannsaka jarðmyndan-
ir eftir gosið í Vesúvíusi.
„Það hafa gefist ný tækifæri til
rannsókna með auknum fornleifaupp-
greftri í borgunum Pompei og Her-
kulaneum. Sú síðarnefnda hefur lík-
lega verið 5 þúsund manna borg og
það hefur verið mjög erfitt að afhjúpa
hana vegna mikillar byggðar ofan á
henni. Hún er undir 20–30 metra
þykku og grjóthörðu jarðlagi og það
hefur verið unnið að því að stækka
uppgraftrarsvæðið. Margt skemmti-
legt hefur komið fram og má nefna að
síðastliðnar 2 vikur hef ég verið að
vinna í stórhýsi frá rómverska tím-
anum. Þar fannst bókasafn með um
1.200 bókrollum sem hafa varðveist
frá því 79 eftir Krist.“
Haraldur Sigurðsson hlýtur verðlaun Geological
Society of London fyrir eldfjallarannsóknir sínar
„Saga okkar er ná-
tengd eldvirkninni“
Haraldur
Sigurðsson
á tilfinningunni að þetta mál hafi
mjög þétt stjórnarsamstarfið. Ég tel
að samstarfið milli okkar Halldórs
Ásgrímssonar hafi aldrei verið
sterkara heldur en einmitt núna.“
En telur þú að allir stjórnarþing-
menn muni styðja frumvarpið? „Það
fer eftir því hvað þú kallar Kristin
Gunnarsson,“ svaraði Davíð.
Inntur eftir því hvenær frumvarp-
ið yrði tekið fyrir þriðju umræðu,
sagði Davíð að ekki væri búið að
ákveða það. „Við viljum gjarnan hafa
samráð um það við stjórnarandstöð-
una,“ sagði hann en bætti því við að
hann gerði þó ráð fyrir því að það
gæti orðið í dag, þriðjudag, eða á
morgun. Aðspurður sagðist hann
jafnframt gera ráð fyrir því að frum-
varpið yrði afgreitt frá Alþingi á
þessu vorþingi.
Fá meiri umþóttunartíma
Þegar Davíð var spurður nánar út
í breytingartillögurnar og hvort þær
kæmu í veg fyrir að Norðurljós yrðu
bútuð niður sagði hann: „Ég skal
ekki rýna í það. En það er þó þannig
DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra
og formaður Sjálfstæðisflokksins,
kynnti fréttamönnum breytingartil-
lögur við fjölmiðlafrumvarpið eftir
þingflokksfundi ríkisstjórnarflokk-
anna í húsakynnum Alþingis í gær.
Hann sagði aðspurður að breyting-
arnar væru „auðvitað mildandi að-
gerð“ eins og hann komst að orði.
Kvaðst hann sáttur við þær.
„Það er enginn vafi á því að þessi
meginbreyting varðandi það hvenær
leyfi falla úr gildi, sem var skorin við
tvö ár, er auðvitað mildandi aðgerð.
En hvort það dugi skal ég ekki segja.
Þetta var niðurstaðan sem þarna
varð. Ég get ekki neitað því að
Framsóknarflokkurinn var áhuga-
samur um breytingarnar.“
Aðspurður sagði hann að það væri
sátt milli flokkanna. „Við höfum allt-
af sagt að það yrði pústað milli ann-
arrar og þriðju umræðu og púlsinn
tekinn. Og nú gerum við þetta við
þriðju umræðu.“ Þegar Davíð var
spurður nánar út í stjórnarsamstarf-
ið sagði hann: „Stjórnarsamstarfið
er afskaplega gott. Ég hef það mjög
að sú samþjöppun sem hefur verið á
markaðnum verður ekki leyfð eftir
að frumvarpið hefur tekið gildi og
eftir að þau leyfi sem við eiga hafa
runnið út.“ Síðan bætti hann við:
„En menn fá meiri umþóttunartíma.
Ég held að það sé bara jákvætt.“
Apspurður sagði Davíð að
„ómögulegt væri að segja að þessi
lög væru sérsniðin í kringum þetta
fyrirtæki [Norðurljós].“ Hann sagði
ennfremur að svona samþjöppun
sem hér hefði átt sér stað hefði
hvergi verið liðin í heiminum. „Og ég
hefði nú haldi að fjölmiðlafólk myndi
fagna því að forystumenn landsins
láti ekki slíka samþjöppun eiga sér
stað. Ég held að þegar fram í sækir
muni fjölmiðlafólk fagna því.“
Þegar Davíð var spurður frekar út
í framhald málsins sagðist hann ekki
geta séð hvernig sá ágæti maður
Steingrímur J. Sigfússon „sérstak-
lega af því að hann er hvorki gunga
né drusla“, eins og Davíð orðaði það,
gæti annað en stutt frumvarpið eftir
þær breytingar sem orðið hefðu á
því.
Davíð Oddsson forsætisráðherra um fjölmiðlafrumvarp
Breytingin er
mildandi aðgerð
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra
Öruggari
varðandi
stjórnarskrána
út af þessu máli. Ertu sammála því?
„Ég hef ekki orðið var við allan
þennan titring. Það hefur hins vegar
verið heilmikill titringur í þjóðfélag-
inu og þetta mál hefur verið mjög
mikið rætt af eðlilegum ástæðum.“
Forsætisráðherra segir að sam-
starf ykkar sé betra en nokkru sinni.
Ert þú sammála því? „Við erum bún-
ir að vinna saman í níu ár og það hef-
ur gengið vel. Það vill nú svo til að
við getum talað vel saman um hlut-
ina og skiljum hvor annan mjög vel.“
Eru þessar breytingartillögur til
komnar vegna þrýstings frá Fram-
sóknarflokknum? „Þetta er niður-
staða á milli okkar. Við töluðum um
það fyrir nokkrum dögum að við
myndum klára aðra umræðu og
ræða svo málin milli annarrar og
þriðju umræðu. Það höfum við gert í
samræmi við það sem við töluðum
um.“
Hefðir þú viljað sjá hærri hlut-
deild varðandi markaðsráðandi fyr-
irtæki? „Ég hefði alveg getað sætt
mig við frekari breytingu á því en ég
tel að þetta sé fullnægjandi og það er
afar erfitt að segja til um það hve
hátt það hlutfall eigi að vera. Aðal-
atriðið er að með þessari breytingu
er slíkum fyrirtækjum heimilt að
eiga í slíkum fjölmiðlafyrirtækjum.
Það er ekki bannað og á því tel ég
mikinn grundvallarmun.“
HALLDÓR Ásgrímsson, utanríkis-
ráðherra og formaður Framsóknar-
flokksins, sagði við fréttamenn eftir
þingflokksfundi ríkisstjórnarflokk-
anna í gær að hann teldi breyting-
artillögurnar við fjölmiðlafrumvarp-
ið til mikilla bóta. „Ég tel að þessar
breytingar séu til mikilla bóta. Ég tel
sérstaklega að það skipti máli að öll
þau leyfi sem hafa verið gefin út
haldi gildi sínu. Ég tel að það sé mjög
mikilvægt.“
Ertu sannfærður um ágæti þessa
frumvarps eftir þessar breytingar?
„Ég er miklu öruggari en ég var áð-
ur, að því er varðar stjórnarskrána.
Það er alveg ljóst að ég vil ekki taka
mikla áhættu í sambandi við hana.“
Telurðu að allir þingmenn þínir
muni styðja frumvarpið? „Já.“
Líka Kristinn H. Gunnarsson?
„Ég er ekki viss um það.“
Líturðu kannski ekki á hann sem
þingmann þinn lengur? „Jú, hann er
í þingflokki framsóknarmanna.
Hann hefur haft mikla sérstöðu í
þessu máli og nokkrum öðrum mál-
um.“
Hefur þetta mál verið erfitt fyrir
samstarf ríkisstjórnarflokkanna?
„Það hefur reynt á samstarfið í
þessu máli eins og mörgum öðrum
en við erum vanir að leysa mál.“
Í fjölmiðlum hefur verið talað um
að mikill titringur sé innan flokksins
BREYTINGARTILLÖGUR
stjórnarflokkanna á frum-
varpi forsætisráðherra
um eignarhald á fjöl-
miðlum voru ekki kynntar
á fundi allsherjarnefndar
Alþingis í gærkvöldi. Ekki
náðist í Bjarna Benedikts-
son, formanns allsherj-
arnefndar, eða Jónínu
Bjartmarz varaformann
að fundi loknum en að
sögn Arnbjargar Sveins-
dóttur, þingmanns Sjálf-
stæðisflokksins, sem á
sæti í allsherjarnefnd,
verða tillögurnar vænt-
anlega kynntar á boð-
uðum fundum nefnd-
arinnar í dag.
Morgunblaðið/Þorkell
Það var létt yfir fulltrúum í allsherjarnefnd í gærkvöldi þrátt fyrir stíf fundahöld.
Breytingar ekki kynntar í allsherjarnefnd
32 SKAMMTAR af eiturlyfinu
LSD fundust á bifreiðastæðinu
fyrir utan fangelsið Litla-Hraun á
laugardag. Lögreglan á Selfossi
segir að engar upplýsingar liggi
fyrir um málið en grunur leiki á að
einhver hafi ætlað að koma efninu
inn í fangelsið en losað sig við það
vegna nálægðar lögreglu. Lög-
reglan segir að málið sé í rann-
sókn og efnið verði sent til tækni-
deildar lögreglunnar í Reykjavík
til greiningar.
Þá fannst kannabisefni á manni
sem var á ferð í Hveragerði að-
faranótt föstudagsins. Hann hafði
verið stöðvaður í hefðbundnu um-
ferðareftirliti lögreglu og þótti
ástæða til að gera fíkniefnaleit hjá
honum. Maðurinn var handtekinn
og færður til yfirheyrslu en hann
var látinn laus að því loknu.
LSD við Litla-Hraun