Morgunblaðið - 18.05.2004, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 18.05.2004, Blaðsíða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2004 11 LIÐIN í úrvalsdeild karla í knattspyrnu, Landsbankadeildinni, fá miklu hærri fjárhæðir í verðlaunafé frá Landsbankanum heldur en kvenfólkið og hefur komið fram talsverð gagnrýni á KSÍ vegna þessa máls, með- al annars í forystugrein Morgunblaðsins á sunnu- daginn. Sigurliðið í karla- flokki fær í sinn hlut 1,5 milljónir króna en Íslands- meistararnir í kvennaflokki fá aðeins einn fimmta hluta þeirrar fjárhæðar eða 300 þúsund krónur. Alls fá liðin í karlaflokki samtals 8,1 millj- ónkróna í verðlaunafé frá Landsbankanum, þar af fá fallliðin tvö 500 þúsund hvort, en greiðslan til liðanna í kvennadeildinni nemur 1,2 millónum króna. Morgunblaðið leitaði viðbragða Eggerts Magnússonar, formanns KSÍ. Morgunblaðið líti sér nær „Mér fannst koma úr hörðustu átt í forystu- grein Morgunblaðsins á sunnudaginn og ég segi bara Moggi, líttu þér nær. Ef það er stefna Morgunblaðsins að það eigi að jafna greiðslur til félaganna í Landsbankadeild karla og kvenna þá verður blaðið að byrja á að jafna sín skrif um kvennaíþróttir og karlaíþróttir. Ef það gerist og að leikjum í kvennadeildinni verða gerð betri skil í sjónvarpinu og almennt í fjölmiðlum er kannski hægt að fara að tala um að það sé hægt að fá verðmæti sem nálgast það sem gerist hjá körlunum. Það er reyndar mín skoðun að það séu fjölmiðar sem eigi stærstan þátt í þeim mis- mun í verðmati í sjónvarps- og markaðsrétti sem á sér stað í kvenna- og karlaknattpyrnu. En ég reikna með að fjölmiðlar ráðist að því við- skiptaumhverfi sem þeir hrærast í þar sem gef- ur augaleið að karlaknattspyrnan nýtur miklu meiri vinsælda heldur en kvennaknattspyrnan,“ sagði Eggert Magnússon. „Í fyrsta lagi erum við að selja Landsbanka- deild karla- og kvenna í umboði félaganna. Það eru félögin sem eiga þennan rétt og taka við greiðslum sem renna beint í verðlaunafé og það er enginn milliliður þar á milli. Það getur verið að einhverjir hafi haldið að KSÍ fengi x upphæð frá Landsbankanum sem við værum svo að ráð- stafa. Það er ekki rétt. Það má benda á að mark- aðs- og sjónvarpsréttur í Landsbankadeild karla er svo eftirsótt vara að hún hefur verið seld til erlends fyrirtækis sem síðan selur hann til baka meðals annars til Landsbanka Íslands, þar er markaðsrétturinn og þeir peningar renna síðan beint til félaganna sem verðlaunafé. Hins vegar hvað varðar konurnar selur KSÍ fyrir hönd félaganna markaðsréttinn til Landsbanka Íslands fyrir mun lægri upphæð enda miklu minni viðskiptaverðmæti en í Landsbankadeild karla. En peningarnir renna síðan óskiptir til fé- laganna í Landsbankaeild. Við seljum annars vegar Landsbankadeild karla fyrir ákveðna upphæð sem rennur öll í verðlaunafé og það sama er gert varðandi konurnar nema það er talsvert lægri upphæð enda miklu minna við- skiptaverðmæti í Landsbankadeild kvenna. Það eru oft ekki sömu lið í karla- og kvennaflokki og mismunandi rekstraraðilar innan félaganna sem stýra hvorri deild fyrir sig. Í öðru lagi ræðst sal- an á Landsbankadeild karla og kvenna af fram- boði, áhuga og eftirspurn. Markaðsverðmæti Landsbankadeildar karla hefur vaxið með ár- unum. Til samanburðar er verið að sýna 20 leiki á ári beint í sjónvarpinu úr Landsbankadeild karla en kannski bara einn í hjá konunum og að meðaltali eru áhorfendur í Landsbankadeild karla eitthvað um 1.000 en hjá konunum 50–100. Sjónvarpsrétturinn sem RÚV er að borga fyrir bikarkeppni og deildarkeppni kvenna er u.þ.b. 1 prósent af því sem heildarverðmæti sjónvarps- réttar sem greitt er fyrir bikar- og deildar- keppni karla. Það er ekki nema fáein ár liðin síð- an okkur tókst að fá eitthvað verðmæti fyrir kvennadeildina en við viljum gjarnan auka jafn- vægið og það var ákveðið á síðasta árþingi að leita leiða til að geta gert það í framtíðinni.“ Eggert á sæti í stjórn evrópska knattspyrnu- sambandsins, UEFA, og þekkir því vel hvernig svona málum er háttað í Evrópu. „Ég get nefnt dæmi um að ég var fulltrúi UEFA á úrslitaleik í Evrópukeppni félagsliða kvenna á dögunum. Í þeirri keppni er ekkert verðlaunafé og UEFA er nánast að borga með keppninni til að hún sé haldin. Hjá körlunum er Meistaradeildin að skila margra milljarða króna hagnaði og eðlilega er verðlunafé hátt í þeirri keppni. “ Mikill vaxtarbroddur Eggert segir að mikill vaxtarbroddur hafi verið í kvennaknattspyrnu hér á landi. „Ég tel að KSÍ og reyndar öll félögin sem stunda kvennaknattspyrnu hafi virkilega tekið rösklega á málefnum kvennaknattspyrnunnar í landinu og árangurinn hefur ekki látið á sér standa og áhuginn fer stöðugt vaxandi. Við teljum okkur hafa gert verulegt átak í að efla kvennaknatt- spyrnu og það hefur verið samkomulag innan hreyfingarinnar að eyða verulega fjármagni í kvennalandsliðin og eflingu kvennaknattspyrn- unnar. Ég er ekki í nokkrum vafa að með sam- eiginlegu átaki allra þeirra sem þetta mál varðar megi minnka þann mismun sem á sér stað.“ Eggert Magnússon, formaður KSÍ, um gagnrýni á mun á greiðslum til karla- og kvennaliða Ræðst af fram- boði, áhuga og eftirspurn Eggert Magnússon FRÉTTASTOFA Sjónvarpsins hef- ur gert alvarlega athugasemd við það að í þætti Stöðvar 2, Íslandi í dag, sl. föstudagskvöld var sent út viðtal Sjónvarpsins við Davíð Oddsson for- sætisráðherra í Alþingi og notast við útsendingarmerki RÚV. Dagskrár- stjóri Norðurljósa, Páll Magnússon, hefur beðið fréttastofu Sjónvarpsins afsökunar og segir að mistök hafi átt sér stað í útsendingu Stöðvar 2. Elín Hirst, fréttastjóri Sjónvarps- ins, segir að þar á bæ sé litið á málið mjög alvarlegum augum, enda ekki fordæmi fyrir viðlíka atviki í sögu sjónvarpsrekstrar hér á landi. Ákveðið hafi verið á fundi í gær að lögmaður RÚV myndi senda Stöð 2 formlegt bréf þar sem vakin yrði at- hygli á að um lögbrot hefði verið að ræða. Stöð 2 hafi sýnt viðtalið í óleyfi og tekið útsendingarmerki Ríkisút- varpsins og gert að sínu. Brot varða sektum eða allt að tveggja ára fangelsi Að sögn Elínar var lögmanni RÚV falið að krefja forráðamenn Norður- ljósa skýringa á því sem virðist ský- laust brot á 48. gr. höfundarlaga nr. 73/1972. Þar segir að óheimilt sé end- urvarp, samtímisútvarp, eins og það er orðað, á „útvarpi hennar og dreif- ing þess um þráð“. Í refsiákvæðum sömu laga segir að fyrir brot skuli því aðeins refsa að þau séu framin af ásetningi eða stórfelldu gáleysi. Eru refsingar sektir eða fangelsi allt að 2 árum Elín segist líta svo á að með bréfi lögmannsins til Norðurljósa sé mál- inu lokið af hálfu RÚV og ekki verði um kæru að ræða. Forsætisráðherra hafði á föstu- daginn veitt Ríkissjónvarpinu viðtal vegna málskotsréttarmálsins en neitað Stöð 2 um viðtal. Páll Magn- ússon segir við Morgunblaðið að þeg- ar fregnaðist að Sjónvarpið myndi senda út viðtalið við Davíð hafi verið ákveðið í skyndi að sýna þá Ingva Hrafn Jónsson og Stefán Jón Haf- stein horfa á frétt RÚV í myndveri Stöðvar 2 en ekki að taka upp út- sendingarmerkið sem slíkt. Sú að- ferð að horfa í sérstökum tilfellum á frétt annarrar stöðvar í myndveri sé þekkt leið til að fylgjast með, ekki síst í hitamálum. Hins vegar hafi mis- tök eða misskilningur átt sér stað í útsendingarstjórn þegar ekki hafi verið klippt á tökuvél í myndverinu heldur á útsendingarmerki Sjón- varpsins. Páll segist hafa haft samband við Elínu Hirst á laugardegi og beðist af- sökunar á mistökunum. Vonast hann til að þar með sé málinu lokið. Það hafi alls ekki verið ásetningur Stöðv- ar 2 að senda viðtalið út beint. Stöð 2 segir mistök hafa átt sér stað með útsendingu á viðtali Sjónvarpsins RÚV lítur málið alvar- legum augum STJÓRN Blaðamannafélags Íslandsfundaði í gær um tölvupóst sem Ró- bert Marshall, formaður félagsins, sendi út sl. föstu- dag, og meinta óánægju í félag- inu vegna tölvu- póstsins. Á vef BÍ, press.is, segir Róbert að á fundi stjórnarinnar hafi komið fram ýms- ar skoðanir á orðalagi bréfsins og jafnframt af- dráttarlaus vilji stjórnarinnar um að skýrt kæmi fram að bréfið var ekki skrifað með hennar vitund eða sam- þykki. Bréfið hafi verið sent í hans nafni sem starfsmaður Norðurljósa. Þetta breyti þó ekki því, að stjórn fé- lagsins sé áfram mótfallin frumvarp- inu. Róbert segir það skýrt í sínum huga að hann hafi sent þennan tölvu- póst í eigin nafni, ekki sem formaður Blaðamannafélagsins, enda hafi hann ekki skrifað þann titil sinn und- ir bréfið. Hann sagðist ekki verða var við óánægju innan félagsins vegna málsins, þó skoðanir séu vissulega skiptar. „Það eru mismun- andi sjónarmið um efni bréfsins og orðalag innan stjórnarinnar, auðvit- að verð ég var við það. En ég verð ekki var við annað en mér sé sýnt fullt traust í starfi mínu fyrir félagið og að félagið sé einhuga í baráttunni gegn fjölmiðlafrumvarpinu.“ Stjórn BÍ fundaði um tölvupóst formanns Sendur í eigin nafni en ekki félagsins Róbert Marshall Rýmingarsala á Laugaveginum 15.-19. maí 30-50% afsláttur af öllum vörum Bjóðum viðskiptavini velkomna í Drangey - Smáralind Drangey flytur alfarið í Smáralind Opið virka daga 11-19 laugardaga 11-18 og sunnudaga 13-18 Líttu á www.drangey.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.