Morgunblaðið - 18.05.2004, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 18.05.2004, Blaðsíða 13
ÚR VERINU MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2004 13 Töfrar Chablis - matseðill og sérvalin vín frá Domaine Laroche 18.* - 29. maí Ostabollur „Gougéres“ Domaine Laroche Chablis 2002 * Marineraður þorskhnakki „Ceviche“ Domaine Laroche Chablis Saint Martin 2002 * Grillaðir humarhalar, hörpuskel, timian smjöri Domaine Laroche Chablis Premier Cru Cuvée Premiére 2001 * Kjúklingabringa, sveppir, krydduð vinaigrette Domaine Laroche Chablis Premier Cru Les Fourchaumers Vieilles Vignes 2001 * Sérvaldir ostar Domaine Laroche Chablis Grand Cru Les Blanchots 2001 * Valhrona súkkulaði og sorbet Lavazza kaffi Verð 8.900 kr. með víni *Gwénaël Laroche er sérstakur gestur Tveggja fiska þriðjudagskvöldið 18. maí. Borðapantanir: Tveir fiskar, sími 511 3474 ENN meiri fækkun leyfilegra daga á sjó við Nýja-England veldur því nú að bátarnir eru bundnir við bryggju til fyrsta júlí. Þeir fá því ekki að veiða þorsk og ýsu og fyrir vikið verður að flytja allan þorsk og ýsu til sölu í fiskbúðum og á veit- ingahúsum inn frá Íslandi og Nor- egi. Frá þessu er skýrt á fréttavefn- um Boston.com. Þessi fækkun fiski- daga tók gildi með lagabreytingu frá og með fyrsta maí, en sam- kvæmt henni verður hámarksfjöldi daga til botnfiskveiða 53 dagar á þessu ári í stað 88. Lagaákvæðið tekur líka til svæðalokana og breyt- inga á veiðarfærum. Hins vegar leyfir ákvæðið meiri daglegan þorskafla en áður, eða um 365 kíló í stað 230 kílóa áður, en á móti kem- ur að veiðar á lúðu verða takmark- aðar í fyrsta sinn. Þessar takmarkanir auka enn á vanda sjómanna vegna þess að stórmarkaðirnir kaupa nú innflutt- an fisk til að svara eftirspurninni og það getur reynzt sjómönnum erfitt að ná viðskiptunum til baka, þegar veiðar mega hefjast á ný. Sam- komulag hefur náðst um aukna sókn í fiskistofna sem standa vel, eins og ýsu, en það tekur ekki gildi fyrr en í haust. Frá því byrjað var að hefta veið- arnar árið 1995 hefur fjórði hver sjómaður í bænum Hampton hætt sjómennsku og eru aðeins um 15 eftir. Þeir bæta sér upp tekjutapið með því að stunda humar- og rækjuveiðar, en áður höfðu þeir 230 daga til veiða. Meðalaldur sjó- manna er nú 49 ár og hafa menn áhyggjur að því að nýliðun verði engin enda sé ekki fýsilegt að stunda veiðar við þessar aðstæður. Fiskidög- um fækkað við Nýja- England ÓHEPPNIN eltir skipverja á tog- veiðiskipinu Guðmundi Ólafi ÓF á kolmunnaveiðunum þessa dagana. Á innan við tveimur vikum hefur trollpokinn slitnað úr trollinu og horfið í djúpið. Skipstjórinn segir að tjónið hlaupi á milljónum. „Það sem hefur gerst einu sinni getur gerst aftur og sjaldan er ein báran stök,“ segir á heimasíðu skipsins. Þar er greint frá því að sl. föstudag hafi skipverjar verið að taka trollið með um 500 tonn- um í. Átökin hafi verið slík að pokinn rifnaði frá og hvarf í djúp- ið. Þetta er í annað sinn á stuttum tíma sem það gerist því fyrr í þessum mánuði slitnað trollpokinn frá á kolmunnamiðunum og hvarf ásamt aflanemanum í hafið. Guð- mundur Garðarsson skipstjóri var að vonum ósáttur vegna tjónsins þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gær, enda væri um millj- ónatjón að ræða. Hann sagðist hafa reynt í rúman sólarhring að slæða upp pokann en án árangurs. Hann sagði að nú væri veitt með varaveiðarfærum en án aflanema væru veiðarnar erfiðari en ella. Kolmunnaskipin eru nú að veið- um innan íslensku lögsögunnar en kolmunninn hefur að undanförnu færst hægt og bítandi norður í haf. Guðmundur sagði aflabrögðin hafa verið ágæt að undanförnu, þótt heldur hefði dregið úr þeim síðasta sólarhringinn. Skipinn væru að fá 200 til 400 tonn í holi eftir 10 til 12 klukkustunda tog. Sagðist Guðmundur vera kominn með um 800 tonn í gær og von- aðist til að klára veiðiferðina á næstu dögum, aflanemalaus. Á annan tug íslenskra skipa er nú á kolmunnamiðunum, ásamt nokkrum færeyskum. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Töpuðu trollpok- anum tvisvar ÍSLENDINGAR, Norðmenn, Færeyingar og Chilebúar hafa sloppið, í bili að minnsta kosti, við refsitolla af hálfu Evrópusam- bandsins vegna innflutnings á laxi til ESB. Þetta kemur fram á vef- síðu IntraFish. Segir þar að Norð- menn eigi nú í „samræðum“ við framkvæmdastjórn ESB um lausn á þessu deilumáli sem báðir geti sætt sig við. IntraFish hefur eftir Svein Ludvigsen, sjávarútvegsráð- herra Noregs, að sérstök nefnd ESB, sem fjallar um málið, hafi ekki tekið ákvörðun enn og að lax- eldið við strendur Noregs geti andað léttar í bili. Nefndin muni taka lokaákvörðun um hugsanleg- ar refsiaðgerðir „fyrir sumarið“. IntraFish segir að nefndin geti gripið til refsiaðgerða á tímabilinu 16. maí til 6. desember. Laxeld- ismenn í Bretlandi og á Írlandi hafa beðið ESB um að setja refsi- eða verndartolla á innfluttan eld- islax frá Noregi, Færeyjum og Chile til þess að verja þessa at- vinnugrein innan aðildarríkja ESB. Íslenskt laxeldi mun einnig hafa verið sett undir sama hatt. Engir tollar á laxi í bili
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.