Morgunblaðið - 18.05.2004, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 18.05.2004, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. í samræmi við stjórnskipunina í heild og engin þörf að leita eftir öðrum skýringarkostum. Mörg dæmi eru þess, að í stjórnarskránni segi að forseti hafi vald til eins og annars, þó að ljóst sé og óumdeilt að það vald sé í hendi ráðherra í samræmi við 13. gr. Hér má minna á að í 15. gr. segir að forsetinn skipi ráðherra og skipti með þeim störfum. Í 20. gr. er sagt að forseti skipi í embætti eftir því sem lög ákveða Fleiri atriði mætti nefna, en þetta nægir sem dæmi um atriði, sem ráðherra tekur ákvarðanir um, þó að við fyrstu sýn hafi forseti valdið Mín skoðun er þessi: Vegna þess, sem segir í 13. gr. stjórnarskrárinnar fer ráðherra með það vald sem getið er í 26. gr. eins og með annað „vald“ forsetans. Hafa má í huga, að það sam- rýmist illa öðrum störfum og hlut- verki forseta að hann blandi sér í pólitískar deilur Einnig er þess að geta að á árunum 1874 til 1904 var algengt að konungur beitti neit- unarvaldi sínu og var það gert eft- ir tillögu og með atbeina ráðherra. Ýmsir hafa fjallað um það álita- efni, sem hér er rætt um. Flest er það stuttar athugasemdir og full- yrðingar, en auk greinar minnar frá 1994 hafa Sigurður Líndal pró- fessor og Þórður Bogason lögmað- ur ritað fræðigreinar um efnið. Við Þórður erum sammála um nið- urstöðuna en rök hans varða að UNDANFARIÐ hefur verið allmikið rætt um það hvort forset- inn hafi persónulega heimild sam- kvæmt stjórnarskránni til að skjóta lögum, sem Alþingi hefur samþykkt, undir þjóðaratkvæði. Höfundur þessarar smágreinar hefur nokkuð verið nefndur í þessu sambandi vegna greinar, sem birt var fyrir 10 árum. Ástæða er til að eg leggi nokkur orð í belg um málið. Þær greinar í stjórnarskránni, sem eg tel að hér skipti máli, eru fyrst 26. gr. Þar segir meðal annars . „Nú synjar for- seti lagafrumvarpi staðfestingar, og fær það þó engu að síður lagagildi, en leggja skal það svo fljótt sem kostur er undir atkvæði allra kosningabærra manna í landinu til samþykktar eða synjunar með leynilegri at- kvæðagreiðslu. Lögin falla úr gildi, ef samþykkis er synjað, en ella halda þau gildi sínu“. Næst er að geta 13. gr. 1. máls- greinar stjórnarskrárinnar sem er þannig: „Forsetinn lætur ráðherra framkvæma vald sitt“. Ef þessar tvær greinar eru skýrðar saman, eins og tel að beri að gera, er augljóst að ráðherrar fara með það vald sem veitt er í 26. gr. Orðin eru ljós, niðurstaðan mestu stöðu Alþingis í þingræ andi. Grein eftir Sigurð birtis síðasta Skírnishefti og erum ósammála um flesta hluti. Mu fara nokkrum orðum um mál ing hans. Meginatriðið hjá Sigurði er 13. gr. eigi ekki við. Veigame röksemd hans er sú, að í grei argerð, sem lögð var fyrir Alþ í ársbyrjun 1944 og í ræðum ý issa þingmanna um málið haf ið talið að forseti hefði málsk réttinn persónulega. Þó er þa svo, að texti gildandi laga á Ís landi, sjálfrar stjórnarskrárin ræður úrslitum. Orð í grein- argerð og ummæli á þingfun eru ekki lög. Hér er það þýði arlaust, hvort slík ummæli er „lögskýringargögn“ eða ekki að atriðið sem um er deilt var meginatriði sem er ljóst eftir um sínum og verða þau að rá Talað hefur verið um, að ne forsetans á að samþykkja till ráðherra og sú staðreynd að verður ekki neyddur til að un irrita leiði til þess að mál nái fram að ganga. Þetta fær ekk staðist eftir lögskýringu nú- tímans. Hvað yrði ef forseti n aði að samþykkja gerðir ráðh í samningum við önnur riki e lögu viðtakandi forsætisráðh Hefur forseti málskotsrétt Þór Vilhjálmsson skrifar um fjölmiðlafrumvarpið og neitunarvald forseta Þór Vilhjálmsson ’Vegna þess sem se13. gr. stjórnarskrá innar fer ráðherra m það vald sem getið e 26. gr. eins og með a að „vald“ forsetans. HAGFRÆÐINGURINN Oliver E. Williamson, sem ásamt Dougl- ass North mótaði nýju stofnana- hagfræðina, fjallaði um rann- sóknir sínar í málstofu viðskipta- og hagfræðideildar Háskóla Ís- lands í gær. Hann verður með fyrirlestur í hádeginu í dag í Öskju, nýja náttúrufræðihúsi Há- skólans, undir yfirskriftinni Hvernig á að gera viðskipta- samninga? Rannsóknir Williamsons lúta að viðskiptakostnaði og trúverð- ugum samningum. Williamson er einn helsti höfundur nútímakenn- inga um hagfræði skipulags, sem fjalla um aðferðir aðila til að skipuleggja starfsemi sína og við- skipti með það í huga að lág- marka kostnað við viðskiptin, þ.e. viðskiptakostnaðinn. Aukinn skilningur Í samtali við Morgunblaðið sagðist Williamson telja að nýja stofnanahagfræðin hefði meðal annars átt mikinn þátt í að breyta sjónarmiðum í Bandaríkj- unum varðandi samkeppnismál. Á sjöunda áratugnum hefði verið tekið mun harðar á þeim málum en síðar hefði orðið. Fyrirtæki með innan við 10% markaðshlut- deild hefðu jafnvel verið talin í markaðsráðandi stöðu, en þetta hefði breyst á áttunda áratugn- um með auknum skilningi á eðli fyrirtækja, markaði og samning- um. Nýja stofnanahagfræðin segir Williamson að geri ríkari kröfur en fyrri aðferðir til þekkingar á þeim markaði sem sé til athug- unar. Áður hafi verið litið svo á að ef ekki sé hægt að réttlæta til- tekna markaðshegðun með hlið- sjón af tækninni, þá hafi verið lit- ið svo á að um ólöglegt athæfi sé að ræða. Með nýrri aðferðum sé til dæmis líka litið á samninga- hliðina í greininni. Lóðréttur og láréttur samruni Þetta þýði hins vegar ekki að þau sjónarmið að grípa þurfi til aðgerða gegn samkeppnishindr- unum séu alltaf röng. Þar skipti meðal annars máli hvort um sé að ræða svokallaðan lóðréttan eða láréttan samruna. Þegar lóð- réttur samruni eigi sér stað, þ.e. að fyrirtæki á mismunandi stig- um framleiðslunnar sam svo sem að fyrirtæki sem einist þeim sem sjái því fyr föngum, þá kunni vel að ve fyrir þessu séu hagræn Ástæðan fyrir þessu geti ve erfiðleikar við samningager gert slíkan samruna hagkvæ Láréttan samruna, ti mynda þegar fyrirtæki k keppinaut í sömu grein, sé hægt að rökstyðja með vís þessara kenninga og meiri sé á að á bak við slíka sam Breytti viðhor til samkeppnis Hagfræðingurinn Oliver E Williamson fjallar um nýju stofnanahagfræðina Morgunblaðið/Árni Tor Oliver E. Williamson TIL MÓTS VIÐ GAGNRÝNI Ríkisstjórnin og þingflokkarhennar hafa tvívegis kom-ið til móts við þá gagnrýni, sem fram hefur komið á fjölmiðla- frumvarpið. Fyrst gerðist það í meðferð allsherjarnefndar á milli fyrstu og annarrar umræðu um frumvarpið. Í gær skýrðu tals- menn ríkisstjórnarinnar frá því, að nokkrar breytingar yrðu gerð- ar á frumvarpinu á milli annarrar og þriðju umræðu. Ljóst er að með þessum breyt- ingum er ríkisstjórnin að leitast við að taka tillit til þeirrar gagn- rýni, sem fram hefur komið á frumvarpið. Þegar þetta er gert ítrekað er tæpast hægt að halda því fram, að ríkisstjórnin sé að keyra frumvarpið í gegnum Al- þingi með einhverju offorsi eins og haldið hefur verið fram. Meðal þeirra breytinga, sem gert er ráð fyrir á frumvarpinu nú eru ákvæði um gildistíma gildandi útvarpsleyfa. Þótt gert sé ráð fyr- ir að lögin taki gildi eftir tvö ár er nú áformað að útvarpsleyfi, sem gilda lengur en til tveggja ára, fái að renna sitt skeið á enda en jafn- framt að útvarpsleyfi, sem gilda til skemmri tíma en tveggja ára, renni ekki út fyrr en eftir tvö ár. Sigurður Líndal, fyrrum pró- fessor við lagadeild Háskóla Ís- lands, er einn þeirra, sem gagn- rýnt hafa frumvarpið á þeirri forsendu, að einstök ákvæði þess standist ekki ákvæði stjórnar- skrárinnar. Í samtali við Morgun- blaðið í dag segir Sigurður Líndal að þær breytingar, sem nú hafa verið tilkynntar séu „gott skref“ og hann bætir við: „Ég skal ekki segja hvort þetta er nóg en þetta er allt í rétta átt.“ Þá fer ekki á milli mála, að fund- ur forseta Íslands og forsætisráð- herra í gær hefur orðið til þess að lægja öldur, sem hafa risið hátt að undanförnu og er það við hæfi enda bera þessir tveir menn meiri ábyrgð á því að stjórnkerfi okkar virki með réttum og eðlilegum hætti en nokkrir aðrir. Með því að ræða ágreiningsmál sín í bróðerni hafa þeir sinnt skyldum sínum við þjóðina. Andstæðingar frumvarpsins hafa bundið vonir við ágreining um efni þess á milli stjórnarflokk- anna. Í gær kom skýrt í ljós að fréttir af slíkum ágreiningi hafa verið mjög ýktar. Spurður um samstarf flokkanna tveggja sagði Davíð Oddsson á blaðamanna- fundi í gær: „Stjórnarsamstarfið er afskaplega gott. Ég hef það mjög á tilfinningunni að þetta mál hafi mjög þétt stjórnarsamstarfið. Ég tel að samstarfið milli okkar Halldórs Ásgrímssonar hafi aldrei verið sterkara en einmitt nú.“ Þegar horft er til alls þessa verður ekki betur séð en fjöl- miðlafrumvarp ríkisstjórnarinnar sé að komast í réttan og málefna- legan farveg. STJÓRNKERFISKREPPA Síðustu daga hefur 26. greinstjórnarskrárinnar verið mjög til umræðu vegna vanga- veltna um að forseti Íslands kynni að notfæra sér málskotsrétt skv. þeirri grein í sambandi við fjöl- miðlafrumvarp ríkisstjórnarinn- ar, þótt sá réttur forseta sé mjög umdeildur eins og umræðurnar hafa leitt í ljós. Vitnað hefur verið til ummæla stjórnmálamanna fyrr og síðar í þessum umræðum um 26. grein- ina. Athyglisverð eru ummæli, sem Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrum utanríkisráðherra, lét falla í grein hér í blaðinu hinn 22. maí árið 1996 en hann sagði: „Ef forsetinn kysi að láta reyna á formlegt vald sitt, hrasar hann um leið um þröskuld þingræðis- reglunnar. Hann lendir í átökum við meirihluta þings og sitjandi ríkisstjórn, sem gæti hæglega endað í því að annar hvor yrði að víkja. Það yrði ekki aðeins stjórn- arkreppa heldur stjórnkerfis- kreppa. Þetta er afleiðing af van- rækslusynd Alþingis áratugum saman, sem er sú að skjóta á frest endurskoðun stjórnarskrárinnar. Meðal þess, sem þarfnast endur- skoðunar er stjórnskipulegt hlut- verk forsetans, sem aldrei var hugsað til hlítar. Auk þess var 26. gr. stjórnarskrárinnar um mál- skotsréttinn frá upphafi vanhugs- uð með þeim afleiðingum, að ákvæðið hefur reynzt ónothæft eins og dæmin sanna. Sá sem vill „virkja Bessastaði“ sem sjálf- stætt stjórnvald í krafti umboðs þjóðarinnar mun því hvarvetna reka sig á takmörk valdsins, láti hann á reyna. Forsetinn situr því í „táknrænni tignarstöðu“. Þrátt fyrir þjóð- kjörið er hann eins og „kóngur eða drottning án kórónu“. Virkur stjórnmálamaður, sem sækist eft- ir því að setjast að á Bessastöðum til að beita þar formlegu valdi for- setans í samræmi við sannfæringu sína, fer villur vegar eða er að reyna að villa á sér heimildir. Sá sem situr á Bessastöðum er „sezt- ur í helgan stein“.“ Þessi orð lét Jón Baldvin Hannibalsson falla, þegar hann útskýrði þá ákvörðun sína að gefa ekki kost á sér við forsetakjör á árinu 1996. Sú athugasemd hans að nýting forseta á 26. gr. stjórn- arskrárinnar mundi leiða til „stjórnkerfiskreppu“ lýsir í einu orði og í hnotskurn því, sem ger- ast mundi. Þjóðin þarf ekki á stjórnkerfiskreppu að halda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.