Morgunblaðið - 18.05.2004, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 18.05.2004, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2004 29 SAMKVÆMT stjórnsýslulögum er starfsmaður í stjórnsýslunni vanhæfur til meðferðar máls, ef málið er á annað borð þess eðlis, án tillits til þess hvers efnis ákvörðun hans verður. Má sem dæmi nefna að ráðherra telst van- hæfur og ber að víkja sæti ef náfrændi hans eða náfrænka sækir um leyfi sem ráð- herrann veitir lögum samkvæmt. Skiptir þá engu máli hvort ráðherrann hyggst veita leyfið eða synja um það. Í samræmi við þessa reglu og aðrar vanhæfisreglur tel ég að það eigi ekki að skipta máli hvort for- seti Íslands staðfestir lagafrumvarp, sem Alþingi hefur sam- þykkt, eða hvort hann synjar frum- varpi staðfestingar, þegar skorið er úr um það hvort hann teljist vanhæfur til meðferðar málsins skv. 26. gr. stjórn- arskrárinnar. Mér vitanlega hefur það aldrei áður komið til álita að forsetinn telj- ist vanhæfur til þess að staðfesta laga- frumvarp, jafnvel þótt það frumvarp hafi varðað hann sjálfan einstaklega. Sem dæmi um það má nefna frumvarp til laga nr. 84/2000 um afnám lagaákvæða um skattfrelsi forseta Íslands, sem Ólafur Ragnar Grímsson staðfesti sem lög, og Davíð Oddsson forsætisráðherra ritaði undir með honum. Í grein, sem birtist í Morg- unblaðinu í gær, lýsir forsætisráð- herra þeirri skoðun sinni að for- seti geti aldrei talist vanhæfur, þegar hann staðfestir laga- frumvarp, heldur einungis þegar hann synjar frumvarpi staðfest- ingar. Enda þótt ég sé ekki sam- mála þessari skoðun ráðherrans, eins og að framan greinir, fæ ég ekki séð að Ólafur Ragnar Gríms- son væri vanhæfur til þess að synja fjölmiðlafrumvarpinu, sem svo er nefnt, staðfestingar ef til kæmi. Vegna þess að um er að ræða þátttöku forseta í lagasetningu er eðlilegt að um vanhæfi hans gildi sömu reglur og um alþingismenn. Um það atriði virðast prófess- orarnir Björg Thor- arensen og Jón Stein- ar Gunnlaugsson vera mér sammála. Sam- kvæmt lögum um þingsköp Alþingis taka þingmenn þátt í atkvæðagreiðslu um öll mál, hvers eðlis sem þau eru. Einu undantekninguna frá þeirri meginreglu er að finna í 4. mgr. 64. gr. laganna, þar sem orðrétt segir: „Enginn þingmaður má greiða atkvæði með fjárveit- ingu til sjálfs sín.“ Í álitsgerð, sem Páll Hreinsson prófessor tók saman fyrir for- seta Alþingis fyrr á þessu ári, að gefnu til- efni, er þetta ákvæði skýrt með svofelldum hætti: „Ákvæðið hefur verið skýrt svo að það taki einvörðungu til þess tilviks þegar mælt er fyrir um fjár- veitingu til þingmanns persónulega.“ Sama skýring á ákvæðinu kemur fram hjá Einari Arnórs- syni, prófessor og ráðherra, í riti hans, Réttar-saga Alþingis, sem út kom 1937. Í fjölmiðlafrumvarpinu svo- nefnda er ekki mælt fyrir um fjár- veitingu til Ólafs Ragnars Gríms- sonar persónulega eða fyrirtækis í eigu hans. Þegar af þeirri ástæðu væri hann þar með ekki vanhæfur til þess að synja frumvarpinu staðfestingar, hvað sem líður ágreiningi um vanhæfi forseta að öðru leyti. Vanhæfur stundum, en stundum ekki? Eiríkur Tómasson fjallar um vanhæfi Eiríkur Tómasson ’Í fjölmiðla-frumvarpinu svonefnda er ekki mælt fyrir um fjárveitingu til Ólafs Ragn- ars Grímssonar persónulega eða fyrirtækis í eigu hans. ‘ Höfundur er prófessor í stjórnskipunarrétti við lagadeild Háskóla Íslands. LÖGFRÆÐI og lagaþekking er þessa dagana snar þáttur í um- fjöllun um þjóðmálin. Nú er rætt, hvort forseti Íslands geti orðið vanhæfur til að synja lögum stað- festingar, hafi hann á annað borð vald til þess að taka slíka ákvörð- un sjálfur án atbeina ráðherra. Sumir lögfræðingar virðast telja, að forsetinn geti aldrei orðið van- hæfur. Eiríkur Tómasson nefnir, að forsetinn hafi á árinu 2000 stað- fest lög sem afnámu skattfríðindi hans. Enginn hafi talið hann van- hæfan þá. Virðist hann draga af þessu þá ályktun að vanhæfi geti ekki komið til þegar forseti á í hlut. Ef við gerum ráð fyrir að lög séu sett sem lækka kaup forseta sýnist Eiríkur telja, að vanhæfis- reglur myndu ekki hindra forset- ann í að synja þeim staðfestingar Í sjálfu sér eru sjónarmiðin um að forseti geti ekki orðið vanhæf- ur til starfa sinna fullgild. Ástæð- an er þá sú, að forsetinn tekur engar ákvarðanir sjálfur, heldur veitir aðeins ákvörðunum annarra formlega staðfestingu, oftast ráð- herra en í þessu tilviki Alþingis. Alveg er ljóst, að staðfesting for- seta á lagafrumvörpum gerist á ábyrgð ráðherra. Menn halda því hins vegar fram, að forsetinn megi synja frumvörpum staðfestingar án nokkurs atbeina ráðherra. Sé þetta rétt, sem vel má vera, er al- veg ljóst, að hann ber sjálfur ábyrgð á slíkri ákvörðun. Varla telja menn að ráðherrann sem óskaði eftir staðfestingu forseta á frumvarpinu beri ábyrgð á synjun hans. Það verður að teljast vera grunnregla í íslenskri stjórnskip- an, að handhafi stjórnvalds, sem tekur ákvörðun um meðferð þess og ber á henni ábyrgð, geti orðið vanhæfur við töku ákvörðunar sinnar. Að öðrum kosti gæti hann tekið ákvörðun um hagsmuni sjálfs sín eða nákominna ættingja sinna og misfarið með vald í þágu einkahagsmuna sinna. Vel má vera að reglur um vanhæfi forseta við ákvörðun um að synja lögum staðfestingar standi nær vanhæf- isreglum um alþingismenn en þeim vanhæfisreglum sem taldar eru gilda hjá framkvæmdarvalds- höfum (í stjórnsýslu). Alþingis- menn mega ekki samkvæmt þing- skapalögum greiða atkvæði með fjárveitingu til sjálfra sín. Ætla verður, að sú regla sé ekki bundin við þetta heldur geti líka gilt um hliðstæð tilvik. Ef til dæmis um væri að ræða fjárveitingu til aðila sem alþingismaður hefði fjárhags- legar skuldbindingar við, gæti hann viljað endurgjalda aðila með atkvæði sínu um fjárveitingu til hans. Til þess yrði hann vanhæfur eftir lögjöfnun frá reglunni. Í tilviki forsetans og fjölmiðla- laganna er staðan sú, að forstjóri Norðurljósa er formaður félags, sem staðið hefur straum af kostn- aði forsetans við að reka kosn- ingabaráttu og ná kjöri í embætt- ið. Þar er sjálfsagt um drjúgar fjárhæðir að ræða. Fyrirtækið, starfsmenn þess og fjölmiðlar, sem það rekur, hafa sent forset- anum ákall um að staðfesta ekki lögin. Ef hann verður við þeim áskorunum er að minnsta kosti hugsanlegt, að ástæðan sé vilji til að endurgjalda fjárstuðninginn í kosningabaráttunni. Í vanhæfis- fræðum er m.a. talið að ekki sé nóg að sá sem fer með ákvörðun- arvald sé í raun og veru hlutlaus, hann þarf einnig að virðast vera það. Það er hreinn og klár misskiln- ingur ef menn halda að forseti Ís- lands sé eini handhafi opinbers valds í landinu, sem geti tekið ákvarðanir í málum sjálfs sín eða nátengdra aðila, sjálfum sér eða þeim til hagsbóta. Það er heldur engin þörf á því að hann taki slík- ar ákvarðanir, því stjórnarskráin kveður á um að handhafar for- setavalds skuli gegna störfum fyr- ir hann þegar hann getur ekki gegnt þeim sjálfur. Verður forseti aldrei vanhæfur? Höfundur er prófessor. Jón Steinar Gunnlaugsson Í UMRÆÐUM á Alþingi sl. laugardag las Björn Bjarnason dómsmálaráðherra bréf sem mér var skrifað fyrir rúmum tveimur árum. Morgunblaðið fjallar um þennan lestur á mánudag og hirð- ir ekki um að leita upplýsinga hjá mér, viðtakanda bréfsins, þótt dómsmálaráðherra hafi beint spurningu til mín úr ræðustól. Sú spurning verður að fyrirsögn blaðsins: „Hvers vegna taka menn ekki svona bréf alvarlega?“ Með þessari yfirsjón í venjulegri blaða- mennsku er blaðið áreiðanlega ekki að ganga erinda eins eigenda sinna, Björns Bjarnasonar. Svarið við spurningu Björns Bjarnason- ar hef ég löngu gefið. Honum sjálfum. Fyrir rúmu ári sendi Björn Bjarnason mér afrit af um- ræddu bréf og spurði hvort ég kannaðist við. Svar mitt 16. mars í fyrra var svona: Sæll Björn, þakka þetta. Ég minnist þess að hafa séð þetta eða svipað bréf í vor leið og tók það ekki alvarlega, frómt frá sagt. Ég hafði ekki þá, frekar en nú, ástæðu til að telja að þessi end- ursögn af samtali við þáverandi framkvæmdastjóra Samfylking- arinnar lýsti raunveruleikanum við fjármál Reykjavíkurlistans. Mér fannst því ekki tímans virði að elta uppi hvað fór nákvæmlega á milli þessara tveggja manna. Kveðja, Stefán Jón. Flóknara er málið ekki. Björn Bjarnason hefur haft umrætt bréf undir höndum í rúm tvö ár, gengið í gegnum tvennar kosningar og ótal umræður um fjármál stjórn- mála – en látið kyrrt liggja. Vænt- anlega vegna þess að hann sjálfur tók ekki efni bréfsins alvarlega. Hann hefur í rúmt ár haft undir höndum skýrt svar frá viðtakanda bréfsins um viðbrögð við því. Núna, í umræðum um önnur mál, tekur hann sig til og les það á Al- þingi; spyr með þjósti spurningar sem svarað var fyrir meira en ári. Svarið er einfalt: Ég hef ekki nú, frekar en þá, ástæðu til að taka þetta bréf alvarlega. Frómt frá sagt. Hvernig á að taka svona menn alvarlega? Höfundur er borgarfulltrúi og formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar. Stefán Jón Hafstein UMRÆÐAN um fjölmiðlamál- ið sk. er farin úr böndunum og er nú komin á stig sem hvorki er bjóðandi þingi né þjóð. Vikum saman hafa allir þeir innan þings og utan, sem telja fjölmiðlafrum- varpið gallaða hrákasmíð, mátt sitja undir því að vera taldir sér- stakir Baugsliðar. Nú síðast þjóð- kjörinn forseti Íslands sem hefur ekkert tjáð sig um málið en unnið sér það til óhelgi að vera heima með þjóð sinni meðan stormurinn geisar. Það lagðist lítið fyrir forsætis- ráðherra í viðtali við Ríkissjón- varpið sl. föstudag og hafa fáir orðið til að mæla framgöngu hans þar bót. Einn hugumstór riddari fer þó fyrir litlum flokki manna sem er tilbúinn til að beita öllum tiltækum vopnum megi það verða herra hans að liði. Það er dóms- málaráðherrann. Í þingsal sl. laugardag lagði hann upp í und- arlegan herleiðangur og dró upp úr pússi sínu ríflega tveggja ára gamalt bréf sem hann taldi skyndilega tímabært að gera op- inskátt. Bréfið felur í sér tilhæfu- lausar ásakanir í minn garð og Reykjavíkurlistans sem marg- sinnis hefur verið svarað við önn- ur tilefni. Við það er í sjálfu sér engu að bæta. Því miður verðum við samt að búa við það að óprúttnir sjálfstæðismenn, eins og dómsmálaráðherrann, kjósa að halda lífi í þessum óhróðri. Þeir vita að dropinn holar stein- inn – ekki vegna þess að hann falli svo þungt til jarðar heldur vegna þess að hann fellur svo oft. Í sjálfu sér er það ekki í frá- sögur færandi þó að dómsmála- ráðherrann fari fram af meira kappi en forsjá – það er alvana- legt. Hitt er athyglisvert að hann skuli nú svo rökþrota og ringl- aður að hann fálmi eftir öllu sem hönd á festir til að koma höggi á mig sem pólitískan andstæðing sinn. Þegar lágkúran ein er eftir Höfundur er varformaður Samfylkingarinnar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir æðisl- st í við un eg lflutn- r að sta n- þingi ým- fi ver- ots- að s- nnar, ndum ing- ru i því rðar r orð- ða. eitun lögur hann nd- ekki ki neit- herra ða til- erra um myndun ríkisstjórnar? Eðli málsins samkvæmt er slík neitun þýðingarlaus og synjun á forseta á staðfestingu er það líka, ef ráð- herra er andvígur synjuninni. Sagt er að forseti sé þjóðkjör- inn (eins og allir vita) og með ein- hverjum hætti er það talið styðja að hann hafi málskotsréttinn per- sónulega. Ekki er staf að finna þessu til styrktar í stjórnarskránni. Hið sama er að segja um hugleið- ingar utan úr himinblámanum um að í 2. gr. stjórnarskrárinnar, sem fjallar um skiptingu ríkisvaldsins, felist að 13. gr. eigi ekki við 26. gr. Eg hef nú lokið við að telja þau rök, sem ástæða er til að taka fram í stuttri grein. Því verður að bæta við, að í umræðunni undanfarið hef- ur sumt verið illa til þess fallið að skýra málið. Eg læt nægja að nefna eitt dæmi. Föstudaginn 14. maí var í aðalfréttatíma ríkissjónvarpsins settur á skerm texti 26. gr. stjórn- arskrárinnar, en 13. gr. var ekki nefnd og því síður sett á skerm. Síðan kom prófessorinn í stjórn- skipunarrétti við Háskóla Íslands fram og lýsti þeirri sannfæringu sinni, að skoðun prófessors Sig- urðar Líndal væri rétt. Eðlilegur, réttur og sanngjarn fréttaflutn- ingur hefði verið að segja, hvaða álitaefni hér er á ferðinni og láta 13. gr. koma fyrir augu sjónvarps- áhorfenda. Vanda hefði mátt frétt- ina enn meira með því að nefna stjórnarskrárgreinar, sem hér hef- ur ekki verið vikið að (11., 14. og 19. gr.) og skýra sjónarmið Þórðar Bogasonar, sem stuttlega eru nefnd hér að ofan. t? Höfundur er fyrrverandi prófessor og dómari. egir í ár- með er í ann- .‘ meinist, m sam- rir að- era að n rök. erið að rð geti æman. il að kaupir é síður san til hætta mruna búi þau sjónarmið að draga úr samkeppni en að auka hag- kvæmni. Williamson segir að fræði- greinin hafi í upphafi snúist að mestu leyti um rannsókn á sam- keppnismálum og samrunum fyr- irtækja, en í seinni tíð hafi sviðið víkkað út. Nýju stofnanahag- fræðinni hafi til að mynda verið beitt á opinber fjármál, sem snú- ist um velferðarmál, skattlagn- ingu, tekjutilfærslur og almenn afskipti ríkisins. Beitt á vinnumarkaðinn Stofnanahagfræðinni segir Williamson að sé einnig beitt á vinnumarkaðinn. Þar velti menn því fyrir sér hvernig samningar eigi að vera milli atvinnurekenda og launþega. Fjallað sé um hve- nær það borgi sig að gera launa- samninga með auknum skilmál- um sem tryggi rétt launþega, svo dæmi sé tekið. Þá sé eitt álita- málið hvenær það borgi sig að þjálfa starfsmenn upp á tilteknu sviði sem nýtist einungis því fyr- irtæki eða þeirri atvinnugrein sem þeir starfa við, en geri þá um leið síður hæfa til að starfa hjá öðrum fyrirtækjum. Starfsmennirnir geti haft áhyggjur af því að lokast inni í tiltekinni atvinnugrein, því að ef hún lendi í niðursveiflu verði þeir að taka á sig skert kjör þar sem þeir hafi ekkert annað að leita. Það sé augljóslega betra bæði fyrir lauþega og vinnuveitendur ef hægt er að gera samninga sem veitir launþegunum þokkalega tryggingu fyrir því að komið verði vel fram við þá þrátt fyrir að aðstæður breytist. Þetta snúist um það að gera trúverðuga samninga sem er eins og áður sagði stór þáttur í fræði- grein Olivers E. Williamsons. rfum smála E. u rfason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.