Morgunblaðið - 18.05.2004, Blaðsíða 22
AUSTURLAND
22 ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Fullbúð
af hjólu
m
VIVI Moto Cross
12” Silfur/Rautt,
kr. 10.830 stgr.
14” Blátt/Gult,
kr. 11.970 stgr.
16” Gult/Svart,
kr. 12.825
Gæðam
erki á fr
ábæru v
erði
Þú ferð vel með GIANT
GIANT MTX 200
AluxX F/S 20”
Ál stell og demparagaffall,
Verð aðeins kr. 21.755 stgr.
H
ön
nu
n:
G
un
na
r
S
te
in
þó
rs
so
n
/ M
ar
ki
ð
/ 0
5.
2
00
4
/ #
2
Hjólin eru afhent tilbúin til notkunar,
samsett og stillt á fullkomnu reiðhjóla-
verkstæði. Ábyrgð og upphersla.
Vandið valið og verslið í sérverslun.
Upplýsingar um raðgreiðslur
veittar í versluninni
Hjálmar mikið úrval
Barna og fullorðins
Afsláttur strax
við staðgreiðslu 5%
GIANT Fjallahjól
með dempara
20” MTX 125 kr. 18.905 stgr.
24” MTX 225 kr. 24.605 stgr.
GIANT Fjallahjól
tveggja dempara
20” MTX 125 DS kr. 21.755 stgr.
24” MTX 225 DS kr. 27.455 stgr.
GIANT MTX 240
AluxX F/S 24”
Ál stell og demparagaffall,
Verð aðeins kr. 26.505 stgr.
GIANT GSR F/S LDS 26”
Alvöru dömu demparahjól.
Verð aðeins kr. 24.605 stgr.
GIANT GSR F/S GTS 26”
Alvöru herra demparahjól.
Verð aðeins kr. 24.605 stgr.
GIANT GSR AluxX F/S 26”
Ál stell og
demparagaffall,
Verð aðeins
kr. 29.925 stgr.
SCOTT Tampico Shimano Deore,
Rock Shox Judy gaffall
Verð kr. 63.935 stgr.
SCOTT Tiki Ál dömustell, dempari.
Fæst einnig með brettum og böggla-
bera. Verð kr. 35.910
stgr.
þríhjól, vönduð
og endingargóð,
margar gerðir
með og án skúffu
Risinn í fjallahjólum. Einn stærsti hjólaframleiðandi
heims, margfaldur sigurvegari í hjólreiðakeppnum og
gæðakönnunum. Frábær hjól á ótrúlega góðu verði.
Transporter
kr. 5.890 stgr.
Super Lucy,
einig til rautt
og ljósblátt,
kr. 5.130 stgr.
Sport
kr. 6.080 stgr.
VIVI Lampo/Flamingo
12” Lampo, tilboð
kr. 9.215 stgr.
14” Flamingo, tilboð
9.975 stgr.
Mikið úrval af
Walt Disney
hjólahlutum
Fjaðrandi
stellfesting,
púðar og
öryggisólar.
Einnig til með
svefnstillingu
Hjólakerrur
fyrir börn
og vörur
SCOTT Voltage YZ4
Octagon ál stell, dempari
Verð kr. 35.910 stgr.
Barnahjól með hjálpardekkjum og
fótbremsu. Létt, meðfærileg
og endingargóð.
VIVI Pretty Girl
Verð kr. 11.970 stgr.
F l o t t o g v ö n d u ð f j a l l a h j ó l
Reyðarfjörður | Á Reyðarfirði er nú verið að
hefja byggingu á fjórum fjölbýlishúsum,
hverju með 26 íbúðum. Það er fyrirtækið
Leiguíbúðir í Fjarðabyggð, í eigu Franz Je-
zorskis fasteignasala og Ágústs Benediktsson-
ar, sem byggja húsin í samvinnu við Bygg-
ingaverktaka Austurlands. Það fyrirtæki
stofnuðu þeir aftur með Fasteignafélagi Aust-
urlands. Saman ætla þessi fyrirtæki að byggja
um tuttugu þúsund fermetra af íbúðarhúsnæði
á Austurlandi á næstunni, fyrir um 2,5 millj-
arða króna.
Leiguíbúðir í Fjarðabyggð eiga lögheimili
sitt eystra og renna því skattar og skyldur af
verkefninu á Reyðarfirði, sem áætlað er að
muni kosta um 1,4 milljarða króna, til Fjarða-
byggðar.
Fjölbýlishúsin létta á þörfinni
„Þetta verða allt leiguíbúðir og koma til með
að vera mjög aðgengilegar fyrir fólk sem vill
flytja í Fjarðabyggð án þess að binda sig strax
við húsakaup,“ sagði Franz Jezorski í samtali
við Morgunblaðið, þegar gengið var frá fjár-
mögnunarsamningum við KB banka á dögun-
um. „Húsin eru á Oddnýjarhæð á Reyðarfirði
og vel staðsett, steinsnar frá allri þjónustu,
eins og íþróttahúsi, grunnskóla og leikskóla.
Þetta eru fjölskylduvænar leiguíbúðir með fínu
útsýni, standa mjög skemmtilega rétt við sjó-
inn og húsin taka ekki útsýni af neinum. Þarna
var bara melur fyrir og efsti hæðarkvótinn á
húsunum er lægri en hæðin var. Melurinn hef-
ur verið hálfgert vandamál, staðið af honum
sandfok þannig að ásýndin gjörbreytist. Íbúð-
irnar eru fullbúnar með öllum innréttingum og
lóðin verður einnig fullfrágengin. Þá verðum
við með íbúðir fyrir fatlaða á jarðhæð, með
góðu aðgengi. Húsin verða grantítklædd að ut-
an, klædd að hluta til með áli og sedrusviði og
við leggjum áherslu á að hönnun falli inn í um-
hverfið eins og kostur er.
Það er fyrirséð að gríðarleg þörf er á hús-
næði í Fjarðabyggð og á Austurlandi öllu og
fjölbýlishúsin koma til með að létta mikið á
þörfinni.“
Franz segir að varanleg þörf sé á um 400
nýjum íbúðum í Fjarðabyggð. „Við erum með
104, aðrir byggingaraðilar með um 200 sem
verið er að fara af stað með núna. Það er engin
spurning að framtíðarþörf er fyrir þessar íbúð-
ir. Áætlað er að í Fjarðabyggð flytji varanlega
1.500 til 2.000 manns og þar af 600 sem vinna
bara í álverinu og hafa með sér fjölskyldur.
Manni hefur fundist fólk varla trúa hversu stór
þessi sprenging muni verða, en þörfin er að
skapast núna.“
Franz segir Bechtel, byggingaraðila álvers-
ins, hafa sýnt því áhuga að fá eitthvað af leigu-
íbúðunum undir sitt fólk, en vilji jafnframt
dreifa því víðar í bæinn.
Hvert hús steypt upp
á þremur mánuðum
„Við reiknum með að verða með um 70
manns í vinnu við byggingarnar og erum með
nýjar græjur; nýjustu tækni í öllum mótum“
segir Franz. „Við náum upp gríðarlegum hraða
með þessu og ætlum að reyna steypa hvert hús
upp á þremur mánuðum. Við höfum auglýst
mikið á svæðinu og erum búnir að ráða nokkuð
af mannskap. Það liggur þó fyrir að við náum
ekki að manna þetta héðan, því staðan er þann-
ig núna að það er ekki hægt að fá nokkurn iðn-
aðarmann í verk í Fjarðabyggð, svo mikil er
ásóknin. Við munum þó nýta alla iðnaðarmenn
sem við mögulega komumst yfir úr sveitarfé-
laginu, svo framarlega sem menn eru að vinna
á eðlilegu verði.“
Leiguverð svipað og í höfuðborginni
Reiknað er með að fyrsta húsið verði tilbúið í
júlí á næsta ári. Afhendingartími er þá frá
árinu 2005 og síðasta húsið verður afhent árið
2007.
Um leiguverð íbúðanna segir Franz að
reikna megi með því sambærilegu og í Reykja-
vík, ca. 1.000 til 1.100 kr. á fermetrann, en hann
telur þó óábyrgt að fullyrða nokkuð um slíkt að
svo stöddu. „Byggingarkostnaður er í öllu falli
svipaður í Fjarðabyggð og í bænum. Það er
meiri kostnaður fólginn í að halda mannskap
uppi úti á landi, efni kostar meira en í Reykja-
vík og mikið efni er aðflutt úr bænum. Á móti
kemur lægra lóðarverð, en þetta jafnast allt út
á endanum.“
Þrjúhundruð íbúðir byggðar í Fjarðabyggð á næstunni – vantar hundrað til að mæta framtíðarþörf
Iðnaðarmanna
leitað logandi ljósi
Gott útsýni úr gluggunum: Fjölbýlishúsin fjögur sem rísa munu á Oddnýjarhæð á Reyðarfirði.
Djúpivogur | Nýlega var opnuð sýn-
ing á myndverkum nemenda í 1.–5.
bekk í Landsbankanum á Djúpa-
vogi Verkin eru margskonar;
vatnslitamyndir, keramik, klippi-
myndir og grafík. Þau eru öll unnin
í myndmenntatímum hjá Steinunni
Björgu Helgadóttur myndmennta-
kennara í vetur. Sýningin er opin á
afgreiðslutíma bankans til maíloka.
Morgunblaðið/Sólný Pálsdóttir
Barnsleg djúphygli á bankavegg
Seyðisfjörður | Nemendur í grunn-
skólanum á Seyðisfirði luku á dög-
unum síðasta samræmda prófinu,
sem var í stærðfræði. Þau brugðu á
leik eftir prófið og heimsóttu varð-
skipið Tý. Varðskipsmenn tóku
krökkunum vel og sýndu þeim skipið
frá stefni aftur í skut. Hámarki náði
heimsóknin þegar krakkarnir fengu
að skola af sér próflúann í brimsölt-
um sjónum. Íklædd björgunargöll-
um stukku þeir frá borði og út í sjó,
sumum þótti það háskalegt en kom-
ust svo á bragðið og stukku aftur og
aftur og aftur …
Ljósmynd/EBB
Buslað í bárunum
Fréttir á SMS