Morgunblaðið - 18.05.2004, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Grettir
Smáfólk
ODDI MAN EKKI HVERT HANN
SETTI BEINIÐ SITT
RÉTT? ÞETTA ER BARA TEGUND AF
GLERAUGUN Á NEFINU KVILLANUM
ÞETTA HLAUT AÐ
GERAST...
ODDI ER BÚINN AÐ ELLTA
SKOTTIÐ SITT OF OFT
NÚNA ER ÞAÐ BÚIÐ AÐ
FELA SIG FYRIR HONUM
Í DAG
ER FYRSTI
DAGURINN
ÞEGAR
NÝI RITARINN
KEMUR
BYRJAR
VINNAN
ÉG HÉLT
AÐ ÉG
FENGI
BETIR
RITARA...
Risaeðlugrín
© DARGAUD
ÉG FLUTTI AÐALEGA ÚT AF NÁGRÖNNUNUM. ÞAÐ VAR
HRÆÐILEGT AÐ BÚA VIÐ ALLAN ÞENNAN HÁVAÐA
ÞAÐ VAR EINS GOTT. ÞESSI HELLIR LOSNAÐI Í
FYRRADAG OG ÉG GAT FLUTT INN STRAX
GJÖRIÐI
SVO VEL
OOOO EN
FALLEGT! MIKIÐPLÁSS!
ÞÆGILEGT! OGHLJÓÐBÆRT
FYRVERANDI LEIGJANDINN
KVARTAÐI UNDAN RAKA.
SJÁIÐ! ÞAÐ ER BARA EINN
VEGGUR SEM ER RAKUR
KOMUM
NÆR
HÉR ER
HANN
ÉG ÁKVAÐ AÐ INNRÉTTA
ÞENNAN HLUTA HELLISINS SEM
BAÐHERBERGI. ÉG ÞARF AÐ
REISA 3 VEGGI KRINGUM ÞAÐ
OG ÞÁ ER KOMIN...
ÞÁ ER
KOMIN...
STURTA!
JÁÁÁ! EKKI
VITLAUST
GÓÐ
HUGMYND!
HENTUGT!
MIG LANGAR NÆSTUM AÐ PRÓFA HANA
MIG
LÍKA
MIG
LÍKA
EKKERT MÁL!
LÁTIÐ YKKUR
LÍÐA EINS OG
HEIM HJÁ YKKUR
ÉG ER ÁNÆGÐUR
AÐ SJÁ HVAÐ ÞIÐ
ERUÐ UPPTEKNIR
AF HREINLÆTI
ROSALEGA
ER ÞETTA
GOTT!
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÞEGAR Danir ráku hér einokunar-
verslun voru landsmenn óánægðir
með það einræði sem ríkti í viðskipt-
um og fögnuðu er þeir losnuðu und-
an þeim viðskiptaháttum. Vegna
þeirrar reynslu bjóst maður tæplega
við að viðskiptaráðherra myndi sam-
þykkja að á Íslandi yrði búið til sér
einokunarfyrirbæri í viðskiptum.
Þegar ferðast er um landið þurfa
menn víðast hvar að kaupa bensín í
gegnum kortasala við tankinn. Þó
þetta fyrirkomulag geti verið til
þæginda fyrir ferðamenn, á þeim
tímum þegar veitingaþjónusta er
lokuð, ætti ekki að þröngva þessum
viðskiptamáta upp á fólk, sem eina
valkost til að greiða fyrir eldsneyti á
bílinn.
Þar sem flestar bensínstöðvar
stunda veitingasölu, sé ég ekki
hvaða ástæða er fyrir því að fólk fái
ekki að borga inni við kassann.
Kostnaðurinn við það er varla svo
mikill að hann ætti að sliga olíufélög-
in fjárhagslega. Sérstaklega þegar
til þess er litið að viðskiptavinir olíu-
félaganna eru búnir að aðstoða olíu-
félögin við að útrýma heilli stétt
manna, sem var með samningsbund-
inn rétt til starfsins, eru það raunar
enn, og losa olíufélögin þannig við
greiðslu á samningsbundnum laun-
um og réttindum tengdum starfinu,
sem ætti að vera allverulegur hagn-
aður fyrir olíufélögin. Þess vegna
finnst mér ekki heiðarlegt af olíufé-
lögunum að beita viðskiptavini ein-
okunarvaldi í þessum viðskiptum.
Þessi viðskiptamáti sýnir manni vel
hversu einræðið er orðið áberandi á
Íslandi.
Þar sem fólk þarf að nota pin-
númer til að opna fyrir greiðsluna á
áfyllingu, getur verið erfitt að kom-
ast hjá því að óheiðarlegir aðilar sjái
þegar númerið er stimplað inn þar
sem tölvurnar eru það hátt uppi að
öllum er sýnilegt hvaða tölur eru
notaðar. Síðan fara menn og versla í
sjoppunni, greiða þar með korti og
skilja þá eftir kortanúmer og kenni-
tölu. Með þessar upplýsingar geta
menn gert ýmislegt. Þess vegna tel
ég betra að eigandinn sé einn með
upplýsingar um pinnúmerið.
GUÐVARÐUR JÓNSSON,
Hamrabergi 5,
111 Reykjavík.
Tillitsleysi
í viðskiptum
Frá Guðvarði Jónssyni:
ÞEGAR Doddi var lítill langaði hann
mjög mikið til að eignast lítið
hænsnabú. Hann eignaðist eina litla
hænu og einn lítinn hana. Hann vant-
aði hjálp til þess að litlu hænsnin
hans gætu þrifist og dafnað. Hann
hugsaði með sér að Eyrnastór myndi
hjálpa honum við það. Ekki stóð nú á
hjálpinni hjá Eyrnastórum. Hann sá
til þess að litlu hænsnin hans Dodda
fjölguðu sér og döfnuðu vel. Ein-
staka sinnum ætluðu vond dýr að
ráðast á hænsnabúið en Eyrnastór
og Lási lögga sáu til þess að ekkert
illt henti hænsnin hans Dodda.
Eyrnastór var ánægður með hvað
vel gekk hjá Dodda. Hann ákvað að
gera allt sem hann gæti til að
hænsnabúið hans Dodda gæti
stækkað og þrifist. Hann vildi að all-
ir sem ættu lítil hænsnabú gætu
stækkað þau svo hann gæti fengið
nokkur egg við og við. Vinir Eyrna-
stórs voru hæstánægðir vegna þess
að þeir fengu líka egg og kjúklinga
annað veifið.
Svo kom að því að hænsnabúið
hans Dodda stækkaði svo mikið að
Eyrnastórum varð nóg um. Hæn-
urnar hans Dodda voru nefnilega
farnar að fara inn í garðinn hans
Eyrnastórs. Eyrnastórum fannst
það ekki gott vegna þess að honum
fannst hann ekki lengur ráða yfir
garðinum sínum. Hænurnar hans
Dodda voru orðnar of ágengar.
Svo að Eyrnastór skipti um skoð-
un. Hann sagði að hænsnabúið hans
Dodda væri orðið of stórt og það
þyrfti að skipta því upp. „Það mega
ekki vera bæði varphænur og hanar
á búinu á sama tíma“, sagði Eyrna-
stór. Hann talaði við alla vini sína og
sagði þeim að hænsnabúið hans
Dodda væri orðið alltof stórt. Það
yrði að gelda það svo það stækkaði
ekki meira. Allir vinir Eyrnastórs
tóku undir þetta vegna þess að
Eyrnastór sagði að hann yrði reiður
ef þeir samþykktu það ekki. Nokkrir
refir sem voru vinir Eyrnastórs
gjömmuðu hátt og sögðu alltaf það
sem Eyrnastór sagði þeim að segja.
Næstum öllu fólkinu, sem hafði
keypt egg af Dodda litla, fannst að
Eyrnastór væri nú heldur frekur
vegna þess að eggin hans Dodda
höfðu verið bragðgóð og staðgóð.
Áður fyrr höfðu allir þurft að kaupa
egg af fyrirtækinu Rúvakri, sem
Eyrnastórum var þóknanlegt, en
fólkið var orðið vant því að skipta við
Dodda. Hann bauð nefnilega upp á
góð og fjölbreytt egg.
Vonandi fáum við áfram egg frá
Dodda.
VALDIMAR MÁSSON,
Hamarsgötu 1,
750 Fáskrúðsfirði.
Doddi litli og
Eyrnastór
(sönn saga?)
Frá Valdimar Mássyni: