Morgunblaðið - 18.05.2004, Blaðsíða 19
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2004 19
Kópavogur | Bæjarráð Kópavogs
samþykkti í gær tillögu að breyttu
skipulagi Lundarsvæðis sem felur í
sér að íbúðum verður fjölgað um sex
í 390. Tillagan var samþykkt með
tveimur atkvæðum Sjálfstæðisflokks
gegn einu atkvæði Samfylkingarinn-
ar en Sigurður Geirdal bæjarstjóri
sat hjá. Málið fer fyrir bæjarstjórn á
þriðjudag, þar sem ekki var sam-
staða um tillöguna.
Sigurður segir að gífurleg vinna
hafi verið lögð í skipulagið og að
hann telji það vera orðið „geysilega
fallegt og gott“. Hann segist hafa
setið hjá vegna þess að honum þótti
fyrri tillagan góð. Fannst honum þó
nýja tillagan hafa margt til síns
ágætis. Þá sagðist hann ekki hafa
haft í handraðanum þær upplýsingar
til að geta metið það fyrirvaralaust á
fundinum hvor tillagan myndi reyn-
ast betri.
Gunnar I. Birgisson lagði svo fram
breytingatillöguna og segir í bókun
sem hann lagði fram á fundinum að
breyting sé aðeins minniháttar
snyrting á deiliskipulagi.
Flosi Eiríksson, fulltrúi Samfylk-
ingarinnar, greiddi atkvæði gegn til-
lögunni og segir í bókuninni að ekk-
ert samráð hafi verið haft um
breytingarnar við skipulagsnefnd,
sem hafi samhljóða samþykkt deili-
skipulagið, eða aðra. „Er það í hæsta
máta óvenjuleg framkoma að virða
vilja skipulagsnefndar allrar að engu
og sérstök sending til bæjarfulltrúa
meirihlutans sem sitja í skipulags-
nefnd. Niðurstöðu sem virtist vera
að skapast nokkur sátt um er hér
stefnt í voða,“ segir í bókun Flosa.
Samtök um Betri Lund hafa álykt-
að gegn hugmyndum Gunnars, en í
ályktun þeirra segir m.a. að samtök-
in hafi „…m.a. áhyggjur af því að
fjöldi íbúða væri of mikill og hve fáar
íbúðir eru í sérbýli, en alkunna er að
það er skortur á litlum og meðalstór-
um sérbýlisíbúðum í hverfinu. Þá
vorum við ósátt við að hæstu blokk-
irnar voru enn mun hærri en fólki í
hverfinu þykir ásættanlegt.“
Samtökin segja að svo hafi litið út
sem sátt væri að myndast um málið
vegna lækkunar blokka og fjölgunar
sérbýla á svæðinu. Þá segir í álykt-
uninni: „Sú afgreiðsla bæjarráðs 13.
maí s.l. að fjölga íbúðum kemur okk-
ur í Samtökum um Betri Lund í opna
skjöldu og lýsum við furðu okkar á
þessari niðurstöðu. Bæjarráð tók
þar til umfjöllunar tillögu skipulags-
nefndar, sem hljóðaði upp á 384 íbúð-
ir en ákvað að fjölga íbúðum í 390.
Við áttum okkur ekki á hvaða hags-
munir liggja þarna að baki. Við erum
ekki kunn þeim leikreglum sem gilda
um meðferð mála hjá bæjarráði
Kópavogs en finnst furðulegt að
breytingar skuli bornar upp og sam-
þykktar þegar formaður skipulags-
nefndar hefur vikið af fundi. Hann er
sá aðili sem við höfum verið í sam-
bandi við og sá sem hefur leitt um-
ræðurnar í skipulagsnefnd og hefur
því verið í lykilhlutverki í undirbún-
ingi þeirra tillagna sem fyrir lágu.“
Breytingatillaga fer fyrir bæjarstjórn
Viðey | Fyrsta folaldinu var kastað í Viðey á dög-
unum. Það er hún Fylgja frá Uxahrygg sem er
móðirin og hjálmskjótti stóðhesturinn Engill frá
Refsstöðum sem lagði til aðstoð við getnaðinn.
Folaldið er falleg hryssa og hefur verið nefnd
Tala.
Að sögn Ragnars Sigurjónssonar, ráðsmanns í
Viðey, heilsast bæði móður og folaldi vel. „Krakk-
arnir í skólunum fylgjast mjög vel með því sem er
að gerast hér og spyrja um kindur og folöld. Við
segjum líka frá því sem er að gerast hér þegar
skólahópar koma í heimsókn,“ segir Ragnar.
Fjörugt
folald í Viðey
Ljósmynd/Ragnar Sigurjónsson
Sprækt ungviði: Folaldið er hið hressasta og trítlar við hlið móður sinnar.
Reykjavík | Kjartan Magnússon,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks,
segir mikla reiði ríkja meðal kaup-
manna og annarra þjónustuaðila í
miðbænum vegna þess að enn hafi
ekki verið staðið við samþykkt borg-
arstjórnar frá því í nóvember um að
taka upp 36,6% afslátt af aukastöðu-
gjöldum og 22% afslátt af stöðu-
brotagjöldum. Með umræddum af-
slætti myndi aukastöðugjald lækka
úr 1.500 kr. í 950 ef greitt væri innan
þriggja daga frá útgáfu sektar og
stöðubrotagjöld úr 2.500 í 1.950.
Kjartan segir fulltrúa R-listans
hafa lofað að breytingunni yrði
hrundið í framkvæmd svo fljótt sem
auðið yrði þegar hún var samþykkt.
Breytingin var staðfest af sam-
gönguráðherra og birt í stjórnartíð-
indum í janúar sl. og segir Kjartan
hana þá þegar hafa átt að öðlast
gildi, en R-listinn hafi ekki enn tekið
upp umræddan afslátt, sem gangi
þvert á þau loforð sem hags-
munaaðilum í miðbænum voru gefin.
Sjálfstæðismenn hafa að sögn Kjart-
ans ítrekað spurst fyrir um málið í
samgöngunefnd borgarinnar og
hafa nú tekið málið upp í borg-
arráði.
Stefán Haraldsson, hjá Bílastæða-
sjóði Reykjavíkur, segir skýringuna
á töfinni þá að auglýsing í stjórn-
artíðindum í marsbyrjun hafi farið
fram hjá starfsmönnum Bílastæða-
sjóðs eftir flókið ferli þar sem málið
tafðist vegna færslu málaflokksins
milli ráðuneyta og engin tilkynning
hafi borist um samþykki á breyting-
unum. „En um leið og það uppgötv-
aðist var allt sett á fullt við að koma
á þessum gjaldskrárbreytingum,“
segir Stefán og bætir við að stefnt sé
á að breytingarnar komi í gagnið
strax næsta mánudag, en einhverjar
kerfisbreytingar þarf að gera hjá
Bílastæðasjóði.
Gagnrýnir seinagang
í stöðugjaldamálum