Morgunblaðið - 18.05.2004, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 18.05.2004, Blaðsíða 16
ERLENT 16 ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ PAUL Bremer, æðsti embættis- maður Bandaríkjamanna í Írak, fordæmdi í gær morðið á forseta framkvæmdaráðsins í landinu, sjíta-múslímanum Abdel-Zahraa Othman Mohammed sem einnig gekk undir nafn- inu Izzadine Sal- eem. Hann lét líf- ið ásamt a.m.k. fimm öðrum Írökum, þ.á m. morðingjanum, í sjálfsmorðstil- ræði við banda- ríska varðstöð í gærmorgun. Sex Írakar og tveir Bandaríkjamenn særðust. Bremer sagði morðið hafa verið „viðbjóðslegt“ verk. Fulltrúi Sameinuðu þjóðanna í landinu, Lakhdar Brahimi, harmaði einnig atburðinn og sagði að Írakar hefðu misst einn „dyggasta ættjarðar- sinna“ þjóðarinnar. Framkvæmdaráðið valdi í gær Ghazi Mashal Ajil al-Yawer, verk- fræðing frá Mosul í norðanverðu Írak, til að gegna forsetaembættinu í stað Othmans. Al-Yawer er úr röð- um súnníta en fulltrúarnir gegna að jafnaði embættinu í mánuð í senn. Ljóst er að morðið á Othman er mikið áfall fyrir Bandaríkjamenn sem stefna að því að koma á öryggi og stöðugleika áður en Írakar taka sjálfir við stjórn í lok júní. Utanrík- isráðherra Íraks, Kúrdinn Hoshyar Zibari, sagði að liðsmenn fram- kvæmdaráðsins myndu ekki láta þessa atburði hræða sig en halda áfram að byggja upp nýtt Írak. „Hann vann að falli gömlu stjórn- arinnar og lýðræði í Írak,“ sagði Bremer um Othman sem, var í 25 ár í útlegð í Íran. „Hann sneri aftur til Íraks eftir að það var frelsað, hélt áfram að vinna fyrir þjóð sína og lagði fram geysilegan skerf til vinnu framkvæmdaráðsins.“ Sprakk við hlið bíls Othmans Tilræðismaðurinn ók rauðum Fólksvagni sínum að bílalest fimm vagna. Othman var farþegi í einum bílnum og var farartæki tilræðis- mannsins við hliðina á bíl hans er hann sprakk. Að sögn Bandaríkja- manna splundruðust alls þrír bílar við varðstöðina sem er á vestur- bakka Tígrisfljóts. Talið er að sprengjan hafi ef til vill verið gerð úr fallbyssukúlum og hafi verið í farangursgeymslunni. Abdul Razaq Abdul Karim garð- yrkjumaður varð vitni að tilræðinu. Karim sagðist hafa séð Fólksvagn- inn springa. „Ég sá eldhnött stíga upp í loftið og líkamshlutar voru út um allt. Við tókum þá upp og sumir voru brunnir,“ sagði hann. Fjöldi slökkviliðsbíla og sjúkrabíla kom þegar á vettvang. Othman var úr röðum sjíta og leiðtogi Dawa-hreyfingarinnar í milljónaborginni Basra í sunnan- verðu landinu. Hann var rithöfund- ur og heimspekingur auk þess að vera pólitískur leiðtogi, einnig rit- stýrði hann mörgum dagblöðum og tímaritum. Othman er annar félagi framkvæmdaráðsins sem myrtur hefur verið af tilræðismönnum, áð- ur var kúrdísk kona, Aquila al-Hashemi, myrt. Liðsmenn framkvæmdaráðsins, 25 talsins, voru á sínum tíma skip- aðir af Bandaríkjamönnum sem fengu helstu trúarhópa og flokka til að tilnefna fulltrúa. Margir ráðs- menn eru hins vegar fyrrverandi útlagar og í litlum tengslum við al- menning í Írak. Mark Kimmit hers- höfðingi, talsmaður hernámsliðsins, sagði í gær í sjónvarpsviðtali að at- burðir af þessu tagi sannfærðu menn enn frekar en annað um nauðsyn þess að fyrirhugað valda- afsal í hendur innlendra ráðamanna færi fram í lok júní. Hann taldi lík- legt að liðsmenn al-Qaeda-hryðju- verkasamtakanna hefðu verið að baki tilræðinu. Var nafn Abu Mus- ab al-Zarqawis, háttsetts al-Qaeda- manns, sem talinn er hafa skipulagt hryðjuverk í Írak nýlega, nefnt í því sambandi. Barist í Suður-Írak Bandarískir hermenn héldu áfram að berjast við vopnaðar sveitir sjítaklerksins Moqtada al- Sadrs í Suður-Írak í gær. Voru gerðar loftárásir á stöðvar þeirra í borginni Nasiriyah eftir að sveitir al-Sadrs höfðu hrakið á brott ítalska liðsmenn hernámsliðsins sem höfðu bækistöð í Nasiriyah. Einnig voru gerðar árásir á stöðvar í Kerbala. Ítalskur hermaður dó í gær af völdum sára sem hann hlaut í átök- um á sunnudag. Hafa Ítalir nú misst 20 menn í Írak. Morðið á Othman nýtt áfall fyrir Bandaríkjamenn Sendimaður SÞ segir Íraka hafa misst mikinn ættjarðarsinna Reuters Bandarískur hermaður við flak eins bílsins í Bagdad í gær. Forseti íraska framkvæmdaráðsins lét lífið í tilræðinu. Shuneh í Jórdaníu, Bagdad. AP, AFP.                                             ! #    $          "                 !    !"     #      $ %       !  Abdel-Zahraa Othman SARÍN, banvænt taugagas sem bandarískir hermenn fundu í Írak í gær, var fyrst framleitt í Þýska- landi eftir að nasistar komust þar til valda á fjórða áratug aldarinnar sem leið. Illræmdasta sarínárásin var hins vegar gerð í mars 1998 þegar allt að 5.000 Kúrdar biðu bana í bænum Halabja í Norður- Írak. Her Saddams Husseins, fyrr- verandi forseta Íraks, beitti þá blöndu af saríni, sinnepsgasi og hugsanlega VX, hættulegasta efna- vopninu sem vitað er um. Aum Shinri-trúarreglan í Japan beitti einnig saríngasi í neðanjarð- arlestarstöð í Tókýó árið 1995 með þeim afleiðingum að tólf manns létu lífið og þúsundir manna voru fluttar á sjúkrahús. Meint efna- og sýklavopnaeign Íraka var sögð helsta ástæða inn- rásarinnar í Írak fyrir rúmu ári en þar hafa þó ekki fundist neinar birgðir af vopnunum. Beittu ekki saríni á vígvöllunum Sarín er talið 500 sinnum öflugra en blásýra, sem notuð var til að drepa milljónir manna í útrýming- arbúðum nasista í síðari heims- styrjöldinni. Líkt og aðrar gasteg- undir sem framleiddar voru til hernaðar var sarín aldrei notað á vígvöllunum í stríðinu. Svo virðist sem nasistar hafi ekki viljað beita saríngasinu vegna þess að þeir vissu að bandamenn bjuggu einnig yfir þessu hættulega vopni. Sarín var fyrst þróað sem plágu- eyðir. Taugagasið berst í líkamann við innöndun eða snertingu og truflar virkni ensíms sem klýfur asetýlkólín, þannig að þindarvöðvi lamast og fórnarlambið kafnar þeg- ar lungun fyllast af slími og munn- vatni. Á meðal einkennanna eru ógleði og mikill höfuðverkur, sjóntruflanir, slef, vöðvakrampi, meðvitundarleysi og öndunarstöðvun sem leiðir að lokum til dauða. Jafnvel örlítill skammtur af saríni getur verið banvænn ef taugagasið kemst í öndunarfærin eða ef hör- undið verður fyrir saríndropa. Leiði sarín ekki til dauða getur gasið valdið varanlegum skemmd- um á lungum, augum og mið- taugakerfinu. Nokkur ríki talin eiga sarín Sarín er lyktar-, lit- og bragð- laust og getur haldist á svæðinu í allt að sex klukkustundir, eftir veðri. Taugagasið er búið til úr ýmsum efnum, svo sem fosfór, natríumflú- oríði og alkóhóli, en mikla sér- fræðiþekkingu og sérhæfð tæki þarf til að búa til slík vopn. Nokkur ríki hafa lagt mikla áherslu á að eignast taugagas, með- al annars sarín, enda er það ódýr- ara en kjarnavopn. Aðeins Rússar og Bandaríkjamenn hafa lýst því yfir að þeir eigi birgðir af saríngasi en sérfræðingar telja að nokkur fleiri ríki eigi slík vopn, þeirra á meðal Egyptaland, Íran, Líbýa og Norður-Kórea. Fyrir tveimur árum sakaði Bandaríkjastjórn Sýrlend- inga um að eiga saríngas. Stjórn Saddams Husseins hóf framleiðslu á saríngasi árið 1984 og viðurkenndi árið 1995 að Írakar hefðu framleitt 790 tonn af því. Auk árásarinnar á Kúrda 1988 var stjórn Saddams sökuð um að hafa beitt saríngasi gegn írönskum her- mönnum í stríði Íraks og Írans á níunda áratugnum. Jafnvel Hitler vildi ekki beita saríngasi Bagdad. AFP. Er talið 500 sinnum öflugra en blásýra FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópusambandsins lagði í gær blessun sína yfir samkomulag um að veita bæri bandarískum yfirvöldum upplýsingar um farþega sem ferðast til Bandaríkjanna með vélum evrópskra flugfélaga. Utanríkisráðherrar ESB-landanna samþykktu einnig samkomulagið nokkrum klukkustundum síðar þrátt fyrir andstöðu Evrópuþingsins og mannréttindasamtaka sem telja það brjóta gegn evrópskum lögum um persónuvernd. Framkvæmdastjórnin sagði að samkomulagið fæli í sér „fullnægjandi vernd“ upplýsinga um far- þega frá aðildarríkjunum 25. Án þessa samkomu- lags myndi skapast „lagaleg óvissa“ og bandarísk yfirvöld kynnu að líta svo á að þau væru ekki leng- ur skuldbundin til að standa við fyrri loforð sín um að vernda upplýsingarnar um farþegana. „Með öðrum orðum myndi það þýða ringulreið fyrir evr- ópska farþega og flugfélög,“ sagði Frits Bolken- stein, sem fer með mál innri markaðarins í fram- kvæmdastjórn ESB. Á meðal upplýsinganna eru númer kreditkorta og símanúmer. „Viðkvæmar“ upplýsingar, svo sem matarpantanir sem gætu gefið vísbendingar um kynþátt eða trú farþegans, verða annaðhvort ekki veittar eða að bandarísk yfirvöld „sía þær og eyða þeim“, að sögn Bolkensteins. Þingmenn mótmæla harðlega Evrópuþingið samþykkti með naumum meiri- hluta í síðasta mánuði að skjóta málinu til Evr- ópudómstólsins á þeirri forsendu að samkomulag- ið bryti gegn evrópskum lögum um vernd persónuupplýsinga. Samþykkt þingsins er nú ógild vegna ákvörðunar framkvæmdastjórnarinn- ar og utanríkisráðherranna. Þingmenn sem lögðust gegn samkomulaginu sögðust ætla að leggja fram nýja tillögu um að vísa málinu til Evrópudómstólsins eftir að Evrópu- þingið kemur saman á ný í júlí. Þingmennirnir sökuðu utanríkisráðherrana um „yfirgengilegan hroka“ og sögðu þá hafa sýnt vilja þingsins „full- komna fyrirlitningu“. Komist Evrópudómstóllinn að þeirri niðurstöðu að samkomulagið samræmist ekki evrópskum lög- um gæti Evrópusambandið þurft að breyta eða rifta samkomulaginu. Embættismenn ESB og Bandaríkjastjórnar sögðu að upplýsingarnar yrðu aðeins notaðar í baráttunni gegn hryðjuverkastarfsemi og öðrum alþjóðlegum glæpum. ESB samþykkir að Banda- ríkin fái gögn um farþega Brussel. AP, AFP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.