Morgunblaðið - 18.05.2004, Page 24

Morgunblaðið - 18.05.2004, Page 24
DAGLEGT LÍF 24 ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Það fara ekki allir í gegnumunglingsárin á rósrauðu skýi.Auk þess sem sjálfsmyndin er að mótast gerir umhverfið miklar kröfur. Unglingar þurfa að standa sig í skólanum, vera samvinnuþýð, geta unnið í hópum og tekið ábyrgar ákvarðanir. Unglingar þurfa líka að passa sig á vímuefnum, standast fjölmiðla- og markaðsáhrif, hafa sjálfstæðar skoðanir, leggja sitt af mörkum til fjölskyldunnar, ávinna sér félagslega og verklega hæfni og læra siðferðisleg gildi. Ofan á allt þetta búa unglingar margir hverjir við ruglingslegar heimilisaðstæður, hraða og tímaskort. Til að koma til móts við unglinga hefur Dale Carnegie á Íslandi sett upp nám- skeiðið „Næsta kynslóð“. Blint í sjóinn „Við renndum blint í sjóinn með fyrstu námskeiðin, sem nú eru af- staðin. Haldin voru tvö námskeið, fyrir 13-17 ára og 18-22 ára sem tók- ust bæði mjög vel. Krakkarnir komu úr afskaplega ólíkum áttum og ég held að þau hefðu ekki kynnst undir öðrum kringumstæðum,“ segir Anna Guðrún Steinsen, þjálfari. Hist var vikulega í tíu skipti, hátt í fjóra klukkutíma í senn, og kostar námskeiðið 70 þús. kr. Viðfangsefnin á námskeiðunum eru mýmörg. „Við kennum krökk- unum m.a. að tileinka sér sjálfs- traust og jákvæðni, setja sér raun- hæf markmið, standa upp og tala í margmenni, láta af áhyggjum og kvíða og bara „fíla“ lífið í botn,“ seg- ir Anna. „Námskeiðin byggjast ein- göngu upp á hvatningu, hrósi og að- haldi sem eru mikilvæg tæki í okkar höndum. Við hvetjum þau til að stíga út fyrir þægindahringinn ef þau hafa hug á að ná árangri í lífinu. Þannig verður það smám saman auðvelt á morgun sem var erfitt í gær,“ segir Anna, sem auk þjálf- unarstarfanna vinnur sem tóm- stundaráðgjafi í félagsmiðstöðinni Árseli og er að læra tómstunda- og félagsmálafræði við KHÍ. Hún segir að reynslan lofi góðu um framhald. Stefnt sé að fleiri námskeiðum í maí og með haustinu.  UNGLINGAR|Takast á við nútímakröfur Sjálfstraust og jákvæðni Morgunblaðið/Sverrir Þjálfarinn: Anna Guðrún Steinsen er ekki í vafa um nauðsyn nám- skeiðanna á því tímaskeiði, sem sjálfsmyndin er að mótast. join@mbl.is Hvatning, hrós og að- hald eru helstu tækin á námskeiðum Dale Carnegie. Ánægja ríkir með fyrstu unglinga- námskeiðin. „PABBI minn fór á námskeið hjá Dale Carnegie fyrir þremur ár- um og stakk upp á því við mig hvort ég væri ekki til í að prófa. Ég sé ekki eftir því enda var geð- veikt gaman. Ég var rosalega kvíðin fyrir fyrsta tímann og man að ég hugsaði með mér hvað ég væri nú að koma mér út í. Ég ætti örugglega eftir að gera mig að fífli. Ég þekkti ekki hræðu þegar ég mætti, en núna erum við öll rosalega góðir vinir, spjöllum daglega saman á MSN- inu og ætlum að vera dugleg við að skemmta okkur saman. Það verður stuð,“ segir Guðbjörg Margrét Sigurðardóttir, 17 ára nemi við Iðnskólann í Reykjavík. Pabbinn Sigurður Skagfjörð segist sjá mikinn mun á dóttur sinni eftir námskeiðið. „Hún hef- ur alltaf verið ofsalega skemmti- leg, einlæg og ástrík, en feimin og ekki mikið verið að tjá sig um eigin tilfinningar. Hana hefur vantað trú á sjálfa sig til að stíga þetta viðbótarskref út úr þæg- indahringnum til að kynnast og ná árangri. Nú hefur það breyst og eigum við nú orðið allt annað barn.“ Guðbjörg segist hafa lent í ein- elti og hafi sú reynsla oft verið að sliga sig. „Ég var búin að telja mér trú um að krökkum líkaði ekki við mig, en það er auðvitað bara þeirra mál. Nú er ég ný manneskja,“ segir Guðbjörg sem segist stefna á arkitektúr og kannski leiklist til vara. Guðbjörg fékk í lok námskeiðsins viður- kenningu fyrir bestan árangur, en venja er að þátttakendur kjósi allir einn aðila, sem þeim finnst hafa tekið mestum framförum. „Ég átti alls ekki von á þessu, en brosti auðvitað hringinn þegar ég fékk viðurkenninguna.“  GUÐBJÖRG MARGRÉT SIGURÐARDÓTTIR, 17 ára „Geðveikt gaman“ Morgunblaðið/Sverrir Guðbjörg Margrét: Ásamt föður sínum Sigurði Skagfjörð. „MAMMA og pabbi spurðu hvort ég teldi að námskeiðið gæti verið við mitt hæfi þar sem eitt af markmiðunum var að efla sjálfs- traustið og auðvelda tjáningu. Mér leist þokkalega á og það þurfti ekkert að ganga eftir mér enda er þetta eitt það skemmti- legasta sem ég hef gert um dag- ana,“ segir Arnar Már Haf- steinsson, 16 ára Reykvíkingur. Arnar Már hóf nám við VÍ í haust, en hætti fljótlega og hefur verið að vinna á bílasölu með pabba sínum, en stefnir nú ótrauður á viðskiptabraut FB. „Okkur foreldrunum fannst Arnar Már ekki tjá sig nógu mikið um eigin tilfinningar og vildum gjarnan stuðla að því að hann yrði jákvæðari í eigin garð. Okkur fannst hann þurfa að vera meiri þátttakandi í lífinu og hafa meiri trú á sjálfum sér,“ segir móðirin Hallfríður Karlsdóttir. Hún bætir við að þeir, sem til þekki, finni hvað hann er opnari og jákvæðari enda bersýnilegt frá fyrsta degi að krakkarnir skemmtu sér kon- unglega. Arnar Már segist vera farinn að tileinka sér ýmislegt í mannlegum samskiptum sem hann hafi lært á námskeiðinu. „Mikið var rætt um samskiptareglur og var okkur t.d. kennt að eina leiðin til að forðast deilur væri að sleppa þeim alveg. Okkur voru kenndar leiðir til að hafa stjórn á áhyggjum og streitu og leiðir til að fá mótaðila til að vera samningafúsa og að taka já- kvætt í langanir manns og þrár. Maður er farinn að tileinka sér ýmislegt af þessu í daglega líf- inu,“ segir Arnar Már, sem kann- aðist aðeins við þrjár stelpur á námskeiðinu í byrjun. „Við kynnt- umst öll fljótt og erum öll vinir í dag.“  ARNAR MÁR HAFSTEINSSON, 16 ára „Allir eru vinir“ Morgunblaðið/Sverrir Arnar Már Hafsteinsson: Með móður sinni Hallfríði Karlsdóttur. Sólskyggni henta einstaklega vel fyrir íslenskar aðstæður. Auðvelda þér að njóta útiverunnar í íslenskri veðráttu. OPIÐ frá 10:00 - 18:00, Lau. 11:00 - 15:00 REYKJAVÍK: MÖRKIN 4, S: 533 3500 • AKUREYRI: HOFSBÓT 4, S: 462 3504 Allt fyrir gluggana ! fagm ennsk a í53 ár 5ára ábyr gð 15% afsl . í maí steinsagarblöð járnsagarblöð hringsagarblöð kjarnaborar kjarnaborstandar hand/kjarnaborvélar s: 894 3000 - 894 3005 Túnþökur Ná úruþökur Túnþökurúllur únþökulagnir Áratuga reynsla og þekking                       1 4 4 4 w w w. g u l a l i n a n . i s Gróður og garðar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.