Morgunblaðið - 18.05.2004, Blaðsíða 42
DAGBÓK
42 ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík.
SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222,
auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569
1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald
2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. ein-
takið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Fannborg 5.
Fataúthlutun þriðju-
daga kl. 16–18.
Sími 867 7251.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9 bað
og vinnustofa, kl. 9 jóga,
kl. 13 postulínsmálun.
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað og handavinna, kl.
9–12.30 bókband, kl. 9
leikfimi, kl. 9.30 dans, kl.
9.45 boccia, kl. 13–16.30
smíðar, kl. 20.30 línu-
dans.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8.30–14.30 bað, kl. 9–
9.45 leikfimi, kl. 9–16
handavinna, kl. 10–11.30
sund, kl. 15 boccia. Sími
535 2760.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9 bað, kl. 10
samverustund, kl. 14 fé-
lagsvist.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin og
vefnaður, kl. 13.30
myndband.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Opin vinnu-
stofa 9–16.30, leikfimi kl.
10–11, verslunarferð í
Bónus kl. 12.40, bóka-
bíllinn á staðnum kl.
14.15–15.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 11
leikfimi, kl. 13 föndur og
handavinna. Kl. 15
söng- og harmónikku-
stund í borðsal með Þor-
valdi Björnssyni.
Félagsstarf eldri borg-
ara Mosfellsbæ, Dval-
arheimilinu, Hlaðhömr-
um. Kl. 13–16 föndur og
spil, kl. 16–17 leikfimi og
jóga.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Karlaleikfimi
kl. 13, lokað í Garða-
bergi, kirkjan er með
opið hús í safnaðarheim-
ilinu.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Kl. 9
prjónastund, kl. 10
ganga, kl. 11.30 leikfimi,
kl. 13 saumar, brids,
glerskurður, pútt á
Hrafnistuvelli kl. 14–16.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði.
Skák kl. 13, miðvikud:
Göngu-Hrólfar ganga
frá Ásgarði kl. 10.
Nokkur sæti laus í ferð
um Snæfellsnes 15.–16.
júní, m.a.sigling út í
Flatey. Skráning á
skrifstofu FEB fyrir 19.
maí, s. 588 2111.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, m.a. glerskurður.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 10–17 handavinna,
kl. 9.30 gler- og postu-
línsmálun, kl. 9.05 og kl.
9.55 leikfimi, kl. 10.50
róleg leikfimi, kl. 14
ganga, kl. 14.45 boccia,
kl. 19 brids.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsþjónustan er
opin alla virka daga frá
kl. 9–17. Handavinnu-
stofan er opin frá kl.
13–16. Alltaf heitt á
könnunni.
Hraunbær 105. Kl. 9
postulín og gler-
skurður, kl. 10 boccia,
kl. 11 leikfimi, kl. 12.15
verslunarferð, kl. 13
myndlist og línudans kl.
15 línudans.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9. 30 boccia, kl. 9–16.30
handavinna, kl. 13.30
helgistund.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa,
kl. 10–11 boccia, kl. 14
leikfimi.
Vesturgata 7. Kl. 9.15–
12 skinnasaumur, kl.
9.15–15.30 handavinna,
kl. 9.15–16 postulín, kl.
10.15–11.45 enska, 13–
16 spilað og bútasaum-
ur.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9.30 glerskurður og
morgunstund, kl. 10
leikfimi, kl. 13 hand-
mennt og postulín, kl.
14 félagsvist.
Þjónustumiðstöðin
Sléttuvegi 11. Kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13–
16 keramik, taumálun,
almennt föndur, kl. 15
bókabíllinn.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í Ásgarði, Glæsibæ
kl. 11.
Félag eldri borgara í
Gjábakka. Spilað brids
kl. 19 þriðjud. og kl.
13.15 föstud.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði kl. 20, svar-
að í s. 552 6644 á fund-
artíma.
SÍBS-deildin Vífils-
stöðum. Aðalfundur og
10 ára starfsafmæli er í
kvöld kl. 20 í Múlalundi,
Hátúni 10C.
Sjálfsbjörg, Hátúni 12,
kl. 20 bingó.
Félag áhugafólks og
aðstandenda Alzheim-
er-sjúklinga og annarra
minnissjúkra, aðalfund-
urinn er í kvöld kl. 20 í
húsi ParmaNor í
Hörgatúni 2, Garðabæ.
Hallgrímskirkja eldri
borgarar. Uppstigning-
ardag, 20. maí, verður
farið eftir messu á veit-
ingastaðinn Hafið bláa í
Þorlákshöfn, síðan til
Stokkseyrar á hátíð
sem nefnist Vor í Ár-
borg. Uppl. hjá Dag-
björtu s. 693 6694 eða
510 1034.
Í dag er þriðjudagur 18. maí,
139. dagur ársins 2004.
Orð dagsins: Svo segir
Drottinn allsherjar: Dæmið rétta
dóma og auðsýnið hver öðrum kær-
leika og miskunnsemi.
(Sk. 7, 9.)
Andri Óttarsson gagn-rýnir á Deiglunni
viðbrögð Björns Bjarna-
sonar við áliti umboðs-
manns alþingis um máls-
meðferð dómsmálaráð-
herrans við skipun
hæstaréttardómara á síð-
asta ári. „Í stað þess að
una áliti umboðsmanns
og gera viðeigandi ráð-
stafanir, tók dóms-
málaráðherra aftur upp
þann vafasama sið að
gera lítið úr álitinu og
vægi þess, eins og hann
hafði gert varðandi úr-
skurð áfrýjunarnefndar
jafnréttismála. Hann hélt
því fram að ný sjónarmið
hefðu komið fram í álit-
inu sem hann væri ekki
bundinn af. Einnig að
álitið væri einungis leið-
beinandi fyrir stjórnvöld
í framtíðinni og að það
væri ekki afturvirkt.
Maður getur ekki annað
en spurt í forundran: Síð-
an hvenær er það nýtt
sjónarmið í stjórnsýslu-
rétti að það eigi að ráða í
stöður út frá fyrirfram
skilgreindum mælikvörð-
um á hæfi umsækjenda?
Síðan hvenær er það nýtt
sjónarmið að kanna eigi
hvort allir umsækjendur
fullnægi þessum skil-
greindu kröfum stjórn-
valdsins?“
Andri vekur athygli ááliti umboðsmanns
frá 18. júní 2003, þar sem
fundið er að máls-
meðferð dómsmálaráðu-
neytisins við ráðningu
sýslumanns á Ísafirði. „Í
því áliti tók umboðs-
maður sérstaklega fram
að þegar svo háttar til að
fleiri en einn umsækjandi
uppfyllir lágmarkskröfur
væri óhjákvæmilegt að
fram færi samanburður á
milli viðkomandi um-
sækjenda á grundvelli
þeirra sjónarmiða sem
byggt væri á. Forsenda
þess að slíkur saman-
burður gæti farið fram
væri að þau atriði sem
þýðingu hefðu væru upp-
lýst.“ Andri undirstrikar
að umboðsmaður hafi
sérstaklega beint þeim
tilmælum til dóms-
málaráðuneytisins að
þessara sjónarmiða yrði
framvegis gætt við skip-
un í opinber störf. „Þann-
ig að ekki er nóg með að
engin ný sjónarmið hafi
verið að koma fram varð-
andi brot á rannsóknar-
reglunni heldur hafði
umboðsmaður sett for-
dæmi um beitingu henn-
ar í máli gegn dóms-
málaráðuneytinu.“
Andri veltir því fyrirsér hvort Björn
myndi bregðast við óhag-
stæðum dómi Hæsta-
réttar með því að gera
lítið úr réttinum og úr-
skurði hans, og segir
æskilegt að dóms-
málaráðherrann láti af
árásum á úrskurðaraðila
og íhugi þess í stað hvort
gagnrýni þeirra geti ekki
verið byggð á málefna-
legum grunni. „Það er
ekki mönnum til minnk-
unar að hafa stöku sinn-
um rangt fyrir sér – en
það að læra ekki af
reynslunni og hlusta ekki
á álit annarra er engum
hollt.“
STAKSTEINAR
Ekki ný sjónarmið
Víkverji skrifar...
Víkverji hefur lengi staðið íströngu við að leita orðs í móð-
urmálinu sem komið gæti í stað
enska orðsins „bully“, en næst því í
þýðingu komast orðin hrotti, bulla,
dólgur, tuddi, níðingur og yfirgangs-
seggur. Ekkert þessara orða virðist
þó ná almennilega þeirri meiningu
sem í orðinu „bully“ liggur. Það er
merkilegt að svona stutt orð geti
verið svona þrungið merkingu,
svona sterkt. Það þýðir í senn kúg-
ari, níðingur, sá sem leggur í einelti,
ruddi og ofbeldismaður. Orðið
„tuddi“ er freistandi, þar sem
„bully“ er skylt enska orðinu „bull“
(naut). En orðiðtuddi lýsir ekki vel
hinu flókna samfélagslega samhengi
sem felst í orðinu „bully“. Yfirgangs-
seggur virðist hafa vinninginn, en
það er bara svo langt! Heil fimm at-
kvæði. Það er skrýtið, að Íslend-
ingar, sem nógu lengi hafa lifað við
yfirgang og níðingsskap í skjóli of-
beldis, skuli ekki hafa mótað sér
styttra orð sem nái yfir þessa hug-
mynd. Í raun má segja það furðulegt
að á þúsund árum hafi Íslendingar
ekki náð að temja sér almennt
styttri orð til að lýsa flóknum hlut-
um. Gemsareikningar landsmanna
væru örugglega 20% lægri, væri ís-
lenska jafn knappt mál og kín-
verska, en þar kunna menn að ydda
mál sitt. Víkverji hyggst þó, í sparn-
aðarskyni nota orðið bulla hér eftir.
x x x
Það er mest einkennandi fyrirbullur, að þær geta stundað iðju
sína þótt þær séu fáar. Oft þarf ekki
nema tvær til þrjár bullur til að taka
heilt samfélag og setja það á annan
endann. Svo virðist sem bullurnar
geti látið sér nægja að beita einn ein-
stakling eða tvo ofbeldi strax til að
byrja með og þá þurfi ekki meira.
Búið er að berja samfélagið til
hlýðni.
Dæmi um svona bullu er Rob Mar-iano í Survivor-þáttunum, en
þeir þættir eru um margt nytsam-
legir til að skoða mannlega bresti.
Téður Rob lét ófriðlega og þótt hann
hefði aðeins eina konu sér við hlið,
þorði enginn að fara á móti honum.
Ástæðan virtist vera sú að nokkrir
keppendur ákváðu að öruggara væri
að sitja í skjóli bullunnar heldur en
að vera skotmark hennar. Þetta er
aðferð bullunnar, að hræða fólk til
að standa með sér frekar en á móti.
Þannig hafa bullur heimsins alltaf
náð, í gegnum tíðina, að halda heilu
samfélögunum í gíslingu, með ótt-
anum. Það er ótrúlegt að tveir til
þrír ofbeldismenn geti haldið sam-
félagi tuga, jafnvel þúsunda manna í
ógnargreipum. Það segir sitt um
mannlegt eðli að mennirnir skuli, í
stað þess að rísa upp og kasta bull-
unni og vinum hennar tveim út í
hafsauga, beygja sig í duftið og
„spila með vinningsliðinu, af því það
er öruggara“. En auðvitað endar allt
á sama veg. Þeir sem beygja sig
enda á sama stað. Þeirra leið er bara
lengri og óttafyllri. Víkverji spyr
sjálfan sig hvort slík undirgefni sé
eðlislæg manninum.
Þær eru oft blíðlegar, bullurnar.
Halldór Laxness
UM þessar mundir er verið
að vinna að bók um ævi Hall-
dórs Laxness eftir Halldór
Guðmundsson. Bókin verð-
ur ríkulega myndskreytt og
annast Margrét Tryggva-
dóttir myndritstjórn. Í því
sambandi væri mjög
fróðlegt ef einhverjir
lumuðu á skemmtilegum
ljósmyndum eða bréfum
sem ekki hafa áður komið
fyrir almenningssjónir. Þeir
sem eru til í að leggja okkur
lið geta haft samband við
Margréti Tryggvadóttur
vegna mynda (mar-
gret@myndlist.is eða í síma
698 6494), eða við Halldór
Guðmundsson vegna bréfa
(halldor.gudmunds-
son@heima.is eða í síma
663 0035).
Að sjálfsögðu verður ekk-
ert birt úr bréfum nema með
leyfi viðkomandi rétthafa.
Með fyrirfram þökk,
Margrét
Tryggvadóttir,
Halldór Guðmundsson.
Gott boð hjá
borgarstjóra
ÉG vil þakka borgarstjóra
fyrir boð sem hann heldur
fyrir 70 ára á hverju ári en
þá er öllum boðið sem verða
70 ára á árinu. Boðið var
haldið í Ráðhúsinu laugar-
daginn 8. maí.
Kærar þakkir.
Ein sjötug.
Vel klæddir í
sjónvarpi
JÓHANNES vildi koma því
á framfæri að honum finnist
furðulegt þegar menn sem
koma fram í þáttum í sjón-
varpi eru ekki með bindi.
Finnst honum bæði Páll og
Bogi vera vel klæddir því
þeir séu alltaf með bindi.
Stefán frá Möðrudal
VÆRI ekki hægt að sýna
aftur í sjónvarpinu heimild-
arþátt um Stefán frá
Möðrudal sem sýndur var í
sjónvarpinu fyrir nokkrum
árum? Þetta var góður þátt-
ur um óvenjulegan lista-
mann.
Með fyrirfram þökk.
G.G.
Dýrahald
Kettlingur
fæst gefins
KETTLINGUR fæst gef-
ins, hann er voða sætur,
ljósgulur og bröndóttur.
Hann er síðasti af fjórum úr
systkinahópnum. Upplýs-
ingar í síma 867 6977 eða
568 4555.
Kettlingar
fást gefins
TVEIR blandaðir norskir
skógarkettlingar fást gef-
ins. Læða og högni, 9 vikna.
Upplýsingar í síma
899 8761.
Jasmín er týnd
í Garðabæ
JASMÍN týndist frá
Löngumýri í Garðabæ 13.
maí. Hún er með bleika ól
og mjálmar svolítið mikið.
Gæti hafa lokast einhvers
staðar inni. Allar upplýs-
ingar þegnar í síma
847 6671.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 eyðslusamur, 8 slátrar,
9 geta tekið við, 10 spil,
11 kaka, 13 líkamshlutar,
15 hlusta, 18 óreglu, 21
glöð, 22 í slæmu skapi, 23
óþreytt, 24 samsvarandi.
LÓÐRÉTT
2 dulin gremja, 3 biða, 4
að baki, 5 ýlfrar,6 feiti, 7
skordýr, 12 guð, 14
borðuðu,15 sleipur, 16
ökumaður, 17 virðið, 18
mikið, 19 klámfengið,20
afkomenda.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 storm, 4 fimur, 7 kaðal, 8 ástin, 9 dúr, 11 nart,
13 eiri, 14 endar, 15 fugl, 17 rauf, 20 ann, 22 teigs, 23
ískra, 24 messa, 25 karta.
Lóðrétt: 1 sýkin, 2 orður, 3 mild, 4 flár, 5 metti, 6 runni,
10 úldin, 12 tel, 13 err, 15 fótum, 16 glits, 18 askur, 19
flaka, 20 asna, 21 nísk.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html