Morgunblaðið - 18.05.2004, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 18.05.2004, Blaðsíða 48
FÓLK Í FRÉTTUM 48 ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ SHREK varð fyrsta teiknimyndin í heil 50 ár til að verða valin í að- alkeppni kvikmyndahátíðarinnar í Cannes árið 2001. Nú þremur árum síðar er framhaldið komið í sömu keppni, en þetta mun vera í fyrsta skiptið í 57 ára sögu hátíð- arinnar sem framhald myndar sem var í aðalkeppninni afrekar það einnig. Það mátti líka greina það eftir fyrstu sýningu á myndinni í Cannes, sem blaðamaður Morg- unblaðsins var viðstaddur á laug- ardagsmorgun, að aldrei þessu vant fögnuðu blaðamenn end- urkomunni vel og innilega. Mikið var hlegið á meðan á myndinni stóð en eins og við mátti búast er þráðurinn tekinn upp þar sem frá var horfið, með hveitibrauðs- dögum hinna nýgiftu hjóna Skrekks og Fíónu prinsessu. En Adam er ekki lengi í paradís því þau eru ekki fyrr komin heim í fenjagrenið hans en boð kemur frá foreldrum prinsessunnar, konungi og drottningu í Langt-í- burtu-landi að þau vilja hitta nýja tengdasoninn. Sem hefur síðan sprenghlægilegar afleiðingar. Stjörnur Vitanlega eru allar stjörnurnar með áfram sem léðu Skrekk, Fíónu og Asna raddir; Mike Myers, Cameron Diaz og Eddie Murphy að viðbættum nýjum kostulegum persónum þeim Stíg- vélaða kettinum sem Antonio Banderas mælir fyrir, foreldrum Fíónu sem Monty Python goð- sögnin John Cleese og Julie And- rews tala fyrir og svo heilladísin sem Jennifer Saunders úr Tild- urrófum (Absolutely Fabulous) leikur. Allar voru þessar stjörnur mættar til Cannes og ræddu við blaðamenn að sýningu lokinni. Mike Myers fór þar sérstaklega á kostum og grínaðist mikið með takmarkaða tungumálakunnáttu sína í svo alþjóðlegu umhverfi. „Ég er bara Kanadamaður,“ af- sakaði hann sig. Töluðu leikarar um hvernig hefði verið að vinna að mynd sem þeir þurftu ekkert að koma fram í sjálfir. Voru skiptar skoðanir um hversu gefandi það væri. Ju- lie Andrews sagði að sér hefði þótt svolítið spæl- andi að þurfa að leika allt ein, lokuð í hljóðveri án þess að hitta mótleikara sína á meðan Antonio Banderas sagði að sér hefði létt mikið að geta afgreitt sinn hluta einn, annars hefði hann haft svo mikla minnimátt- arkennd gagnvart öllum hinum frábæru grín- urunum í myndinni. Hann hefur þó ekkert að skammast sín fyrir Spán- verjinn því hann gefur þeim Myers og Murphy ekkert eftir og kemur virkilega á óvart í kóm- ískari gír en hann hefur áður verið. Það sem Cameron Diaz þótti hins vegar þægilegast við að talsetja var að þá hefði hún getað grett sig og geiflað í framan án þess að þurfa að hafa áhyggjur af útlitinu. „Og svo þarf maður að fara í sturtu og hafa sig til,“ bætti Myers þá við en leikstjórinn Andrew Adamson var fljótur að mótmæla því: „Jú, þú hefðir alveg mátt fara í sturtu stundum.“ Bæði yngri og eldri Grínið í Skrekk 2 er á sömu nótum og í hinni fyrri og mikið lagt upp úr því að hafa brandara sem höfða bæði til yngri og eldri áhorfenda. Þótt myndin standi kannski ekki alveg þeirri fyrri á sporði skorti t.d. sama ferskleika af eðlilegum orsökum, þá er hún smekkfull af fyndnum atriðum eins og heyra mátti allrækilega á blaðamannasýningunni þar sem menn hristust af hlátri í sætum sínum. Gagnrýnendur fagblað- anna Screen International, Var- iety og Hollywood Reporter voru greinilega þar á meðal því þeir hafa allir hælt myndinni í um- sögnum sínum og eru á einu máli um að merkilega vel hafi tekist til við að endurskapa snilldina sem var fyrsta myndin. Framleiðandi myndarinnar DreamWorks SKG, sem þeir eiga Steven Spielberg og Jeffrey Katz- enberg og David Geffen, kynnti líka hér í Cannes aðra teikni- mynd sem verður frumsýnd á árinu. Hún heitir Hákarlasaga (Shark’s Tale) og er eins konar mafíumynd sem gerist í und- irdjúpunum. Will Smith, Angelina Jolie og Jim Black eru meðal þeirra sem ljá fiskum raddir sín- ar og mættu til Cannes til að kynna þær. Katzenberg sagði að fleiri teiknimyndir væru í smíðum og á næsta ári kæmu t.a.m. út Madagaskar og kvikmyndagerð á bresku teiknimyndunum vinsælu um Wallace og Gromit. Skrekkur 2 var frumsýnd í Cannes um helgina Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Mike Myers var grínaktugur á blaðamanna- fundinum. Ennþá meiri Skrekkur skarpi@mbl.is Cannes. Morgunblaðið. Stóra svið Nýja svið og Litla svið DON KÍKÓTI eftir Miguel de Cervantes 3. sýn fi 27/5 kl 20 - rauð kort 4. sýn fi 3/6 kl 20 - græn kort 5. sýn su 6/6 kl 20 - blá kort CHICAGO eftir J. Kander, F. Ebb og B. Fosse Su 23/5 kl 20 Fö 28/5 kl 20 - UPPSELT Lau 29/5 kl 20, Fö 4/6 kl 20 Lau 5/6 kl 20, Lau 12/6 kl 20 Lau 19/6 kl 20 SÍÐUSTU SÝNINGAR Ósóttar pantanir seldar daglega LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Su 23/5 kl 14 Síðasta sýning í vor Miðasala: 568 8000 Nýr opnunartími: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00 - 18:00 miðviku-, fimmtu- og föstudaga: 10:00 - 20:00 laugardaga og sunnudaga: 12:00 - 20:00 www.borgarleikhus.is midasala@borgarleikhus.is NÝTT: Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is BELGÍSKA KONGÓ eftir Braga Ólafsson Fö 21/5 kl 20 SEKT ER KENND e. Þorvald Þorsteinsson Fi 3/6 kl 20, Síðasta sýning RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT Mi 19/5 kl 20, Fi 20/5 kl 20, Fö 21/5 kl 20 Örfáar sýningar LEIKLESTAR ACTE: Agnés eftir Catherine Anne (Frakkland) Eva, Gloria, Léa e. Jean-Marie Piemme (Belgía) Í dag kl 17 - Aðgangur ókeypis Boðun Benoît eftir Jean Louvet (Belgía) Frú Ká eftir Noëlle Renaude (Frakkland) Mi 19/5 KL 17 - Aðgangur ókeypis NORÐURLANDAFRUMSÝNING SCHAUBÜHNE: KÖRPER eftir SASHA WALTZ Fö 21/5 kl 20 - UPPSELT Lau 22/5 kl 14 - UPPSELT OPINN FUNDUR MEÐ SASHA WALTZ Lau 22/5 kl 15:45 í forsal IBM - A USERS MANUAL & GLÓÐ Jóhann Jóhannsson og Erna Ómarsdóttir. Margrét Sara, Birta og Kristín Björk. Lau 22/5 kl 20 - kr. 2.500 PÓLSTJÖRNUR - TÓNLEIKAR/TROMMUDANS Grænland - Belgía - Ísland Fi 27/5 kl 21 - kr 2.500 HUGSTOLINN - KAMMERÓPERA Marta Hrafnsdóttir, Sigurður Halldórsson, Daníel Þorsteinsson Fö 28/5 kl 20 - kr 2.500 BRODSKY KVARTETTINN Sjón, Ásgerður Júníusdóttir, Skólakór Kársness Lau 29/5 kl 16 - Miðasala Listahátíðar DANSLEIKHÚSIÐ - 4 NÝ VERK e. Irmu Gunnarsdóttur, Peter Anderson, Maríu Gísladóttur og Jóhann Björgvinsson Í kvöld kl 20, Þri 25/5 kl 20 Aðeins þessar tvær sýningar Á LISTAHÁTÍÐ: Laus sæti Laus sæti Lau. 22. maí laus sæti ALLRA SÍÐASTA SÝNING Miðasala í síma 562 9700 www.idno.is Opið öll kvöld Rauðu skórnir Mið. 19. maí. kl. 10.00 Secret Face Fös. 21. maí. kl. 21.00 Fös. 28. maí. kl. 21.00 MIÐASALA opnar 21. maí kl. 16.00 á þjónustuborði Smáralindar og í síma 528 8008 Viðskiptavinir Og Vodafone fá 20% afslátt á fyrstu 8 sýningarnar Fimmtudagur 24. júní FRUMSÝNING kl. 19.30 Föstudagur 25. júní Sýning nr. 2 kl. 19.30 Miðvikudagur 30. júní Sýning nr. 3 kl. 19.30 Fimmtudagur 1. júlí Sýning nr. 4 kl. 19.30 Föstudagur 2. júlí Sýning nr. 5 kl. 19.30 Sunnudagur 4. júlí Sýning nr. 6 kl. 17.00 Fimmtudagur 8. júlí Sýning nr. 7 kl. 19.30 Föstudagur 9. júlí Sýning nr. 8 kl. 19.30 JÓNSI SVEPPI Eldað með Elvis Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar: Fös. 21/5 kl. 20. Örfá sæti laus Lau. 22/5 kl. 20. Örfá sæti laus Aðeins þessar sýningar Miðasölusími 462 1400 www.leikfelag.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.