Morgunblaðið - 20.05.2004, Blaðsíða 23
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2004 23
Þingholt | Starfsmenn fyrirtækjanna
Hreinsibíla og Fóðrunar ehf. höfðu nóg að
gera í Freyjugötu og á Grundarstíg á dög-
unum þegar þeir unnu við að fóðra klóakrör-
in í holræsakerfinu. En þetta verkefni er
unnið á vegum Fráveitu Reykjavíkur, sem
heyrir undir Gatnamálastofu.
Verkið felst í því að búin er til lögn úr
trefjaplasti innan í gömlu klóaklögnina og
gamla lögnin notuð sem form. Þannig mynd-
ast mun sterkari lögn og endingarbetri. Að
sögn Péturs Þórs Kristinssonar, yfirverk-
stjóra holræsadeildar hjá Fráveitu Reykja-
víkur, þrengist lögnin einungis um nokkra
millimetra en rennslishæfni lagnanna eykst
til muna. „Skilvirkni eða flutningsgeta
lagnarinnar verður um 20% meiri en með
steinlögn, þar sem yfirborðið er sléttara og
hálla og því rennur skólpið greiðar í gegn,“
segir Pétur og bætir við að unnið verði á
fullu í þessu verkefni í sumar og næstu ár.
„Við erum að endurnýja lagnirnar gagngert
með þessum hætti, sérstaklega í elsta hluta
borgarinnar þar sem kerfið er verst farið.
Þetta er gert til að koma í veg fyrir að það
þurfi að loka götum, þá er þetta miklu fljót-
virkari aðferð til endurgerðar á lögninni.“
Betra en að grafa upp götuna
Einn af aðalkostunum við að nota þessa
aðferð segir Pétur þann að gatan sé miklu
fyrr tilbúin fyrir íbúana og fólk eigi miklu
betri aðkomu að íbúðum sínum. „Öryggis-
þættir eins og lögregla, slökkvilið og sjúkra-
bílar komast líka mun betur að, ef ekki þarf
að grafa upp götuna til að endurnýja lagn-
irnar.“
Að sögn Péturs eru lagnirnar mismunandi
að breidd, en algengast er að þær séu um
230 til 400 millimetrar að þvermáli. „Trefja-
sokknum er blásið inn í og svo er hann hert-
ur upp með heitu vatni eða útfjólubláu ljósi.
Efnið sem er notað í lagnirnar er ekki óskylt
því sem notað er í bátasmíði.“
Unnið við endurnýjun klóaklagna með trefjaplasti í Þingholtunum
Sterkari og betri lagnir
Morgunblaðið/Jim Smart
Þarfaverk: Mikið sparast ef ekki þarf að rífa upp heilu göturnar til að laga lagnir.
Verðlaunagarður | Minjagarður-
inn að Hofsstöðum í Garðabæ verð-
ur opnaður formlega á morgun
klukkan 15.30. Í minjagarðinum eru
varðveittar minjar frá landnámsöld
sem sýna að á Hofsstöðum var stór-
býli, en þar eru minjar af næst-
stærsta landnámsaldarskála sem
fundist hefur hér á landi. Þá benda
minjar um soðholur við skálann til
hátíðahalds að Hofsstöðum á land-
námsöld. Við opnunina verður sá sið-
ur endurvakinn með hátíð, þar sem
víkingar bera fram veitingar að
hætti landnámsmanna.
Opið hús í Regnboganum | Í dag
verður opið hús í leikskólanum
Regnboganum, að Bleikjukvísl 10,
milli kl. 10.30 og 13.00. Gefst þá fjöl-
skyldum barnanna og öðrum gestum
kostur á að skoða leikskólann auk
þess sem sýning verður á verkum
barnanna.
Foreldrafélag leikskólans verður
með kaffisölu til styrktar Menning-
ar- og skemmtisjóði félagsins. Jafn-
framt býður foreldrafélagið börn-
unum upp á brúðuleikhússýninguna
Englaspil sem Helga Arnalds sér
um.
Kópavogur | Bæjarstjórn Kópavogs sam-
þykkti samhljóða eftir nokkrar umræður til-
lögu að deiliskipulagi fyrir Lundarsvæðið til
auglýsingar. Þar er gert
ráð fyrir lítillegum breyt-
ingum á skipulaginu, en
óbreyttri íbúðatölu, 384
íbúðum í stað 390 eins og
tillaga Gunnars Birgis-
sonar, sem samþykkt var
úr bæjarráði fyrr í mán-
uðinum sagði til um.
Skipulagsbreytingum úr
þeirri tillögu var haldið
inni þótt íbúðum væri
fækkað aftur í upprunalega tölu.
Hin breytta tillaga felur í sér: „heimild til
að byggja 384 íbúðir að stofni til í fjölbýli en
austast á svæðinu næst núverandi byggð við
Birkigrund, er gert ráð fyrir sérbýli, bæði
raðhúsum og parhúsum. Hæð sérbýlisins
verður 1–2 hæðir. Uppi við Nýbýlaveg er
gert ráð fyrir fjórum 8 til 9 hæða byggingum
auk kjallara og þakhæðar en neðar á svæð-
inu verða 2–5 hæða klasabyggingar. Þétt-
leiki byggðarinnar er áætlaður um 40 íbúðir
á ha og fjöldi íbúa um 1.100. Miðsvæðis er
tekin frá lóð undir leikskóla.“
Tillagan var að lokum samþykkt með öll-
um ellefu greiddum atkvæðum og lýstu
bæjarfulltrúar yfir ánægju sinni með að sátt
væri komin í málið, sérstaklega þar sem
hlutfall sérbýlis væri aukið. Skipulagið fer
nú til auglýsingar í sex vikur og gefst al-
menningi kostur á að gera athugasemdir við
það áður en það kemur til endanlegrar af-
greiðslu.
Áfram 384 íbúðir
í Lundarhverfi
Álftamýri | Nemendur í níunda
bekk RR í Álftamýrarskóla héldu
nýlega sumarskemmtun fyrir
krakkana í fimmta til sjöunda bekk.
Allur ágóði af sumarskemmtuninni
rann til Styrktarfélags krabba-
meinssjúkra barna.
Níundubekkingarnir eyddu fjöl-
mörgum stundum í undirbúning til
að skemmtunin gæti staðið undir
nafni. Meðal annars var salur skól-
ans skreyttur með fiðrildum,
stórum Afríkudýrum, blómum og
sólum. Einnig var útbúið bréf til
foreldra, auglýsingar og aðgöngu-
miðar. Krakkarnir útveguðu við-
urkenningar, happdrættisvinninga
og veitingar sem seldar voru í
sjoppunni. Tónlistin var sérvalin
með tilliti til áhuga krakka á mið-
stigi og allt gert til að skapa
skemmtilega umgjörð.
Að sögn kennara heppnaðist
sumargleðin frábærlega vel og var
gaman að fá að fylgjast með hversu
vel unga fólkið stóð að öllum undir-
búningi og framkvæmd. Þegar upp
var staðið höfðu safnast 60.000
krónur, auk þess sem krakkarnir
gáfu GSM-síma sem þeir höfðu
fengið af þessu tilefni. Rósa Guð-
bjartsdóttir hjá Styrktarfélaginu
kom í lífsleiknitíma, tók á móti
ágóðanum, skilaði kærum þökkum
frá félaginu og kynnti um leið starf-
semi þess.
Sumarskemmtun til
styrktar veikum börnum
Hvað væri upp á teningnum í
fjármálunum ef fyrirvinna þinnar
fjölskyldu myndi veikjast eða falla frá?
Taktu ábyrgð á þínu lífi.
Þú færð Lífís líf- og sjúkdómatryggingu
hjá VÍS. Hafðu samband strax í dag í
síma 560 5000
Þú greinist með alvarlegan sjúkdóm
og missir tímabundið úr vinnu.
Íbúðarlánin eru í uppnámi og þú
óttast að missa fasteign þína. Ef þú
ert með Lífís sjúkdómatryggingu
hefur þessi reitur ekki fjárhagsleg
áhrif.
Þú selur nokkur sterlingspund og
græðir á því 250 kr.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
9
2
6
7
Vátryggingafélag Íslands
Ármúla 3 · 108 Reykjavík
Þjónustuver 560 5000 · www.vis.is
Útgefandi Lífís trygginga er
Líftryggingafélag Íslands hf. · www.lifis.is
Endurskinsvesti fyrir börnin |
Krakkar í Hafnarfirði fengu
ánægjulega sumargjöf þegar Magn-
ús Gunnarsson, bæjarfulltrúi og úti-
bússtjóri Sjóvár-Almennra í Hafnar-
firði, kom færandi hendi á skóla-
skrifstofu bæjarins í gærmorgun og
færði leikskólum bæjarins 300 end-
urskinsvesti að gjöf frá Sjóvá-
Almennum. Magnús Baldursson
fræðslustjóri þakkaði nafna sínum
gjöfina en það voru börn af leikskól-
anum Víðivöllum sem tóku við vest-
unum sem munu koma sér vel í um-
ferðinni.